Vikublaðið


Vikublaðið - 15.07.1994, Side 12

Vikublaðið - 15.07.1994, Side 12
Munið áskriftarsímann nSHBHiBHMBMBUBnm 17500 Fríverslunarsamningxir við Bandaríkin og/eða aðild að Fríverslunarsamningi Norð- ur-Ameríku, NAFTA, er álitlegur kostur fyrir viðskiptahagsmuni Is- lendinga. Þetta er niðurstaða rit- gerðar sem Viggó Einar Hilmars- son skilaði nýlega til BA-prófs í fé- lagsvísindadeild Háskólans. Viggó segir Islendinga standa frammi fyrir Jnem kostum í utanríkis- viðskiptum. í fyrsta lagi að ganga inn í Evrópusambandið, ESB, í öðru lagi að fara í tvíhliða viðræður við ESB og í þriðja lagi að gera fríverslunarsamn- ing við Bandaríkin og/eða aðild að NAFTA. NAFTA varð til fyrir tveim árum þegar leiðtogar Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó staðfestu samn- inginn sem byggði á fríverslunar- samningi tveggja fyrstnefndu ríkj- anna. NAFTA er ólíkt ESB að því leyti að ekki er gert ráð fyrir að aðild- arríkin framselji vald til yfirþjóðlegra stofnana og frjáls flutningur vinnuafls er ekki leyfður innan aðildarríkja NAFTA. Þá er ekki gert ráð fyrir að aðildarlönd NAFTA móti sameigin- lega stefhu í utanríkismálum eða sjáv- arútvegs- og landbúnaðarmálum. í ritgerðinni rekur Viggó viðleitni íslenskra stjórnvalda til að fá Banda- ríkjamenn að viðræðuborði um frí- samning við íslendinga. Ári áður höföu Bandaríkjamenn gert fríversl- unarsamning við ísraela og markaði sá samningur stefnubreytingu hjá stjórn- völdum í Washington. Meginrök fyrir gerð fnverslunar- samnings við Bandaríkin eru bættur markaðsaðgangur íslenskra fyrirtækja og jöfhun samkeppnisstöðu Islands og Kanada á Bandaríkjamarkaði, en Kanadamenn hafa verið samkeppnis- aðilar okkar á sjávarútvegsmörkuðum fyrir vestan. Þá yrði Island vænlegri kostur fyrir erlendar fjárfestingar. Is- land gæti orðið eina ríkið með toll- frjálsan aðgang bæði að Bandaríkja- markaði og innri markaði Evrópu- bandalagsins. Það er hugsanlegt að það væri kostur fyrir bandarísk fyrir- tæki ef Island yrði eina EES-landið utan ESB. Framleiðsla sem bæri til- tölulega háa tolla í Evrópusamband- inu væri betur komin hér en í Banda- ríkjunum. Þetta er þó ókannaður möguleild. Einnig er þess að geta að bandarískur varningur yrði ódýrari fyrir íslenska neytendur. Bandarískt stjórnvöld létu sér lengi vel fátt um finnast áhuga íslendinga á fríverslunarsamningi. Itrekaðar til- raunir til að koma málinu á dagskrá hafa hinsvegar leitt til þess að Banda- ríkjamenn eru farnir að svara Islend- ingum. Utanríkismálanefnd Alþingis fór til Bandaríkjanna í vor og mætti þar meiri skilningi en áður þótt áhugi Bandaríkjamanna beinist fremur að nánari viðsldptatengslum við ríki Suð- ur-Ameríku. Bandarískir þingmenn voru jákvæðir gagnvart þeim hug- myndum sem utanríkismálanefhd reifaði. Viggó telur að fríverslunarsamn- ingur við Bandaríkin sé raunhæfur möguleiki. „Gagnvart Islandi er stað- an nú þannig að ef ákveðið yrði að leita eftir gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin gætu samningaviðræð- ur ekki hafist fyrr en 1995, það er eft- ir að Bandaríkjaþing hefur afgreitt nauðsynlegar lagabreytingar vegna Urúgvæsamningsins. Eins og staðan er um þessar mundir er þó líklegast að gerður verði annað hvort ramma- samningur við Bandaríkin eða tvíhliða samningar um einstök mál. Slíkir samningar gætu þróast yfir í ffíversl- unarsamning síðar. Möguleikar Is- lands á því að gerast aðili að NAFTA eru vissulega fyrir hendi en það ferli gæti tekið mörg ár í framkvæmd," se^ir Viggó. I niðurlagi ritgerðarinnar segir að hvort sem ísland ákveði að styrkja tengsl sín við Evrópu frekar, eða láta sitja við EES-samninginn, sé mikil- vægt að treysta sem best viðskipta- tengslin við Bandaríkin. verslunarsamning milli landanna. Schram þar sem skorað var á þáver- Vorið 1986 var samþykkt á Alþingi andi ríkisstjórn að kanna vilja Banda- þingsályktunartillaga Gunnars G. ríkjamanna til að gera fríverslunar- Verður maður hraustur af NAFTA? NAFTA álitlegur kostur fyrir ísland Verð frá 1.2 i z I SCOUPE TÚRBÓ ...og gamanið hefstfyrir alvöru HYunoni ...til framtídar Hyundai Scoupe er hannaður fyrir þá sem hafa yndi af akstri og þora að vekja athygli. Útlitið er ferskt og sportlegt og þýður akstur bílsins í samræmi við mjúkar bogadregnar línur hans. SjMfa 40 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMl: 3 12 36 Láttu drauminn rætast - fáðu þér fallegan sportbíl og njóttu þess að vera úti að aka. Álfelgur ® Vindskeið með bremsuljósum • Útvarp, geislaspilari og 4 hátalarar • Leðurklætt stýri • 1500 cc • llóhestöfl

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.