Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Side 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. júní 2005 | 3 B retinn David Chipperfield var þegar orðinn höfundur við- urkenndra bygginga í Evr- ópu, Asíu og Ameríku þegar hann ákvað árið 1996 að byggja sumarhús fjölskyld- unnar í litlu sjávarþorpi í norðurhluta Spán- ar. Þorpið hét Corrubedo, þar sem arkitekt- arnir Manuel Gallego, Estanislao Pérez Pita og Iago Seara höfðu hannað eigin hús og þar sem hinn virti arkitekt Alejandro de la Sota hafði oft eytt leyfum sínum. Þetta var staður við ólgandi haf og nálægt ein- stökum sandöldum og sem slíkur bauð hann upp á algjöra andstæðu við annasama starf- semi arkitektsins í London. Corrubedo Bæði David Chipperfield og kona hans Evelyn höfðu lengi verið heilluð af Spáni. Undanfarin tíu ár höfðu þau leigt bústað í þessu litla þorpi í suðurhluta Coruña- héraðsins. Corrubedo, með aðeins 726 íbúa, dregur að sér þúsundir ferðamanna á hverju sumri sem bragða á ferskum skelfiski, veiða nytjafiska af ættum vartara og vatnakarfa og njóta þjóðgarðarins sem er þekktur fyrir stóra, síbreytilega sandöldu úr örfínum sandi. Í leit að lóð til sölu fundu þau Chipper- field-hjónin loksins eina sem lá sem skarð í aðalgötuna og rétt fjórum metrum frá sjó. Þrátt fyrir að þessi húsaröð frá 6. áratugn- um hefði haft þann möguleika að opna hlið- ar sínar bæði til hafs og að þorpslífi aðalgöt- unnar, þá virðist sem krafturinn sem býr í hafinu hafi haft sín áhrif og sýnir formgerð húsanna að þau kusu fremur þorpið. Öll snúa þau svölum sínum að götunni en hlífa sér gegn hafinu með því að minnka gluggana niður í lítil vindaugu þeim megin. Það að hafa sína eigin fjölskyldu sem við- skiptavin gaf Chipperfield það mikið frelsi að hann varð að endurskoða nálgun sína að verkefninu. Hvað átti hann eiginlega að túlka? Án nokkurs þrýstings um ákveðinn stíl eða fyrirfram gefið form fannst honum meira viðeigandi að byrja að hugsa húsið innan frá. Það er, að íhuga stöðu manneskj- unnar og þær samtengingar sem ákvarða húsagerðina, sambandið milli íbúans og til- rauna á rýminu. Allt frá upphafi, eins og í öllum hans verkefnum, leitaðist Chipperfield við að skapa rými sem ætti rætur sínar að rekja til einfaldra helgisiða heimilisins: að borða morgunverðinn, lesa bók, elda matinn og hugleiða hafið. Um væri að ræða bygg- ingarlist – leiksvið sem kallaði ekki á at- hygli, þó maður fyndi ávallt fyrir nærveru hennar. Að taka við öflum sjávarins Hafið varð aðalefniviður túlkunarinnar: Fjölskyldan yrði að geta notið afla þess og aðdráttarafls til fullnustu þegar hún kæmi í leyfum sínum. Afleiðingin varð sú, andstætt við húsin í kring, að innri rými hússins horfðu út á flóann og höfnina en friðhelgi fjölskyldunnar var skýlt frá aðalgötunni með nær gluggalausri framhlið. Húsið er á fjórum hæðum. Upp frá grjótinu, nokkrum metrum frá ströndinni, liggur skábraut beint að svefnherbergjum barnanna, herbergjum sem minna helst á káetur skipa. Yfir þessari hæð hvílir stofan en framhlið hennar er alglerjuð og snýr út að hafinu. Þar fyrir ofan er önnur hæð svefnherbergja en efst eru þaksvalir. Þær, í skjóli af vinnustofunni, skaga út í átt að Atl- antshafinu eins og þær vildu ná til þess. Hvers konar hindrun sem truflað gæti út- sýnið hverfur uppi á þaksvölunum þar sem fjölskyldan undirbýr grillið eins og hún væri á þilfari skips. Saga bæjarins snýst um lífið í kringum hafið. Í þeirri atburðarás hefur hafið það hlutverk að vera tengiliðurinn milli fortíð- arinnar og þess að búa í nútíðinni. Þetta sterka afl náttúrunnar ákvarðar ytra útlit hússins, efnisval og dreifingu innri rýma. Styrkleiki steinsins í grunni hússins er ítrekaður í þyngdarleysi glersins á hæðinni fyrir ofan, tilfinning fyrir léttleika sem verð- ur ávallt sterkari þar til hún hverfur allt í einu á þaki hússins. Þrátt fyrir tilsvörun í hafið nær hús Chipperfields að laga sig að nærliggjandi húsum sem höfðu skýlt sér frá sjónum. Það heldur uppi samræmi í hæðarhlutföllum, efnisnotkun og litbrigðum gagnvart þessum húsum aðalgötunnar, en í stað þess að end- urtaka rúmfræði þeirra tengir arkitektinn rúmfræði þeirra með því að nota óreglu- legar línur sem endurspegla síbreytilegan sjávarflötinn og fylgja óreglulegum útlín- unum sem snúa að bænum Corrubedo. Á þennan hátt spratt verkefnið upp frá því að vangaveltur ferðamannsins, húsagerðarinnar og fjölskyldunnar voru felld inn í viðhorfið að „gerast hluti af“ en samt aðskilin um- hverfinu. Af hálfu Chipperfields var það ekki spurning um að búa til ný form heldur að hvetja til samræðna milli sögu staðarins og þeirra nýkomnu. Það að fella hús inn í byggt umhverfi þýðir ekki að herma þurfi eftir rúmfræðilegum formum þess sem í kringum það er. Húsið sem hér um ræðir fellir þau inn í sitt eigið form þegar það túlkar hugtakið um að búa í húsi við Atlantshafið. Eftir Halldóru Arnardóttur og Javier Sánchez Merina jsm@coamu.es Arkitektinn David Chipperfield( 1953). Útsýnið Frá stofunni er horft yfir ógnvekjandi hafið, stundum ótrúlega stillt, sem dregið hefur að sér athygli ljóðskálda og listamanna. Hús í Corrubedo í Galicia eftir David Chipperfield Ljósmynd/Hélène Binet Sumarhús í Corrubedo (2002) Bygging þess stóð yfir í fjögur ár vegna erfiðra aðstæðna og veðurfars. Halldóra er listfræðingur og Javier arkitekt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.