Vikublaðið - 05.08.1994, Side 1
Sólveig
Bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins í ónefhdu byggðalagi á Suð-
urnesjum hefur milda reynslu af
samvinnu og sameiningu í
stjórnmálastarfi. Hún ræðir
þólitík á bls. 6-7
Jón Sæm.
Hann er út um allt: Myndlistar-
maður, leikari í íslenskri bíó-
mynd, framleiðir lampa úr
þvottaefnisbrúsum og byggir
kastala á fjallstoppum. Iiver er
Jón Sæm? Bls. 4
Svavar
Fyrrverandi menntamála-
ráðherra ræðir skólastefnu
núverandi menntamálaráðherra
og segir ekki von á góðu þegar
leyninefnd er látin stjórna
ferðinni. BIs. 5
30. tbl. 3. árg.
5. ágxist 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Ríkisstjórmn hefur gefíst upp
Ólafur Ragnar Grímsson: Hér verður að koma til ný stjórnarstefna með allt öðrum áherslum en þeim sem þessi
ríkisstjórn hafði. Við í Alþýðubandalaginu göngum til kosninga með ítarlega og viðamikla stefnuskrá
essi ákvörðun Davíðs Odds-
sonar um að boða til þing-
kosninga er auðvitað viður-
kenning á uppgjöf. Þessari ríkis-
stjóm var ætlað að endurvekja
gamlan draum um langvarandi
Viðreisn, en nú er hins vegar
hlaupið frá borði eftir rétt rúmlega
þriggja ára stjómarsetu og forystu-
menn ríkisstjómarflokkanna hafa
varla ræðst við frá því á síðastliðnu
hausti, segir Ólafur Ragnar Gríms-
son formaður Alþýðubandalagsins.
Nú er orðið borðleggjandi að þing-
kosningar fari fram í haust, væntan-
lega í byrjun október. Astæður þess að
stjórnin kýs að sitja ekki út kjörtíma-
bilið eru margar. Fyrir utan almenna
og persónulega samstarfsörðugleika
nefha menn að framundan er erfið
fjárlagagerð.
Halli ríkissjóðs verður 13 til 15
milljarðar í ár og halli næsta árs stefn-
ir að óbreyttu í að vera um 20 millj-
arðar. Þá er nefnt að vextir fara upp á
nýjan leik.
Þessu til viðbótar spáir Þjóðhags-
stofhun áframhaldandi miklu atvinnu-
leysi ofan í vaxandi óróa á vinnumark-
aðinum. Frammi fyrir þessum vanda-
málum hefur ríkisstjórnin því ákveðið
að gefast hreinlega upp.
Ólafur Ragnar segir Alþýðubanda-
lagið tilbúið í slaginn. „Hér verður að
koma til ný stjórnarstefna með allt
öðrum áherslum en þeim sem þessi
ríkisstjórn hafði. Við í Alþýðubanda-
laginu gáfum út í vor bókina Utflutn-
ingsleiðin, sem oftar er nefnd Græna
bókin. Þar er í ítarlegu máli lýst stefhu
nýrrar hagstjórnar á Islandi. Við
göngum því til kosninga með ítarlegt
og viðamikila stefnuskrá. Eg veit ekki
hvernig aðrir flokkar standa eða hvað
þeir munu boða, nema að Jón Baldvin
boðar aðild að Evrópusambandinu.
Raunveruleg vandamál dagsins eru
hins vegar allt önnur; atvinnuleysi,
stöðnun, ríkissjóðshalli, aukið misrétti
í launamálum og vaxta- og peninga-
kerfi sem er ekki í neinum takti við
samkeppnislöndin okkar,“ segir Ólaf-
ur.
Þingmenn Alþýðubandalagsins
og formenn kjördæmisráða hafa
verið boðaðir á vinnufund til und-
irbúnings kosningum. Fundurinn
verður ld. 10 á laugardegi í höfuð-
stöðvum flokksins að Laugavegi 3.
Dagsbrún hafnar ASÍ
Verkamannafélagið Dags-
brún íhugar að segja sig úr
Alþýðusambandi íslands.
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar segir að úrsögn
úr ASI verði tekin á dagskrá á næst-
unni.
- Við erunt skotspónn ASÍ-
klíkunnar og höfum takmarkalausa
fyrirlitningu á vinnubrögðum hennar,
segir Guðmundur J. Guðmundsson.
Síðusm misserin hefur verið stirt á
milli Dagsbrúnar og Alþýðusam-
bandsins. Kom það ineðal annars
fram í deilu BSRB og ASI síðastliðinn
vetur um félagsaðild starfsfólks Stræt-
isvagna Reykjavíkur. I óþökk ASÍ
studdi Dagsbrún kröfu starfsfólks um
áframhaldandi aðild þess að launþega-
samtökum opinberra starfsmanna
þótt Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
einkavæddu SVR.
Forysta Dagsbrúnar er afar óánægð
með frammistöðu ASI í umræðunni
um sjúkrasjóði verkalýðsfélaga sem
Morgunblaðið hefur haldið gangandi
síðustu vikurnar. A síðum Morgun-
blaðsins hefur Dagsbrún verið sökuð
um óréttláta misinunun gagnvart
þeim sem greiða í sjúkrasjóð félagsins.
Jóhanna samfylkir
Jóhanna Sigurðardóttir fyrrver-
andi félagsmálaráðherra fær
stuðning fjölmarga aðila við
hugmyndir sínar um samfylkingu
félagshyggjufólks í komandi þing-
kosningum.
Fullyrt er að Jóhanna íhugi sterk-
lega ffamboð nýs lista ef ekki verður
af breiðri samfylkingu. í öllu falli er
rætt um stjórnmálaafl er legði höfuð-
áherslu á róttæka efnahagsstefnu,
uppstokkun ríkisfjármála, hagsmuni
launafólks og uppbyggingu velferð-
arkerfisins.
Meðal þeirra sem sagðir eru vel-
viljaðir samfylkingarhugmyndum
með Jóhönnu er Ögmundur Jónas-
son formaður BSRB, en hann er yfir-
lýstur áhugamaður um uppstokkun
flokkakerfisins. Ögmundar bíður á
hinn bóginn BSRB-þings í október
með formannskjöri, sem gerir
ákvörðun um pólitískt framboð hans
erfiðara en ella. Þá er Agúst
Einarsson fyrrverandi formaður
bankaráðs Seðlabankans talinn
hlynntur ráðagerðum Jóhönnu.
Bréf sem Ari Skúlason, ffamkvæmda-
stjóri ASÍ, skrifaði öllum samböndum
og félögum ASI var túlkað sem löðr-
ungur á skrifstofum Dagsbrúnar.
- Við heyrum aðeins í ASI-mönn-
um í fféttum og lesum þá í Morgun-
blaðinu. Það er eins og það sé póst- og
símasambandslaust á milli ASI og
Dagsbrúnar. Þeir hundsa okkur, segir
Guðmundur J. Guðmundsson og spyr
um tilgang aðildar að Alþýðusam-
bandinu.
Guðmundur J.; Við erum skotspónn
ASÍ-klíkunnar.
Ráðherravald ofar lýðræði
Olafur G. Einarsson
menntamálaráðherra
hundsaði vilja allra um-
sagnaraðila þegar hann veitti Jón-
ínu Þóreyju Tryggvadóttur skóla-
stjórastöðu Hvolsskóla á Hvols-
völlum. Kennararáð og skólanefhd
Hvolsskóla auk fræðslustjóra Suð-
urlands mæltu eindregið með
Unnari Þór Böðvarssyni í skóla-
stjórastöðuna. Jónína hefur hafnað
því að taka við skólastjórastöðunni
og ráðherra fær málið til afgreiðslu
á ný.
Vinnubrögð ráðherra vöktu reiði
meðal Sunnlendinga, sérstaklega
þeirra sem starfa að skólamálum.
Skólastjórafélag Suðurlands sam-
þykktj harðorð mótmæli og skóla-
nefnd Hvolsskóla vítti ráðslag Ólafs
G. Einarssonar.
Unnar Þór Böðvarsson: Heimamenn
vildu hann en ráðherra ekki.
Eiríkur Jónsson formaður Kenn-
arasambands Islands segist ekki
þekkja fordæmi fyrir því að ráðherra
gangi þvert á vilja allra umsagnaraðila
við veitingu skólastjórastöðu. Kenn-
arasambandið hefúr þá reglu að fjalla
ekki um einstakar stöðuveitingar, séu
þær innan laga og reglna. I þessu til-
felli sé enginn vafi á valdi ráðherra til
að veita stöðuna.
Unnar Þór Böðvarsson er skóla-
stjóri í Reykholti í Biskupstungum en
Jónína Þórey Tryggvadóttir er að-
stoðarskólastjóri Fósturskóla Islands.
Unnar hefur lengri starfsreynslu en
Jónína meiri menntun.
Skólastjórafélag Suðurlands bendir
á að embættisveiting Ólafs sé í fiill-
kominni mótsögn við yfirlýsta stefhu
ráðherrans um aukna valddreifingu í
skólakerfinu. I yfirlýsingu félagsins er
spurt hvort ráðherranum sé ekki al-
vara með boðaðri skólastefhu.
Samþykkt Skólastjórafélagsins var
send ráðherra og fjölmiðlum snemma
á miðvikudag og síðdegis sama dag
boðaði skólanefnd Hvolsskóla til
fundar þar sem ráðstöfun skólastjóra-
stöðunnar var til umræðu. Nefndin
mótmælti veitingu ráðherra en fáum
mínútum eftir að fundi lauk hafði Jón-
ína samband við formann skólanefnd-
ar, Agúst Inga Ólafsson, og sagði að
hún myndi ekki þiggja skólastjóra-
stöðuna. Jónína vildi ekki tjá sig um
málið þegar Vikublaðið hafði sam-
band við hana.
Agúst Ingi sagði að heimamenn
vonuðust til að farið yrði að vilja
þeirra þegar ráðherra fær málið til af-
greiðslu á ný.
- sjá leiðara
Krata-
poppari
verður
sendi-
herra
Jón Baldvin Hannibalsson
hefur skipað flokksbróður
sinn Kjartan Jóhannsson
sendiherra í London, en starf-
inu getur Kjartan ekki sinnt
fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt ár,
því í millitíðinni verður hann
upptekinn sem firamkvæmda-
stjóri EFTA. Núverandi sendi-
herra í London, Helgi Agústs-
son, hefur verið kallaður heim
til starfa frá næstu áramótum.
Til að brúa bilið hefur Jón
Baldvin ákveðið að Jakob Frí-
mann Magnússon menningarfull-
trúi verði sendiherra þar til Kjart-
an losnar, sem enginn veit í raun
hvenær verður. Fullyrt er að mik-
il óánægja sé með þessar ráðstaf-
anir innan utanríkisþjónustunnar
og tala margir um reginhneyksli.
Ráðstafanir þessar þykja óþarfar á
þessum tímapunkti og augljóst að
Jón Baldvin er að skipa málum
eftir sínu nefi áður en hann yfir-
gefur utanríkisráðuneytið eftir
kosningar.
Björn Bjarnason formaður ut-
anríkismálanefhdar Alþingis hitti
ráðuneytisstjóra utanríldsráðu-
neytisins á þriðjudag og mun
Björn vera afar óánægður með
þessa ráðstöfun Jóns Baldvins.
Utanríkismálanefndin hittist á
fundi í gær og verður að telja víst
að þetta inál hafi borið á góma.
Rökin fyrir því að kalla Helga
Agústsson heim eru sögð þau að
þörf sé á starfskröftum hans á Is-
landi. En þegar ráðuneytisstjór-
inn var spurður í fjölmiðlum gat
hann ekki útskýrt hvaða verkefni
Helga séu æduð. Almennt er litið
svo á innan diplómatastéttarinnar
að sendiherrastaða hér heima sé
stöðulækkun.