Vikublaðið - 05.08.1994, Side 6
6
VIKUBLAÐIÐ 5. ÁGÚST 1994
Saga Suðurnesja
er bœði saga
sundrungar og
sameiningar((
ólveig
og sameiningin
Sólveig Þórðardóttir hefur reynslu af sameiningu. Hún hefur bæði unnið að sameiningu fólks úr ólík-
um flokkum á einn lista og að sameiningu nokkurra sveitarfélaga í eitt. í Njarðvík stóð hún, ásamt
öðru félagshyggjufólki, að Njarðvíkurlistanum sem stjórnaði Njarðvík á síðasta kjörtímabili. Þá vann
Sólveig með öðrum að sameiningu Keflavíkur, Hafna og Njarðvíkur í eitt sveitarfélag. Um það segir
ljósmóðirin og bæjarfulltrúinn Sólveig Þórðardóttir: „Það þarf að fara með sameininguna eins og ný-
bura, sem þolir hvorki trekk né kulda.“ Á Suðurnesjum er bæði kuldi og trekkur svo að það er eins gott
að ljósmóðirin Sólveig fái einhverju ráðið um þróun mála og aðhlynningu þessa nýbura næstu árin.
ví miðnr er Sólveig í minni-
hluta og það þrátt fyrir að Al-
þýðubandalagið, sem hún er
fúlltrúi fyrir, hafi unnið mikinn kosn-
ingasigur í vor. Það er því hætta á að
Sólveig fái ekki eins miklu ráðið og
hún hefði viljað.
Hvemig stendur á því að Alþýðu-
bandalagið er í minnihluta þó aðþað
hafi aukið mest allraflokka á Suður-
nesjum viðfylgi sitt?
„Það var ekkert talað við okkur.
Nú eru Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur í meirihluta. Þetta er
gamla Keflavíkurveldið sem hefur
ráðið nær óslitið í 50 ár. Síðasta kjör-
tímabilið var undantekning, en þá var
Alþýðuflokkurinn með hreinan meiri-
hluta.
Atvinna, jöfnuður, siðgæði
Við Alþýðubandalagsmenn sögðum
að ef fólk hefði trúað því að Alþýðu-
flokkurinn berðist fyrir jöfnuði og
siðgæði þá hefði það kosið hann í vor.
Það gerði fólk ekki, heldur flykktist til
okkar, sem höfðum einmitt þetta
kjörorð: „Atvinna, jöfnuður, siðgæði."
Allt þetta er mjög þýðingarmildð við
mótun þessa nýja sveitarfélags. Þegar
við tölum um jöfhuð, þá hugsum við
það bæði út ffá einstaklingnum og út
frá því að allir hlutar svæðisins njóti
jafhræðis."
Sólveig segir sameiningu sveitarfé-
laganna óneitanlega vera mikla breyt-
ingu og telur að hún ætti að geta orð-
ið til góðs sérstaklega ef Iitið er til nýt-
ingu fjármagns.
„Saga Suðurnesjannna er saga bæði
sundrungar og sameiningar. Þau
sveitarfélög sem nú voru að sameinast
voru lengi sameinuð eða þangað til
fyrir 42 árum þegar Njarðvíkingar sáu
sig knúna til að slíta sambandinu við
Keflvíkinga." Sólveig segir þetta sýna
hve vel þurfi að vanda til sameiningar
sem þessarar. I Keflavík, Njarðvíkum
og Höfhum, sem sameinuðust á síð-
asta ári, búa 10.000 manns, en í allt
eru 15.000 íbúar á Suðurnesjum.
Ekki tókst að sameina öll sveitarfélög
á nesinu, en Sólveig leggur áherslu á
gott samstarf við þau sveitarfélög sem
standa utan við stóra sveitarfélagið.
„Við erum hluti af heild, við verðum
að gæta okkar hagsmuna án þess að
ganga yfir minni sveitarfélögin og alls
ekki hegna þeim fyrir að hafa ekki vilj-
að sameiningu."
Síðustu fiögur ár var Sólveigu
ásamt öðrum N-lista mönnum, í
meirihluta sveitarsljómarintuir í
heimabæ sínum Njarðvík. A þvt
tímabili var húnforseti bæjarstjórn-
ar í eitt ár og formaður bæjarráðs
eitt árið. Er ekki erfitt að vera kom-
in í minnihluta nú?
,Jú, það er óneitanlega erfitt að
geta ekki komið hugmyndum sínum á
framfæri, því þær eru æmar.“
Sólveig var mjög ánægð með sigur
Reykjavíkurlistans, enda hejúr hún
sjálf reynslu að starfi með svona
sameiningarafli:
„Þetta var stórkostlegt. Það má ekki
skemma þetta. Þetta fjöregg er brot-
hætt og það má. ekki gera íhaldsT og
tældfærisöflunum það til geðs að mis-
nota þetta tækifæri. Það er stöðug
vinna frá morgni til kvölds að halda
svona lista saman.
Óflokksbundið fólk með
glæsilegar hugmyndir
Á N-listanum vann ég með fulltrú-
um frá öllum vinstri flokkunum. Allt
alveg yndislegt fólk sem ég held að ég
muni aldrei gleyma. Á N-listanum var
líka óflokksbundið fólk sem fann að
það gat verið með án þess að vera
eyrnamerkt einum einstökum flokki.
Þannig fólk hefur svo mikið af glæsi-
legum, óhefðbundnum hugmyndum,
sem spretta ffam hjá þeim eins og af
sjálfu sér. Mér fannst ffábært að vinna
með þeim og við fórum í gegnum al-
þingiskosningar þar sem flokkarnir
buðu ffam hvor í sínu lagi án þess að
samstarf okkar í bæjarstjórn hlyti
skaða af.“
Hvað svo? Hvers vegna náðist ekki
samstaða fyrir kosningamar í vor?
, „Ájð gerðum tilraun til þess. Því
miður voru hvorki kratar nér ffam-
sóknarmenn tilbúnir. Þeir ætluðu sér
stóran hlut og töldu sig ekki þurfa á
okkur að halda. Hins vegar gekk það
fólk sem var á N-listanum sátt frá því
samstarfi.
Sólveig segir að sem sveitarstjóm-
amiaður þurfi hún að hafa áhuga á
nær öllu milli bimins ogjarðar.
„Ekkert mannlegt má vera sveitar-
stjórnarmanni óviðkomandi. Fyrir
kosningarnar 1986 var spurt hvað
þessi kelling, sem hefði ekkert vit á
íþróttum og hugsaði ekki um neitt
nema mjólkandi mæður væri eiginlega
að vilja upp á dekk, svo þú sérð að
maður verður líka að hafa áhuga á
boltaíþróttum, allt er þetta hluti af
samfélaginu. Eg hef farið á boltaleiki
og meira að segja verið látin skjóta á
mark, viðstöddum til mikillar
skemmtunar.
Fer ekki í veislur hjá
hernum
Ég á mér reyndar alveg sérstakar