Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 05.12.1968, Blaðsíða 7

Frjáls þjóð - 05.12.1968, Blaðsíða 7
Drykkjuskapur Framhald af bls. 5. fcilfellum varSaSi þetta 1 1 stúlkur á sama aldrí. Nefndin segir í skýrslu 3Ínni aS meginástæSa til þeirrar fjölgunar brota, sem átt hefur sér staS, 3e vegna skorts á vistunaroöguleik- um eSa öðrum úrraswum. En végna þess hafi ekki tekizt aS binda enda á brotaferil nokkurra eldri drengja. Barnaverndarnefnd hafði auk þessa afskipti af 119 heimilum vegna aSbúnaðar barna, en þarna var um 3 1 0 börn að ræSa. Til rúmlega helmings þessara heimila mátti rekja erfiSleikana til drykkjuskapar og annarrar deyfilyfjanotkunar húsráS- enda. í 23 tilfellum var um hirSuleysi aS ræSa og í 1 7 skipti um að ræSa erfiSleika vegna veikinda, húsnæðis- leysis o. s. frv. Auk fyrrnefndra afskipta hafði barnaverndarnefnd af- skipti af málum barna vegna fjarvista úr skólum, deilna um forræSi, ættleiSingu og fleira. AðgerSir. Barnaverndarnefnd hefur veitt öllu mþeim, sem leitaS hafa til hennar, leiSbeining- ar og margvíslega aSstoS eftir því, sem tök hafa veriS á hverju sinni. Er viSleitnS af þessu tagi alltaf undan- fari annarra aðgerða. Nokkr- um er og vísað til meSferS- ar og fyrirgreiSslu hjá öðr- um aSilum eftir því sem viS á. Ber hér einkum aS nefna GeSverndardeild Heilsu- verndarstöSvarinnar, Sál- fræSideild skóla og þá deild fræðsluskrifstofu Reykjavík ur, sem annast eftirlit með skólasókn. TalsverSur hluti þeirra mála, sem til nefnd- arinnar er vísaS, leysist með þessum hætti og gefur því ekki tilefni til róttækari að- gerSa. Sé þörf frekari aS- gerSa, hefur nefndin einkum um tvennt aS velja: Setja heimili undir fast eftirlit eSa ráSstafa börnum aS heiman. Undir eftirliti í ársbyrjun 1967 voru 44 heimili með samtals 1 71 barn, en í árs- lok voru heimilin 77 tals- ins með samtals 226 börn. Vegna fjölgunar starfsfólks reyndist unnt aS hafa eftir- Iit með mun fleiri heimilum en á undanförnum árum. A árinu útvegaSi nefndin alls 25 1 barni dvalarstað um lengri eSa skemmri tíma á hinum ýmsu barnaheimilum, sem Reykjavíkurborg og rík iS reka eSa á öSrum heim ilum á vegum einstaklinga. Breytt skipan barnaverndar- mála, Á árinu 1967 var lagSur grundvöllur aS miklum skipulagsbreytingum á barnaverndarstarfi borgar- innar. Borgarstjórn sam- þykkti aS endurskipuleggja félagsmál borgarinnar, sem miðaðist aS því að sameina meir en veriS hefur hinar ýmsu stofnanir, sem að þess um málum hafa unniS. I þessu efni var komiS á fót nýrri stofnun, félagsmála- ráSi, en þaS er skipaS 7 mönnum, borgarstjóra eSa fulltrúa hans og 6 öSrum, sem kosnir eru af borgar- stjórn. Félagsmálaráð fer meS .æðstu stjórn allra fé- lagsmála borgarinnar. Jafn- framt voru skrifstofur barna verndarnefndar og félags- og framfærslumála samein- aðar í félagsmálaskrifstofu. HiS nýstofnaða félags- málaráS hefur einkum beitt sér fyrir því aS ráSa bót á þeim skorti á sérmenntuSu fólki, sem lengi hefur staSiS félagsmálastarfi borgarinnar fyrir þrifum. AukiS starf. Auk þess, er getið hefur verið um störf barnaverndar nefndar má e:eta bess, aS nefndin hefur haldið uppi allumfangsmikilli eftirlits- starfsemi í borginni, þ. e. eftirliti með útivist barna á kvöldin. Þá jók nefndin á síSastliSnu sumri mjög eftir lit meS sumardvalarheimil- um víSa um land. í upphafi skýrslu barna- verndarnefndar er greint frá því, aS Þorkell Kristjánsson framkv.stjóri nefndarinnar, hefur látiS af starfi vegna vanheilsu, eftir aS hafa unn iS samfellt hjá nefndinni frá 1944. Er Þorkell fyrsti mað- ur hérlendis, sem hefur haft barnaverndarstarf að ævi- starfi. — Núverandi fram- kvæmdastjóri barnaverndar er dr. Björn Björnsson, en formaSur nefndarinnar, Ól- afur Jónsson, tollgæzlu- stjóri. eh. Mioniagarspjöld Rauða kross tslands eru afgreldd <i skrifstofu félagslns a? Öldu- ■'fitu 4. Sími 14658 Frjjáls þjóð — Fimmtudagur 5. desember 1968 7

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.