Frjáls þjóð - 11.03.1961, Page 1
11. marz 1961
Laugardagur
10. tölublað
10. órgangur
Án þjóöaratkvæðís mun
íslenzka þjóðin aldrei viður-
kenna afsal landsréttinda
Aufijljóst er nú orðið, að ríkisstjórnin ætlar að gera 'ið brezka ofbeidið, hefur
hespa af afgreiSslu svikasamningsins í landhelgismál- hi" v'fr,,'kkf‘ fk‘
* \ \ i •, * i • í vv j linm ad halda. Samkvæmt hon-
mu meo aóstoo handjarnaos þmgmannalios og hundsa
kröfuna um þjóðaratkvæði.
Það er ekki ný bóla. að ís- ræmdi Gamli sáttmáli hafði þau
lenzkir ráðamenn þori ekki að ákvæði, að íslendingar væru
bera svik sín undir þjóðarat- , lausir ailra mála ef erlendir að-
Þessi mynd er ó sýningu Litla Ijósmyndaklúbbsins í bogasal
Þjóðminjasafnsins. Hún er ein af mörgum sérkennilegum og
skemmtilegum myndum þeirra félaga og er tekin af Rafni
Hafnfjörð. Myndin heitir kúluvarparinn, en er þannig til kom-
in að Rafn tók mynd af loftbólum í is og með allskyns göldrum
er svo þessi mynd orðin til.
Misræmi í tollun
Undanfarið hefur verið til
sölu í verzlunum hér alimikið
af erlendu sælgæti. Sælgæti
þetta mun aðallega hafa verið
fiutt inn frá ísrael.
Verðið á þessu sælgæti mun
hafa verið vel samkeppnisfært
við verð á íslenzku sælgæti. Á
því er heldur engin furða, því
á meðan framleiðslutollar á
innlendu sælgæti hafa hækk-
að um 250%, hafa aðflutnings
tollar á erlendu sælgæti ekk-
ert hækkað
Iðnrekendur munu hafa
brugðið skjótt við, er þeim bár-
ust fréttir um þennan innflutn-
ing. Leituðu þeir til viðkomandi
ráðuneytis og færðu fram sín-
rök um hversu óréttlátt sé að
tolla innlenda framleiðslu, en
sleppa erlendum vörum við
tolla. Slíkt hlýtur að veikja
mjög samkeppnisaðstöðu okkar
unga iðnaðar og furðulegt að
slíku skuli ekki fyrir löngu hafa
verið kippt í lag.
Ráðuneytið lofaði iðnrekend-
um bót og betrun, og mun þess-
um innflutningi nú vera hætt
í bili. Væntanlega verður sú
viðreisnarbót þó ekki á þann
veg, að framleiðslutollunum
verði létt af iðnaðinum, heldur
verða aðflutningstollar vafa-
laust hækkaðir.
Af hverju? — Jú sko, ann-
ars myndi assgotans varan
lækka í verði og það væri ekki
í samræmi við viðreisnina!
kvæði. Þjóðvarnarflokkur Is-
lands hefur margoft krafizt
þess, bæði fyrr og síðar, að ís-
lenzka þjóðin yrði lótin skera úr
um það hvort hún vildi hafa er-
lendan her í landi sínu. Sú krafa
hefur ávallt verið hundsuð, m.
a. af forráðamönnum Fram-
sdknarflokksins, sem nú krefst,
og með réttu, þjóðaratkvæðis
um þetta mál. Lítið fór einnig
fyrir kröfum Alþýðubandalags-
ins um þjóðaratkvæði um her-
námsmálin, meðan ráðherrar
þess sátu í ríkisstjórn.
Núverandi ríkisstjórn þykist
því standa báðum fótum í jötu,
þegar hún hundsar kröfuna um
þjóðaratkvæði nú og er það ekki
nema í samræmi við aðrar gerð-
ir hennar, að henni þykir ein
syndin afsaka aðra.
Afsal
Iandsréttinda.
Samningar þeir ,sem gerðir
voru um inngöngu Islands í At-
Iantshafsbandalagið off einnig
samningar þeir er gerðir hafa
verið um dvöl hins erlenda hers
hafa báðir það ákvæði inni að
halda, að þeim má segja upp
með tiltölulega stuttum fyrir-
vara. Meira að segja hinn ill- i
: ilar gengju á þeirra rétt „að
beztu manna yfirsýn“.
um afsala íslendingar sér UM
ALDUR OG ÆVI þeim rétti,
sem bæði þeir og aðrar þjóð-
ir hafa tekið sér þegar land-
helgi hefur verið færð út, að
gera það með einhliða aðgerð-
um.
Því liefur aldrei verið brýnni
Samningur sá, sem stjórn og ástæða en einmitt nú, að við-
þing ísiendinga ætlar nú að j Framh. á bls. 6.
Samtök hernámsandstæðinga
halda fund í Austurbæjarbíói
Á morgun, sunnudag, boða samtök hernámsand-
stæðinga til almenns fundar í Austurbæjarbíói. Mun
á þeim fundi verða skýrt frá nýjum aðgerðum sam-
takanna.
Fundurinn hefst kl. 14 á
sunnudag. Fundarstjóri verður
Jónas Árnason. Prófessor Guðni
Jónsson mun flytja ávarp, en
ræður flytja Kristján Thor-|
iateius, formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja,
Sverrir Kristjánsson, Kjartan
Ólafsson og Jón Helgason. J
Einnig verður upplestur.
Halldór Kiljan Laxness les úr
eigin verkum og Kristbjörg
Kjeld lcikkona les upp kvæði.
Samtök hernámsandstæðinga
munu nú hyggja á nýjar aðgerð-
ir í sókn sinni gegn hinní er-
lendu. hersetu. Eins og kunnngí
er befur lítið boríð á samtökun-
um hér í Reykjavík að undan-
förnu, enda mun tíminn hafa
verið notaður til þess að und-
irbúa aðgerðir þær, sem kunn-
gerðar verða á þessum fundi.
Síðustu atburðir í sjálfstæð-
ismáium þjóðarinnar sýna
glögglega að aldrei hefur ver-
ið meiri þörf en nú, að vera
|vel á verði gagnvart erlendum
áhrifum. Er því full ástæða til
þess að hvetja fólk til þess að
jfjölmenna á þennan fund og
. taka þátt í þeirri sókn samtak-
'anna, sem nú er að hefjast.
Yfirlýsing miöstjórnar
Þjóðvarnarflokksins
Með tilliti til sanmings þess, sem ríkisstjórn Is-
lands hyggst gera við ríkisstjórn Breta um fisk-
veiðilögsögu Islands og lagður hefur verið fjrrir Al-
þingi til samþykktar, telur miðstjórn Þjóðvarnar-
flokks íslands nauðsynlegt að lýsa yfir eftirfarandi:
Allar aðgerðir Islendinga varðandi friðun fiski-
miðanna hafa til þessa verið einhliða. Hefur verið
algjör þjóðareining um að svo skyldi vera, svo og
það, að íslendingar einir geti hagnýtt allt landgrunnið
með einhliða aðgerðum.
Þetta staðfesta landgrunnslögin frá 1948, reglu-
gerðir um útfærslu fiskveiðilandhelginnar fiá 1952
og 1958, samþykkt alþingis 5. maí 1959, og f jölmargar
samþykktir almennings fyrr og síðar. Allir þeir
þingmenn, sem nú sitja á Alþingi, hafa og lýst yfir
fullum trúnaði við þessa ófrjávíkjanlegu megin-
regiu.
Miðstjórn Þjóðvarnarflokks Islands lítur því svo
á, að ríkisstjórn og Alþingi skorti umboð til að víkja
frá þessari meginreglu, hvað þá til að afsala þjóð-
inni um aldur og ævi með samningi við aðra þjóð,
rétti, sem hún á eða kynni að eignast.
Miðstjórnin samþykkir þess vegna að lýsa yfir
því, að verði téður samningur gerður milli ríkis-
stjórna Islands og Bretlands, geta þau ákvæði hans,
sem skerða rétt íslands til einhliða útfærslu fiskveiði
lögsögunnar ekki verið bindandi fyrir þjóðina, ef
synjað er þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn, né
virt af þeim ríkisstjórnum, er í framtíðinni í’jalla um
málið.
Auk þess lýsir miðstjórnin yfir því, að samning,
sem gerður er við þá einu þjóð, sem beitt hefur vopna-
valdi vegna andstöðu við útfærslu fiskveióilögsög-
unnar, beri að meta sem nauðungarsamning, enda
hefur ríkisstjómin réttlætt hann með bví, að með
honum væri komið í veg fyrir hugsanlegt manntjón,
sem hljótast kynni af hernaðarofbeldi Breta innan
íslenzkrar lögsögu.
Þjóðvarnarflokkurinn mun bví beita séi fyrir
því, að létt verði af þjóðinni við fyrsta tækifæri því
oki, sem í samningnum felst, og þjóðinni aflað á ný
þess fyllsta réttar, sem frjálsar þjóðir hafa til á-
kvörðunar fiskveiðilögsögu sínnar.