Frjáls þjóð - 31.03.1962, Page 2
Steinn Steinarr:
Við
opinn glugga
Laust mál.
Hannes Pétursson sá um
útgáfuna.
Menningarsjóður,
Reykjavík, 1961.
Prentsmiðjan Oddi h.f.
Bók þessi skiptist í 3 kafla,
auk inngangsorða útgefand-
ans: Prentaffar greinar, Af
eftirlátnum blöffum og Vifftöl.
Til fyrsta kaflans þykir mér
einna mest koma, enda hafði
skáldið sjálft að fullu frá hon-
um gengið í prentvélina. Af
öðrum kaflanum hafði Steinn
aðeins fullgert 4 greinar, en
hitt var einungis í brotum.
Þriðju kaflinn, Viðtöl, er end-
urprentaður úr blöðum og
tímaritum.
Allt ber efnið ótvíræð snilld-
areinkenni Steins. Tilsvör
hans og viðbrögð voru fræg,
skeytin markviss og hvöss að
sama skapi. En verk sem
þessi geta ekki öll verið jafn
heilsteypt, sízt brot og viðtöl,
sem eru allmjög háð spyrj-
anda. Fátt sýnir þó betur
fimi skylmingamannsins en
andsvör við óvæntum atlög-
um blaðamanna, enda var
Steinn mikill íþróttamaður í
viðræðum. Samt sem áður eru
Viðtölin ekki eins rökrétt og
samkvæm og hinar vel íhug-
uðu greinar. Er það að von-
um. Tvímælis getur það ork-
að, hvort minningu andans
manna er nokkur greiði ger
með því að birta ófullgerð
brot eftir þá eða viðtöl, sem
v.-'
Wmmi
‘ f t
•Steinn Steinarr
þeir ef til vill veita gegn vilja
sínum. En þau geta skýrt
mynd þeirra, varpað á hana
birtu, dýpkað drætti og
skugga.
Hafa því einnig viðtölin sitt
gildi.Samt skerpa þau minna
en vænta hefði mátt skilning
á innsta hug mannsins Aðal-
steins Kristmundssonar. Til
þess brynjar hann sig um of
og dylur einlægni sína í þeim.
Viljum vér skynja það, sem
býr hjarta nær hjá Steini,
verður betra ráð að lesa af-
mælisgreinarnar um vini
hans, Jóhannes úr Kötlum og
Harald Sigurðsson, eða minn-
ingargrein um Magnús Ás-
geirsson látinn. Þar segir
hann hug sinn allan, Þess
vegna þykir mér vænst um
þær og þvílíkar greinar af öllu
lausu máli Steins. Lausa mál-
ið eykur að vísu ekki á hróð-
ur skáldsins Steins Steinars,
enda hefði þurft mikið til
En það eykur áhuga vorn á
manninum, einkum greinarn-
ar, þar sem orðin eru vermd
vináttu og tryggð.
En greinarnar hafa einnig
annað og ef til vill enn meira
sér til ágætis. Ýmsar þeirra
eru afburða skarplegt innlegg
í bókmenntalegri og iistrænni
skilgreiningu. Sjá t. d grein-
arnar um Þorvald Skúlason
málara og Lestrarbók Sigurð-
ar Nordal, enn fremur hin
skörpu skrif Útvarp Reykja-
vík og Um málverkasýningu,
þar sem ýmsir málarar í
fremstu röð eru gagnrýndir
miskunnarlaust. Um niður-
stöðu gagnrýninnar geta að
vísu verið skiptar skoðanir,
en hvorki um skarpleika né
djörfung Steins.Hvort tveggja
er aðdáunarvert.
Loks er svo að geta þess, að
Við opinn glugga er framúr-
skarandi skemmtileg bók.Hún
er ekki með öllu iaus við
mótsagnir. Við fyrstu yfirferð
getur lesandinn sums staðar
verið í vafa um, hvar skáld-
inu er alvara og hvar það er
að gera að gamni sínu eða slá
ryki í augú fólks. En við end-
urtekinn og íhugulan lestur
þarf engum að vera það dul-
ið, sízt þeim, er þekktu Stein
persónulega eða eru hand-
gengnir ljóðum hans Bókin
eykur líka skyn vort á þeim
og viðhorfi skáldsins til lífs
og listar. Sá er höfuðkostur
hennar, þegar öll kurl koma
til grafar.
Ég las þessa bók í einni lotu,
þegar hún kom út fyrir jólin,
endurlas hana nýlega með
engu minni ánægju, og gat
við hvorugan lestur oft og
einatt varizt hlátri. Líklega
þykir flestum sá kostúr henn-
ar mest virði. Hún var meðal
allra skemmtilegustu bóka
síðast liðins árs.
Þóroddur Guffmundsson.
★
Magnús Ásgeirsson:
Síðustu
þýdd ljóð
Guðmundur Böðvarsson
bjó til prentunar
Menningarsjóðurf
Reykjavík, 1961.
Prentsmiðjan Oddi K.f.
Útkomudagur bókarinnar
var 9. nóvember, en þann dag
hefði Magnús orðið sextugur.
Þetta er því að öðrum þræði
minningarútgáfa, en að hin
um til að bæta í áður ófyllt
skarð. því að fæst ljóðin voru
birt fyrr, og aðeins eitt þeirra
í eldri þýddum ljóðum hans.
Var því þarft verk að safna
þessum kvæðum saman og
gefa þau út. Er hætt við. að
dráttur hefði á því orðið, ef
stjórn Menningarsjóðs hefði
eigi látið vinna það.
Þó að Ijóð þessi séu ekki
nema 22 að tölu og taki að-
eins yfir 3 arkir, þarf enginn
að ætla, að þau fari erindis-
leysu út um byggðir landsins
Bókin verður mörgum kær
komin. í henni eru sannkall-
aðar perlur. Sem dæmi má
nefna kvæðið Sá, sem af al-
huga ann (frumhöfundur
Paul Heysa). Það er svona:
Sá, sem af alhuga ann,
unir ei sollinum lengur,
hljóður í gullskýi hann
gengur
með guð fyrir leiðsögumann.
Líkt og í leiðslu að sjá
lætur hann augu sín reika,
öðrum sér ann hann að leika.
ein er hans löngun og þrá
Fagnandi í huga, en fár,
fær hann ei leynt, sem hann
hyggur.
að lífsins kóróna liggur
Ijómandi honum um brár.
Ástæðulaust er að birta
fleiri tilvitnanir. Magnús var
svo viðurkenndur ijóðaþýð-
andi, að hér gerist engin þörf
að fara um hann fleiri orð-
um, enda ekkert rúm til þess.
Útgáfan virðist unnin af
alúð og samvizkusemi Eina
prentvillan, sem ég hef séð,
er í kvæðinu Vilna á bls. 47,
5. 1. að ofan: bænum f. blæn
um. Og formáli Guðmundar
fyrir ljóðunum, ásamt sér-
stakri greinargerð fyrir
hverju þeirra, er þrunginn
samúð, aðdáun og skilningi á
verkum Magnúsar Ásgeirs-
sonar, enda má telja hann
með því bezta, sem ym Magn-
ús hefur verið ritað.
Framan við titilblaðið er
góð ljósmynd af Magnúsi.
Þeim, sem áhuga hafa á slíku,
skal bent á það. að af bók-
inni voru gefin út 50 tölusett
eintök, prentuð á íallegan
pappír, eíngöngu ætlúð tii
gjafa.
/ Vissulega voru það mistök,
að þessu ljóð skyldu mæta af-
gangi, þegar Kvæðasafn
Magnúsar var gefið út árin
1957 og 1960. En nú hefur ver-
ið úr því bætt með smekkvísu
móti. Á Bókaútgáfa Menning-
arsjóðs þakkir skyldar fyrir
Enginn ljóðavinur né aðdá-
andi Magnúsar Ásgeirssonar
sérstaklega getur íátið Síð-
ustu þýdd Ijóð hans vanta i
bókaskáp sinn.
Þóroddur Guffmundsson.
IK
l><
IX
1
í><
i
1
1
1«
[><
siiíaiiíaiaiiasgiiiiHisiEiiasiissiMaiisiaisisigiiBiiHiiasHigiiMaiMEiMisisiiissigidgiHigiiaBiEisisaiBiiaiagiiaiKiBKaaEiaigiiasiiiiaiaiisiBEHEisíiBEiiiBiiaii
2
Frjáls þjóS — Iaugardaginn 31. marz 1962