Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Síða 1
Laugardagur 25.6. | 2005 | 23. tölublað | 80. árgangur [ ]Af músum og mönnum | Úlfhildur Dagsdóttir fjallar um Maus eftir Art Spiegelman | 8–9Frum-varp til verundar | Geir Svansson tíundar brot úr lífi Jean-Paul Sartre | 16Sjónvarpsgrín | Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar um Svínasúpuna og fleiri þætti | 4–5 LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005 I Í þúsund ár lá hún falin í köldum faðmi fjallsins fjarri almannaleið konan unga sem Seyðfirðingar fundu uppi á Vestdalsheiði í fyrra sumar. Hver var hún? Hvað var hún að vilja einsömul skartbúin inni á Afrétt? Var hún kannski á flótta komin úr firði Loðmundar gamla yfir Afréttarskarð að leita fars utan frá Seyðisfirði heim til Suðureyja? Miklu heldur vísindakona sem kunni á mörgu skil þekkti jurtir og steina safnaði lífgrösum og hjálparrótum ferðaðist óttalaus um landið Aufúsugestur hvar sem hún kom Læknir Nærkona Ljósmóðir Hnífinn sinn oddhvassa og beitta notaði hún til að stinga á meinum til að skilja á milli til að grafa upp rætur II Við lækinn undir klettinum ætlaði hún að æja stundarkorn Hún bar hönd fyrir augu skyggndist um gáði að fuglum þekkti þá flesta ekki sömu tegundir og heima heldur sömu fuglarnir þeir flugu hingað út í stórum flokkum á litlu vængjunum sínum rétt eins og þau sigldu yfir hafið í samfloti byrþanin seglin eins og vængir á víðum útsænum fuglar og fólk í óvissuferð út í bláinn III Hér byggðu menn með lögum gott land og fagurt Hún brosti við þegar henni var hugsað til kvennanna sem áhyggjufullar tróðu út skjóður sínar með fræjum og græðlingum jafnvel mold allt fannst það hér þarna niðri á hálsinum ofan við lönguhlíðina í lómatjörninni vex reiðingsgrasið þráðbeinir blómleggirnir teygja sig upp úr álftakólfunum með ilmandi klösum af fimmgeislastjörnum Hún bjó sig til að halda áfram þá kvað við brestur fjallið gliðnaði sundur og umlukti hana sterkum örmum IV Þúsund ár sem dagur Fjallið hefur opnað sig Frjáls og hnarreist stendur hún undir Sandhólatindi fjallkonan okkar. Fjallkonan Morgunblaðið/Þorkell Vilborg Dagbjartsdóttir Ljóðið var frumflutt við hátíðlega athöfn á Austurvelli hinn 17. júní síðastliðinn. Það var Þrúð- ur Vilhjálmsdóttir leikkona sem fór með ljóðið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.