Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. júní 2005 | 15
ÞAÐ er óneitanlega töluvert þrekvirki sem
Þóra Kristjánsdóttir list- og sagnfræðingur
hefur unnið undanfarin ár með rannsóknum
sínum á íslenskri myndlist fyrri alda. Vett-
vangur þessara fræða virðist enda hafa mætt
litlum áhuga til þessa og eru skráningarvinna
og rannsóknir Þóru, og þeirra sem á undan
hafa farið, því kærkomið brautryðjendastarf
sem vonandi á eftir að glæða áhuga jafnt
fræðimanna sem almennings.
Nýútkomin bók hennar, Mynd á þili – Ís-
lenskir myndlistarmenn á 16., 17. og 18. öld, er
líka ekki aðeins vel til þess fallin að auka á
fróðleik, heldur einnig að skapa lifandi um-
ræðu um myndlist tímabilsins, sem nú virðist
mun blómlegri en flestir gerðu sér grein fyrir.
Í tengslum við útgáfuna hefur svo verið sett
upp sýningin Mynd á þili – Íslenskir myndlist-
armenn fyrri alda í Bogasal Þjóðminjasafns-
ins. Er sýningin, sem nýtur sín vel í salnum, þá
ekki síður til þess fallin að vekja forvitni enda
geymir hún aðeins hluta þeirra verka og fróð-
leiks sem í bókinni er að finna.
Haglega útskorin verk á borð við altaristöfl-
una frá Reykjum í Skagafirði eftir snikkarann
Guðmund Guðmundsson í Bjarnastaðahlíð af
síðustu kvöldmáltíð Krists og lærisveinanna
vekja þannig samstundis áhuga á listamann-
inum, ekki síður en útskorin trélíkneski af
Kristi og postulunum tólf eftir sama lista-
mann. Sömuleiðis eru þær ófáar spurning-
arnar sem vakna er Íslandskort og portrett-
myndir Þórðar Þorlákssonar Skálholtsbiskups
eru skoðaðar, og myndarlegt hvalbeinspjald
Brynjólfs Jónssonar lögréttumanns úr predik-
unarstólnum í Skarði á ómælda aðdáun skilið,
ekki síður en einkar vel gerð mannamynd Jóns
Ólafssonar yngri frá Svefneyjum.
Íslenskir myndlistarmenn fyrri alda voru
kannski ósamstæður hópur sem ekki leiddi til
línulegrar þróunar á myndlistarsögu landsins.
Sumir menntaðir erlendis – flestir þá með
myndlistina sem hliðarfag við önnur fræði, og
aðrir sjálflærðir einyrkjar heima á Fróni, en
það gerir sögu þeirra í engu ómerkari. Og þó
listamennirnir hafi vel flestir sinnt öðrum
starfa utan myndlistarinnar – enda komnir úr
fjölbreyttum hópi laghentra guðsmanna,
snikkara og veraldlegra ráðamanna – rýrir
það ekki gildi verka þeirra. Gróf málning, næft
yfirbragð og mislipurlega mótuð anatómía,
sem e.t.v. stenst Michaelangelo ekki snúning,
skerðir heldur ekki menningarsögulegt gildi
þessara verka né heldur sú staðreynd að mörg
þeirra eigi sér erlendar fyrirmyndir. Og hvort
sem fella má þau undir ramma hinna svoköll-
uðu alþýðulista eða ekki eiga þau skilinn sinn
sess innan myndlistarsögu okkar og fá nú von-
andi notið þeirrar athygli sem þeim þar ber.
Jafnvel þó höfundar reynist í einhverjum til-
fellum aðrir en hér er talið þá eykst þekkingin
á gildi þeirra ekki án aukinnar umræðu og vit-
undar.
Sýningin í Bogasal hefði gjarnan mátt vera
stærri að umfangi og teygja sig yfir stærra
rými, enda er bókin til vitnis um að auðvelt
hefði verið að sýna mun fleiri muni og veita
meðfram þeim ítarlegri upplýsingar á spjöld-
um eða í sýningarskrá. Mynd á þili –Íslenskir
myndlistarmenn fyrri alda er hins vegar von-
andi aðeins byrjunin, upphafið á fleiri og veg-
legum sýningum og rannsóknum á þessum svo
lengi vanrækta hluta listasögu okkar.
Úr skúmaskotum myndlistarsögunnar
MYNDLIST
Þjóðminjasafn Íslands
Sýningin stendur til 23. október. Hún er opin alla
daga frá kl. 10–17.
Mynd á þili – íslenskir myndlistarmenn fyrri alda
Morgunblaðið/Árni Torfason
Predikunarstóll Þessi stóll er úr kirkjunni í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp sem skorinn var út og mál-
aður af Hjalta Þorsteinssyni, prófasti í Vatnsfirði, einhvern tímann á árunum 1725–33.
Anna Sigríður Einarsdóttir
VÖGGUSÖNGVAR voru samkenni lagavals-
ins á annars yfirskriftarlausum tónleikum
Sesselju Kristjánsdóttur og Antoníu Hevesi í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi á
þriðjudag. Ekki verri samtengingarformerki á
söngdagskrá en svo margt annað, og jafnvel
obbolítið frumleg, nú á bjartasta tíma ársins
þar sem börn gerast jafnan torsvæfðust.
Samt hefði í fljótu bragði mátt ætla að for-
merkin fælu óhjákvæmilega í sér fábreytni,
þrátt fyrir að leitað var fanga til fimm ólíkra
þjóða. Eða hvað getur verið sammenskara en
að rugga barni í svefn? „Konseptið“ hlaut því
fyrir fram að veita afar takmarkað svigrúm til
tjábrigða. Skyldi maður halda.
Raunin varð þó allt önn-
ur, því í slyngu vali þeirra
stallna var slegið á mun
fleiri tilfinningastrengi en
menn tengja venjulega við
kornabörn. Þó vissulega
megi stórefast um að stétt-
pólitískar „barnagælur“
Eislers & Brechts hafi
nokkurn tíma nýtzt til ung-
barnasvæfinga. Hvað þá
hrollvekjandi barnafæla
Brittens við ljóð T. Randolphs, A Charm, eða
léttglettin samfélagssatíra Gladysar Rich, Am-
erican Lullaby.
Tónaferðin hófst á suðlægum breidd-
argráðum með tveim spænskum lögum. Texti
hinnar seguedillukenndu Canción de cuna para
dormir a un negrito eftir Montsalvatge (1912–
2002) höfðaði, líkt og síðar hjá Eisler/Brecht,
öllu frekar til kúgaðra fullorðinna en andvara-
lausra hvítvoðunga. En þjóðvísa Manuels de
Falla úr „Siete Canciones Populares“, Nana,
var hins vegar ósvikið vögguljóð, og sameinaði
lagið blíða fegurð og íberska reisn.
Íslenzku lögin fjögur ýttu úr vör með hálf-
ósönghæfum risatónbilum Vögguvísu Jóns
Leifs, enda eina tilvikið þar sem söngkonan
hékk aðeins neðan í tóni. Hörpuvögguljóð Jóns
Þórarinssonar var hins vegar unaðslegt og bar,
eftir Amma raular í rökkrinu eftir Ingunni
Bjarnadóttur (líklega úts. Hallgríms Helga-
sonar), af ásamt Vöggukvæði (Litfríð og ljós-
hærð) Emils Thoroddsen. Hér sem fyrr og síð-
ar lék Antonia mjúkt og fallega undir, þó að
millispilið kunna væri kannski í það órólegasta
– líkt og í aukalaginu Nótt eftir Árna Thor-
steinsson.
Af Fjórum vöggusöngvum handa verka-
mannsmæðrum þeirra Hanns Eislers og Bert-
olts Brechts, er lýstu frekar örvinglan atvinnu-
þrefs en svefnheimi ungra draumsnillinga,
bauð hið síðasta og lengsta upp á mestu túlk-
unarmöguleikana, og var ekki laust við að berl-
ínska verkakonan minnti snöggvast á hetju-
hvetjandi móður Þorgeirs Hávarssonar í
Gerplu, þrátt fyrir gjörólík umhverfi. Sesselju
tókst þar bráðvel upp, þótt hefði að ósekju
mátt vera enn grimmari á hvössustu stöðum.
Bandaríska þjóðlagið The Little Horses, hér
í úts. Coplands en fyrrum heimskunnugt með
Peter, Paul og Mary, heppnaðist mjög vel, svo
og fyrrgetið American Lullaby eftir Rich, og O
Men from the Fields (Hughes) var sérlega
innilega flutt. Loks voru þrjú lög úr „A Charm
of Lullabies“ eftir Britten þar sem áðurnefnd
styggðardilla A Charm kom bráðskemmtilega
út, og ekki síður hið háttlæga The Nurse’s
Song. Fyrra aukalagið var án undirleiks,
ókynnt enskt þjóðlag með tilheyrandi alþýðu-
flúri og túlkað með látlausum glæsibrag. Loks
kom Nótt Árna, er kórónaði furðuvíðfeðman
vöggusöngvaskammt kvöldsins með klið-
mjúkri tign.
Bíum, bíum, bambaló
TÓNLIST
Sigurjónssafn
Íslenzkir og erlendir vöggusöngvar. Sesselja Krist-
jánsdóttir mezzosópran, Antonía Hevesi píanó.
Þriðjudaginn 21. júní kl. 20.30.
Einsöngstónleikar
Sesselja
Kristjánsdóttir
Ríkarður Ö. Pálsson
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri:
Guess Who
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Star Wars: Episode III
(SV)
Smárabíó
Guess Who
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Star Wars: Episode III
(SV)
Are We There Yet?
Vélmenni (SV)
Regnboginn
Guess Who
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Star Wars: Episode III
(SV)
Layer Cake (HL)
Kingdom of Heaven
(HL)
Laugarásbíó
The Upside of Anger
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Are We There Yet?
Monster-in-Law (HJ)
Háskólabíó
Batman Begins (HL)
Inside Deep Throat
Crash (HL)
Voksne Mennesker
(HL)
The Hitchhikers Guide
(HJ)
Sambíóin Reykjavík,
Keflavík, Akureyri
Batman Begins (HL)
A Lot Like Love (HJ)
House of Wax
Crash (HL)
The Hitchhikers Guide
(HJ)
The Ice Princess (HJ)
The Pacifier (HJ)
Svampur Sveinsson m/ísl.
tali (HJ)
The Wedding Date
Myndlist
Austurvöllur: Ragnar Ax-
elsson
Árbæjarsafn | Þorvaldur
Óttar Guðlaugsson sýnir ís-
lensk fjöll úr postulíni í
Listmunahorninu.
101 gallery: Ólafur Elías-
son til 1. júlí.
Banananas | Sýningin Vig-
dís – Skapalón á striga, að-
ferð götunnar á striga.
Café Karólína | Vilhelm
Anton Jónsson.
Dagsbrún undir Eyjafjöll-
um: Ragnar Kjartansson.
Eden, Hveragerði: Ólöf
Pétursdóttir til 26. júní
Edinborgarhúsið, Ísafirði:
Elín Hansdóttir.
Elliheimilið Grund: Jeremy
Deller.
Energia | Sigurður Pétur
Högnason.
Feng Shui-húsið | Diddi
Allah sýnir olíu- og akrýl-
verk. Opið kl. 10–18 virka
daga, kl. 12–18 um helgar.
Gallerí 100° | Dieter Roth
til 21. ágúst.
Gallerí Gangur: Haraldur
Jónsson.
Gallerí Galdur og rúnir:
Haukur Halldórsson.
Gallerí Gyllinhæð | Berg-
lind Jóna Hlynsdóttir með
sýninguna „Virkni Með-
virkni Einlægni“.
Gallerí i8: Ólafur Elíasson.
Lawrence Weiner. Til 6. júlí.
Gel Gallerí: Ólafur grafari.
Gallerí Terpentine: Gull-
pensillinn.
Gerðuberg: Lóa Guðjóns-
dóttir. Sýningin Stefnumót
við safnara II stendur yfir
til 30. júní.
Grafíksafn Íslands: Arnór
G. Bieltvedt til 10. júlí.
Götur Reykjavíkur: Mar-
grét H. Blöndal.
Hafnarbakkinn í Reykjavík
| Kristinn Benediktsson
„Fiskisagan flýgur“, ljós-
myndasýning til 31. ágúst.
Hafnarborg: Wilhelm
Sasnal, Bojan Sarcevic, Elke
Krystufek, On Kawara.
Hallgrímskirkja: Guðbjörg
Lind Jónsdóttir myndverk í
forkirkju og kór til 14.
ágúst.
Hallgrímskirkjuturn: Þór-
ólfur Antonsson og Hrönn
Vilhelmsdóttir.
Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi: Auður Vé-
steinsdóttir.
Hrafnista Hafnarfirði:
Rúna (Sigrún Guðjóns-
dóttir) til 28. júní.
Hönnunarsafn Íslands:
Circus Design frá Bergen.
Til 4. sept.
Kaffi Mílanó: Jón Arnar
Sigurjónsson.
Kaffi Sel | „Ástin og líf-
ið“. Gréta Gísladóttir
sýnir á Kaffi Seli við
golfvöllinn á Flúðum.
Sýningin stendur frá 12.
júní til 3. júlí.
Kaffi Sólon: Vilhelm Ant-
on Jónsson til 2. júlí.
Kunstraum Wohnraum
Akureyri: Steingrímur
Eyfjörð til 29. júlí.
Klink og Bank: Samsýn-
ing íslenskra, kanadískra
og norskra listamanna. Til
10. júlí.
Leonard | Mæja sýnir út
júnímánuð. Sjá nánar á
www.maeja.is.
Listasafnið á Akureyri:
Matthew Barney, Gabríela
Friðriksdóttir.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Jonathan
Meese.
Listasafn ASÍ: Ólafur Árni
Ólafsson, Libia Pérez de
Siles de Castro.
Listasafn Íslands: Dieter
Roth.
Listasafn Kópavogs –
Skaftfell, Seyðisfirði: Anna
Líndal.
Skriðuklaustur: Sýning 8
listamanna af Snæfelli.
Slunkaríki, Ísafirði: Hreinn
Friðfinnsson.
Edinborgarhús, Ísafirði:
Elín Hansdóttir.
Suðsuðvestur: Sólveig Að-
alsteinsdóttir.
Vatnstankarnir við
Háteigsveg: Finnbogi
Pétursson.
Vestmannaeyjar: Micol
Assael.
Við fjöruborðið: Inga Hlöð-
vers.
Þjóðminjasafnið: Mynd á
þili, sýningin er afrakstur
rannsókna Þóru Kristjáns-
dóttur, sérfræðings í kirkju-
list, á listgripum Þjóðminja-
safnsins.
Þjóðminjasafn Íslands:
Skuggaföll. Portrettmyndir
Kristins Ingvarssonar.
Margir þekkja stakar ljós-
myndir Kristins en með því
að safna úrvali af þeim sam-
an birtist ný og óvænt
mynd.
Þjóðminjasafn Íslands:
Story of your life – ljós-
myndir Haraldar Jóns-
sonar.
Leiklist
Loftkastalinn: Bítl, laug-
ardag.
Borgarleikhúsið: Kalli á
þakinu, laug.
Gerðarsafn: Gabríel Kuri,
Jennifer Allora og Guill-
iermo Calzadilla, Brian
Jungen, Hekla Dögg
Jónsdóttir, John Latham,
Kristján Guðmundsson.
Listasafn Reykjavíkur, Ás-
mundarsafn: Maðurinn og
efnið. Yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir: Sumarsýn-
ing Listasafns Íslands.
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús: Dieter Roth, Pet-
er Fischli, David Weiss, Har-
aldur Jónsson, Urs Fischer.
Listasafn Reykjanesbæjar:
Martin Smida þýsk. Til 12.
júní.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Sumarsýning.
Lista- og menning-
arverstöðin Stokkseyri: Elf-
ar Guðni. Til 5. júní.
Listhús Ófeigs: Halla Ás-
geirsdóttir.
Norræna húsið: Andy Horn-
er til 28. ágúst.
Nýlistasafnið: Thomas
Hirschhorn.
Safn: Carstein Höller til 10.
júlí.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Saltfisksetur Íslands: Krist-
inn Benediktsson ljósmynd-
ari.
Salurinn Kópavogi: Leifur
Breiðfjörð.