Vikublaðið


Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 7

Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 7
VTKUBLAÐIÐ 27. MAI 1994 Flokks- brofln í Sjálf- stæðis- flokknum Þeir Árni Sigfússon og félagar hafa hamrað talsvert á því að Reykjavíkurlistinn sé samsett- ur af stuðningsmönnum „fjögurra til fimm flokka og flokksbrota". Arni boðar að ef menn vilji hreinar línur þá kjósi menn Sjálfstæðisflokkinn. Er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinar línur? Nei. I Flokknum eru ótal flokksbrot sem hver tala með sínu nefi út og suður. Nefnum nokkur: - Geipsarmur - Gunnarsarmur - Albertsarmur (hulduher) - Davíösarmur - Þorsteinsarmur - Eimreiöarhópurinn - Loftleiðahópurinn - Félag Vrjálshyggjumanna - Varðberg/Samtök um vestræna samvinnu - Stuttbuxnadeildin - Landbunaðararmurinn Og fleiri mætti týna til. Ef Árna finnst að það myndi hljóma ruglings- lega að hlusta á fulltrúa annarra flokka alla lýsa stefnu sinni í einu hvað finnst honum um falskan hljóm eigin manna? Imyndið ykkur: Sjálfstæðisflokkur- inn setur á laggirnar þrjár átta manna innanflokksnefndir urn stefnumótun til aldamóta. I nefnd númer eitt veljast Árni Sig- fússon, Matthías Bjarnason, Jón Magnússon, Egill Jónsson, Hreinn Loftsson, Friðrik Friðriksson, Krist- ján Ragnarsson og Páll Gíslason. Ein- róma niðurstaða? I nefnd númer tvö veljast Júlíus Hafstein, Þorvaldur Garðar Krist- jánsson, Ellert B. Schram, Pálmi Jónsson, Hannes Hólmsteinn Gissur- arson, Vilhjálmur Egilsson, Árni Johnsen og Amal Rún Quase. Ein- róma niðurstaða? I nefiid númer þrjú veljast Katrín Fjeldsted, Sverrir Hermannsson, Ingi Björn Albertsson, Eggert Haukdal, Hrafn Gunnlaugsson, Guðmundur Magnússon, Einar Oddur Kristjáns- son og Markús Orn Antonsson. Ein- róma niðurstaða? Kjörstaðir við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík þ. 28. maí 1 994 verða þessir: Álftamýrarskóli Árbæjarskóli Austurbæjarskóli Breiðagerðisskóli Breiðholtsskóli Fellaskóli Foldaskóli Langholtsskóli Laugarnesskóli Melaskóli Miðbæjarskóli Sjómannaskóli Ölduselsskóli Auk þess verða kjördeildir í Elliheimilinu Grund, Hrafnistu og Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Kjörfundur hefst laugardaginn 28. maí kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli kjósenda er vakin á eftirfarandi ákvæði 81. gr. kosningalaga: Er kjósandi kemur inn í kjörfundarstofuna gerir hann kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhendir oddviti honum einn kjörseðil. Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar hefst talning atkvæða þegar að loknum kjörfundi. Símanúmer yfir- kjörstjórnar á kjördag er 632263. Yfirkjörstjórnin í Reykjavík Jón Steinar Gunnlaugsson Gísli Baldur Garðarsson Eiríkur Tómasson

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.