Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Side 9
Morgunblaðið/Golli Einfaldar og samfélagslegar Hin ástföngnu í rólunni: Rómeó og Júlía – Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir. Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. janúar 2005 | 9 Það sem stendur upp úr hjá mér í mús-íkinni árið 2004 er í fyrsta lagi stór-tónleikar Rásar 2 við Reykjavík-urhöfn á Menningarnótt. Þessir tónleikar eru framlag Rásar 2 til Menning- arnætur og eru, hvað sem hver segir, lang- stærstu og fjölmennustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi. Það er talið að rúmlega 100.000 manns hafi verið í miðborginni og allir sem voru í bænum þetta kvöld heyrðu það sem fram fór á sviðinu þó svo allir hafi ekki séð það sem fram fór. Þarna spiluðu Leaves, Írafár, Brimkló og Egó og ég sem var kynnir á tónleikunum fékk næstum tár í augun þegar ég stóð á sviðinu og kynnti Egóið á svið. Mannhafið á bakkanum var svo yfirþyrmandi. Í öðru lagi vil ég nefna heimsóknir erlendra stjarna sem hafa aldrei verið fleiri. Ég sá því miður ekki Metallica vegna þess að ég var á Roskilde-hátíðinni það sama kvöld, en þeir tónleikar sem standa upp úr að mínu mati af þessum erlendu stjörnum eru tónleikar Lou Reed í Laugardalshöll. Hann var rafmagnaður kallinn. Mestu vonbrigðin voru Pixies í Kapla- krika. Í þriðja sæti set ég svo Airwaves-hátíðina þar sem mér fannst mest gaman að hlusta á og sjá Hjálma. Reggí fær mig alltaf til að brosa og sjá lífið í lit. Stórtónleikar Rásar 2 Popp Eftir Ólaf Pál Gunnarsson opg@simnet.is Höfundur er útvarpsmaður. Jónas Ingimundarson á einkar gott meðað laða fram hughrif með tónlistarflutn-ingi sínum og ekki brást hann í þeimefnum á tónleikum í Þjóðleikhúsinu hinn 26. maí þar sem hann fékk til liðs við sig karlakórinn Fóstbræður, Bjarna Thor Krist- insson, bassa og rússnesku sópransöngkonuna Eteri Gvazava sem heill- aði áheyrendur ekki síst með flutningi sínum á vögguvísu Emils Thor- oddsens sem lengi verður í minnum haft. Árið 1826 samdi Beethoven strengjakvartett sinn op.130 en lokakafli hans, sem nefndur hef- ur verið „Grosse Fuge“, þótti tyrfinn og erfiður flytjendum jafnt sem áheyrendum enda fór svo að tónskáldið samdi nýjan lokakafla fyrir ein- dregin tilmæli útgefanda síns og þannig hefur verkið yfirleitt verið flutt síðan. Í október lék Cuvilliés-strengjakvartettinn frá München þetta verk fyrir Kammermúsíkklúbbinn í upp- runalegri mynd og gerði það með þeim glæsi- brag að auðvelt var að sannfærast um að Beethoven hafi haft rétt fyrir sér. Jónas Ingi- mundarson og Beethoven Tónlist Eftir Helga Hafliðason helgiha@simnet.is Höfundur er arkitekt. Ég tileinka leikhópnum Vesturporti ár-ið 2004. Enginn annar leikhópur hérá landi, ekkert annað leikhús hefurkomist þar sem Vesturport hefur hælana, hvort sem það er hér heima eða utan landsteinanna. Sýningar Vesturports eiga það sameiginlegt að vera einfaldar í sniðum og tengjast samfélagi okk- ar með afgerandi og al- þýðlegum hætti. Leik- hópurinn hefur gefið af sér skemmtilega snerpu og eldmóð inn í íslenska leiklist sem hef- ur að mörgu leyti einkennst af skorti á þessu tvennu. Hún hefur haldið sig um of við af- stöðuleysi, óþolandi hátíðleika, og steindauða og ástæðulausa fágun sem hefur reyndar breitt yf- ir erindisleysuna sem allt of margir íslenskir leikstjórar hafa gert sig seka um. Íslensk leiklist þarf hugrekki til að þora að fara sínar eigin leið- ir í sterkri og skýrri framsetningu, til að þora að senda værukærð og hugleysi út í hafsauga, til að þora að sýna að íslenskri leiklist liggur eitthvað á hjarta. Á þessu ári og þeim næstu verður að lyfta íslenskri leikstjórnarlist að þessu leyti upp á æðra plan svo við getum borið okkur saman við það besta í heimi leiklistar, – með bros á vör. Vesturport Leiklist Eftir Hafliða Arngrímsson vesturgata27b@simnet.is Höfundur er leikhúsfræðingur. greinilega á framfarabraut. Nútímadanshátíð í Reykjavík fór fram í byrjun september með fjölbreyttri, en nokkuð misgóðri dagskrá, og í nóvember sýndi Svöluleikhús Auðar Bjarna- dóttur m.a. áhrifaríkt dansleikhúsverk við ljóð og tónlist Dorette og Árna Egilssonar. Höfundur er danskennari. Stuttar gnæfa hæst, Familieportrett (1mín.), Alt i alt (4 mín.), Solitude (4mín.), Adrift (9 mín.) og HarveyKrumpet (23 mín.). Stuttar íslenskar voru bestar Bragur, Síðasti bærinn, Síðustu orð Hreggviðs og Dagur Önnu. Efst heimildarmynda stendur De Fem benspænd og pólitískt efni eins og Fahrenheit 9/11, The Corporation, The Yes Men, Outfoxed og The Control Room en einnig lífsreynsla ein- staklinga eins og S 21 La machine de mort Khmer, Capturing the Friedmans og Tintin og jeg. Íslenskt: Rockville, Hestasaga, Blindsker, Mjóddin – slá í gegn og Pönkið og Fræbb- blarnir. Í stýrðu myndunum ljómar af The Saddest Music in the World, Eternal Sunshine of the Spotless Mind, 21 Gram, American Splendor, Dogville, Good bye, Lenin! og Divine Int- ervention. Af löngum íslenskum bar hæst Í takt við tímann, Kaldaljós og Sterkt kaffi. Stuttar gnæfa hæst Kvikmyndir Eftir Ólaf H. Torfason olafurht@centrum.is Höfundur er kvikmyndagagnrýnandi. Það var ekki oft sem kvikmyndahúsintældu mig til sín á árinu 2004 og þvíauðvelt að kalla fram í hugann þærmyndir sem höfðu áhrif á mig á ný- liðnu ári. Lost in translation er sú mynd sem mér þótti einna eftirminnilegust, handritið einstaklega vel skrifað, leikstjórn og leikur óaðfinnanlegur. Eftirbragðið er ljúfsárt og persónurnar lifa ennþá góðu lífi í huga manns – hverju hvíslaði Bob að Charlotte og hvað gerði Charlotte svo? Eternal sunshine of the spotless mind er gott dæmi um söguþráð sem fer langt út fyrir mörk raunveruleikans en rígheldur þó í ofurvenjuleg vandamál hversdagsleikans og nær að snerta mann með ást þeirra Carreys og Winslet sem nær yfir gröf og dauða – eða að minnsta kosti yfir sjálfskapað minnistap. Þriðja myndin sem kemur upp í hugann er Goodbye Lenin. Í henni er líka verið að leika á veruleikann og sýna hversu auðvelt (og fyndið) er að hagræða honum. Ekki eru tilfæringarnar gerðar af grimmd – allt gert af góðsemi til að varna áfalli. En vinnst nokkuð með því að fela heiminn fyrir fólki? Þrjár góðar kvikmyndir Kvikmyndir Eftir Sif Gunnarsdóttur sif.gunnarsdottir- @reykjavik.is Höfundur starfar á höfuðborgarstofu. Þar sem ég er starfandi á Safni er mérdagskráin þar á árinu 2004 ofarlega íhuga og af mörgu eftirminnileguminnist ég sérstaklega sýningar Kath- arinu Grosse, Birgis Andréssonar og gjörnings Ragnars Kjartanssonar. Þá fannst mér dagskrá Listasafns Íslands góð, t.d. Flúxussýningin og sýningin á íslenskri sam- tímalist. Listasafn Reykjavíkur bauð líka upp á nokkrar frábærar sýningar en ég vil minn- ast á glæsilega fræðsludagskrá meðfram sýn- ingu Ólafs Elíassonar. Opnun Nýlistasafnsins í fallegu húsnæði og opnun nýs gallerís, 101, voru merkisviðburðir og ekki má gleyma Banananas og Galleríi Dverg. Málverk Gabríelu Friðriks- dóttur í i8 eru mér ofarlega í huga og þátttaka gallerísins í Basel-kaupstefnunni var gleðileg. Síðast en ekki síst stóð Kling og bang / Klink og bank fyrir athyglisverðri dagskrá allt árið um kring og stendur upp úr í framsækni og fersk- leika á árinu. Í neikvæðum tíðindum úr listalíf- inu slá málalok í málverkafölsunarmálinu allt út. Kling og bang / Klink og bank Myndlist Eftir Markús Þór Andrésson markus@this.is Höfundur er myndlistarmaður. Hér fara á eftir ákaflega persónu-legar hugleiðingar um bækur árs-ins 2004, þar sem því fer fjarri aðég hafi lesið allt sem út kom og á enn eftir verk eftir höfunda sem ég vænti að hefðu sett sitt mark á þetta og vil ég þar nefna helstar Auði Ólafsdóttur, Auði Jónsdóttur og Kristínu Ómarsdóttur. Mig langar sérstaklega að vekja athygli á lítilli bók sem gæti auðveld- lega horfið í æsingnum, en ég tel með betri sjálfsævisögulegum textum á íslensku en það er Sólin sest að morgni eftir Kristínu Steinsdóttur. Talandi um þessa grein bókmennta vil ég líka nefna bækur sem komu út fyrr á árinu og tóku því eiginlega ekki þátt í jólaslagnum, Opnun kryppunnar eftir Odd- nýju Ævarsdóttur og 39 þrep Eiríks Guð- mundssonar. Af skáldsögunum eru Sam- kvæmisleikir Braga Ólafssonar óviðjafnanlegir og Kleifarvatn Arnaldar há- gæðaafþreying. Og svo komu út tvö ritgerða- söfn á árinu sem sýna mjög skemmtilega fram á fjölbreytileika bókmenntafræðinnar hvort á sinn hátt, Engill tímans, minningarrit um Matthías Viðar Sæmundsson og ritgerðasafn Kristjáns Árnasonar, Hið fagra er satt. Sólin sest að morgni Bókmenntir Eftir Gunnþórunni Guðmundsdóttur gunnth@hi.is Höfundur er bókmenntafræðingur. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Lengi verður í minnum haft Söngvararnir Eteri Gvazava og Bjarni Thor Kristinsson og Jónas Ingimundarson píanóleikari í Salnum. Morgunblaðið/Sverrir Algjört hneyksli Niðurstaðan í málverkafölsunarmálinu var stórslys. Stærstu tónleikar á Íslandi Tónleikar Rásar tvö á menningarnótt voru sóttir af um eitt hundrað þúsund manns. Morgunblaðið/Árni Torfason Eftirminnilegust Bill Murray og Scarlett Johansson í kvikmyndinni Lost in Translation.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.