Vikublaðið


Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 3

Vikublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 3
VIKUBLAÐIÐ 27. MAI 1994 Við erum í stjórnmálum til i segir Steinunn CIU HdlCl dlllll v Óskarsdóttir má nefiia sérstaklega. Við viljum koma upp fjölnota aðstöðu fyrir nokkrar íþróttagreinar sem hugsanlega mætti nota fyrir sýningaaðstöðu í Laugardalnum sem er mikil þörf á. Annað stórt atriði er 50 metra yfir- byggð keppnissundlaug sem er nauðsynleg fyt ir sund- fólkið. Hvað varðar félagsmiðstöðvarnar þá teljum við tímabært að endurskoða þá starfsemi með það í huga að starfsemin nýtist fleirum. Félagsleg vandamál eru vaxandi í Reykjavík og þurfa ekki endilega að tengjast vímuefnum og áfengi heldur miklu frekar atvinnu- leysinu. Þarna gætu félagsmiðstöðvar gegnt stærra hlutverki og hefur verið talað um að Hitt húsið gæti tekið alveg við atvinnumálum unga fólksins. I þeim hópi er 17 prósent atvinnuleysi og í Hinu húsinu væri hægt að koma á fót náms- og starfsráðgjöf þar sem unga fólkið fengi perónulega aðstoð." Kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins handan velsæmis Sjálfstœðimenn segja að lngibjörg Sólrún sé á móti keppnisíþróttum ogþið ætlið að skera niður allt sem heitir íþróttir. Er stefna Reykjavíkurlistans marklaus eða er þetta bara dœmi um aðferðir Sjálfstœðismanna í kosninga- baráttunni? „Þetta er bara hluti af kosningabaráttunni þeirra. Eg hef orðið mjög hissa að sjá hvers konar baráttu þeir hafa rekið, hversu lágt þeir hafa lagst. Það er bú- ið að opna símaþjónustu þar sem hægt er að hlusta á allt ljótt um Ingibjörgu Sólrúnu og okkar stefhu. Þessar sögur eru í gangi að hún sé á móti keppnis- íþróttum og við ætlum að skera niður fjárframlög til íþrótta sem er út í hött og sést að er ekki rétt ef fólk skoðar stefnuskrána okkar. Þeir hafa verið að ráðast persónulega á einstaka ffambjóðendur eins og Sigrúnu Magnúsdóttur og Al- ffeð Þorsteinsson. Mogginn hefur afhjúpað sig og gaf tóninn í Reykjavíkurbréfi og hefur notað hvert tæki- færi síðan til að ítreka að hann styðji D-listann. Við horfðum upp á nýlegt dæmi á Stöð tvö þar sem Hall- ur Hallsson fór algjörlega yfir öll mörk velsæmis og braut allar siðareglur sem fféttamaður í viðtali við Steingrím Hermannson. Þeir nota hvert tækifæri til að skíta út andstæðinginn og íþróttaáróðurinn er hluti af þessu. I raun sýnir þetta hvemig peningavaldið af- hjúpar sig þegar því er ógnað. Ollu er til fórnað.“ Borgarstjórinn er forystumaður Sjáljstæðisflokksins og hlýtur að stjórna kosningabaráttunni. Segir þetta eitthvað um borgarstjórann? ,Já það hlýtur að gera það, Arni Sigfússon er auðvitað heil- mikið undir í þessum kosningum og undir þessu slétta og fellda yfirborði virðist vera aðili sem svífst einskis til að ná völdum og halda þeim. Hann hlýtur að stjórna sínu liði. Þetta held ég að sé hluti af reiði ungs fólks út í Sjálfstæðisflokkinn. Valdasýkin er slík að öllu er til fórnandi fyrir völdin.“ Bergþór Bjamason Steinunn Valdís Óskarsdóttir skipar 7. sæti Reykjavíkurlistans. Hún er nýorðin 29. ára, með B.A. í sagnfræði og verður vænt- anlega yngsti borgarfulltrúi Reykvíkinga efrir kosningar. Þrátt fyrir ungan aldur er hún þó ekki alls ókunnug stjórnmálum. Steinunn skip- aði 1. sæti lista Röskvu til Stúdentaráðs Há- skóla íslands í kosningunum 1990 og eftir fyrs- ta sigur Röskvu vorið 1991 tók hún við emb- ætti formanns Stúdentaráðs, Ijórða konan sem gegnt hefur því embætti. Vikublaðið hitti Steinunni á hvítasunnudag, þá gafst örstutt stund milli stríða. Þegar sigur vinnst í fyrsta skipti er búið að bíða lengi eftir honum Hvemig var að taka við stjóminni af hcegri mönnunum uppi í Háskóla? „Þetta var mjög sætur sigur því við felldum meirihlutann. Hins vegar var þetta líka erfitt því þá skapaðist pattstaða í Stúdentaráði, báðar fylkingar áttu 15. fúlltrúa og samningaviðræð- ur um skiptingu embætta stóðu ffá því um miðjan mars þangað til í byrjun júní. Aðkoman að skrifstofu Stúdentaráðs var slík þegar að við tókum við að það var búið að hreinsa út af öll- um tölvudiskum og reynt að gera okkur mjög erfitt fyrir. Skemmtilegasta minningin frá þess- um tíma er hversu vel fólkið í Röskvu stóð sarnan gegn hægri mönnum. Þegar sigur vinnst í fyrsta skiptið og það er kannski búið að bíða lengi eftír honum þá er mjög gaman að starfa saman. I raun var þetta upphafið að endalokum hægrisveiflunnar sem hafði verið lengi.“ Er hægt að ba a stemninguna sem var á þesstim tíma í Háskólanum saman við það sem er að gerast í borginni nú tvor? ,Já, ég held það. Sérstaklega í kringum þennan hóp af ungu fólki sem hefur verið að starfa fyrir Reykjavíkurlistann. Hópinn ein- kennir gleði, ákafi og mikil sainheldni og þetta fólk ætlar sér greinilega að vinna kosningarnar og breyta til batnaðar í borginni." Fyrir þennan hóp er ekkert gert í kerfinu Hvað em mikilvægastu tnál unga fólksins? „Eg held að það hljóti að vera atvinnumálin. Ekki síst fyrir ófaglært fólk og þá sem eru í menntaskóla. Nú er ekki jafn sjálfsagt og áður að fara í nám, það er búið að setja á skólagjöld, skerða námslán og ungt fólk hugsar sig tvisvar eða jafnvel þrisvar um áður en í nám er farið. Afleiðingarnar verða þær að við sitjum uppi með stóran hóp fólks sem hefur lítið nám að baki og litla starfs- reynslu. Það er mjög alvarlegt og þarf að gera stórátak til að koma til móts við þennan hóp. Fyrir þennan hóp er ekkert gert í kerfinu, engin náms- eða starfsráðgjöf.“ Steinunn V. Óskarsdóttir: Ungt fólk er reitt út í Sjálfstœðisflokkinn og sjónarmið okkar voru tryggð og að sjálfsögðu fórum við í þetta samstarf. Við erum í stjórnmálum til að hafa áhrif og láta hlusta á okkur.“ Svífast einskis til að halda völdum Hver er stefna Reykjavíkurlistans í íþrótta- og tómstundamálmn? „Við ætlum að gera betur en Sjálfstæðisflokkurinn. Tvennt Alltaf verið kvenfrelsiskona Hvers vegna fórstu að skipta þér af stjómmálum? „Það var eintaldlega ekki lengur hægt að vera stikkfrí. I menntaskóla var ég ekki mjög pólitísk en ég hef alltaf verið kvenfrelsiskona og stutt Kvennalistann frá því að ég fékk kosn- ingarétt. I Háskólanum fór ég að skipta mér af stúdentapólitík- inni en eftír það gekk ég í Kvennalistann mér fannst ekki við- eigandi að starfa með stjórnmálaflokki ineðan ég gegndi emb- ætti á vegum stúdenta.“ Kvennlistinn er nú í samstarfi við þtjá flokka, em kvennamál eitthvað sem er lagt til hliðar á meðan? „Alls ekki, við höfum fulla ástæðu tíl að halda að sjónarmið kvcnna komist til skila í Reykjavíkurlistanum og ef stefhuskráin skoðuð má sjá ýmsa femíníska áherslupunkta. I íþróttamálum svo dæmi séu tekið er sérstaklega kveðið á um átak í keppnis- íþróttum kvenna. Svo má nefna atvinnumálin, félagsmálin og fleira." Sjálfstæðismenn seg/a að loksins haft Kvennalistinn sýnt sitt rétta andlit og afhjúpað sig sem vinstri flokk? „Þetta er náttúrulega hlægilegt og sýnir að þeir skilja ekki Kvennalistann og þá hugmyndafræði sem hann gengur út á. Við fengum þarna tækifæri til að fara í sameiginlegt framboð vo mjúk verði af honum myndin að milljónum er kastað í vindinn og nú bíða menn helst þess að sjá hvort hann selst jafn vel og vcengjuðu bindin.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.