Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.2005, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.2005, Qupperneq 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. mars 2005 | 5 ingablástur. Það verður svo að vera og er bara djók því konur eru farnar að blása snilldarlega og segja brandara um að „blow-job“ sé ekki sama og „below-job“. Fjölbreytni er best. Ensk tunga er stór- kostlega rík og Írar skrifa enn besta litt- eratúr þótt týnt hafi tungu. Skyndjúpið er uppsprettan mikla, ekki sjálft verkfærið tungan. Tungan virkar aftur á móti á skyn- djúpið. Málið snýst um áhrif karlsósa máls á skynjun konu … fyrr og síðar. Málið okkar er mettað kynjasögulegri fegurð Kona getur snúið málvenjum sér í hag. Hún hefur sinn einstaklingsrétt og málfrelsi og kýs að nota sína tungu sína að vild, getur þess vegna skrifað pólitískar greinar í fyrstu persónu karlkyni. Kona getur jafnt strítt og sýnt blíðu með tungu sinni og kennt börnum og unglingum að rýna í hvernig karlarnir áttu fyrir stuttu einir bóktunguna eins og allt sem hafði með ytri völd að gera. Kona getur velt því fyrir sér hvers vegna sólin sé kvenkyns á tungu sinni. Af því hún er móðir alls? Svona vangaveltur eru af heimi ljóðsins. Nóttin er kvenkyns líka, með allt sitt passívitet, og stjörnurnar, en dagur framkvæmdanna karlkyns. Máninn er karlkyns, hann speglar uppsprettu lífsins sem kemur úr henni sól- inni. Þetta hljómar eins og sprottið úr heimsmynd kvenveldis eða samfélagi sem virðir djúpt og elskar hlutverk kvenkyns. Hann himinninn lætur rigna eins og karlinn sæði sitt ofan í hana moldina, grundina, jörðina og gerir hana frjósama. Málið okkar er mettað kynjasögulegri fegurð. Kyn himinhnatta er goðsögulegt, á meðan kyn jarðneskra hluta er frekar úr heimi við- fangsins. Verkfæri karlmanna eru frekar karlkyns, penninn, hnífurinn, steðjinn, ham- arinn, meitilinn, ljárinn, ruddinn – þó ekki öxin, en fínleg verkfæri kvenmanna kven- kyns: nálin, snældan, hrífan, blíðan. Við getum leikið okkur með það svigrúm sem málreglurnar leyfa og hnikað til leikreglum. Tungur hafa alltaf verið á þessu fína floti og bjargað sér sjálfar án málstjórnar. Kon- ur geta gert sig máttugar með því að kven- væða tungu sína, tungan er lifandi skepna, hún er ekki dauð. Hún er slanga, hún er mjúk, hún er freistarinn, hún er viskan. Leikur við tanngarðinn. Hún ullar, hún Íslendingar 18 konum og 2½ karli til lands- ins sem fulltrúum heimsbókmenntanna. Engin sagði neitt en körlum sveið ægilega í laumi, enda hafa þeir svo lengi mátt búa við rýrari hlut úr Launasjóði rithöfunda. / Í síðari heimsstyrjöldinni stigu 30 þúsund ungar konur hér á land. Menn urðu harla glaðir við. – Þegar tungan hommast svona er Lísa komin gegnum spegilinn. Enginn getur haft á móti hærri hlut- hafarétti karlkyns í lifandi máli þegar mannfélagið er orðið réttlátt. Þá verður hlutleysishlutverk karlkyns í málinu bara menningarsögulegar leifar sem engan meiða. En hvað trúararfinn og bókmennta- arfinn varðar er verið að tala um tilfinn- ingar sem konur þurfa beinan aðgang að. Verið er að skrúfa niður karlmálið í biblíu og helgisiðabók sem koma bráðlega út. Konur munu upp úr því snúa orðskviðum og galdraþulum upp á sjálfar sig og fjölmiðlar halda áfram að fjalla um einelti og rudda- skap á heimsmælikvarða í ýmsum greinum. Á kaffihúsi sagði ég Kristínu Ómars- dóttur rithöfundi frá þeirri niðurstöðu rit- gerðar doktor Sigríðar Matthíasardóttur að Hinn sanni Íslendingur millistríðsáranna – sem lengi síðan og enn er á vappi – sé ekki og geti ekki verið kona. Kristín hugsar sig um og sagði svo: „Sem betur fer.“ Við glott- um. Þriðja árþúsundið er runnið upp. Game over. Málið leyst. bullar, er föst við rótina og æðrast ei. Þeir sem láta eins og kyn tungunnar skipti ekki máli gleyma trúnni á tunguna, kynngi máls- ins, mátt og magíu orðanna, áhrínisorðum, fjölmælum, áhrifum blessunarorða, heitrofi, meinsæri … ef þú lætur konu tala og syngja í karlkyni og ávarpar hana í karl- kyni og reynir að vekja henni trú í karlkyni fer úr henni allur æðri máttur. Það er kjarni málsins. Þegar tungan hommast svona er Lísa komin gegnum spegilinn Hér eru þrjú dæmi um kynja-viðsnúning máls sem hugljómar og heillar í senn – líkt og þegar karlar fara í kvenmannsföt: Karl- félag framsóknarmanna í Kópavogi – Eros – hefur verið mikið í fréttunum að und- anförnu. / Á síðustu bókmenntahátíð buðu Höfundur er rithöfundur. ’Þeir sem láta eins og kyn tungunnar skipti ekki máligleyma trúnni á tunguna, kynngi málsins, mátt og magíu orðanna, áhrínisorðum, fjölmælum, áhrifum blessunarorða, heitrofi, meinsæri … ef þú lætur konu tala og syngja í karlkyni og ávarpar hana í karlkyni og reynir að vekja henni trú í karlkyni fer úr henni allur æðri máttur. Það er kjarni málsins.‘

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.