Vikublaðið


Vikublaðið - 15.07.1994, Page 11

Vikublaðið - 15.07.1994, Page 11
YIKUBLAÐIÐ 15.JÚLI 1994 11 Bíódagar 1/2 Sýnd í Stjömubíó og Saga-Bíó Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson Aðalhlutverk: Örvar Jens Amars- son, Jón Sigurbjömsson, Rúrik Haraldsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir. Bíódagar Friðriks Þórs Friðriks- sonar og Einars Más Guð- mundssonar er mynd sem flest- ir bíóglaðir Islendingar hafa beðið eff- ir með fiðurfénað í hálsinum. Efrir- vænting þessi stafar aðallega af því að síðasta afurð tvíeykisins áðurnefnda hlaut náð fyrir augum Oskars og fé- laga íyrir tveimur árum eða svo. Ar- angur sem þessi er auðvitað af hinu góða en það verður líka að athuga að með þess konar velgengni hafa Frið- rik og Einar byggt sér skýjakastala, sem er að auki ansi háll, þannig að greið- asta leiðin er niður á við. Það skiptir í raun ekki miklu máli hversu vel Bíó- dagar heföi heppnast, hún hefði undir flestum kring- umstæðum valdið von- brigðum. En á dauða mín- um átti ég von frekar en að hún yrði hreint og beint slæm, sem hún er því mið- ur. Handrit myndarinnar er svo meingallað að þeir kost- ir sem myndin hefur að bera eru kæfðir á augna- bliki. Svo maður byrji á ljósustu punktunum þá » skartar myndin hreint frá- bærri myndatöku Ara Krist- inssonar og stórkostlegri tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar að vanda. Að auki er tímabilið sem myndin á að gerast endur- skapað á fremur sannfær- ísak Jónsson andi.hátt. En hnökrarnir eru eins og áður sagði margliðaðir og má þar til dæmis nefha að myndin inniheldur allt of mikið af sögupersónum. Einar og Friðrik hafa kosið að dæla í mynd- ina heilum aragrúa af aukapersónum og útkoman verður sú að engin þeirra fær að njóta sín á fullnægjandi hátt. Eina persónan sem gerð eru einhver skil er bóndinn sem Jón Sigurbjörns- son leikur, hann á hreint ágæta spretti. Aðrar persónur vafra bara um án þess að áhorfandinn fái nokkurn tíma að skyggnast undir yfirborðið hjá þeim. Tilgangur flestra aukapersón- anna er að vera annað hvort fyndnar eða ógnvekjandi í nokkrar mínútur og hverfa svo. Því er myndin einhver sú yfirborðs- kenndasta sem ég man eftir í bili, ég er ekki frá því að jafnvel persónurnar í Veggfóðri hafi verið dýpri, þótt ótrú- legt megi virðast. Þar eð persónurnar eru í raun hálfgerðir leikmunir fá leik- ararnir lítið svigrúm til að túlka þær á sannfærandi hátt og er því leikurinn mestallur um og undir meðallagi. Annar helsti gallinn er uppbygging myndarinnar. Hún er byggð upp sem eins konar sögubrot eða glefsur án sýnilegra orsakatengsla og verður því myndin öll hin samhengislausasta og dramatísk uppbygging atriða verður klaufaleg, svo ekki sé meira sagt. Eitthvert verst uppbyggða atriði myndarinnar er án efa dauði föðurins, sem Rúrik Haraldsson leikur, og helst það í hendur við þá slæmu persónu- sköpun sem einkennir myndina. Þó það hljómi lygilega finnst mér eins og þeir hafi eytt meiri tíma í að sýna ffá jarðarförinni hans Rúriks heldur en fór í að kynna persónuna sjálfa og seg- ir það sitt um stirðbusalega uppbygg- ingu. Maður fékk einfaldlega ekkert að kynnast föðurnum né sambandi hans við aðalpersónuna og er því nokk sama þegar hann hrekkur upp af. Ef- ast ég um að það hafi verið ætlun handritshöfunda. Eiginlega finnst mér að þeir Friðrik og Einar séu að nota rangan miðil til að koma þessum endurminningum sínum á framfæri. Ég held að myndin hefði sómað sér mun betur sem sjónvarpssería, hálftíma þættir sem sýndir væru á sunnudögum í RUV. Þá hefðu þeir getað tekið ákveðnar aukapersónur fyrir í hverjum þætti og farið al- mennilega ofan í kjölinn á þeim í stað þess að láta þær líða um eins og drauga og segja brandara. Þeir hefðu einnig komist mun betur upp með þetta glefsuformat sitt ef um stutta þætti hefði verið að ræða. En svo fór sem fór, félag- arnir ákváðu að gera úr þessu meðallanga bíómynd, of- fylltu hana svo af litlum at- riðum sem þeim fannst snið- ug, með þeim afleiðingum að ekkert atriðanna er fullkom- lega dramatíserað og persón- urnar fjara allar út og verða tilgangslausar. Þegar öllu er á botninn hvolft er Bíódagar hreinlega vond bíómynd og án efa ein af stærstu vonbrigðum ís- lenskrar kvikmyndasögu. Vonandi að Cold Fever komi Friðriki aftur á réttan kjöl. Sagt nieð mynd Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Þuríður Hjartardóttir The salts in the ocean come mostiy.frop the lani Rocks and soil contain many elements, induding ffie sodium and chloride that make up ordinary table salt Rain falling onto the land dissolves salts and offier minerals in rock and soil. The minerals ffien wash into rivers and streams. They carry billions of tons of saits to the ocean each year. When ocean water evapo- rates, salts are left behind. TTie salts in ffie ocean todayaccumu- lated over millions of years. Lausn inyndagátunnar í síðasta blaði er: „Rúsar hafa sett bann á sölu á fiski úr skipum sínum til íslenskra kaupenda.

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.