Vikublaðið


Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 10

Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 10
10 í dagsins önn VIKUBLAÐIÐ 27. MAÍ 1994 Þorbergur Aðalsteinsson „kokk- ur“ vill verða borgarfailtrúi og reisa sér minnisrnerki. Þorbergur missti af því að sjá Ráðhúsið rísa, missti reyndar af öllum blómatíma Davíðs Oddssonar sem borgarstjóri, því í tæp 6 ár var Tobbi kokkur atvinnu- maður í boltaleik í velferðarríki skandínavísks sósíalisma í Svíþjóð. Hann lærði Davíðsfræðin utan- skóla! Og lét sér vel líka, dreif sig ekki heim fyrr en sigur hægri afl- anna var í augsýn. Eins og Arni Sigfússon hefur Tobbi ætlað sér stóra hluti. Honum hefur tekist vel upp við að spila handbolta og stjórna handboltalið- um. I Svíþjóð stundaði hann aukin heldur nám í stjórnsýslufræðum. iýni stundaði nám í hinu sama. Árni lærði í Bandaríkjunum, en Tobbi las hins vegar um stjórnsýslu að hætti sænskra sósíalista. Er í þessari einföldu landafræði fólgin skýringin á því hvers vegar Arna tókst að ljúka námi en Toþba ekki? Hver veit? Nú er Árni kominn á toppinn í stjómsýslunni en Tobbi á toppinn í boltaleiknum. Það kemur fátt gagnlegt frá Svíþjóð. Spyrjið bara Indriða G. Þorsteinsson og Hannes Hólmstein. Kannski er Tobbi bara á rangri hillu. Tvítugur útskrifaðist hann úr Hótel- og veitingaskólanum, en hefur ekki komið nálægt því fagi síðan, svo vitað sé. Hvað er Tobbi eiginlega að bralla? Hvað segja menn annars um Tobba? Gallinn er sá að þegar nafn hans er nefnt sjá menn fyrir sér bolta en enga pólitík. En ætli álit manna á Tobba sem handbolta- manni geti yfirfærst á Tobba sem pólitíkus? Hvað segja menn? „Hann er svolítið óákveðinn og það er hringlandaháttur í honum," hefur Gunnar Beinteinsson lands- liðsmaður sagt um Tobba. „Þegar maður spilaði með honum þýddi ekkert að fara með honum í hraða- upphlaup því hann gaf aldrei bolt- ann,“ hefur Adi Hilmarsson þjálfari sagt. „Hann hefur mikið vit á hand- bolta,“ bætti hann við. „Okosturinn við hann cr sá að hann var alltof Iengi í Svíþjóð, hann er alltof sós- íalíseraður eftir það,“ hefur Þor- björn Jensson þjálfari sagt. „Hann gaf helst aldrei boltann nema til að fá hann aftur og þá geta skotið strax á inarkið,“ hefur Guðmundur Guð- mundsson þjálfari sagt. „Hann er mjög skapbráður og var fljótur að stökkva upp á nef sér ef eitthvað fór ekki eins og það átti að fara. Og hann kann náttúrulega ekkert að elda því það er svo Iangt síðan hann hefur verið í faginu," hefur Einar Árnason sagt, en hann kenndi Tobba að kokka. Sem sé: Óákveðinn og skapbráð- ur einspilari. Og hvað hafa þá menn sagt um Árna Sigfússon? Óvæginn og tilætl- unarsamur, segir Gunnar Þorláks- son skrifstofustjóri í félagsmála- ráðuneytinu. „Hann vantar meiri reynslu", hefur Sigurbjörg Sigur- geirsdóttir sagt, en hún er yfirmað- ur öldrunardeildar Félagsmála- stofnunar. „Hann hefur gert mistök í stjórnun borgarinnar sem gefur vísbendingu um að pólitískt þefskyn hans er ekki í góðu lagi,“ segir sjálf- stæðismaður nátengdur borgar- stjórn. „Hann mætti sýna meira umburðarlyndi, einkum í bindindis- málum“, segir Hreinn Loftsson lögmaður. Sem sé: Skortir reynslu og um- burðarlyndi og gerir mistök. Rithöndin Grúskari með allt á hreinu Þú virðist róleg og yfirveguð mann- gerð. Einkalíf þitt er þungamiðjan í tilverunni, þar á eftir má fara að huga að öðrum hlutum, finnst þér. Fjöl- skyldu- og vináttubönd eru sterk. Þú virðist fasmr fyrir og dálítill einstakl- ingshyggjumaður. Ferð erftir þínum rökum frekar en annarra. En þú ert vinsamlegur og hlýlegur svo aðrir taka varla eftir því hvað er í raun og veru erfitt að hafa áhrif á þig. Þú virðist hugsa vísindalega og villt hafa allt á hreinu og ekki í neinni þoku eða óvissu. Þú ert trúlega grúskari og hefúr gaman af að varðveita gamlan ffóðleik. Þú átt líka gott með að starfa og vera með öldruðu fólki. Líklega ertu með það sem sumir nefna gamla sál. Það mundi henta þér vel að vera bóndi, kennari eða að fást við vísindi. Þú ert jákvæður og börn hænast að þér. Þú ert líka laginn að vekja metnað þeirra og bjartsýni. Gangi þér vel. R.S.E. Jakob Þór Einarsson. Mannréttindi á friðar- og stríðstímum.Tónleikar og ljóðaupplestur í Kristkirkju laugardaginn 28. maí kl. 17:00 Listamenn hafa löngum leitað fanga í listsköpun sinni í örlög og tilfinningar fólks. Á stofhdegi Amnesty Inter- national 28. maí höfum við tækifæri til að njóta list- sköpunar þar sem viðfangsefnið er maðurinn, réttindi hans og hvernig þessi réttindi eru vanvirt. Laugardaginn 28. maí verða tónleikar og ljóðaupplestur í Kristkirkju, sem bera yfirskriftina „Stríð-Friður“ mann- réttindi á friðar- og stríðstímum. Fyrsta verk tónleikana er „Iskvartett" eftir Leif Þórarins- son fyrir fiðlu, flautu gítar, selló og söngrödd. Þá verður frumflutt tónverk John Speight „Það var vor í Króatíu" samið fyrir kontratenór, flautu, gítar og selló við texta Sæmundar Norðfjörð og Jónasar Þorbjarnarsonar. Síðasta verk tónleikana er fyrsti opinberi flumingur á verkinu „Bænir“ eftir Atla Heimi Sveinsson. Hér er um sóló- kantötu að ræða, fyrir kontratenór, flautu, klarinett, gítar og selló, textinn er eftir Sören Kirkegaard í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Tónlistarfólkið sem fram kemur á tónleikunum eru: Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Ármann Helgason klar- inettuleikari, Biyndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Einar Kristján Einarsson gítarleikari, Martial Nardeau flautu- leikari og Sverrir Guðjónsson kontratenór. Milli tónverka flytur Guðrún S. Gísladóttir leikkona ljóðaþýðingar Sigurðar A. Magnússonar úr væntanlegu ljóðasafni sem gefið verður út af Islandsdeild Amnesty International næstkomandi haust undir heitinu „Ur ríki samviskunnar". Hjartagátan Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir rnynda þá karlmannsnafn. - Lausnarorð krossgátunnar í síðasta blaði er Dyrhólaey. 7— 3“ é r— 0 T— i 7— 9 10 i) V <? IZ 77 V 13 IT 10 7 !5 3 z 0 II IT y 17- 18 T /9 l(? II V 29 13 2o 7 21 22 2/ 3 13 lo 3 23 3 2 (o Xí 10 1v— V 2 B— 20 zs 75 lu 23 2? 10 10 V W~ 2T Tl 21 13 1T 3 2T /¥ 7 17 b 9 10 0 8 Ti~~ ~W~ 1 3 II Zí ÍV 28 Zl T~ w IT V lá> X TS~ 20 )3 Z/ 2 n T 2°! X 10 2 V i z 20 (p Z )0> V 3 XT lo XI Z 9 ZJ z (o ii S? 3 10 20 II 21 2 0 's V IT IX 23— X s? 8 i 18 20 II % 31 3 II w~ TS~ s? IT / *K it— U 1 26 T~ §2 \<o I6~ 20 T~ V 2 6 20 2 s? 32 8 V '10 II 20 10 /9 V 21 )é 2T II )T )5 3 20 29 21 6 2/ Tilveran og ég Tæp vika til kosninga þegar þetta er skrifað og mikið skelfing er stemningin eitthvað einkennileg í samfélaginu. Það er allt, sem einhverja vikt hefur, í- haldsins megin. Fjölmiðlarnir flestallir, Morgunblaðið, DV, Pressan, Eintak, Stöð 2 og ríkis- sjónvarpið. Það er einna helst gamla gufan, sem heldur áttum. Þar er hins vegar óttinn greini- legur og menn hika við að taka á augljósum hneykslismálum eins og freklegri misnotkun bæjaryfir- valda í Kópavogi á almannafé. Gufan óttast að vera ásökuð um að ganga erinda andstæðinga í- haldsins. Tíminn og Vikublaðið reyna að sporna á móti en veikt er það. Kolkrabbin er að sjálfsögðu á fullu með alla sína arma. Veitir í- haldinu ómælt fé, spýr galli og hótar mönnum brottrekstri og atvinnuleysi ef ekki er makkað rétt. Sérlega ógeðfelld skepna. Og ríkis- stjórnin (ef rétt er að nefna þessa lufsu enn því nafni), sjálf ríkisstjórn lýð- veldisins leggst á sveif með thaldinu og gefur út kosningavíxla í löngum bun- um. Maður býður eigin- lega bara eftir því að farið verði aftur að skrifa upp á inni- haldslausa álverspappíra. Það eina sem eftir stendur er fólkið í landinu. Mun það láta soran í Valhöll og peningaaustur- inn blekkja sig? Ekki segja kann- anir en hversu lengi þrauka merin. Nokkur atriði standa uppúr þegar litið er yfir kosningabarátt- una þetta vor. I fyrsta lagi hin knýjandi nauðsyn að koma hér á laggirnar blaði, sem getur staðið gegn veldi kolkrabbans. Blaði sem ekki verður litið framhjá þegar umræða á sér stað. I öðru lagi þarf að setja ein- hverjar reglur um skoðanakann- anir. Þær eru farnar að skipta það miklu máli að óviðunandi er að óvandaðar kannanir séu með- höndlaðar á sama hátt og þær sem vel eru unnar. Það er líka at- hugandi hvort rétt sé að banna birtingu kannana í einhverja daga fyrir kjördag líkt og gert er víða um Iönd. Og í þriðja lagi verður nú að knýja fram þá sanngjörnu kröfu að bókhald flokkanna verði opin- ber plögg. Fólk á heimtingu á að vita hvaða fyrirtæki það eru sem dæla fé í Sjálfstæðisflokkinn á sama tíma og þau grenja í gegn- um Þórarinn Viðar að engir pen- ingar séu til. Þetta ætti líka að geta orðið til að draga úr mis- notkun á almannafé en enginn þarf að efast um hvaða sjóður verður látinn borga herkostnað Sjálfstæðisflokksins ef svo fer að hann hremmir borgina. Ihaldið hefur eitt flokka verið því andvígt og ekki að undra.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.