Vikublaðið - 18.08.1995, Blaðsíða 12
(317 ít ííi Ur* £ íp Ur> (3 ít ít W U?
íhaldskonur vilja vara-
varaformann
I þrálátri leit sinni að leið að völd-
um innan Sjálfstæðisflokksins hafa
konur iruian Landssambands sjálf-
staeðiskvenna rætt af alvöru um þann
möguleika að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi tvo varaformenn og að annar
þeirra verði kona. Og þá væntanlega
hinn karl. Ef slíkt yrði ekld samþykkt
af landsfundi íhuga konumar að
bjóða sig fram gegn Friðrik Sophus-
syni, eiginmanni Sigríðar Dúnu
Kristmundsdóttur mannfræðings.
Ekki fylgir sögunni hvor varafor-
maðurinn ætti að taka við ef formað-
ur fellur ffá eða forfallast, karlinn
eða konan. En líkast til lognast þetta
mál smám saman útaf og Sjálfstæðis-
flokknum áffam stýrt af reykvískum
lögffæðingum af karlkyni.
Olíufélögin verja sig fyrir
samkeppni
Utlit er fyrir að tilkoma Irving ol-
íufélagsins kanadíska inn á Islands-
markað muni ekki hræra upp í sam-
keppninni á olíu- og bensínmarkað-
inum. ESSO og OLÍS virðast æda að
komast upp með,samruna sinn, þar
eð Samkeppnisráð hefur samþykkt
lítilvæg skilyrði fyrir samrunanum.
Þau felast í takmörkunum á því
hverjir geta átt sæti í stjómum félag-
annna. Þá em forsvarsmenn SHELL
og Irving komnir í samræðustelling-
ar til að finna flöt á samstarfi þessara
félaga. Ef ffam fer sem horfir verða
oh'ufélögin því að ígildi tvö í stað
þriggja áður. Var þá betur heima set-
ið en af stað fárið.
SUS-arar þinga
Samband tmgra sjálfstæðismanna
heldur þing um helgina, en sam-
bandið hefur verið ötult að auglýsa
sig að undanfömu. Einkum hefiir
barátta SUS fyrir því að vekja athygli
á gríðarlegi erlendri skuldasöfnun
hins opinbera á undanfömum ámm
þótt röggsöm, jafnvel þótt „skulda-
glugginn“ í Austurstræti sé alltaf að
bila. SUS hlýtur að fjalla sérstaklega
um þessi mál á þingi sínu og þá eink-
um og sér í lagi þá staðreynd að Frið-
rik Sophusson hefur ffá því skulda-
glugginn var settur upp tekið tvö
gríðarleg lán erlendis. Fyrst fékk
hann 3,4 milljarða og síðan heilar
200 milljónir dollara eða heila 13
milljarða til viðbótar. Þá hljóta
Heimdellingar á þinginu að undir-
strika sorg sína yfir þeim ofsóknum
sem frjálshyggjumenn verða fyrir og
Vikublaðið sagði ffá í síðustu viku:
Að frjálshyggjumenn dagsins í dag
séu eins og kommúnistar Bandaríkj-
anna á dögum McCarthys.
Hitt húsið nýja opnað
Hin nýja menningar- og upplýs-
ingamiðstöð Hins hússins fyrir ungt
fólk verður opnuð formlega í Geys-
ishúsinu í dag, föstudag. Akvörðunin
um að flytja starfsemina þangað var
tekin í vor og strax flutt í hluta húss-
ins. Undanfama mánuði hefur síðan
verið unnið að margháttuðum end-
urbótum á húsnæðinu. Verður nú
tekinn í notkun fyrsti áfangi, sem
inrúheldur meðal annars upplýsinga-
miðstöð og fjölnota sal á fyrstu hæð
hússins. I öðrum hlutum hússins er
góð aðstaða fyrir fjölbreytta starf-
semi og er Hitt húsið vettvangur
ungs fólks í menningu og listum á-
samt því að vera miðstöð úrræða fyr-
ir ungt atvinnulaust fólk. I tílefni
opnunarinnar gefst fólki kostur á að
koma í húsið milli kl. 15 og 19 í dag,
föstudag.
Rússar vilja sátt um út-
hafsveiðarnar
Sjávarútvegsráðherrar íslands,
Rússlands og Noregs hittust í Pét-
ursborg í vikunni tíl að ræða deilu-
mál sín vegna veiða íslendinga í
Smugunni og í Barentshafi. Enginn
sjáanlegur árangur varð af fundinum
annar en sá að viðræðumar vom vin-
samlegar. Litið var á fundinn sem
könnunarviðræður og kom ffam
nokkur samningatónn í máli Rússa.
Sérstaklega var rætt um möguleik-
ann á því að þessar þjóðir, ásamt
Færeyingum, stilltu saman strengi
sína gagnvart Evrópusambandinu
varðandi síldveiðar á norsk-íslenska
síldarstofninum. I Smugunni hefur
veiði verið dræm að undanfömu og
fiskurinn smár og er ekld útilokað að
eftdrlit varðskipsmanna leiði tíl lok-
unar svæða.
Komið og kannið málið
I stöðvum Landsvirkjunar!
Opið hús laugardaginn 19. ágúst kl. 13-17.
Þá verða eftirtaldar stöðvar til sýnis:
Búrfells-, Hrauneyjafoss-, og Sigöldustöð.
Laxárstöðvar og Kröflustöð.
Verið relkomin!
D .
Landsvirkjun
: ''fct' 1
Laxárstöðvar
, Kröflustöð
Hrauneyjafoss
Búrfellstöð
T»pl*ga 2 klat- akstur trá Roykjovik