Vikublaðið - 07.01.1994, Page 16
Munið
áskriftarsímann
17500
Þorsteinn einkavinavæðir SR-mjöl
Þorsteinn Pálsson gefur eignir þjóðarinnar
og grípur til blekkinga. Vanhæfisreglur^
látnar gilda um ríkisbanka en ekki um
einkabanka. Leynimakk íslandsbanka og
kaupenda. Benedikt Sveinsson og félagar
gerðu aldrei tilboð.
Aramótagjöf Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra til flokksbróður
síns Benedikts Sveinssonar,
stjómarformanns Sjóvá-AI-
mennra, og nokkurra útgerðar-
manna er fimm loðnubræðslur
setn voru í eigu þjóðarinnar.
Opinberlega hefur komið fram
að Benedikt Sveinsson og félagar
hans kaupi fimm loðnuverksmiðjur
SR-mjöls hf. á 725 milljónir króna.
Hinsvegar hefur sjávarútvegsráð-
herra dregið jfjöður yfir þá stað-
rcynd að fyrirtækinu voru lagðar til
540 milljónir króna á síðasta ári og
hagnaður á þcssu ári er áædaður á
bilinu 200-300 milljónir króna.
- Sjávarúmegsráðherra er nánast
að gefa einkaaðilum þessa gull-
kvörn, segir Jóhann Arsælsson
þingmaður Alþýðubandalagsins,
en hann átti um árabil sæti í stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins, en svo
hét SR-mjöl áður en fyrirtækið var
eert að hlutafélagi.
íramganga sjávarútvegsráðherra
í þessu máli, sem kallað hefur verið
einkavinavæðing SR-mjöls, hefur
verið harðlega gagnrýnd víða í
1 þjóðfélaginu.
Þegar umsjón með sölu hluta-
bréfa SR-mjöls var boðin út í haust
átti verðbréfafyrirtækið Landsbréf
hf. lægsta tilboðið. Næsdægsta til-
boðið átti Verðbréfamarkaður Is-
landsbanka.
Sjávarútvegsráðherra lýstí
Landsbréf hf. vanhæft tii að sjá um
söluna vegna þess að fyrirtækið er
dótturfélag Landsbankans sem er
'viðskiptabanki SR-mjöls. Banka-
stjórar Landsbankans segja úrskurð
Þorsteins út í hött því ef eitthvað er
þá myndu viðskiptatengslin tryggja
það að SR-mjöl yrði selt á hæsta
mögulega verði.
Þorsteinn blekkir
Þess í stað var Verðbréfamark-
aður Islandsbanka látinn sjá um
söluna. Frá þessu var gengið í
október og nóvember en löngu
áður var vitað að útgerðarmenn
sem tengdust Islandsbanka æduðu
að gera tilboð í hlutabréf SR-injöls.
Að frumkvæði Arnar Erlingssonar
útgerðarmanns í Keflavík hittust
20 útgerðarmenn loðnuskipa í
sumar í húsakyimum LIÚ til að
ræða möguleika á kaupum á SR-
mjöH. Síðar gerði þessi hópur
bandalag við Benedikt Sveinsson
en hann á sterk íiök í Islandsbanka.
Þrátt fyrir augijós hagsmunatengsl
og vanhæfni íslandsbanka til að
hafa milligöngu um söluna hreyfði
sjávarútvcgsiáðherra hvorki hönd
né fingur til að koma málinu úr
þessum farvcgi.
Fréttastofa Rikisútvarpsins hefur
bent á að Þorsteinn Pálsson hefur
Efútgerðin eignast stóran hlut í SR-
mjöli mun það koma betur út fyrir
hana að halda loðnuverði lágu til að
hagnaðurinn kotni út í verksmiðj-
unni. Þannig verður til náiiast inn-
byggð tilhneiging til að skrtifa
loðnuverðið niður, segir Jóhann Ar-
scelsson.
orðið tvísaga þegar hann hefur út-
skýrt málsmeðferð sína. Hann
sagði í fféttaviðtali fyrir nokkrum
dögum að Verðbréfamarkaður Is-
landsbanka hefði "unnið tilboðið"
um að fá að hafa unrsjón með söl-
unni. I greinargerð sjávarútvegs-
ráðuneytisins frá því í fyrradag
kemur hinsvegar ffarn að Lands-
bankanum var skákað frá með
vafasömum hætti.
Kmiptilboðið sem var
ekki
Vinnubrögð Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka við söluna á hluta-
bréfurn SR-mjöls þykja í meira lagi
kyndug. Þegar tilboð Haraldar
Haraldssonar var opnað var hvorki
honum, fulltrúa hans eða óvilhöll-
um þriðja aðila boðið að vera við-
staddir. Tilboð Haraldar hljóðaði
upp á ákveðna upphæð, 801 millj-
ón króna. Tilboð Benedikts
Sveinssonar og útgerðarmann-
anna, sem lögfræðingurinn Jónas
Aðalsteinsson er fulltrúi fyrir, var
hinsvegar ekki réttnefnt tilboð því
að engin upphæð var nefnd í því. I
erindi Benedikts og Jónasar segir
að " viljum [við] að gefnu tileffii
lýsa því yfir að við erum reiðubún-
ir að beita okkur fyrir því að kaup-
endahópurinn setjist að samninga-
borði með seljendum á þeim
grundvelli að kaupverð verði eigi
lægra en nafnverð hlutabréfanna."
Nafnverð hlutabréfa SR-mjöls,
eins og þau voru metin af Verð-
bréfamarkaði íslandsbanka, er 650
milljónir króna.
- Þetta svokallaða tilboð Bene-
dikts Sveinssonar og útgerðar-
mannanna er í rauninni ekkert
kauptilboð heldur tilboð um við-
ræður, segir Steingríinur J. Sigfús-
son þingmaður Alþýðubandalags-
ins, en hann á sæti í sjávarútvegs-
neffid Alþingis.
Steingrímur segir það furðulegt
í meira lagi að sjávarútvegsráherra
hafi svo mikið senr ansað þessu er-
indi í ljósi þess að hann neitaði Ak-
ureyrarbæ urn frest til að gera
kauptilboð í hlutbréf SR-mjöls.
- Ef sjávarútvegsráðherra hefði
haft áhuga á að fá sem besta verðið
fyrir hlutabréfin hefði hann átt að
gefa svo öflugum aðila sein Akur-
eyrarbæ tækifæri til að bjóða í bréf-
in, segir Steingrímur.
Góð kjör til réttra aðila
Þrátt fyrir varnaðarorð ákvað
Þorsteinn gera kaupsamning við
Benedikt og útgerðarmennina sem
Jónas Aðalsteinsson er fulltrúi fyr-
ir. Samið var um að kaupverðið
yrði 725 milljónir króna. Greiðslan
verður með þeim hætti að 125
milljónir króna verða greiddar 1.
febrúar, 100 milljónir 1. inars, 100
milljónir 1. september, 200 millj-
ónir 1. desember og síðustu 200
milljóninar ekki fyrr en 1. desem-
ber árið 1995.
Það kom á daginn að þeir Bene-
dikt og Jónas höfðu ekki umboð til
að semja um kaup á hlutabréfum
SR-mjöls, þótt þeir hafi látið í ann-
að skína í viðræðum við sjávarút-
Þetta svokallaða tilboð Benedikts Sveinssonar og útgerðarmannanna er í
rauninni ekkert kauptilboð heldur tilboð um viðrceður, segir Steingrímur J.
Sigfússon og furðar sig á því að Akureyrarbce var ekki geftnn kostur á að
gera tilboð í SR-mjöl.
vegsráðuneytið og fulltrúa Verð-
bréfamarkaðar íslandsbanka. Fyrir
nokkrum dögum sendum þeir bréf
til útgerðarmanna og sveitarstjórna
þar sem loðnuverksmiðjurnar
fimm eru staðsettar og buðri'þess-
um aðilum að kaupánlut í SR-
mjöli.
Verðbréfainarkaður Islands-
banka tók virkan þátt í því að
hylma yfir ineð Benedikt og Jónasi
og með því að þegja yfir upplýsing-
um um það hversu ómerkilegt til-
boðið var. Aftur á móti tekur Verð-
bréfamarkaðurinn virkan þátt í því
að sverta nrannorð og æru Harald-
ar Haraldssonar sem hefur Ieyft sér
að gagnrýna hlut íslandsbanka í
málinu.
Sjávarútvegsráðherra sem hvorki
gat gefið Haraldi Haraldssyni né
Akureyrarbæ frest til að útbúa
gögn og leggja fram tryggingar
fyrir kauptilboði veitt Benedikt og
Jónasi frest til 1. febrúar til að
ganga frá sínum málum.
Einkavinavæðingin
bitnar á sjómönn-
um
Ef það gengur eftir að út-
gerðarmenn allra stærstu
loðnusldpa landsins eignist
SR-mjöl í félagi við Benedikt
Sveinsson er frjálst loðnu-
verð úr sögunni.
Hingað til hafa hagsmunir
sjómanna og útgerðarmanna
verið þeir sömu því báðir
hafa hag af því að loðnuverð
haldist sem hæst. Þetta fyrirkomu-
lag hefur verið viðurkennt sem
skynsamlegt og ríkisvaldið beitt sér
fyrir því að það haldist með því að
banna Síldarverksmiðjum ríkisins
og síðar SR-mjöIi að eiga loðnu-
skip.
- Ef útgerðin eignast stóran hlut
í SR-mjöli mun [iað koma betur út
fyrir hana að halda loðnuverði lágu
til að hagnaðurinn komi út í verk-
smiðjunni. Þannig verður til nánast
innbyggð tilhneiging til að skrúfa
loðnuverðið niður, segir Jóhann
Arsælsson.
Hyerjum vill Þorsteinn
þóknast?
Þorsteinn Pálsson hefúr lengi
verið talinn hallur undir sjónarmið
útgerðarmanna og hyglað þeim
jafnvel á kosmað almannahags-
rnuna. I baráttu um völd og áhrif í
Sjálfstæðisflokknum hefur hann
mátt reiða sig á stuðning útgerðar-
manna, meðal annars vegna þess að
hann hefur varið kvótakerfið með
oddi og egg og ekki ljáð máls á því
að láta útgerðina greiða fyrir afla-
heimildir.
Benedikt er stjórnarformaður
Sjóvá-Ahnennra og á ítök í fjölda
fyrirtækja. Hann er ásamt Flerði
Sigurgestssyni, forstjóra Eimskips,
hvað valdamestur í því hagsmuna-
bandalagi sem gengur undir nafn-
inu Kolkrabbinn. Þorsteinn hefur
ástæðu til að halda Benedikt
Sveinssyni góðum því að Davíð
Oddsson forsætisráðherra hefur átt
skjól hjá Ilerði Sigurgestssyni í
valdaharáttunni í Sjálfstæðis-
flokknum.
Fitubollur í bata
Asgeir Hannes Eiríksson,
höfundur bókarinnar Það
er allt hægt vinur, stendur
fyrir árlegu námskeiði um
reglulegt mataræði laugar-
daginn 8. janúar í húsi I-
þróttasambands Islands í
Laugardal. Námskeiðið hefst
klukkan 10 árdegis og því lýk-
ur kl. 16.
Eins og segir í fréttatilkynn-
ingu eru jól og áramót tími ofáts
og aukakílóa og öll reglusemi
víkur fyrir óreglulegu inataræði.
Aramót er líka rétti tíminn til að
stíga á stokk og strengja heit og
er þessu námskeiði ætlað að að-
stoða þá sem vilja byrja nýtt ár á
því að koma böndum á ofátið.
Verð fyrir námskeiðið er kr.
5000 á mann en afsláttur veittur
ef fleiri en einn koma úr sömu
fjölskyldu.
Húsbréf
Birtingar
Fyrsti opni stjórm
haldinn laugarc <
Á dagskrá veröu,
boðsmál.
ilafundur Birtingar á þessu árí verður
in 8. janúar kl. 10.00 að Laugavegi 3.
i.a. vetrarstarfið og borgarstjórnarfram-
Stjornin
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram fyrsti útdráttur húsbréfa í
4. flokki 1992.
Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 1994.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði
og í Tímanum föstudaginn 8. janúar.
Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis-
stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
QÁ3 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILO • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 69 69 00