Vikublaðið - 08.07.1994, Page 6
6
fsland
VIKUBLAÐIÐ 8. JÚLÍ 1994
-----------:
mi ^wSrf m $$$$■. IHt* * tv> *yg s * ' /
Perlur í sandi
skaparhætti. Síðast en ekki síst má
nefna að líklega keppa fáir íslenskir
staðir um náttúrufegurð við þjóð-
garðinn í Skaftafelli og Vatnajökul,
þann þriðja stærsta í Evrópu ef þið
hafið gleymt barnaskólalandafræð-
inni. Fáum tekst að láta sér leiðast í
Oræfum.
Ferð út í Ingólfshöfða er eitt-
hvað sem allir ættu að reyna og
Vikublaðið brá sér þangað á
dögunum. Að fara út á sandinn, sjá
jökulinn gnæfa yfir byggðina í Öræf-
um og horfa til hafs á þeim stað þar
sem Ingólfur á að hafa komið fyrst að
íslandi er næstum ólýsanleg upplifun.
Sigurður Bjamason á Hofsnesi
byrjaði fyrir nokkram áram að gera
tilraunir með Höfðaferðir og meðal
þess sem hann býður upp á era ferðir
á dráttarvélarkerra. Þær njóta sífellt
meiri vinsælda hjá ferðamönnum.
Torfkirkja á Hofi
I Öræfasveit eins og víðar hafa
bændur snúið sér að ferðaþjónustu í
auknum mæli og í þessum 120 manna
hreppi er mögulegt að taka 200 gesti í
gistingu fyrir utan þann ijölda sem
rúmast á tjaldstæðinu í Skaftafelli. A
þeim tíma sem uppbyggingin í ferða-
þjónustunni hefúr átt sér stað hafa oft
heyrst þær raddir að ,.nú hafi menn
endanlega gengið af göflunum." Þrátt
fyrir úrtöluraddir hefur allt gengið að
óskum enn sem komið er. Og það sem
meira er; gistirýmið er nær fullnýtt
þegar ferðamannastraumurinn stend-
ur sem hæst. Halda mætti að hver taki
viðskipti frá öðram en svo virðist ekki
vera.
Á dögunum var Flosasundlaug vígð
í Svínafelli og er ædunin að koma þar
upp tjaldstæði. Sundlaugin er kynt
með orku frá sorpeyðingarstöð sveit-
arinnar, Brennu-Flosa. ÁJökulsárlón-
inu á Breiðamerkursandi er boðið upp
á siglingar, frá Skaftafelli er farið í
jöklaferðir, hestaleiga er í sveitinni,
útsýnisflug er í boði og svona mættí
áfram telja. I Öræfum eru einnig fjöl-
margir sögustaðir og minjar frá fyrri
tíð. Sóknarkirkja Öræfinga er t.d.
torfkirkja frá 1884, ein af þremur
kirkjum af þessari gerð á Islandi sem
varðveist hefur. Kirkjan vekur mikla
athygli bæði meðal Islendinga og út-
lendinga. I Skaftafelli er varðveittur
gamall bær þar sem sjá má forna bú-
Á efri myndinni er Öræfajökull
séður frá Ingólfshöfða. Ef grannt er
skoðað og myndin prentast vel má
sjá hvíta depla sem eru hluti
byggðarinnar í sveitinni. Jökullinn
er aðalaðdráttarafl ferðamanna á
þessum slóðum.
Til hliðar: Ferðamenn í Ingólfshöfða
við súluna sem reist var í tilefni
1100 ára afmælis íslandsbyggðar
1974. Á þessum stað hófst hátíðin
1974.
Með Sigga á Nesinu út í
Ingólfshöfða
Sigurður Bjarnason hætti fyrir
nokkrum árum að búa fjárbúi en hann
er vitavörður í Ingólfshöfða. Hann
segist hafa byrjað að fara með kunn-
ingja út í Höfða en smám saman hafi
þetta hlaðið utan á sig. Ferðin hefst
fyrir neðan hamrana á Fagurhólsmýri,
örlítið fyrir neðan flugvöllinn. Þaðan
keyrir dráttarvélin út á sandinn yfir ár
og læki. Ef mikið hefúr rignt er jafn-
vel hægt að blotna í fæturna en það
eykur á spennuna í ferðinni. Svo er
auðvitað alltaf mögulegt að festa sig!
Þegar að Ingólfshöfða er komið er
gengið um svæðið og Siggi á Nesinu,
eins og hann er yfirleitt kallaður, seg-
ir sögu Ingólfshöfða. Síðan er gengið
upp í vitann. Það er auðvelt að gera
sér í hugarlund upplifún údendinga í
svona ferð. Fuglalífið er kannski það
sem vekur mesta athygli hjá þeim og
þeir sem era heppnir sjá meira að
segja hvali.
Lundinn vinsælastur
Sigurður hefúr frá 1993 verið á full-
um krafti í Höfðaferðunum. Hann
flutti 900 manns fyrsta sumarið, 1300
í fyrra og það stefnir í að verða 2.000 í
sumar.
„Það er einkum tvennt sem gerir
Ingólfshöfða vinsælan. Þetta er einn
merkasti sögustaður þjóðarinnar þar
sem að Ingólfur kom að landi einmitt
hér og svo er það fúglalífið sem út-
lendingarnir vilja skoða. Lundinn og
skúmurinn era vinsælastir hjá þeim,“
segir hann.
I fyrrasumar héldu uin 20 hrefnur
sig við höfðann og Sigurður segir að
80-90 prósent þeirra sem fóra út í
Höfða í fyrra hafi séð hrefúurnar og
það hafi vakið mikla ánægju. Hann
notar gömlu dráttarvélina og hey-
kerrana sem hefur lítillega verið end-
urbætt til að gegna hinu nýja hlutverki
sínu. I sumar hefur Sigurður teldð
nýja dráttarvél í notkun og næsta
verkefni er að smíða nýja kerra sem er
betur til þessara ferða fallin. Ferðin
tekur 3 tíma en fer allt upp í 4-5 tíma
ef útlendingarnir era mjög áhugasam-
ir. En þrátt fyrir að útlendingar séu
mikill meirihluti þeirra sem fara í
höfðaferðirnar era Islendingar auð-
vitað manna velkomnastir.
Hlaðan orðin veitinga-
staður og gistiheimili
Ari Magnússon og Sigrún Sæ-
mundsdóttir að Hofi hafa verið í
Ari Magnússon (t.h. á myndinni viö barnavagn og snýr baki í myndavélina) segir gestum sögu kirkjunnar á Hofi
sem er frá 1884. Kirkjan er ein af þremur torfkirkjum á íslandi sem varðveist hafa.
Gestir á ættarmóti gróðursetja trjáplöntur fyrir ofan bæina á Hofi. Ættarmót
verða stöðugt vinsælli, ekki síst í Oræfasveitinni.