Frjáls þjóð - 07.05.1955, Side 4
Laugardaginn 7. maí 1955
H*
FRJÁLS ÞJÓÐ
FRJÁLS ÞJÓÐ
tltgefandi: Þjóðvarnarflokkur íslands
Ritstjóri: Jón Helgason, sími 6169.
< Afgreiðsla: Skólavörðustíg 17. Rvík. Sími 2923. — Pósthólf 561.
; Askriftargjald kr. 6,00 á mánuöi. — Verð í lausasölu kr. 2,00.
Félagsprentsmiðjan h.f.
1__________________________________________________
„Hin ábyrga afstaða"
Við kosningar. þær, sem fram
Jóru sumarið 1953, gerði Tím-
inn þessi orð að eins konar
kjörorði Framsóknarflokksins:
„Framsóknarflolckurinn er
eini flokkurinn, sem alltaf
tekur ábyrga afstöðu til
mála.“
Deilur stjórnarflokkanna,
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknar, snerust þá einkum um
það, hvert olíufélaganna hefði
gert sig sekast um stórkostleg-
asta fjárglæfra og hvort skipa-
deild S.Í.S. eða Eimskipafélagið
sópuðu til sín meiri gróða
hlutfallslega. Gerði Tíminn þá
stórgróða Eimskipafélagsins að
einu aðalmáli kosninganna.
Nú hafa þjóðvarnarmenn
flutt á þingi þær tillögur, að
Eimskipafélagið greiði 8% skatt
eða að öðrum kosti sama skatt
og samvinnufélögin greiða af
skipaútgerð sinni. En svo hefur
við brugðið, að allt annað er nú
uppi á teningnum hjá Fram-
sókn heldur en fyrir kosning-
arnar 1953. Héfði þó mátt ætla,
að þá hefði verið mótuð afstaða
Framsóknarflokksins til mála
á næsta kjörtímabili.
22. maí 1953 lýsti Tíminn því
mjög fjálglega, að „hið skatt-
.frjálsa óskabarn þjóðarinnar“
hefði grætt 51,5 milljónir
króna.
„Þjóðin borgaði ofsahá
farmgjöld, en Eimskip not-
aði féð til kaupa á gömlum
og úr sér gengnum eignum
Thorsaranna.“
Hneykslast Tíminn á því, að
Morgunblaðið
„hefur aldrei kallað þetta
1 framferði Eimskipafélagsins
j gróðabrali, okurálagningu,
j brask, mesta fjármála-
' hneyksli, sem um gctur hér
) á landi, eða tilraun til að
j safna fé á kostnað lands-
) manna“, og telur næsta frá-
I leitt, að „aldrei væri einum
eyri af því skilað aftur til
j landsmanna, sem urðu að
I greiða félaginu þessar millj-
! ónir með háu verði á þcim
| vörum, sem félagið flutti“.
Daginn eftir lýsti Tíminn
^yfir því, að Eimskipafélagið
hefði
„brugðizt trúnaði þeim, er
þjóðin sýndi því, er hún
I leyfði áðurnefnda auðsöfn-
j un. — Þetta trúnaðarbrot
) Eimskipafélagsins auglýsir,
að yfirráðin yfir því eru
j komin í hendurnar á ósvíf-
' inni f járbrallsklíku, sem
miðar starf l»ess meira við
eigin hag en liagsmuni
heildarinnar.“
27. maí segir Tíminn, að
Eimskipafélagið hafi rænt af
bændum landsins 125 þúsund
krónum í sambandi við einn
áburðarfarm, en alls sé gróði
þess af áburðarflutningiun
720 þúsund krónur. Heimtar
blaðið endurgreiðslu á þessu fé.
Daginn eftir kemst það svo að
■orði:
„Þá finnst mönnum það
lítt skiljanlegt, að Bjarni
(Benediktsson) skuli telja
það alveg sjálfsagt, að S.Í.S.
og Eimskipafélagið sæti ekki
sömu reglum“.
Síðan er heimtuð endur-
greiðsla á áburðargróðanum.
„Láti félagið bað ógert,
stendur vonandi ekki á
Sjálfstæðismönnmn að
heimta endurgreiðsluna“.
30. maí er ein fyrirsögnin:
„Felur Eimskip gróðann?" í
sama tölublaði er þeirri sök
lýst á hendur Eimskipafélaginu,
að það hafi komið úr landi 600
þúsund krónum í sambandi við
áburðarflutningana, umfram
leigukostnað við skipin, er
áburðinn fluttu.
5. júní setur Tíminn svo
fram úrslitakosti sína í spurn-
arformi:
„Er ekki gróði og fjársöfnun
félagsins orðin langt úr hófi
fram til þess, að það geti talizt
þjóna hinum upphaflega til-
gangi? Er réttlátur grundvöll-
ur fyrir algeru skattfrelsi fyr-
irtækisins, þegar bað er rekið
sem gróðafyrirtæki í jafn stór-
um stil og gert hefur verið?
Hvað finnst öðrum skattgreið-
endum?
Er ekki tímabært, að félagið
skili viðskiptamönnum sínum
til baka einhverjum hluta af
gróðanum, þegar hann nemur
árum saman 20% af heildar-
tekjum hvers árs?
. . . Er rétt, að það opin-
bera hafi enga íhlutun um þá
miklu fjármuni, sem hér um
ræðir?“
Og 25. júní segir Tíminn
berum orðum, hvað Fram-
sóknarflokkurinn vilji:
„Frá almennu sjónarmiði
virðist bað vissulega ekki
fært, að félagið haldi hlunn-
indum sínum áfram.“
Þetta var nú fyrir kosningar,
og þannig markaði Framsókn-
arflokkurinn stefnu sína í
skattfrelsismálum Eimskipafé-
lagsins. En þegar á þing kemur
og tillögur eru fluttar um það,
að Eimskipafélagið greiði sömu
skattá og samvinnufélögin.
þá stendur ekki aðeins
á Sjálfstæðismönnum að
„heimta endurgreiðsluna“,
heldur FRAMSÓKNAR-
MÖNNUM líka. Og þá er
það ekki aðeins BjarniBene-
diktsson, sem telur það „al-
veg sjálfsagt, að S.Í.S. og
Eimskipafélagið sæti ekki
sömu regliun“, heldur einnig
EYSTEINN JÓNSSON, vara
formaður Sambandsins, og
NÆR ALLT ÞINGLIÐ
HANS.
Kosningaþjark Tímans er
þannig lýst fals eitt og blekk-
ing.
„Framsóknarflokkurinn er
eini flokkurinn, sem alltaf tek-
ur ábyrga afstöðu!“
------*------
Úr vúöri veröfai
Sigur yfir sveppasjúkdómum í nytjagróðri ?
^oryrkjurnar eru hafnar, sáðtíminn fer í hönd. Sumarið er kom-
ið um norðurslóðir. 1 fyrstu viku maímánaðar er það ekki ó-
viðeigandi, að lítillega sé sagt frá nýju lyfi, sem ýmsir telja, að
geti forðað miklu tjóni af völdum sníkjusveppa á grænmeti, garð-
ávöxtum og korni. Þetta lyf hefur ekki enn verið reynt hér, eri
eitthvað af því mun vera í þann veginn að koma.
Tjón það, sem sveppir valda á
nytjagróðri urn allar jarðir, verð-
ur ekki tölum talið. Þeir eru að
verki á akri og gárðlöndum, í
vöruskemmum og búri húsmóð-
urinnar., Gró sveppa eru alls
staðar. Þau svífa ósýnilega í loft-
inu, og þeirra verður ekki' vart,
fyrr en sjúkdómseinkennin koma
fram á plöntunum — kartöflu-
mygla, kornryð, eplakrefða, rót-
arfiú, kímmygla, þrúgumygla,
mjölsveppur, dropaveiki, tigla-
veiki, hnúðsveppur.
Nýja lyfið.
^ísindamcnn hafa stefnt að þvi
að finna varnarlyf gegn svepp-
um, er jafnist á við DDT gegn
skordýrum. Bezta lyfið, sem hing-
að til hefur fundizt, er svokallað
kaptan — N-triklorethylthiotetra-
hydroftalamid. (Nafnið er langt
og erfitt). Arið 1951 var það tek-
ið í notkun á eplaræktarlendum
i Maryland í Bandarikjunum, þar
sem eplakrefðan gerði stórkost-
legan usla. 1952 var úr því skor-
ið, að það varði maisinn betur
fyrir sveppasjiikdómum en önnur
lyf, sem völ var á. Samg ár kom
það í Ijós, að það reyndist vel til
þess að varna rotnun í sætkart-
öflum í Ivaliforniu.
Tíu ára gamalt.
Vaptan er bandarísk uppgötvun,
og það er meira að segja Essó-
framleiðsla. Vísindamenn i Lind-
en í New Jersey höfðu í niu mán-
uði unnið við rannsóknir á efn-
um, sem eru í jarðoliu, og áhrif
þcirra á sveppi. Þeir höfðu atliug-
að 405 efnasambönd, er einn efna-
fræðingurinn gerði það af rælni
morgun einn i maí 1946 að þurrka
og br'cyta í duft vökva nokkrum,
sem enginn liafði búizt við, að
gæti kornið að haldi. Ofurlitið af
dufli þessu var siðan látið í til-
raunaglas, er í voru gró svepps
þess, er valda kartöflusýki. Undr-
un vísindamannanna Var mikil,
er þeir komust að raun um, að
þetta varnaði þvi, að gróin sj)ir-
uðu.
Slík cfni höfðu að vísu fundizt
áður í tilraunastofum Essós, en
hængurinn var sá, að plönturnar
þoldu þær elcki heldur. Það var
því of sncmmt að fagna. En til-
raunir þær, sem gerðar voru
næstu mánuði, sýndu, að kaptani
var öðruvísi háttað. Og það
reyndist álitlega gegn flestum al-
varlegustu sveppasjúkdómuniim,
sem garðyrkjumenn eiga við að
stríða, þótt í ljós kæmu byrjun-
arerfiðleikar við notkun þess.
Víðtæk notkun kaptans.
jjj^i-ið 1953 hafði kapian náð við-
* urkenningu í Bandaríkjunum,
og nú er ekkert varnarlyf gegn
sveppasjúkdómum talið standa
þvi jafnfætis. Hins vegar er ekk-
ert vitað um áhrif lyfsins, þegar
til lengdar lætur, og til cru líka
þeir sveppasjúkdómar, scm það
yinnur ekki á. Það er cinnig
vandfarið með það, og verður að
fylgja nákvæmlega notkunarregl-
unurn, ef það á að koma að fullu
haldi.
Flestar hinna stærri frærækt-
arstöðva vestan lrafs svepp-
hreinsa nú margs konar fræ og
sáðkorn raeð kaptani. Tómata-
jurtir eru dyftar með því, og það
er notað við sykurrófnaræktun og
baðmullarræktun. Það er einnig
mikið notað við blómarækt, til
dæmis við að verja rósir. Alpa-
rósir, prcstafífla, hnúðskáblöð og
drottningarblóm fyrir sveppa-
sjúkdómum.
Eykur geymsfuþol.
JJomiS lrefur i ljós, að kaptan
eykur stórlega geymsluþol
grænmetis og ávaxta. Epli, sem
á vaxtaskeiði voru úðuð með
kaptani, voru geymd í kælii úmi i
einn mánuð og síðan við stofu-
liita í tvær vikur. Aðeins 12%
skemnidust, en epli, er reynt var
að verja með öðrum efnum, ger-
eyðílögðust að kalla. Kartöflur,
jarðarber, ferskjur, vinber og
kirsuber geymast einnig mun
betur, ef kaptan er notað.
I.oks er sá kostur við káptan,
að, því fylgja færri skaðlegir á-
gallar cn mörgum öðrum efnum
og efnasamböndum, er notuð eru
liér í baráttunni við meindýr og
sníkjusveppi á gróðri. Það cc
lyktarlítið, og eituráhrif þess eru
veik. Reynist það í framtiðinni
eins vel og vonir eru til, liafa
jarðyrkjumenn fengið i hendur
nýtt lyf til þess að draga úr
því gifyrlega tjóni, er sveppar
valda.
Tilkynning
trá Séidarútvrgsnefnti tii
sildmrsaitrndn á JYoröur-
or/ iXusturlandi
Þeir, sem ætla að salta sild norðanlands og austan á
þessu sumri, þurfa að sækja um leyfi til Síldarútvegs-
nefndar.
Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi:
1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða.
2. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni.
3. Tunnu- og saltbirgðir.
Umsóknir sendist skrifstofu vorri á Siglufirði fyrir 31.
maí n k.
Þeir, sem ætla að salta síld um borð í veiðiskipum, þurfa:
einnig að senda nefndinni umsóknir fyrir sama tíma.
Nauðsynlegt er, að tunnu- og saltpantanir fylgi söltun-
arumsóknum.
Tunnur og salt frá nefndinni verður að greiða við mót-
töku eða setja bankatryggingu fyrir greiðslunni, áður en
afhending fer fram.
Athygli saltenda skal vakin á því, að sé salt tekið af
lager, en ekki við skipshlið, reiknast kaupendum þess
kostnaður vegna móttöku og' gevmslu, svo og afhendingar-
kostnaður.
Þeir saltendur, sem eigi panta tunnur og salt fyrir 31..
maí, þurfa að greiða allan kostnað, sem verða kann vegna
/ útskipunar og flutnings varanna milli hafna innanlands.
Stlda rú ivetasn etn d
Garðleigjendur í Reykjavík
Garðleigjendur eru áminntir um að greiða afgjöld af
leigugörðum fyrir 10. maí n.k.
Sé ekki greitt fyrir þann tíma verða garðlöndin leigð'
öðrum.
Ræktunán'áðunautur.