Vikublaðið


Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 2

Vikublaðið - 26.08.1994, Blaðsíða 2
2 VIKUBLAÐIÐ 26. AGUST 1994 Útgefandi: Alþýðubandalagið Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson, Friðrik Þór Guðmundsson og Ólafur Þórðarson Auglýsingasími: (91)-813200 - Fax: (91)-678461 Ritstjórn og afgreiðsla: Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík Sími á ritstjórn: (91)-17500 - Fax: 17599 Útlit og umbrot: Leturval Prentvinnsla: Frjáls fjölmiðlun hf. Burt með einkavæð- ingarpostula og niður skur ð arpáfa! Þessa dagana þinga samtök norrænna ríkisstarfsmanna á ís- landi og að vanda kemur ýmislegt fróðlegt fram á slíkum sam- komum. A þinginu í Hveragerði hefur meðal annars verið gerð grein fyrir róttækum breytingum ríkisstjórnar Verka- mannaflokksins í Noregi á skipulagi opinbers reksturs í land- inu. Samtök opinberra starfsmanna hafa tekið jákvæða afstöðu til breytinganna og beitt sér fyrir því að trúnaðarmenn starfs- manna séu með í ráðum og tekið sé tillit til atvinnuöryggis. Lykilorðin hjá norsku stjórnininni eru ekki niðurskurður og samdráttur heldur þróun og stöðug breyting. Einkavæðing er ekki talin réttlætanleg nema ótvírætt sé að hún skili meiri hag- kvæmni og /eða betri þjónustu. Pólitískur vilji er hinsvegar fyrir því í Noregi að breyta rekstrarformi opinberra fyrirtækja í hlutafélög án þess að það þýði að þau séu seld úr eigu hins opinbera. Talið er æskilegt að opinber fyrirtæki séu í sam- keppni svo fremi því verði við komið. A öðrum sviðum eins og í löggæslu, landvörnum og menntakerfi verði kerfisbreytingar og hagræðing sem byggi á vandaðri greiningu á markmiðum, verkefnum og gildum opinbers reksturs. Það er athyglisvert að norska ríkisstjórnin nálgast þessi mál á nútímalegan og fordómalausan hátt. Hún reynir að halda til haga í pólitískri stefhumótun því skynsamlegasta sem komið hefur fram í einkavæðingarumræðunni um leið og opinber rekstur er metinn að verðleikum og nauðsyn hans viðurkennd. Norðmenn eru ekki skuldsettir eins og íslendingar. Þeirra vandamál í ríkisrekstri eru meiri lúxusvandamál heldur en vandi Islendinga í ríkisfjármálum. Þeim mun meiri ástæða er fyrir okkur að huga að aðferðum til þess að endurskipuleggja ríkisútgjöldin. Alþýðubandalagið hefur í Grænu bókinni, sem út kom sl. vor, gert sér far um að móta stefnu í þessum efhum sem nefha mætti „Framtaksstjórn í þágu velferðar". Að baki þeirri stefnumótun liggur skoðun á ýmsum tilraunum ríkja til þess að endurskipuleggja opinberan rekstur svo og á fræði- bókum á þessu sviði. I mörgum greinum er ljóst að forystu- menn Alþýðubandalagsins hafa komist að svipaðri niðurstöðu og ráðherrar norsku Verkamannaflokksstjórnarinnar. Alþýðubandalagið vill leggja áherslu á það sem velferðar- kerfið skilar en ekki einblína á það sem þjónustan tekur til sín. Markmiðin skipta meira máli heldur en þröngar reglur og reglugerðir ráðuneyta. Stofnanir hins opinbera eiga að gera viðskiptavinum sínum til hæfis en ekki vera ölmusu- eða skömmtunarkerfi. Stefnumótun í opinberum rekstri þarf að koma til áður en vandamál hrannast upp. Enn meiri áherslu þarf að leggja á öflun tekna og betri nýtingu þeirra. Valddreif- ing, þátttökustjórnun starfsmanna og markaðstenging rekst- urs þurfa að verða leiðarhnoð í endurskipulagningu. Tengja þarf saman starfskrafta opinberra stofnana , almannasamtaka og félaga, einstaklinga og fyrirtækja til þess að glíma við „óstöðvandi“ útgjaldaaukningu á mikilvægum sviðum. Stuðla þarf að samkeppni milli opinberra þjónustuaðila en slík sam- keppni getur oft skilað betri árangri heldur en einhæf einka- væðing eða miðstýring oipinbers reksturs. Þá er nauðsynlegt að styrkja ítök þeirra sem nýta þjónustuna í stjórn og starf- semi opinberra stofhana. Með stefnumótun af því tagi, sem Verkamannaflokkurinn í Noregi og Alþýðubandalagið á íslandi hafa lagt í, er nokkur von til þess að launafólk jafnt sem helstu hagsmunaaðilar í at- vinnurekstri vinni með stjórnvöldum að því að ná tökum á vanda ríkisfjármála og nýta kosti opinbers rekstur til hagsbóta fyrir þjóðfélagið. Hér á landi þarf að komast til valda ríkis- stjórn sem vinnur í anda stefnumótunar af þessu tagi að end- urskipulagningu ríkisútgjalda og opinbers reksturs. Burtu með einkavæðingarpostula og niðurskurðarlið! Það þarf fólk við stjórnvölinn sem hefur jákvæða afstöðu til opinbers rekst- urs en er engu að síður staðráðið í því að ná tökum á vanda- málum ríkisbúskaparins. Sjónarhorn Falsaður steðji Laun á íslandi eru misjöfh. Það er ekki vitað með vissu hve misjöíh þau eru, hver munurinn er á hæstu og lægstu launum, m.a. vegna þess að upplýs- ingum um það er haldið leyndum. Launakerfið er ógagnsætt eða gruggugt. Það er þó staðfest með könnunum að lægstu umsamin laun eru undir 50 þúsund krónum á mánuði og að hæstu laun í opinbera launakerfinu séu að minnsta kosti 1,1 milljón, eða 22 sinnum hærri. Trúlega er munurinn þarna meiri. Hér er um grófa mismunun að ræða sem aldrei hefur verið studd neinum frambærilegum rökum, hefur raunar aldrei verið rökrædd til þrautar vegna þess að málið þolir ekki rökræður. Þegar spurt er af hverju einn maður þarf svona miklu meira en annar fyrir sinn vinnudag verða svörin með ýmsum hætti og off óljós. Það er talað um menntun, mikið vinnuframlag, ábyrgð o.fl. Þegar spurt er um rök fyrir lágu laununum er talað um samkeppnis- hæfhi atvinnuveganna. Afkomu- möguleikar hina Iægstlaunuðu eru ekki til umræðu. Hér verður ekki reynt að svara þeim spurningum sem settar eru fram að ofan, aðeins farið nokkrum orðum um eina þeirra, sambandið milli ábyrgðar og launaupphæðar. Hið óskilgreinda ábyrgðarhugtak gleypt hrátt Það virðist sem sagt vera almennt viðurkennd skoðun að maður sem ber mikla ábyrgð skuli hafa hátt kaup, meira að segja mjög hátt kaup. Einkum gildir þetta ef um svokallaða fjárhagslega ábyrgð er að ræða. Það hefur hinsvegar aldrei mér vitanlega verið skilgreint í hverju þessi ábyrgð er fólgin. Allir bera ábyrgð á starfi sínu. Ef lág- launamaðurinnn gætir ekki skyldu sinnar er hann rekinn. Það þarf mikið til að sá hálaunaði hljóti sömu örlög. I leiðara í Morgunblaðinu 16. janúar sl. voru há laun bankastjóra rökstudd með því að „þau þurfa að vera nægilega góð til þess að fjár- hagslegt sjálfstæði þeirra einstak- linga, sem hlut eiga að máli, sé tryggt“. Og þetta fjárhagslega sjálf- stæði virðist ekki vera tryggt nema þessum mönnum séu greidd marg- föld laun venjulegra launþega, tví- tugföld eða þrítugföld. Að öðrum kosti virðast þessir menn ekki vera í stakk búnir til að gæta ábyrgðar sinnar. Ekkert frelsi án fjár- hagslegs sjálfstæðis Nú mætti halda því fram að allir þjóðfélagsþegnar ættu kröfu á því að búa við fjárhagslegt sjálfstæði dl að geta notið sín, ekki bara banka- stjórar, hæstaréttardómarar og aðrir slíkir. Líka mætti spyrja hvort mað- urinn með 50 þúsund krónur á mánuði geti verið fjárhagslega sjálf- stæður. Sá sem ekki er fjárhagslega sjálfstæður er ekki frjáls rnaður, í hvaða stétt sem hann er. Maður er fjárhagslega sjálfstæður þegar hann getur séð fyrir sér og sínum á sóma- samlegan hátt og befur afkomuna örugga. Þegar hinsvegar er farið að krefjast launa sem nema margföld- um þurftartekjum venjulegs fólks, þá erum við komin út í aðra sálma. Þá erum við ekki að tala um fjár- hagslegt sjálfstæði, þá er verið að krefjast forrétúnda. Afkomuöryggi er öllum mönnum nauðsyn, líka inönnum í ábyrgðarstöðum, en ó- hóflegur peningamoksmr eins og hér er verið að tala um á ekkert skylt við það. Þar er um andfélagslegt (asocialt) fyrirbrigði að ræða sem leysir engan vanda en skapar vanda- mál. Há laun leiða til ábyrgðarleysis Eg held að sú staðhæfing - að menn með mikla ábyrgð skuli fá risahá laun - sé byggð á misskiln- ingi. Það hefur aldrei verið sýnt fram á að ábyrgðartilfinning manna aukist við það að fá himinhá laun, langt umfram það sem allur al- menningur hefur. llitt kynni að vera að óhóflegt ríkidæmi og yfir- spenntar tekjur græfu undan ábyrgðarúlfinningu manna og sam- félagsvitund og gætu haft í för með sér móralska hrörnun. Auður og völd hafa löngum verið talin stuðla að spillingu. Vitur maður hefur sagt að þeir sem annast þjónustu fyrir samborg- ara sína, s.s. bankastjórar, hæstarétt- ardómarar, læknar o.s.frv. verði að vera í nálægð við þann hóp sem þeir þjóna hver og einn, til að vera færir um að skynja þarfir skjólstæðinga sinna. Þeir þurfa að búa á sarna svæði, lifa svipuðu lífi, tala sama mál og hafa svipaðar tekjur. Þeir þurfa sem sagt að deila kjörum við það fólk sem þeir þjóna. Maður sem hefur tuttugu sinnuni hærri tekjur en skjólstæðingar hans lifir í öðruin heimi en þeir. Háu launin torvelda honum að skynja veruleika venju- legs fólks og stuðla að lélegri þjón- ustu. A seinustu tímum höfum við þreifað átakanlega á skilningsleysi af þessum toga þegar hálaunaðir emb- ætúsmenn eru að gera kröfur um enn frekari lækkun lægstu launanna sem þó eru fyrir neðan allar hellur. I Brekkukotsannál segir að Björn í Brekkukoti hafi talið „að fé, sem rnenn telji sér, væri óleyfilega sam- an dregið eða falsaður steðji, ef það færi fram úr meðaltekjum vinnandi manns.“ Eg held að þeir sem um launamál íjalla ættu að hafa launapólitík Brekkukots-bóndans sem viðmiðun í starfi sínu. Höfundur er fyrrverandi heilsugæslulæknir Millifyrirsagnir eru blaðsins

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.