Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Blaðsíða 11
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. júní 2005 | 11 Erótísk skáldsaga rituð af konu afmúslima trú sem býr í hefð- bundnu arabísku samfélagi vakti mikla athygli í Frakklandi á síðasta ári. Bókin, sem rituð er undir dul- nefni og gefin hefur verið út á einum átta tungumálum, er nú komin út á ensku undir heitinu The Almond eða Mandlan. The Almond hefur, sökum opinskárra kynlífslýsinga, verið líkt við skáldsögu Marguerite Duras, The Lover og eins The Sexual Life of Catherine M eftir Catherine Mill- et. Höfundurinn sem gengur undir nafninu Nedjma segir þó að sér hafi gengið allt annað til en að hneyksla lesendur, þess í stað hafi hún vilj- að draga upp mynd af konum sem njóta holdsins lystisemda á sama tíma og hún vildi koma höggi á margra alda kúgun á konum af músl- ima trú. Sagan er rituð í fyrstu per- sónu og segir frá uppvexti og mót- unarárum Marokkóstúlkunnar Badra.    Nýjasta skáldsaga Ítalans Um-berto Eco segir frá bóksal- anum Giambattista Bodoni, sem missir minnið eða að minnsta kosti hluta þess eftir einhvers konar hjartaáfall. Þannig þekkir Bodoni vel til Napóleons en ekki eiginkonu sinnar, er með- vitaður um Berl- ínarmúrinn en veit ekki að hann er fallinn. Bókin nefnist The Mysterious Flame of Queen Loana og er að mati gagnrýn- anda Daily Telegraph uppfull af áhugaverðum hugmyndum um hvernig jafnvel okkar innsti kjarni er í raun klippimynd búin til úr úr- klippubrotum skáldsagna, hálf- gleymdra drauma og mynda sem við skildum ekki nema að hluta.    Norski skáldsagnahöfundurinnKarin Fossum sýnir, að sögn gagnrýnanda Information, að það eru gæði í lýsingum glæpaverka en ekki magn sem skipta máli í nýjustu skáldsögu sinni Morðinu á Harriet Krohn, eða Drabet på Harriet Krohn eins og hún heit- ir á dönsku. Að mati blaðsins er Drabet på Harr- iet Krohn ein þeirra bóka þar sem lesandinn efast ekki eitt augnablik um raunhæfni sög- unnar sem hann er að lesa, auk þess sem frásagnarmáti Fossum sé svo ákafur að lesandinn hreinlega samlagist honum. Leyndardómurinn að baki svo kraftmiklum spennubók- arskrifum felist síðan í góðum skiln- ingi á mikilvægi smáatriða og innsæi höfundarins gagnvart persónunum sem söguna byggja.    Langur vinnutími og þau áhrifsem hann hefur á líf okkar er viðfangsefni Madeleine Bunting í bókinni Willing Slaves: How the Overwork Culture is Ruling Our Lives eða Viljugir þrælar: Hvernig of mikil vinnumenning stjórnar lífi okk- ar eins og gróflega mætti þýða heiti hennar á íslensku. Að mati gagnrýn- anda breska dagblaðsins Guardian er bók Bunting einkar þörf lesning þó höfundurinn dragi upp allt annað en jákvæða mynd af þeim langa vinnu- degi og fyrirtækjastefnu sem margir starfskraftar þurfa að sætta sig við, s.s. að kyrja sérstaka möntru fyrir- tækisins daglega nú eða sæta eins- konar einelti fyrir að vera ekki hóp- sálir. Áhrif langs vinnutíma, á oft lélegu kaupi, á tilfinningalíf og heimili starfsmannanna eru þá ekki minna lýsandi í skrifum Bunting sem segir vinnusemina leiða til tímaskorts sem bitni á ást og alúð innan fjölskyld- unnar og ættu þessi tilfinningasam- bönd – eins og margt annað í nútíma samfélagi – nú helst á hættu að vera boðin út. Umberto Eco Karen Fossum Erlendar bækur RÚDOLF er sjálfmenntaður tón- listarfræðingur og sögumaður skáldsögunnar Steinsteypu eftir Thomas Bernhard. Sögumaður er reyndar kannski ekki alveg rétta hugtakið því Rúdolf reynir ekki að segja sögu. Þess í stað veitir hann ákveðna innsýn í eigið sálarlíf og ævi í formi linnulausra vangaveltna og hugleiðinga um allt milli himins og jarðar, þar á meðal sjálfan sig. Form skáldsögunnar er að þessu leyti nokkuð óvenjulegt. Thomas Bernhard lokar sig inni í vitund Rúdolfs og leiðir lesandann aðeins hægt og sígandi að því sem kalla má sannleikann um sögumanninn og kringumstæður hans. Þetta ger- ir höfundur með stíltækni sem best er lýst sem viðþolslausri; langar setningar leysa enn lengri setn- ingar af hólmi. Kaflaskipti sjáum við aldrei og þannig fylgir lesandi aðalpersónunni á mjög náinn en á sama tíma krefjandi hátt. En þrátt fyrir þessi nánu sam- skipti sem lesandinn á við sögu- mann og vitundarmiðju bókarinnar kemur í ljós að Rúdolf er ekki allur þar sem hann er séður. Lesandinn þarf að tengja saman ólíka þræði og vera vakandi fyrir þversögnum og árekstrum í frásögn Rúdolfs en á þann hátt birt- ist líka á end- anum ljóslifandi en margflókin persónusköpun sem hvergi hikar í átökum sínum við tilvistarlega örvæntingu og lífshlaup sem að sumu leyti virð- ist misheppnað. Rúdolf býr einsam- all á ættarsetri sínu, auðugur en fársjúkur, og er fullur af biturð gagnvart umheiminum. Hann er ekki nema rétt tæplega fimmtugur að aldri en virðist að dauða kominn og í upphafi bókarinnar er hann heltekinn af hugsunum um systur sína. Strax í þessum fyrsta hluta bók- arinnar nær Bernhard umtals- verðum hæðum, á stundum finnst manni vænisýkin sem umvefur Rúdolf vera allt að því kafkaísk, en tilfinningar hans gagnvart systur sinni, sem er eldri en hann og hef- ur notið mun meiri velgengni í líf- inu, eru líkt og sérhannaðar fyrir djúpsálgreiningartíma hjá Freud. Rúdolf fyrirlítur veraldlega vel- gengni hennar, finnst hún grunn- hyggin og pirrandi, en það sem mestu máli skiptir er að hann er þess fullviss að hún hafi alla tíð með markvissum hætti grafið und- an honum og öllu sem honum er kært. Sú staðreynd að Rúdolf hef- ur aldrei orðið neitt úr verki; að allt sem hann hefur tekið sé fyrir hendur hefur reynst misheppnað eða verið yfirgefið áður en yfir lauk, er henni að kenna. Og hér er ekki um óviljandi áhrif að ræða að mati Rúdolfs heldur vísvitandi af- skiptasemi sem hefur það að mark- miði að gera hann að engu. Það sál- fræðilega mýrlendi sem lesandinn neyðist til að vaða hér í upphafs- kafla bókarinnar er ekki beinlínis ánægjulegt aflestrar en krafturinn er ótvíræður, og hugsýki Rúdolfs er það sömuleiðis. Þegar á líður kemur í ljós að Rúdolf er hálfgerður eilífðarstúd- ent, það er honum sjálfum að kenna hversu illa fræðastörfin ganga og systir hans er í raun eina manneskjan sem þykir vænt um hann og lætur hann sig nokkru skipta. Á fínlegan hátt gefur Bern- hard ennfremur til kynna að ekki sé um að ræða eftirköst sjúkdóms, að ekki sé hægt að skýra alla skap- gerðarbresti sögumanns með til- vísun til heilsunnar. Sennilega hef- ur Rúdolf ávallt verið svona en með því að halda ólíkum frásagn- arþráðum lifandi í gegnum bókina sýnir höfundur smám saman hversu þversagnakennd heims- mynd Rúdolfs í raun er, og hversu sorglegt núverandi líf hans verður að teljast. Ákafar staðhæfingar, griðalausir dómar, yfirgengilegar fordæmingar: Þetta er innihald þankagangs Rúdolfs en einstaka sinnum er eins og sólin brjótist í gegnum skýin, geðsýkin dragi sig um stundarsakir í hlé, og Rúdolf fjallar á hreinskilinn hátt um hluti sem áður voru grafnir í gallarpytti, sjálfshatri og örvæntingarfullri uppgjöf. En þrátt fyrir undantekn- ingar eru viðfangsefni bókarinnar einmitt örvænting, einmanaleiki, hrörnun og uppgjöf. Steinsteypa er með öðrum orðum skáldverk sem fjallar um skuggahliðar og mann- lega eymd. Bókin er reikningsskil við ævi sem virðist ekki hafa margt fram að færa annað en kalda og miskunnarlausa úttekt á því hvern- ig andans málefni geta virkað sem afsökun fyrir því að lifa ekki lífinu. Þetta hljómar sennilega ekki eins og strandarlesning, enda er bókin það ekki. Þetta er verk sem krefst átaka af hálfu lesanda, og ákveðins þolgæðis vegna þess að ekkert er gefið eftir af hálfu höf- undar. Á móti kemur sú einfalda staðreynd að löngu eftir að strand- arlesningin er gleymd á sálarstríð Rúdolfs, sem háð er undir birtu villuljósa og skuggamynda, eftir að fylgja lesandanum líkt og óþægileg en ógleymanleg minning. Nokkrum sinnum er minnst á Dostojevskí sem er vel við hæfi, bókin minnir að sumu leyti á afskræmt hjálp- arkall neðanjarðarmannsins en til- vistarleg örvænting sögunnar vísar líka aftur til minnisbóka Brigge eftir Rilke. Stíll Bernhards er þó hans eigin og þótt samanburður hafi ekki verið gerður á frumtext- anum virðist Hjálmari hafa tekist einkar vel að færa málfar sem ekki á beinlínis heima í íslensku, þ.e. langar málsgreinar sem hlykkjast líkt og risavaxið lindýr eftir enda- lausum innskotssetningum, að ís- lenskum málheimi. Endastöð ævinnar Bækur Skáldsaga Eftir Thomas Bernhard Þýðandi: Hjálmar Sveinsson Bjartur, 2005. 150 bls. Steinsteypa Björn Þór Vilhjálmsson Thomas Bernhard ÞJÓÐMINJASAFNIÐ hefur þá ágætu stefnu að setja reglulega upp ljósmyndasýningar í sal sem sér- staklega er til þess ætlaður, átta sýningar á ári. Að auki er hægt að nýta vegg framan salarins til sýn- ingahalds og þar er nú að finna ljós- myndainnsetningu Haralds Jóns- sonar myndlistarmanns sem hann nefnir The Story of Your Life. Saga lífs þíns væri íslenska heitið á sýningunni og ég fæ ekki séð að það hljómi verr, mun betur að mínu mati þegar um íslenska sýningu á verkum íslensks myndlistarmanns á íslensku safni er að ræða. Hvaða enskuárátta er þetta eiginlega sem hefur heltekið íslenska myndlist- armenn? Ég get ekki tekið undir það að heiti íslenskra myndlistarverka hljómi betur á ensku. Tilvísunum í þann enskumælandi menningarheim sem virðist umlykja íslenska mynd- listarmenn í svo ríkum mæli ætti líka að vera hægt að finna stað í myndlistinni sjálfri, myndefninu, framsetningunni eða á einhvern út- hugsaðri hátt en þann að taka upp einfaldar klisjur sem í okkar ís- lensku eyrum hljóma lipurlega og bera með sér keim menningar- samfélags sem við tilheyrum ekki og sækjumst ekki eftir að tilheyra. Ég get ekki ímyndað mér að íslenskir myndlistarmenn óski þess helst að vera amerískir, flestir eru einmitt montnir af því að vera hluti af menn- ingu sem hefur alið Björk og Sig- urrós, sem er skrýtin og öðruvísi og á sér einstæða sögu, þó hún sé að mestu ekkert nema tómar hremm- ingar. Ég hef því tekið að mér það óvinsæla hlutverk að gerast ís- lenskulögga á þessu sviði og mun halda því áfram, ég trúi því statt og stöðugt að flest það sem hljómar lip- urlega á ensku sé einnig hægt að orða nokkuð vel á móðurmálinu. Ég held líka að móðurmálið sé jafnan það sem standi manni næst, það snertir okkur meira og á annan hátt en tungumál sem lærast síðar á æv- inni. Oft er það einmitt fjarlægð er- lendra tungumála sem sóst er eftir en hún á það líka til að bragðdeyfa listina og listamaðurinn sleppur frá verkinu án þess að horfast raun- verulega í augu við ætlunarverk sitt. Saga lífs þíns hefði þessi sýning því að mínu mati átt að heita, þrátt fyrir allar alþjóðlegar tilvísanir í aðra menningarheima sem í mynd- um Haraldar er að finna. Haraldur Jónsson hefur á und- anförnum árum unnið nokkuð með ljósmyndir, helst sem tæki til að miðla ákveðinni stemningu. Hann notar ljósmyndir eins og ljóðskáld en ekki ljósmyndari. Síðustu áratugi hefur ljósmyndin verið gífurlega mikið notuð á þennan hátt, sá mynd- listarmaður er tæpast til sem ekki hefur tekið einhvers konar ljós- myndir. Nú hefur myndbandið mikið til tekið við þessu hlutverki, en ljós- myndin hefur það fram yfir þann miðil að hún er ekki rauntímatengd, áhorfandinn getur skoðað mynd- irnar á sínum eigin hraða og í þeirri röð sem hann vill. Haraldur sýnir hér myndir sem áhorfandinn gæti ímyndað sér að væru hluti af mun stærra ljósmyndasafni, líkt og lista- maðurinn hafi lengi tekið myndir af ákveðnum fyrirbærum og síðan valið þessar úr til þess að segja með þeim einhverja óskilgreinda sögu, sögu áhorfandans sjálfs miðað við heiti sýningarinnar. Saga lífs þíns vísar þannig til þess að líf okkar allra er að nokkru leyti sameiginlegt, við lif- um og hrærumst í heimi sem sam- anstendur af stöðum eins og flug- völlum, götum, herbergjum og einhverju óskilgreindu dóti og hlut- um. Frásagnaraðferð Haraldar er kunnugleg og það kemur því afar ánægjulega á óvart hversu sterkan og lifandi heim honum tekst að skapa með þessum hálfópersónulegu myndum. Heim án orða sem segir eitthvað um lífið, eitthvað sem felur í sér sannleika eins og fram kemur í sýningarskrá, eitthvað sem orð myndu umsvifalaust ræna og drepa niður. Hér er líkt og myndsýn og lífshugsun Haraldar birtist á máta sem ég hef ekki séð koma svo sterkt fram áður og þó að myndirnar séu jafn ópersónulegar og raun ber vitni, þó að titill sýningarinnar vísi til ákveðins menningarheims jafnt sem áhorfandans sjálfs, þá er sýningin fyrst og fremst afhjúpandi fyrir listamanninn sjálfan, sýn hans og upplifun á umhverfi sínu. Myndefnið er almennt en þó er hér um einsögu að ræða og hún er frábærlega skemmtileg í þessu samhengi við Þjóðminjasafnið sem geymir m.a. heimildir um líf einstaklinga gegn- um aldirnar. Myndir Haraldar krefjast þess að áhorfandinn gefi sér tíma til að skoða þær, hann nýtir sér þá ljós- myndahefð sem fyrirrennarar hans í myndlistinni hafa skapað en tekst listavel að skapa einkar persónulega og eftirminnilega innsetningu, lausa við klisjur. Blindi bletturinn MYNDLIST Þjóðminjasafnið Til 31. júlí. Þjóðminjasafnið er opið alla daga vikunnar yfir sumartímann, frá kl. 10–17 The Story of Your Life ljósmyndir, Haraldur Jónsson Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/ÞÖK Þjóðminjasafnið „Frásagnaraðferð Haraldar er kunnugleg og það kemur því afar ánægjulega á óvart hversu sterkan og lif- andi heim honum tekst að skapa með þessum hálfópersónulegu myndum.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.