Vikublaðið - 07.01.1994, Síða 1
Minnismerki
meirihluta
Á glundroðakenningin við rök
að styðjast? Hvað gerði vinstri
meirihlutinn 1978-1982? Kunna
vinstrimenn að passa peninga
Reykvíkinga? Svörin á bls. 4
Öskubuska fer á
markaðinn
Konur í Austur-Evrópu gegndu
lykilhlutverki í andófshreyfing-
unni en uppgötva nú að lýðræði á
vestræna vísu jafhgildir hrein-
ræktuðu karlaveldi. Bls. 10
DV - Tími - Moggi
DV-menn yfirtóku Tímann til
að ná fótfestu á morgunblaðs-
markaðinum. Málgagn Fram-
sóknarflokksins er núna í end-
urhæfingu en með vorinu má
búast við tímamótum. Bls. 8-9
1. tbl. 3. árg.
7. janúar 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
stjórnvöld í Bandaríkjunum til að
hafa meiri hernaðarumsvif á Is-
landi en þau hefðu kosið. Án um-
boðs frá Alþingi, utanríkisnefnd
eða þjóðinni og í skjóli leyndar var
utanríkisráðherra að framfylgja
hernaðarstefhu sem enginn aðili í
íslenska stjórnkerfinu hefur sam-
þykkt. Þessi afstaða utanríkisráð-
herra er í mótsögn við þá yfirlýstu
stefnu að ekki ætti að vera her á Is-
landi á friðartímum," segir í álykt-
uninni.
Samtök herstöðvarandstæðinga
efhdu til útifundir á Lækjartorgi á
miðvikudag til að mótmæla áfram-
haldandi veru bandaríska hersins á
Islandi og afhentu forsætisráðherra
samþykkt þess efnis.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
fagnar áformum Bandaríkjahers að
draga saman starfsemi sína og
hvetur íslensk stjórnvöld til að
hefja nú þegar viðræður við Banda-
ríkjamenn urn að undirbúa brottför
hersins á skipulegan hátt.
Þá bendir þingflokkurinn á að
mikilvægt sé að markvissum að-
gerðum verði beitt í atvinnumálum
Suðurnesja um leið og viðræður
uin uppsögn varnarsamningsins
fara fram.
Sú aðstaða sem Bandaríkjaher
mun skilja eftir - íbúðarhús, vinnu-
skálar, flugskýli og fleira - getur
nýst til að efla íslenskt atvinnulíf og
skapa fyrirtækjum, stórum og smá-
um, ný txkifæri.
A Suðurnesjum eru uppi ýmsar
hugmyndir um að nota aðstöðuna
sem verður eftir þegar herinn fer.
- Við þurfum ekki á nýjum betli-
ferðum að halda heldur eigurn við
að einbeita okkur að því að skjóta
styrkum stoðum undir atvinnufyr-
irtæki á Suðurnesjum. Það er mik-
ilvægt að nota næstu tvö árin til að
efla atvinnulífið á svæðinu og í
þeim efhum kemur margt til
greina, segir Ólafur Ragnar
Grímsson, forinaður Alþýðu-
bandalagsins.
Utanríkisráðherra krafðist meiri hern-
aðarumsvifa á íslandi en Bandaríkja-
menn höfðu hug á. Hermangsstefnan
ekki borin undir neinn aðila í íslenska
stjórnkerfmu. Alþýðubandalagið mót-
mælir framgöngu utanríkisráðherra en
fagnar samdrætti Keflavíkurstöðvarinn-
ar. Atvinnulíf á Suðurnesjum þarf að
efla. Margir möguleikar fyrir hendi.
Amnesty skrifar Havel
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International hafa skrifað
Vaclav Havel, forseta Tékklands,
bréf þar sem þau lýsa yfir áhyggj-
um sínum yfir löguin flóttamenn
sem tékkneska þingið samþykkti í
haust. I bréfinu segir að lögin
stangist á við alþjóðasáttmála um
réttarstöðu flóttamanna sem
Tékkland á aðild að. Lögin gera
ráð fyrir að flóttamenn sæki um
leyfi til yfirvalda til að dvelja í
Tékklandi nánast samstundis eft-
ir að þeir eru komnir yfir Ianda-
inærin, annars verði umsókninni
synjað. Þá eru í lögunum strang-
ar takinarkanir á viðtöku flótta-
manna í Tékklandi.
Herstöðvarandstæðmgar efitdu til lítifundir á Lækjartorgi til að mátmæla áframhaldandi veru Bandaríkjahers.
Salan á SR-mjöli:
Alþýðubandalagið
fer fram á rannsókn
ingflokkur Alþýðubanda-
lagsins ákvað á miðviku-
dag að óska efitir því við
formann sjávarútvegsnefhdar
Alþingis, Mattliías Bjamason, að
rannsakað verði hvort eðlilega
hafi verið staðið að sölu SR-
ntjöls h.f.
I bréfi til Matthíasar sem þeir
Jóhann Ársælsson og Steingrímur
J. Sigfússon undirrita fyrir hönd
þingflokksins segir að nauðsynlegt
sé að kanna til hlítar hvort ásakanir
um að hagsmuna ríkisins hafi ekki
verið gætt sem skyldi og eðlilegar
reglur urn útboð hafi verið brotnar
eigi við rök að styðjast.
Þá fer þingflokkurinn fram á að
könnuð verði hagsmunatengsl
milli Verðbréfamarkaðar Islands-
banka sem annaðist undirbúning
sölunnar og kaupendanna og enn-
fremur hvort pólitísk misbeiting
hafi átt sér stað og ráðið framgangi
málsins.
I bréfinu segir orðrétt. „Þing-
flokkur Alþýðubandalagsins telur
að mjög óskynsamlega hafi verið
staðið að ákvarðanatöku í þessu
máli frá upphafi.
Þegar lögin um stofnun hlutafé-
lags um Sfldarverksmiðjur ríkisins
voru samþykkt vildi stjórnarmeiri-
hlutinn ekki fallast á breytingatil-
lögur ininnihlutans sem gengu út á
það að mjög varlega yrði farið við
sölu á eignarhlutum í fyrirtækinu
og í upphafi yrðu einungis seld
40%.
Til að gera kaupin áhugaverðari
voru fyrirtækinu lagðar til 540
milljónir króna en það síðan selt nú
á 725 milljónir króna. Hagnaður
ríkisins af sölunni er því 185 millj-
ónir króna (mínus einkavæðingar-
kostnaður) en hagnaður af rekstri
SR-mjöls hf. er áætlaður á árinu 2-
300 milljónir króna og útilitið er
gott á næstu vertíðum."
- sjá frétt á baksíðu
Jón Baldvin Hannibalsson
stóð í stappi við bandarísk
hermálayfirvöld í marga
mánuði efitir að Bandaríkjamenn
sendu utanríkisráðuneytinu
skeyti þess efnis að þeir vildu
leggja niður herstöðina á Kefla-
víkurflugvelli í núverandi mynd.
Jón Baldvin neitaði að greina Al-
þingi og utanríkismálanefnd þess
frá tillögum Bandaríkjamanna og
reyndi á bakvið tjöldin að fá hern-
aðaryfirvöld til að hverfa frá fyrir-
huguðum niðurskurði. Þetta varð
opinbert eftir að samkomulag rík-
isstjórnarinnar við Bandaríkja-
menn var kunngjört á þriðjudag.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
sainþykkti ályktun á miðvikudag
þar sem málsmeðferð utanríkisráð-
herra er fordæmd.
„Nú hefúr það verið staðfest að
mánuðum saman hefur Jón Bald-
vin Hannibalsson reynt að knýja
Jón Baldvin Hannibalsson fór ekki
bónleiður til búðar Bandaríkja-
manna: Herinn hætli við umfangs-
mikinn niðurskurð eftir aðformað-
ur Alþýðuflokksins hermangaði til
við þá.
Jón Baldvin blekkti og betlaði
FuUur skriður á framboðsmálinu
Skriður er kominn á viðræð-
ur minnihlutaflokkanna í
Reykjavík um sameiginlegt
framboð og sameiginlegt borg-
arstjóraefni vegna borgarstjóm-
arkosninganna í vor. Á þriðju-
dagskvöld var haldinn fundur
fulltrúa minnihlutaflokkanna
sem staðfesti vilja þeirra til að
halda áfram tilraunum til að
finna flöt á hugsanlegu samstarfi
í aðdraganda kosninganna. Guð-
rún Ogmundsdóttir, borgarfull-
trúi Kvennalistans sem ásamt
Framsóknarflokknum var til
skamms tíma andsnúinn viðræð-
um um kosningasamstarf, segir í
samtali við Vikublaðið að cnnþá
séu viðræðurnar í raun aðeins ó-
formlegt spjall yfir kaffibolla, en
ljóst sé að þær þurfi að ldárast
"ekki seinna en í gær" ef af sam-
eiginlegu framboði á að verða.
Búist er við að félagsfundur
Kvennalistans sem haldinn
verður 13. janúar taki afstöðu til
viðræðnanna.
Guðnin Ogmundsdóttir játar
því injög afdráttarlaust þegar hún
er innt eftir afstöðu hennar til þess
hvort Alþýðuflokkurinn eigi að
vera aðili að framboðinu ef afverð-
ur.
- Ef allir minnihlutaflokkarnir
eiga að koma að þessu þá innifelur
það auðvitað Alþýðuflolckinn.
Landsmálin og borgarmálefnin
spila vissulega saman en við höfum
heldur enga tryggingu fyrir því, svo
dæmi sé tekið, að Alþýðubanda-
lagið fari ekki í rfldsstjóm með
Sjálfstæðisflokknum á kjörtímabil-
inu, segir hún.
Af þróuninni síðustu daga og
vikna iná ráða að hugmyndin um
sameiginlegt framboð er að vinna
sér breiðara og öflugra fylgis innan
flokkskjarnanna en var í haust, en
allir sem Vikublaðið ræddi við eru
sammála um að viðræðurnar séu á
mjiig viðkvæmu stigi. Þannig hefur
þiýstingur innan Kvennalistans á
sameiginlegt framboð verið að
magnast og hugmyndin nýtur líka
stuðnings aðila úr flokkskjarna Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík. Þá
tekur Framsóknarflokkurinn þátt í
viðræðunum í samræmi við sam-
þykkt fulltrúaráðs Framsóknarfé-
laganna í Reykjavík frá 6. desember
sl..
- Það er verið að ígrunda allar
leiðir, sem er mjög eðlilegt, segir
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, en
bendir á að tíminn sé að renna út.
- Við í Framsóknarflokknum eru
komin í gang með uppstillingu á
lista sein á að vera lokið um næstu
mánaðamót. En ef það er eitthvað
sem ég skynja í umhverfi mínu þá
er það eindreginn vilji til aukinnar
samvinnu og það er í þeim anda
sem minnihlutaflokkarnir voru
með sameiginlega bókun vegna
fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborg-
ar nú á fimmtudag, scgir hún.