Vikublaðið


Vikublaðið - 05.11.1993, Síða 7

Vikublaðið - 05.11.1993, Síða 7
VIKUBLAÐIÐ 5. NOVEMBER 1993 Jafnréttiö 7 Ályktun kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins í Vesturlandi Fundur um kjördæmamál haldinn á vegum kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Vesturlandi í Rein á A kranesi 31.10. 1993 samþykkir að beina því til forystumanna og stofnana flokksins að við umfjóllun um kjördæmamál leitist þeir við að ná samstöðu við aðrar stjómmálahreyfingar um kjördæmaskipan og kosningareglur, sem tiyggi íbúum á landsbyggðinni fulltrúa á Alþing með svipuðum hætti og verið hefitr og auki ekki togstreitu milli þéttbýlis og dreifbýlis. Takist ekki að tryggja þessi markmið með lagfæringum á núgildandi fyrirkomulagi fylgi þeirfram þeiiri stefnu að öllum íbúum álandinu verði ttyggðurjafit réttur gagnvart löggjafarsamkomunni meðþví að landinu verði breytt í eitt kjördætni. Samþykkt með þoira atkvæða gegn tveimur. ástandið yrði líkt því og það var fyrir 1959. I framsögunni ræddi Ragnar einnig um það að þeir frambjóð- endur sem væru þekktir um allt land stæðu betur að vígi en þeir sem hefðu getið sér orð í afmörk- uðum landshlutum. Einstaklingar sem hefðu oft kornið frarn í sjón- varpi myndu þykja álitlegri fram- bjóðendur en aðrir. - Eg er hræddur um að „sjón- varpslistar" yrðu lagðir fram við kosningar. Ragnar taldi ókosti einmenn- ingskjördæma svo augljósa að það þyrfti ekki að hafa mörg orð um þann möguleika. Hann benti þó að í einmenningskjördæmum væri það reynslan að tveir flokkar kepptu um meirihlutann. Kerfið býður upp á miklar sveiflur, sam- anber nýafstaðnar kosningar í Kanada. Þá getur það gerst að flokkur með 30-35 prósent kjör- fylgi fái meirihluta þingmanna í sinn hlut. - Báðar þessar leiðir, annarsveg- ar að gera landið að einu kjördæmi og hinsvegar að búa til einmenn- ingskjördæmi, eru fráleitar, var niðurstaða Ragnars Arnalds. Betra aðfæra til og breyta Ragnar taldi heppilegra að draga úr misvægi atkvæða með öðrum aðferðum. Hann nefndi þann möguleika að færa samtals 5 þing- menn frá landsbyggðarkjördæm- um til Reykjavíkur og Reykjanes- kjördæmis. Onnur útfærsla væri að fækka kjördæmum með því að slá þeim saman; Vesturland og Vestfirðir yrðu eitt kjördæmi með 7 þing- menn, Norðurland eitt með 10 þingmenn, Austurlandskjördæmi yrði óbreytt en þingmönnum þess fækkað um einn. Með þessum hætti væri hægt að flytja 6 þingsæti í þéttbýliskjördæmin tvö og með því að ákveða að flakkarinn svokall- aði færi annað hvort til Reykjavíkur eða Reykjanes þá væri búið að flytja 7 þingsæti. Með slíkum breytingum yrði vægi atkvæða þannig að landsbyggðarkjósendur hefðu eitt og hálft atkvæði á móti hverju einu í þéttbýli. Þriðja hugmyndin sem Ragnar nefndi er að færa kjördæmamörkin til þannig að Hafnarfjörður, Kópa- vogur og Bessastaðir yrðu eitt kjör- dæmi með 10 þingmenn; Vestur- landskjördæmi yrði skipt þannig að eitt kjördæmi næði ffá Mosfellsbæ til og með Borgarfjarðar- og Mýr- arsýslu; annað tæki við frá Snæ- fellsnesi og tæki með sér Vestfjarð- arkjördæmi að Ströndum. Hvort kjördæmi um sig hefði 4 þing- menn. Norðurlandskjördæmi vestra tæki til sín Strandasýslu en stæði að öðru leyti óbreytt og það sama gilti um Norðurland eystra. Austurland yrði stækkað í suðurátt á meðan Suðurnes og Suðurland yrðu eitt kjördæmi. Reykjavík stæði óbreytt og hefði 23 þingmenn. - Kosmrinn við þessa hugmynd er að hvert kjördæmi stendur að lágmarki undir íjórum þingmönn- um. Ókosturinn er aftur sá að Reykjavík er eitt kjördæmi og erfitt að brjóta það upp, sagði Ragnar. (Einn áheyrenda stakk upp á því að færa Breiðholtið yfir í Suðurlands- kjördæmi.) Ragnar lauk frainsögu sinni með því að segja að menn ættu ekki að vera blýfastir með kjördæmin eins og þau eru núna, það sé sjálfsagt að athuga með breytingar á þeim. Ur salnum kom spurning ffá Önnu Guðrúnu Þórhallsdóttur til Ragnars Arnalds um það hvort hann teldi að umræðan um kjör- dæmamálið myndi leiða til breyt- Pólitíkin myndi eflast heima í héraði eflandiðyrði gert að einu kjördæmi, sagði Sktíli Alexand- ersson. inga á næstunni. - Umræðan er enn á frumstigi. Framhaldið veltur á því hvort for- ystutnenn flokkanna geta kornið sér inná eina línu, gera landið að einu kjördæmi, búa til einmenn- ingskjördæmi eða annað. Þetta gemr þvælst fyrir mönnum, svaraði Ragnar. Ogurstund fái þéttbýlið meirihluta Á eftir Ragnari sté Jóhann Ár- sælsson í pontu. Hann kvaðst ekki hafa endanlega gert upp hug sinn í kjördæmamálinu. - En það eru alvarlegir gallar á þeiin hugmyndum sem Ragnar kynnti. Þær gera ráð fyrir því að þingmenn þéttbýlisins á Suðvest- urhorninu komist í meirihluta á Alþingi. Það hefur heldur hallað á dreifbýlið í núverandi kerfi en ef afgerandi meirihluti þingmanna kemur frá þéttbýlinu verður þetta enn erfiðara fyrir okkur. Það verð- ur ögursmnd þegar menn fara út í slíka breytingu sagði Jóhann. Hann sagði að Reykjavíkurþing- menn hafi ekki raunveruleg verk- efni eins og þingmenn annarra kjördæma og að verkefni myndu sannarlega ekki aukast þótt þing- mönnum Reykjavíkur og Reykja- ness yrði fjölgað. - Verkskiptingin er nógu vitlaus eins og hún er og myndi versna til muna ef þingmönnum þéttbýlisins fjölgaði. Jóhann taldi að hugmynd Ragn- ars um að færa kjördæmamörkin myndi ekki falla í góðan jarðveg. Hann andmælti samlíkingu Ragn- ars við verkalýðsfélög og taldi að innganga Islands í Evrópska efna- hagssvæðið muni riðla skiptingu verkalýðsfélaga í starfssvæði. - Ef landið yrði gert að einu kjördæmi þá verður ekki lengur þessi togstreita milli þéttbýlis og dreifbýlis. Flokkarnir myndu taka upp ný vinnubrögð og þingmenn myndu líta á sig sem fulltrúa þjóð- arinnar allrar, sagði Jóhann en minnti jafnframt á þann vanda sem skapaðist þegar raðað yrði á einn landslista. - Eg tel að núverandi kerfi sé vel heppnað en hef sanit ekki trú á því að það haldi. Þess vegna vil ég að við skoðum það vandlega að gera landið að einu kjördæmi, sagði Jó- hann. Ekkifækka þing- mönnum Skúli Alexandersson, fyrrverandi þinginaður Vesturlands, lýsti á- nægju með ráðstefnuna og taldi það gott að ná umræðunni um kjördæmamálið út úr þinginu. - Við verðum að gera ráð fyrir að kjördæmaskipuninni verði breytt og þess vegna er mikilvægt að við ræðum þetta. Skúli taldi það undirstöðuatriði að nógu margir þingmenn koini til starfa svo að þeir geti veitt embætt- ismönnum og framkvæmdavaldinu aðhald. Hann vísaði til þess mögu- leika að ef stjórnmálaflokkur með 14 prósent fylgi færi inn í ríkis- stjórn þá væri líklegt að helftin af þingmönnum flokksins yrðu ráð- herrar. Afgangurinn af þingflokkn- Eins gott að stíga skrefið tilfulls og gera landið að einu kjör- dæmi, var skoðun Ríkards Biynjálfssonar. utn væri ekki í stakk búinn að veita ffamkvæmdavaldinu aðhald, að á- liti Skúla. - Ef fleiri þingmenn verða merktir suðvesmrhorninu en nú er þýðir það að fleiri þingmenn verða óvirkir og telja sig ekki ábyrga gagnvart neinum. Og ég öfunda ekki þann þingmann Alþýðu- bandalagsins sem ætti að sinna Vesturlandi og Vestfjörðum, ef kjördæmunum verður slegið sain- an, sagði Skúli og taldi öll tormerki á því að leiðrétta misvægi atkvæða með fjölgun á þingmönnum Reykjavíkur og Reykjanes. Hann hallast að því 'að betra sé að gera landið að einu kjördæmi. - Pólitísk starfsemi heima í hér- aði myndi eflast ef landið yrði gert að einu kjördæmi. Eins og málum er nú háttað göngum við að því sem vísu að eiga einn þingmanna, við komum sainan til að kjósa og erum ánægð með það. En ef landið er eitt kjördæmi þá er ekkcrt sjálf- sagt og við þyrftum að halda uppi lifandi starfi. Eg er ekki hræddur við það að flokksforystan verði ráð- andi. Stjónrmálaflokkar gætu ekki leyft sér að láta starfið heima í hér- aði drabbast niður ef landið væri eitt kjördæmi, staðhæfði Skúli. Persónulegur „lobbý- ismi" Ríkard Brynjólfsson sagði að mörgu að hyggja í umræðunni. Þótt það hafi mikið að segja hvar þing sé haldið þá er ekki öll sagan sögð. Ríkard beindi orðurn sínum ril Ragnars Arnalds þegar hann sagði að sennilega væri betur búið að grunnskólanum í Varmahlíð en Reykjavík, heilsugæslan væri þar betri og sennilega líka samgöng- urnar. Hann sagði hlutverk alþingis- manna að gæta hagsmuna tiltek- inna landshluta og í því samhengi væm þinginenn Reykjavíkur háif munaðarlausir, þeir hefðu ekkert bakland. Ef landið yrði eitt kjör- dæmi myndi hagsmunagæsla leggj- ast af í núverandi mynd og það væri í vissum skiLningi gott. Þó ekki al- gott því sennilega kæmi í staðinn „persónulegur lobbýismi" þar scm menn myndu leggjast á einstaka þingmenn sem hefðu greiðan að- gang að ráðherrum. Ríkard taldi ekki líklegt að sljákka myndi í þeim sem krefjast jöfimn atkvæðisréttar fyrr en fullu jafhræði væri náð, hver inaður hefði eitt atNæði. Því væri eins^gott að stíga skrefið til fulis og gera landið að einu kjör- dæmi. Bergþóra Gísladóttir sagði fleiri spurningar en svör í umræðunni og að hún ætti að snúast um það að Flýtum okkur hægt en einskorð- um umræðuna ekki við Alþingi, var álit Bergþóm Gísladóttur. gera lýðræðið sein virkast. Hún varaði við því að rnenn flýttu sér of mikið ineð þetta mál en tók undir með Skúla að gott sé að einskorða ekki umræðun við Alþingi. Anna Guðrún Þórhallsdóttir sagði að því rneira sem hún hugsaði um landið sem eitt kjördæmi því meira væri hún á móti hugmynd- inni. Það væri vís leið til að veikja landsbyggðina vegna þess að þegar frarn liðu stundir yrðu þingmenn af Reykjanesi og Reykjavík í meiri- hluta á Alþingi. Kjördæmin eru öryggisnet Ragnar Arnalds tók aftur til máls og sagði það rétt að við- næstu breytingu á kjördæmum og kosn- ingalögum þá stefndi í það að Reykjavík og Reykjanes fengju meirihluta þingmanna í sinn hlut, enda byggi 65 prósent þjóðarinnar í þessum kjördæmum. En hann lagði áherslu á að kjördæmaskip- unin gæfi landsbyggðinni ákveðið öryggi og það væri enn fyrir hendi þó að heildarfjöldi landsbyggðar- þingmanna yrði lægri en fjöldi þéttbýlisþingmanna. Skúli Alexandersson skaut þeirri spurningu að Ragnari hvort flokk- arnir gætu ekki séð um það að tryggja að landsbyggðin yrði ekki sniðgengin við val á framboðslista. Ragnar var ekki trúaður á það. Ragnar vildi að það kæmi fram að hann teldi 90 prósent af tima sínum fara í það að vera þingmaður þjóðarinnar allrar en 10 prósent í það að sinna kjördæminu. Hann sagði að þingmenn myndu hafa yf- irborðslegri þekkingu á landinu ef það yrði gert að einu kjördæmi og rifjaði upp tilvik þar sem þingmenn unnu framfaramálum brautargengi á meðan kerfið í Reykjavík streittíst á móti. Dærni um þetta væru frain- haldsskólarnir á ísafirði, Egilsstöð- um og á Sauðárkróki. Erling Olafsson sagði fulla á- stæðu að skoða hugmyndina um að gera landið að einu kjördæmi, en minnti á að menn væru alltaf að tala unt rétt Reykvíkinga og Reyknesinga í kjördæmamálinu en segðu fátt um rétt landsbyggðar- innar á öðrum sviðum. - Höfuðbólið Reykjavík sogar allt tíl sín sem hjáleigan lands- byggðin framleiðir. Við eigum að fá það tíl okkar aftur sem við fram- leiðum, sagði Erling. A að álykta? Þegar hér var komið nálgaðist ldukkan sex og inenn töldu ástæðu til hyggja að ráðstefnulokum, þótt enn væri margt órætt. Jóhann Ar- sælsson tók til máls og sagðist sjá fyrir sér að átök inilli þéttbýlis og dreifltýlis muni aukast á næsmnni. Þó lægi ekkert á að afgreiða kjör- dæmamálið því að ekki stæði tíl að taka ákvörðun um málið í bráð. Hitt væri samt sem áður nauðsyn- legt að búa fólk undir það að málið gæti komist á framkvæmdastig. Síðan las Jóhann upp tillögu að ályktun ráðstefiiunnar uin kjör- dæmamálið. AIl nokkur umræða spannst um það hvort ástæða væri til að álykta. Ragnar Arnalds kvaðst ekld vilja skipta sér af málinu en lét það samt koma fram að hann teldi ekki tínta- bært að álykta og óttaðist að önnur kjödæmi myndu álykta á móti kjör- dæmisráði Alþýðubandalagsins á Vesturlandi. Skúli Alcxanderson sagði að fyrst ráðstefnan hefði verið auglýst væri kyndugt ef ekkert heyrðist af niðurstöðu. - Grasrótín er að spjalla um þetta og hið besta mál að það heyr- ist frá oklcur, sagði Skúli. Ríkard Brynjólfsson lýsti sig sammála ályktunni en óttaðist að hún kynni að vera ntisskilin, meðal annars vegna mögulegrar rang- túlkunar í fjölmiðluin. ^ Bergþóra Gísladóttir og Anna Guðrún Þórhallsdóttir vildu fara hægt í sakirnar og Anna Guðrún lagði til að seinni liður tillögunnar yrði strikaður út. Tillaga Önnu var félld með þorra atkvæða gegn tveim og eftir óverulegar lagfæringar var upphaf- lega tillagan að ályktun ráðstefn- unnar samþykkt með sama níeiri- hluta. (Sjá rarnma). Klukkan var langt gengin í sjö þegar fundarstjóri Sveinn Kristins- son sleit ráðstefnunni. Páll Vilhjálmsson. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík HAUSTÞING Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík verður haldið á Hótel Esju laugardaginn 6. nóvember nk. kl. 13-17.30. Dagskrá: 13.00 Setning. Árni Þór Sigurðsson formaður Kjör- dæmisráðsins 13.10 Tillögur að ályktunum. Arthúr Morthens vara- formaður Kjördæmisráðsins 13.25 Stefnumörkun Alþýðubandalagsins. Ólafur Ragnar Grímsson formaður 13.45 Pólitísk verkefni framundan. Steingrímur J. Sigfússon varaformaður Alþýðubandalagsins 14.05 Umræður 15.00 Málefnavinna: Atvinnumál - Félagsleg þjónusta - Fjárhags- mál og stjórnkerfi borgarinnar - Skóla-, æskulýðs- og menningarmál - Skipulags- og umhverfismál 16.15 17.00 1994 17.30 Hópstjórar: Arthúr Morthens, Einar Gunnarsson, Guðrún Kr. Óladóttir, Gunnlaugur Júlíusson, Kristinn Karlsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir Niðurstöður hópa ræddar Almennar umræður um ályktanir og afgreiðslu þeirra Alþýðubandalagið og borgarstjórnarkosningar Fulltrúar Alþýðubandalagsfélaganna í Reykja- vík: Einar Gunnarsson, form. ABR, Kjartan Valgarðsson, form. Birtingar, Sigþrúður Gunnarsdóttir, í stjórn ÆFR og Verðandi Þingslit. Árni Þór Sigurðsson Kaffiveitingar framreiddar á meðan á hópvinnu stendur. Stjórnin

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.