Vikublaðið - 05.08.1994, Page 12
Munið
áskriftarsímann
~Í7500
Nyrst á Þistilfjarðarfjallgarði heils-
aði hópnum Guðmundur Lúðvíksson
útgerðarmaður á Raufarhöfn. Var
hann fylgdarmaður um heimabyggð
sína og út fyrir Sléttu. Gist var á Hót-
el Norðurljósi á Raufarhöfn, sem
reyndist hið ágætasta hótel með góð-
um viðurgjörningi og hafnarstemmn-
ingu úr setustofu. Það eiga nú og reka
hjónin Dóra og Ole. A Raufarhöfh
eins og víðar vann Alþýðubandalagið
góðar kosningasigur á liðnu vori og
litu allmargir félagar við á hótelinu
um kvöldið.
A sunnudagsmorgni var haldið út
fyrir Sléttu og gengið í súld frá þjóð-
vegi út á Hraunhafnartanga undir
leiðsögn Guðmundar og Þorsteins
Hallssonar verkamanns á Raufarhöfin.
Þar við Hraunhöfn má sjá
menjar um útgerð fyrri
tíðar og bætt var steinum
í Þorgeirsdys Hávarðs-
sonar. Nokkrar sögur
gengu um rólyndi Sléttu-
búa fyrr og síðar og þótti
ríma við ffásögn Land-
námu þess efhis, að
Sléttukarlar „nenntu eigi
til kirkju aþ færa líkin“
effir bardagann á skipum
þar úti fyrir þar sem
kappinn Þorgeir féll fyrir
ofurefli.
Ekið var að Núpskötlu,
nyrsta byggða bóli á land-
inu, en ekki var gengið út
á Rauðanúp sökum þolcu.
Þess í stað var haldið til
Kópaskers og skoðað á-
gætt byggðsafn Norður-
Þingeyinga á Snartar-
stöðum undir leiðsögn
safnvarðarins Kristveigar
Björnsdóttur frá Val-
þjófsstöðum. Auk fjöl-
skrúðugs safhs gagnmuna og hann-
yrða er þar bókasafn byggðarlagsins
og hið mikla bókasafn Helga frá Lcir-
höfh, sem hann gaf til safnsins.
Rann nú sól á suðurhimin og bað-
aði ferðalanga í Asbyrgi, þar sem grip-
ið var til nestis. Skúr vætti moldarveg-
inn inn úr Axarfirði en síðan hélst
glaðbjart veður allt til leiðarloka.
Dettifoss naut sín vel með miklum
úða, enda leysing á jöklum. Sungið
var á leiðinni um Fjöllin, þar sem
pósturinn gisti að Grímsstöðum til
skamms tíma. I Fjallakaffi í Möðrudal
var líflegt og Jökuldalsheiði heilsaði
með fagurgrænni gróðurnál á hlýju
sumri eftir kalt vor.
Fararstjóri þakkar ungum sem
öldnum góða samfylgd.
Myndir og texti:
Hjörleifur Guttormsson
Alþýðu-
bandalags-
ins á Aust-
urlandi um
Norðaust-
urland
Hjá Hraunhafnarvita. Hluti hópsins við heimsskautsbaug.
Um 50 manna hópur tók
þátt í sumarferð Alþýðu-
bandalagsins á Austurlandi
9.-10. júlí, sem að þessu sinni var
tveggja daga ferð um Norðaustur-
land allt að heimsskautsbaug. Veð-
urguðimir vom sæmilega hliðholl-
ir, því að sól skein að hluta báða
ferðadagana, en aðfaranótt sunnu-
dags gengu skil norður af með dá-
lítilli rigningu fram undir hádegi á
Sléttu.
Fjölbreytni einkenndi ferðina, ekki
aðeins í náttúrufari og sögu þeirra
mörgu sveita og öræfa sem ekið var
um, heldur einnig í sýningum og
menningarstofnunum.
Lagt var upp ffá Neskaupstað með
rútu frá Akureyri, sem Austfjarðaleið
útvegaði og rúmaði hún hópinn. Bíl-
stjórinn Sverrir Torfason reyndist
traustur og góður ferðafélagi en sumt
af leiðinni var hann eins og fleiri að sjá
í fyrsta sinn. I hópinn bættist á Eski-
firði og Reyðarfirði, þar sem fólk kom
í af Suðurfjörðum. Sól var á Héraði og
gott útsýni af Hellisheiði um Uthérað
og Vopnafjörð.
Um Vopnafjörð veitti leiðsögn
Gunnar Sigmarsson bókavörður, en
Aðalbjöm Bjömsson oddviti bauð
hópinn velkominn og ffæddi um
kauptúnið. Minjasafnið á Bustarfelli
var skoðað og síðan hádegisáning í
hvammi við Teigsá. A Vopnafirði
stóð yfir menningarvika undir heitinu
Vopnafjarðardagar og var litið inn á
málverkasýningar Errós og Stefáns
Stórvals ffá Möðrudal.
Kaffibrúsar á lofti í Ásbyrgi. Á innfelldu myndinni er Þorsteinn Hallsson að segja frá í Hraunhöfn.
Síðdegis var haldið áfram norður
um Sandvíkurheiði, um þorpið á
Bakkafirði og áð á Skeggjastöðum,
þar sem Gunnar Sigurjónsson sóknar-
prestur sýndi kirkjuna, sem er elsta
timburkirkja austanlands, að ffum-
gerð frá 1846.
Á Brekknaheiði nálægt kjördæmis-
mörkum beið Steingrímur J. Sigfús-
son alþingismaður hópsins og tók að
sér leiðsögn um heimasveit sína
fjörð. A Þórshöfh voru „Kátir
með menningarívafi líkt og á Vopn:
firði og í sveitinni einnig sitthvað t
tilbreytingar, sveitaball í gömlum st
á Svalbarði og útsýnisskífa nývígð vi
Gunnarsstaði. Utsýni var hins veg;
tekið að spillast í sunnanstrekking
svo að Steingrímur þurfti að bæta í
með lýsingu á fjallahringnum.
Yngstu þátttakendurnir létu sér ekki leiðast.
Á sjónarhæð við Gunnarsstaði í Þistilfirði. Steingrímur J. Sigfússon lýsir landslagi.