Vikublaðið - 07.01.1994, Side 5
VIKUBLAÐIÐ 7. JANUAR 1994
MexmlngÍKi
5
Efnafrœði listarinnar
Listasafn ASI
Halldór Asgeirsson
Hraun-ummyndanir
4.-19. desember
Hann lífgar eldinn
lætur drjúpa í kerið
orð sem hann geymir
undir tungurótum
og sér þau lifna
Ijós í vatni og gleri
Kvæði þetta eftir Baldur
Oskarsson um þýska dul-
spekinginn Heinrich
Cornelius Agrippa von Nettels-
heirn (1486-1534), sem er upphafs-
ljóðið í ljóðabókinni „Krossgötur"
frá 1970, gæti að breyttum breyt-
anda verið eins og lýsing á mynd-
heinii Halldórs Asgeirssonar.
Cornelius Agrippa var ættaður ffá
Köln og höfundur bókarinnar De
occulta philosophia, sem var
grundvallarrit þeirra er lögðu
stund á dulspeld á horð við alkemíu
(gullgerðarlist) og cabbala-fræði á
16. og 17. öld í norðanverðri Evr-
ópu. A sama hátt og alkemistar
miðalda og endurreisnartímans
notfærðu sér eldinn til þess að „-
göfga“ efnið og líkja eftir sköpun-
arferli skaparans notar Halldór
eldinn til þess að ummynda og
„göfga“ hraunið og láta það „-
drjúpa í kerið“, þannig að við sjá-
um það lifna eins og „ljós í vatni og
g!eri“.
Með því að sækja sér efnivið sem
kominn er úr iðrum jarðar og um-
breyta honum með eldi, er Halldór
í raun að taka upp aðferð hinna
fornu alkemista. Fyrir tilverknað
eldsins sjáum við hinar ólíldegustu
myndir vaxa út úr hrauninu og
mynda sjálfstætt myndmál sem
listamaðurinn semr síðan fram
samkvæint sínum reglum. Og
framsetningin er einnig í anda al-
kemíunnar, þar sem hringformið
kemur við sögu, talan 24 og upp-
hafningin eða svifíð, ásamt með
hinum alkemíska litaskala, nigredo
(sorti), albedo (hvíta), citrinitas
(gula) og rubedo (roði), sem sam-
svara höfúðskepnunum fjórum:
jörð, vatni, lofri og eldi. (Við þessa
höfuðliti bættist stundum viriditas
(grænkan) og cauda pavonis (lit-
brigði páfuglsstélsins).)
Alkemían var ekki bara efna-
fræðigrúsk fégírugra kuklara sein
vildu gera sér gull úr sandi. Eins og
bæði sálfræðingurinn Carl Jung og
trúarbragðaffæðingurinn Mircea
Eliade hafa bent á þá var alkemían
snar þáttur í heimsmynd miðalda
og endurreisnar og gegndi þar
bæði trúarlegu, heimspekilegu og
listrænu hlutverki auk þess að vera
upphafið að efnafræði nútímans. I
stuttu málin var það markmið
þeirra sem aðhylltust hugmynda-
heim alkemíunnar að endurgera
eða líkja eftir sköpunarferli náttúr-
unnar og öðlast þannig innsýn í og
skilning á guðdómlegu eðli sköp-
unarverksins.
Vísindahyggja nútímans hefúr
hins vegar gert það að verkum að
þessi hugmyndaheimur hefur verið
vanræktur af sagnfræðingum nú-
tímans og hann afgreiddur sem
kukl og fordómar. Það er einungis
ineðal örfárra listamanna sem þessi
hugmyndaheimur hcfur haldist við
í þrotlausri viðleitni listarinnar til
þess að korna reiðu á óreiðuna,
Bestu þakkir
Elskulegar dætur okkar, tengdasynir, dætrabörn,
systkyni og fjölskyldur þeirra, samstarfsmenn,
félagar og aðrir vinir.
Hugheilar þakkir fyrir höfðinglegar gjafir, heilla-
óskir og kveðjur, vegna 70 ára afmæla okkar, 24.
desemberog 3. ágúst 1993.
Guð blessi ykkur öll. Lifið heil
Helga Þorkelsdóttir og
Sigurður B. Guðbrandsson, Borgarnesi.
sein síðan er leyst upp og sundrað
þangað til það öðlast nýja einingu í
umbreyttri og fullkomnari mynd.
Sama sjáum við í hringforminu á
verkinu „Við hraunmúrinn“, þar
sem eldmyndað hringformið teng-
ir saman einstaka steina og dregur
þá saman í eina heild. Eða í verkinu
„24 tímar“, þar sem 24 litaðar
myndir í litaskala alkemíunnar
mynda skáhallandi ferstrendan
rannna utan um formleysi
grjótntassans úr iðrum jarðar og
gefa okkur tilfinningu fyrir svifi
sem jafnfraint er líking við ferlið
frá sundrungu til einingar. Eining-
arnar 24 eru líking við stundir sól-
arhringsins, hið náttúrulega hring-
ferli sem tekst á við ferstrent fonn
Ólafur
Gíslason
rammans, sem gæti verið líking við
stríðandi andstæður höfuðskepn-
anna.
Ljósasta dæmið um skyldleika
myndmáls Ilalldórs við hug-
myndaheim alkemíunnar er þó
skápurinn með tilraunaglösunum,
þar sem uppbræddar og ummynd-
aðar efúisagnirnar eru sýndar í
mislitum vökvum og upplausnum.
Uppstillingu þessa kallar Halldór
„Frjóvgun“ eins og uin beina tilvís-
un væri að ræða í ofanrituð orð Eli-
ade uin fósturferlið í iðrum jarðar.
Sama hugmynd er sett ffam í
fyrmefndu ljóði Baldurs Oskars-
sonar um Cornelius Agrippa.
Það er engin tilviljun að Baldur
byrjar bók sína, „Krossgötur", á
þessu ljóði. Ljóð hans, sem eru trú-
lega einhvcr slípaðasti skáldskapur
síðustu áratuga á íslenska tungu,
eru uppfull af alkemískum líking-
um. A sama hátt og Halldór beitir
galdri alkentíunnar á efnismassann
úr iðmm jarðar til þess að ná settu
marki í myndlistinni verður ljóð-
listin í meðferð Baldurs einatt að
alkemískum galdri. F.ða eins og
segir hálfkæringslega í ljóðinu
„Steinaríki II“:
Aaa.við munumlæra
nýtt stafróf!
Og efnafræðin
-uppspretta tegundanna-
hún öðlast gildi frumspekinnar.
Tak þessa bók og et hana eins
og hún er...
Flalldór Asgeirsson á sér ekki
bara andlegan félagsskap í ljóð-
skáldinu Baldri Öskarssyni. Svip-
aðar hugmyndir má einnig skynja
úr skúlptúrum Jóhanns Eyfells, þar
sem jörð og eldur em sameinuð í
málmsuðunni, eða í blýgráum
hringamyndum Grétars Reynis-
sonar. Og ef við leitum til megin-
lands Evrópu má víða sjá að alkem-
ían lifir enn góðu lífi mitt á öld
hinnar hreinu og afdráttarlausu
vísinda- og efnishyggju: kunnir
myndlistarmenn eins og Alberto
Burri, Yves Klein, Jannis Kounnel-
is og Pino Pascali hafa allir verið
orðaðir við alkemískan galdur, svo
ekki sé minnst á ljóðskáldið og
leikstjórann Pier Paolo Pasolini.
Og ef leitað er aftur í fortíðina má
finna fjölmörg dæmi í inyndlist og
skáldskap, þar sem aðferðarffæði
gullgerðarlistarinnar er beitt beint
eða óbeint. Þannig gæri hin snjalla
myndlíking Sveinbjarnar Egilsson-
arskálds úr jólasálminum alkunnna
um „ffumglæði ljóssins", sem
flestallir íslendingar inunu hafa
sungið nú um jólin, verið komin
beint úr smiðju alkemistans. Eins
og hraunið sem vex út út sortanum
og tekur á sig nýja mynd fyrir til-
verknað eldsins í þjáningarfúllri
fæðingu, þannig vex Ijósið út úr
skammdegissortanum og öðlast yf-
irfærða trúarlega merkingu í fæð-
ingarsögu ffelsarans. Ilalldór As-
geirsson hefur fundið ffjóan efni-
við sem vafalaust á eftír að verða
honum notadrjúgt yrkisefni í ffam-
tíðinni.
Laust embætti
héraðsdýralæknis
Embætti hérðasdýralæknis í Austur-Eyjafjarðarum-
dæmi er laust til umsóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu, Rauðarárstíg
25, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1994.
Landbúnaðarráðuneytið,
30. desember 1993.
skapa kosnios úr kaos og finna
samsvörun efnislegs og andlegs
veruleika.
Mircea Eliade hefúr rakið hug-
myndaheim alkemistanna aftur til
ævafornra trúarlegra hugntynda og
segir í bók sinni „Goðsögn alkemí-
unnar":
„Við rekumst mjög snemma í
sögunni á þá huginynd að málm-
arnir vaxi í iðrum jarðarinnar ekki
ólíkt og fóstur í móðurkviði...
Námumennirnir og málmiðnaðar-
mennirnir grípa inn í fósturþróun-
arsöguna í iðrum jarðar og hraða
vextí málmanna, og gerast þannig
þátttakendur í sköpunarferli nátt-
úrunnar. Málmbræðsluinaðurinn,
járnsmiðurinn og alkemistínn eiga
þetta sameiginlegt: allir þrír gera
tilkall til sérstakrar trúarlegrar/yf-
irskilvitlegrar reynslu í samskiptum
sínum við efnið sem þeir með-
höndla... Allir þrír vinna nteð efni
sem þeir telja í senn lifandi og heil-
agt, og viðleitni þeirra stefnir að
umbreytingu efnisins, að „full-
konmun“ þess, að hamskiptum
þess“.
Sálffæðingurinn Carl Gustav
Jung hefur síðan bent á að hið al-
kemíska ferli sé í raun yfirfærsla á
sálrænu ferli í gegnuin hreinsunar-
eldinn í átt til andlegrar fullkomn-
unar.
Það er einmitt í ljósi þessarar tví-
ræðni andlegrar og efiiislegrar
reynslu sem eðlilegast er að lesa
myndir Halldórs Ásgeirssonar.
Umbreyting hraunsins fyrir til-
verknað eldsins er ekki bara efna-
fræðilegt ferli, og staðfestingu þess
sjáum við í framsetningu lista-
mannsins á niðurstöðunni þar sem
jörð og eldur hafa sameinast. Til
dæmis í hringforminu í myndverk-
inu „Ferð“, þar sem ummynduðum
hraunbitum eða brotunt cr raðað
eins og svífandi fyrirbærum á
hring. Rétt eins og hið sundraða
efúi stefnir að nýrri einingu innan
hringformsins í nýrri og um-
breyttri mynd.
A sama hátt og hið alkemíska
ferli, sem hefst í einingu efnisins
íp
Gestaíbúöin
Villa Bergshyddan
í Stokkhólmi
íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18.
aldar húsi), er léð án endurgjalds, þeim sem fást
við listir og önnur menningarstörf í Helsingfors,
Kaupmannahöfn, Osló eða Reykjavík, til dvalar á
tímabilinu 15. apríl til 1. nóvember.
Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem
fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé
óskað, svo og upplýsingar um umsækjanda, skal
senda til Hásselby Slott, Box 520, S-162 15
Vállingby, fyrir 28. febrúar n.k.
Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borgar-
stjóra, sími 632000.