Vikublaðið


Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 2

Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 2
2 VIKUBLAÐIÐ 27. MAÍ 1994 BLAÐ SEM V I T E R f Útgefandi: Alþýðubandalagið Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson, Friðrik Pór Guðmundsson og Ólafur Þórðarson Auglýsingasími: (91)-813200 — Fax: (91)-678461 Ritstjórn og afgreiðsla: Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík Sími á ritstjórn: (91 )-17500 - Fax: 17599 Útlit og umbrot: Leturval Prentvinnsla: Frjáls íjölmiðlun hf. Fólk gegn fjármagni Félagshyggjufólk hefur þegar náð þeim árangri að snúa niður frjálshyggjustefnu Sjálfstæðisflokksins. Reykjavík er höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins og þar er uppspretta þeirra hugmynda sem flokkurinn hefur fylgt á landsvísu og leitt yfir okkur meiri ójöfnuð og óréttlátara samfélag en Islendingar hafa búið við síðan á kreppuárunum milli stríða. Síðustu vikur og mánuði hefur Sjálfstæðisflokkur- inn verið á hröðu undanhaldi frá fortíð sinni. Einka- væðingaráform opinberra fyrirtækja og stofnana hafa verið lögð á hilluna og þó er ekki nema tæpt ár síðan að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins boðaði stórfellda einkavæðingu. Stórvirkir áróðurs- menn frjálshyggjuarms flokksins, menn á borð við Hannes Hólmstein Gissurarson, hafa verið sendir í frí og skipað að koma ekki nálægt kosningabarátt- unni. Reykjavíkurlistinn hefur skotið sjálfstæðis- mönnum skelk í bringu og óttinn við að missa völd- in hefur knúið Sjálfstæðisflokkinn til að hverfa í skyndi frá fyrri stefnu. Þrátt fyrir nýja stefinu og borgarstjóraskipti er Sjálfstæðisflokkurinn eftir sem áður flokkur hinna betur megandi í þjóðfélaginu, flokkur þeirra sem hafa auðgast á kreppunni á meðan þorri almennings hefur mátt þola skert kjör. Atvinnurekendur fylkja sér um Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að hann er náttúrulegur samherji þeirra. Eins og rekið hefur verið með mörgum dæmum í Vikublaðinu hyglar flokkurinn fyrirtækjum á kostnað almennings. I dag segir blaðið firá dæmum um að Sjálfstæðisflokkurinn sjái í gegnum fingur sér þegar fyrirtæki koma sér undan því að greiða opinber gjöld. Alögur á almenn- ing aukast á meðan stóreignamenn sleppa við að greiða að fullu skatta og gjöld. Sjálfstæðisflokkurinn aðhyllist hugmyndafræði sem boðar misskiptingu auðsins og frjálshyggju- stefiian beinlínis gerir ráð fyrir að ákveðið hlutfall af launþegum skuli vera án atvinnu til að halda húsaga á þeim sem eru svo heppnir að hafa vinnu. Það er engin tilviljun að ffiamkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins fullyrðir að meirihluti atvinnuleysingja hafi ekki áhuga á vinnu. Markmiðið er að fá atvinnu- Ieysisbætur lækkaðar til að þrýsta laununum enn lengra niður og skapa fyrirtækjunum meiri gróða. Þetta er það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Reykjavíkurlistinn er fólk gegn fjármagni. Fólkið hefur þegar unnið þann sigur að nú er búið að hrinda sólcn frjálshyggjunnar sem geysað hefur í meira en áratug. En betur má ef duga skal því undir sauðargæru Sjálfstæðisflokksins leynist úlfur sem verður skæður eftir kosningar ef ekki tekst að fella meirihluta sjálfstæðismanna. Við eigum eftir að reka smiðshöggið á verkið og það gerum við í kjörklefan- um á morgun. Sjónarhorn Hvað er Kyenrétt- indafélag íslands? Framganga formanns Kven- réttindafélags Islands og 3. manns á lista Sjálfstæðis- flokksins, Ingu Jónu Þórðardóttur, hefur vakið töluverða athygli. Það hlýtur einnig að vera athyglisvert í ljósi þess hver er fonnaður Kven- réttindafélags Islands að félagið hvatti konur til að kjósa þegar prófkjör Sjálfstæðisflokksins stóð yfir. Konur voru hins vegar ekki hvattar til þátttöku í prófkjörum hinna flokkanna þegar þau stóðu yfir. Ritstjóri 19. júní, blaðs Kven- réttindafélags Islands, hefur einnig geyst fram á ritvöllinn formanni sínum tdl stuðning. En Kvenrétt- indafélag Islands er kannski aðeins saumaklúbbur Sjálfstæðiskvenna? Ef svo er þá hlýtur að vera tíma- bært að embætti forseta Islands endurskoði stöðu forsetans sem verndara félagsins. Hæpin kosningabarátta formanns Kvenréttinda- félags íslands Laugardaginn 14. maí s.l. lét Inga Jóna Þórðardóttir, formaður Kvenréttindafélags Islands og 3. maður á lista Sjálfstæðisflokksins, þau orð falla að hjónaband Sigrún- ar Magnúsdóttur væri í ábataskyni byggt. það væri svo sem gott og blessað að konan Iáti svo ósmekk- leg ummæli út úr sér í kosninga- baráttu, þau dæma sig sjálf, væri hún eldd formaður Kvenréttinda- félags íslands. Inga Jóna hélt áffiam að ráðast að Sigrúnu í umræðum á Bylgjunni 18. maí og sagði að und- anþága sú sem Sigrún og maður hennar fengu til að hafa lögheimili í sitt hvoru sveitarfélagi væri hæpin og vafasöm. Hún gaf einnig í skyn að það tengdist því að landsbyggð- arþingmenn fengju hærra þingfar- arkaup. Ædast hún til að Páll Pétursson sem hefur um árabil verið bóndi á Höllustöðum flytrji til Reykjavíkur eða vill hún að Sigrún flytji út á land svo hún hætti að þvælast fyrir Ingu Jónu í borgarstjóm? Er ástæðan kannski sú að Inga Jóna hefúr ekki fyrirgefið Sigrúnu Magnúsdóttur að spyrja þeirrar sjálfsögðu spumingar fyrir hvað Inga Jóna hafi fengið greiðslu úr borgarsjóði þegar hún var ráðgjafi Markúsar Arnar Antonssonar í einkavæðingaimálum? Það skyldi þó ekki vera þess vegna sem hún ofsækir Sigrúnu? Ilver heilvita maður getur sagt sér það sjálfur að fái fólk á þriðju milljón í laun ffiá borgarsjóði fyrir ráðgjafastörf er eðlilegt að hægt sé að svara í hverju sú ráðgjöf liggi. Formaðurinn verður að víkja Inga Jóna Þórðardóttir hefur hvað eftir annað ráðist persónu- lega að annarri konu sem leiðir ffiamboðslista í kosningum. Er ekki þversögn í þessu hjá formanni Kvenréttindafélags Islands, félagi sem hefur hvatt konur til þátttöku í sjómmálum og barist fyrir rétt- indum kvenna í gegnum tíðina s.s. kosningarétti kvenna. Framhjá framgöngu Ingu Jónu Þórðardóttur sem fonnanni Kven- réttindafélags Islands er ekki hægt að líta. Það hlýtur að vera krafa allra sem leggja kvenfrelsisbarátt- unni lið að formaður Kvenrétt- indafélags Islands segi af sér hið fyrsta. Allt traust sem kvenrétt- indakona hefur hún misst. Höfúndur er blaðamaður. Auglýsing frá Menntamálaráöuneytinu Innritun nemenda í fram- haldsskóla í Reykjavík fer fram f Miðbæjarskólanum við Fríkirkjuveg dagana 1. og 2. júní n.k. frá kl. 9.00 - 18.00. Umsóknum fylgi Ijósrit af prófskírteini. Námsráðgjafar verða til viðtals í Miðbæjarskólanum innritunardagana.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.