Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.2005, Page 14
14 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. janúar 2005
þetta rennur í eitt fyrst ég bý hér og bý
sé breytingar í Reykjavíkur-
andlitum uns þau hverfa
bak við ný andlit, sé
trén vaxa vaxa líkt og endalaus
börn; ég á orðið minningar
þær vaxa, þær eru þessi borg
og Hótel Borg, Hótel Æska –
sannfæring, örvænting, allt var
þetta spilaborg, allt sem kemur fer
og skilur eftir lítil
ógræðandi spor
óbreytanlega sögu, það
finnst mér hart, ég sem vil
endurskrifa allt en tíminn
innsiglar, hann er hér …
þótt hann sjáist aldrei, bara Reykjavík
mín linnulausa Reykjavík
tíminn er Guð á meðal vor
Jónas Þorbjarnarson
Er Reykjavík tíminn?
Höfundur er ljóðskáld. Ljóðið er úr bók sem kemur út í vor.