Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Blaðsíða 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. júní 2005 M eð tilkomu gam- anþáttanna Limbó, sem sýndir voru í sjónvarpinu árið 1993 og radíus- bræðurnir Davíð Þór Jónsson og Steinn Ármann Magnússon stóðu að ásamt tvíhöfðanum og fóstbræðrunum Jóni Gnarr og Sigurjóni Kjart- anssyni auk leikstjórans Óskars Jónassonar, var lagður grunnur að breytingum á íslensku sjónvarpsgríni sem enn sér ekki fyrir endann á. Í framhaldi af Limbó skaut upp kollinum grín sem var bæði groddalegra og líkamlegra en áður hafði þekkst og byggðist ekki á því að gera grín að þekktum fyr- irmyndum, heldur var það hversdagslegt fólk sem grínið snerist um. Eftir að Limbó var tekið af dagskrá vegna mótmæla almennings tóku þættirnir Radíus og Hegðun atferli framkoma, sem síðar breytist í Tvíhöfða, við. Voru þeir þættir sýndir sem innslag í dæg- urmálaþáttum sjónvarpsins Dagsljós á árunum 1995–1997. Þegar þeir runnu sitt skeið var röð- in komin að gamanþáttunum Fóstbræður á Stöð tvö (1997–2001). En ólíkt fyrirrennurum sínum nutu þeir umtalsverðra vinsælda og hafa í dag öðlast sess sem eins konar menningarfyr- irbæri í íslensku sjónvarpi. Það má svo sjá áhrif af þessum hræringum í þáttunum 70 mínútur er sýndir voru daglega á sjónvarpsstöðinni Popptíví á árunum 2000–2004. Í framhaldi af þeim þáttum urðu til gamanþættirnir Svína- súpan þar sem sjá má fólk úr áðurnefndum 70 mínútum: Auðun Blöndal, Pétur Jóhann Sig- fússon og Sverri Þór Sverrisson auk áð- urnefndra Jóns Gnarr og Sigurjóns Kjart- anssonar. Einnig skartar þátturinn leikkonunum Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur og Eddu Björgu Eyjólfsdóttur. Leikstjóri þátt- anna er Óskar Jónasson, sem auk þess að hafa leikstýrt Limbó, leikstýrði þrem af fimm serí- um Fóstbræðraþáttanna. Hér á eftir verður lit- ið nánar á Svínasúpuna og Fóstbræður og það uppbrot á grínhefðinni sem í þeim þáttum felst og hvernig viðmiðum samfélagsins er þar snúið á haus með grótesku raunsæi. Hefðbundið grín myndi teljast til þess sem hefir almennan hljómgrunn meðal fólks og vek- ur sjaldan eða aldrei upp tilfinningar eins og reiði eða fyrirlitningu og forðast það sem hrófl- að gæti við þeim vinsældum er það nýtur. Aðal- einkenni þess gríns hérlendis er af tvennum toga: eftirhermugrín og grín sem byggist á sköpun lífseigra karaktera. Fyrra dæmið felur í sér að gert er grín að og hermt eftir ákveðnum, oftast þjóðþekktum, fyrirmyndum. Það seinna helgast af því að búin er til persóna sem nýtur hylli fólks og verður hún í framhaldi af því ávísun á „öruggt“ grín og er því notuð óspart við öll möguleg tækifæri, er Ragnar Reykás ágætt dæmi um slíka persónu og Spaugstofan besta dæmið um hefðbundið grín almennt séð. En málið er þó ekki alveg svona einfalt þar sem þessi lýsing kallast um margt á við greinina „Skipan orðræðunnar“ frá 1971 eftir franska heimspekinginn Michel Foucault (1926–1984). Í henni segir að í vestrænu þjóð- félagi megi finna útilokunarhætti sem segi til um hvað sé leyfilegt innan þess og að það sé orðræðan sem stjórni því. Í sem fæstum orðum vísar hugtakið „orðræða“ til tungumáls sem er beitt á tilteknu sviði, en á hverju sviði gilda reglur um það hvernig má tala. Öll þjóðfélög samanstanda af mörgum ólíkum orðræðu- samfélögum með mismunandi stöðu innan ríkjandi valdakerfis hverju sinni. Sú orðræða sem er ofan á hefir vald yfir öðrum orðræðum. Foucault talar svo einnig um þrjár ytri að- ferðir sem stjórna orðræðunni. Sú fyrsta er bannið, önnur markalínan og útskúfunin og sú þriðja sannleiksviljinn. En allar þessar aðferðir miða að því að segja fyrir um það hvað sé leyfi- legt (satt) innan samfélagsins. Ef einhver gerir eitthvað óleyfilegt eða bannað fer sá hinn sami yfir strikið (markalínuna) og getur þ.a.l. verið útskúfað eða talinn afbrigðilegur. Á þann máta þvingar ríkjandi orðræða aðrar orðræður til þess að feta ráðandi og viðurkennda slóð (Foucault 1991:193–198). Í þessu ljósi er Spaugstofan og áþekkt grín innan viðurkennda rammans, enda gerir hún sjaldan eitthvað sem brýtur í bága við hið leyfilega. Svínasúpan og Fóstbræður eru aftur á móti ekki innan þess ramma. Það eru engin ný sannindi að andanum (vits- mununum) sé hampað umfram efnið (líkam- ann) og má því segja að andinn sé partur af ríkjandi orðræðu. Það kann þó kannski að skjóta skökku við að tala um að andanum sé hampað umfram efnið á þessum líkamlegu tím- um þegar líkaminn virðist allstaðar í fyrirrúmi. Hver kannast t.d. ekki við að sjá hálfbera og stælta líkama í auglýsingum. Gallinn er bara sá að þar er ekki um raunverulega líkamsbirtingu að ræða því oftar en ekki hafa „lýti“ eins og fæðingarblettir og óæskileg hár verið fjarlægð. Það er meira að segja stundum gengið svo langt að taka burt það sem undirstrikar kyn- ferði viðkomandi aðila t.d. geirvörtur og sköp. En ef kynferðisleg einkenni væru ekki þurrkuð út er líklegt að viðfangsefnið myndi lenda handan markalínunnar og falla í flokk hins ósæmilega. Einnig er merkilegt að líkamar sem ekki eru „nógu stæltir“ eru oft sýndir sem óeðlilegir eða frávik. Ofangreind líkamsbirting felur í sér staðalmynd eða myndir sem leggja línurnar fyrir það hvernig líkamar eigi að birt- ast. Uppbrot áðurnefndra grínþátta felst einmitt í því að þá má staðsetja handan markalínu Foucault. Enda eru þeir uppfullir af líkams- gríni sem brýtur gegn staðalmyndum og er oft bæði klámkennt og ofbeldisfullt. Þættirnir ganga jafnvel stundum svo langt að hafna að- greiningunni milli líkama og anda með því að leggja áherslu á fyrrnefnda þáttinn. Slíkt lík- amsgrín má kalla gróteskt raunsæi. Gróteskt raunsæi Sá sem einna best hefir fjallað um gróteskt raunsæi er rússneski bókmenntafræðingurinn Mikhail Bakhtin (1895–1975). Það gerði hann í bók sinni um franska rithöfundinn Rabelais, Rabelais and His World, ásamt því að setja fram samfélagslega skiptingu hins háa eða hins andlega og hins lága eða hins líkamlega. Kall- ast það á við orðræðu Foucault, þar sem hið háa væri ríkjandi orðræða en hið lága handan markalínunnar. Í sögulegri úttekt á gróteskunni segir Bakhtin að upp frá miðöldum hafi lítið borið á grótesku og að reynt hafi verið að útiloka sem flest er lýtur að líkamanum og skapa, það sem hann kallar, nýja líkamlega kanónu (Bakthin 1984:320). Þessi nýja líkamlega kanóna krist- allast vel í hinum svokölluðu Heilagra meyja sögum frá miðöldum þar sem hinar heilögu Hið „nýja“ gróteska Greinarhöfundur fjallar hér um íslenska gamanþætti fyrir sjónvarp og hvaða breyt- ingum þeir hafa tekið hvað efnistök og inni- hald varðar. Leiðir hann að því líkur að gróteskt sjónvarpsgrín, svo sem Fóstbræður, hafi í dag öðlast sess sem eins konar menn- ingarfyrirbæri í íslensku sjónvarpi og reynir að greina hvaða ástæður liggja þar að baki. Morgunblaðið/Jim Smart Svínasúpan Viðmiðum samfélagsins er þar snúið á haus með grótesku raunsæi. Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson ogk@simnet.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.