Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Blaðsíða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. júní 2005 | 3
B
retinn David Chipperfield var
þegar orðinn höfundur við-
urkenndra bygginga í Evr-
ópu, Asíu og Ameríku þegar
hann ákvað árið 1996 að
byggja sumarhús fjölskyld-
unnar í litlu sjávarþorpi í norðurhluta Spán-
ar. Þorpið hét Corrubedo, þar sem arkitekt-
arnir Manuel Gallego, Estanislao Pérez Pita
og Iago Seara höfðu hannað
eigin hús og þar sem hinn
virti arkitekt Alejandro de
la Sota hafði oft eytt leyfum
sínum. Þetta var staður við
ólgandi haf og nálægt ein-
stökum sandöldum og sem slíkur bauð hann
upp á algjöra andstæðu við annasama starf-
semi arkitektsins í London.
Corrubedo
Bæði David Chipperfield og kona hans
Evelyn höfðu lengi verið heilluð af Spáni.
Undanfarin tíu ár höfðu þau leigt bústað í
þessu litla þorpi í suðurhluta Coruña-
héraðsins. Corrubedo, með aðeins 726 íbúa,
dregur að sér þúsundir ferðamanna á hverju
sumri sem bragða á ferskum skelfiski, veiða
nytjafiska af ættum vartara og vatnakarfa
og njóta þjóðgarðarins sem er þekktur fyrir
stóra, síbreytilega sandöldu úr örfínum
sandi.
Í leit að lóð til sölu fundu þau Chipper-
field-hjónin loksins eina sem lá sem skarð í
aðalgötuna og rétt fjórum metrum frá sjó.
Þrátt fyrir að þessi húsaröð frá 6. áratugn-
um hefði haft þann möguleika að opna hlið-
ar sínar bæði til hafs og að þorpslífi aðalgöt-
unnar, þá virðist sem krafturinn sem býr í
hafinu hafi haft sín áhrif og sýnir formgerð
húsanna að þau kusu fremur þorpið. Öll
snúa þau svölum sínum að götunni en hlífa
sér gegn hafinu með því að minnka
gluggana niður í lítil vindaugu þeim megin.
Það að hafa sína eigin fjölskyldu sem við-
skiptavin gaf Chipperfield það mikið frelsi
að hann varð að endurskoða nálgun sína að
verkefninu. Hvað átti hann eiginlega að
túlka? Án nokkurs þrýstings um ákveðinn
stíl eða fyrirfram gefið form fannst honum
meira viðeigandi að byrja að hugsa húsið
innan frá. Það er, að íhuga stöðu manneskj-
unnar og þær samtengingar sem ákvarða
húsagerðina, sambandið milli íbúans og til-
rauna á rýminu. Allt frá upphafi, eins og í
öllum hans verkefnum, leitaðist Chipperfield
við að skapa rými sem ætti rætur sínar að
rekja til einfaldra helgisiða heimilisins: að
borða morgunverðinn, lesa bók, elda matinn
og hugleiða hafið. Um væri að ræða bygg-
ingarlist – leiksvið sem kallaði ekki á at-
hygli, þó maður fyndi ávallt fyrir nærveru
hennar.
Að taka við öflum sjávarins
Hafið varð aðalefniviður túlkunarinnar:
Fjölskyldan yrði að geta notið afla þess og
aðdráttarafls til fullnustu þegar hún kæmi í
leyfum sínum. Afleiðingin varð sú, andstætt
við húsin í kring, að innri rými hússins
horfðu út á flóann og höfnina en friðhelgi
fjölskyldunnar var skýlt frá aðalgötunni með
nær gluggalausri framhlið.
Húsið er á fjórum hæðum. Upp frá
grjótinu, nokkrum metrum frá ströndinni,
liggur skábraut beint að svefnherbergjum
barnanna, herbergjum sem minna helst á
káetur skipa. Yfir þessari hæð hvílir stofan
en framhlið hennar er alglerjuð og snýr út
að hafinu. Þar fyrir ofan er önnur hæð
svefnherbergja en efst eru þaksvalir. Þær, í
skjóli af vinnustofunni, skaga út í átt að Atl-
antshafinu eins og þær vildu ná til þess.
Hvers konar hindrun sem truflað gæti út-
sýnið hverfur uppi á þaksvölunum þar sem
fjölskyldan undirbýr grillið eins og hún væri
á þilfari skips.
Saga bæjarins snýst um lífið í kringum
hafið. Í þeirri atburðarás hefur hafið það
hlutverk að vera tengiliðurinn milli fortíð-
arinnar og þess að búa í nútíðinni. Þetta
sterka afl náttúrunnar ákvarðar ytra útlit
hússins, efnisval og dreifingu innri rýma.
Styrkleiki steinsins í grunni hússins er
ítrekaður í þyngdarleysi glersins á hæðinni
fyrir ofan, tilfinning fyrir léttleika sem verð-
ur ávallt sterkari þar til hún hverfur allt í
einu á þaki hússins.
Þrátt fyrir tilsvörun í hafið nær hús
Chipperfields að laga sig að nærliggjandi
húsum sem höfðu skýlt sér frá sjónum. Það
heldur uppi samræmi í hæðarhlutföllum,
efnisnotkun og litbrigðum gagnvart þessum
húsum aðalgötunnar, en í stað þess að end-
urtaka rúmfræði þeirra tengir arkitektinn
rúmfræði þeirra með því að nota óreglu-
legar línur sem endurspegla síbreytilegan
sjávarflötinn og fylgja óreglulegum útlín-
unum sem snúa að bænum Corrubedo. Á
þennan hátt spratt verkefnið upp frá því að
vangaveltur ferðamannsins, húsagerðarinnar
og fjölskyldunnar voru felld inn í viðhorfið
að „gerast hluti af“ en samt aðskilin um-
hverfinu. Af hálfu Chipperfields var það
ekki spurning um að búa til ný form heldur
að hvetja til samræðna milli sögu staðarins
og þeirra nýkomnu.
Það að fella hús inn í byggt umhverfi þýðir
ekki að herma þurfi eftir rúmfræðilegum
formum þess sem í kringum það er. Húsið
sem hér um ræðir fellir þau inn í sitt eigið
form þegar það túlkar hugtakið um að búa í
húsi við Atlantshafið.
Eftir Halldóru
Arnardóttur og
Javier Sánchez
Merina
jsm@coamu.es
Arkitektinn David Chipperfield( 1953).
Útsýnið Frá stofunni er horft yfir ógnvekjandi hafið, stundum ótrúlega stillt, sem dregið hefur að sér
athygli ljóðskálda og listamanna.
Hús í Corrubedo í Galicia
eftir David Chipperfield
Ljósmynd/Hélène Binet
Sumarhús í Corrubedo (2002) Bygging þess stóð yfir í fjögur ár vegna erfiðra aðstæðna og veðurfars.
Halldóra er listfræðingur og Javier arkitekt.