Vikublaðið - 26.08.1994, Síða 11
VIKUBLAÐIÐ 26. AGUST 1994
11
The Hudsucker Proxy
★★★★
Sýnd í Háskólabíó
Leikstjóri: Joel Coen
Aðalhlutverk: Tim Robbins,
Jennifer Jason-Leigh, Paul
Newman
Fyrir mig hefur nafn Coen
bræðranna ávallt verið gull-
trygging fyrir gæðum, alla vega
ennþá. Ekki spillir fyrir að meðhöf-
undur þessarar myndar ásamt þeim er
Sam Raimi (Evil Dead, Darkman)
sem hefur að vísu ekki sannað sig full-
komlega sem handritshöfundur, en
þegar myndræn uppbygging er annars
vegar er hann einn af þeim allra
fremstu. Og það er auðséð á nokkrum
atriðum myndarinnar að hann hefur
'haft puttana í uppbyggingunni, alla
vega á köflum. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Raimi og Coen bræðurnir
brynna hestum sínum í sama vatns-
bóli, þeir skrifuðu saman myndina
„Crimewave" sem Raimi leikstýrði
árið 1985. Sú mynd var afar umdeild,
sjálfúr sagði Raimi að framleiðendur
hefðu tekið hana úr sínum höndum og
var hann ekki sáttur við útkomuna.
Sjálfum fannst mér hún ansi skondin
tilraun til að blása lífi í gamaldags
„slapstick" húmor.
Hudsucker Proxy er öllu jarð-
bundnari en „Crimewave" þrátt fyrir
að hún sé stútfull af yfirgengilegri
kímni, brjálaðri myndatöku og góm-
sætum ofleik, þessir þættir eru ekki
ósvipaðir þeim sem er að finna í bæði
Criinewave og mynd Coen bræðr-
anna „Raising Arizona“. Asetningur
myndarinnar, er að taka hattinn ofan
fyrir göinlu Hollywoodleikstjórunum
(Frank Capra, Howard Ilawks) auk
þess að beita fyrir sig eilítilli háðsá-
deilu á kapítalisma.
ísak
Jónsson Ú Jl
Æ Jr
Þannig setur hún saklausa meðal-
jóninn úr Capra myndunum (Robb-
ins) inn í umhverfi kaupjöffa og
hrægamma (Newman) og blóðsug-
urnar eru ekki langt undan í líki
fféttasnápa (Jason-Leigh). Yfir öllu
kraumar svo yfirgengileg kímnin og
framúrstefnulegi stíllinn sem ein-
kennir bæði Coen Bræðurna og Sam
Raimi. Leikhópurinn er hreint kostu-
legur í manískum of(ur)leik sínum.
Tim Robbins er ffábær sem einfeldn-
ingurinn úr sveitinni sem kemur til
stóru borgarinnar til að láta ameríska
drauminn rætast.
Jennifer Jason-Lcigh er eitruð í
hlutverki hortugrar og ffamagjarnrar
blaðakonu. Og það er unun að horfa á
Paul Newman glottandi með vindil-
inn sinn bak við allt saman. Þessi
soðningur af Frank Capra og Monty
Python er svo sannarlega óvenjulegur.
En þessi bræðingur gengur heldur
betur upp, myndin er nánast flekklaus
skemmtun sem ætti að höfða til þeirra
geðklofnari meðal vor, auk þess að
hún ætti að kitla hláturtaugarnar hjá
flestum sem eru í skapi fyrir eitthvað
aðeins öðruvísi.
A Bronx Tale ★★★V2
Sýnd í Laugarásbíó
Leikstjóri: Robert De Niro
Aðalhlutverk: Robert De Niro,
Chazz Palminteri
Robert De Niro leikstýrir hér
sinni fyrstu mynd og það kem-
ur svo sannarlega ekki á óvart
að það skuli vera saga um ítalskt
glæpagengi sem verður fyrir valinu.
De Niro hefur jú nokkuð góða
reynslu af því að leika krimma af
ítölskum ættum í stjórn annarra og
það sést greinilega að hann moðar úr
þeirri reynslu sinni í þessu verkefni.
Ahrif manna eins og Martin Scor-
sese svífa yfir vötnum, hvort sem ver-
ið er að misþyrma mönnum með
rómantíska tónlist í bakgrunni eða
fremja annan illverknað. Þetta er samt
enginn löstur því að De Niro tekst að
notfæra sér þessi áhrif og skilar frá sér
heilsteyptri og innihaldsríkri mynd.
Það er Chazz Palminteri sem á
heiðurinn af handritinu og á inikið lof
skilið fyrir verkið, þetta er raunsæ
kvikmynd sem inniheldur engar víð-
ómatýpur og dýpt persónanna er
meiri en í flestum sambærilegum
myndum.
Það sem skilur myndina ffá mynd-
um eins og t.d. Goodfellas er það að
aðalpersónan er meiri áhorfandi en
þátttakandi f glæpunum sem ffam
fara, það er einnig gert meira úr því að
reyna að útskýra sjónarmið „aðalill-
mennisins" án þess þó að einhverjar
réttlætingar séu í gangi. Myndin ber
saman lífsviðhorf téðs illmennis ann-
ars vegar og strætóbílstjóra sem De
Niro leikur hins vegar og gerir það af
slíkri nákvæmni að hún verður ein
áhugaverðasta persónustúdía sem ég
hef séð lengi fyrir vikið.
Hversu þreytt sem fólk kann að
vera á ítalskættuðum glæpamyndum
get ég allt að því lofað [iví að þessi
mynd veitir aðra innsýn en hefðbund-
ið er.
Sakleysinginn Robbins
og refurinn Newmann
halda upp á óvenju
skjótan frama
Robbins innan
Hudsucker fyrirtækisins.
Lausn myndagátunnar í síðasta blaði er: „Norðmenn líkja sjómönnum okkar xið Svalbarða \ið innbrotsþjófa."