Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Blaðsíða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005 | 3 Þ akhúsið (2001) var eitt af þeim húsum sem skaut arkitektunum Yui og Takaharu Tezuka upp á vinsældalistann. Svo langt náði það að þau léku aðalhlutverkið í sjónvarpsauglýsingu fyrir Toyota og sjónvarpsþáttur var gerður um þau sem tekinn var upp heima hjá þeim og í arki- tektastofunni og sýndi líf þeirra hjóna í heilt ár. Upphaf afkasta- mikillar starfsemi arkitektastofunnar Tezuka hélst í hendur við ákvörðun japanskra stjórnvalda árið 1988 um að efla miðkjarna borga landsins og hækka hlutfall einbýlishúseigenda. Upp frá því, hafa þau Tezuka-hjónin hannað og byggt yfir fjöru- tíu einbýlishús, þar sem þau leitast í öllum til- fellum við að gera viðskiptavinina að þátttak- endum í hönnunarferlinu og úrvinnslu hugmynda. Nær himninum Takahashi-fjölskyldan, ung hjón með tvö börn, bjuggu í einni af þeim fjölmörgu hefðbundnu íbúðum sem risu í Tókýó á árum sjöunda ára- tugarins. „Þegar við fórum heim til viðskiptavin- anna í fyrsta skipti, fóru þau með okkur upp stiga að litlu þaki sem var aðeins sex fermetr- ar að stærð og sögðu við okkur: „Við fáum okkur hádegismat hérna uppi á þaki á hverjum degi.““ Með þessa hugmynd í huga hófu arkitektarnir úrfærsluna á verkefn- inu. Þau urðu fyrir áhrifum af mjög svo af- mörkuðu rými á þakinu og hófust strax handa við að koma til móts við þarfir fjölskyldunnar. Verkefnið myndi snúast um þennan daglega raunveruleika, samt svo óvenjulegan, og þau myndu vinna með þakið eins og það væri flötur sem hefði verið bætt við lóð hússins. Hægt væri að túlka samræðurnar milli fjöl- skyldunnar og arkitektsins sem leit að ákveðnum leikreglum sem myndi tengja þakið við notkunargildi gólfsins. Þak, sem í jap- önskum menningarheimi merkir bústaður, vís- ar til loftslags staðarins sem myndar gættina milli himins og jarðar. Á því fær maðurinn svig- rúm fyrir hugsanir sínar. Það er hins vegar á gólfi hefðbundinna japanskra húsa þar sem lífið tekur sínar ólíku stefnur. Litið er á gólfið sem hluta af húsbúnaðinum og það hefur eiginleika aðdráttarafls sem líkist því er veggirnir sem við setjumst upp að hafa í vestrænum hýbýlum. Í Japan er aðdráttaraflið að finna í gólfinu, mað- ur sest frekar á það heldur en að ganga á því. Lífshættir í japönskum húsum þróast út frá hreyfingum sem gæla við gólfið, allt frá því að leggjast á það eða að fara um það á fjórum fót- um. Þakhúsið Yui og Takaharu Tezuka hófu verkefnið með því að ímynda sér þakið sem aðalrými hússins. Fjölskyldan hafði óskað eftir borðstofuborði með tilheyrandi bekkjum en arkitektarnir lögðu til að koma þar líka fyrir eldhúsi með ofni, sturtu og vegg sem myndi skýla fjölskyldunni bæði frá augum nágrannanna og vindum. Í raun er þakið eitt stórt húsgagn með örlitlum halla þar sem fjölskyldumeðlimirnir setjast, leggja sig og athafna sig að vild. Auk þessa lárétta svigrúms, hefur húsið mjög ákveðnar lóðrétta þætti, sem líkja má við hreyfingu sem á sér stað í hverju einasta her- bergi. Þannig er húsið skipulagt í kringum átta þakljós. Gluggi er opnaður í þaki stofunnar, í forstofunni, í hjónaherberginu, í herbergi barnanna, yfir vinnuherberginu, eldhúsinu og í baðherbergjunum. Með því að klifra upp stig- ana sem styðjast við þakgluggana, teygir hvert og eitt þessara herbergja sig upp á þakið og sameinast ytra rýminu. Það sem meira er, þeg- ar upp er komið er ekkert sem girðir þakið af, allt gert til þess að sameina það lífsmynstur sem þróast á þakinu því sem gerist í garðinum. Meðlimir fjölskyldunnar njóta þannig í sam- einingu rýmis hússins á milli jarðhæðarinnar og þaksins sem, án nokkurra milliveggja, býður upp á útsýni yfir fjallið Kobo og dalinn í fjar- lægð. Hér, í þakhúsinu, hreyfa íbúarnir sig auð- veldlega milli láréttra og lóðréttra þátta, milli jarðarinnar og himinsins til þess að öðlast ein- stakt útsýni og viðhorf gagnvart lífinu. Að búa upp á þakinu er jafnmikilvægt fyrir það og að athafna sig á jarðhæðinni. Rýmið á þakinu, þar sem hugsanirnar hafa nægilegt svigrúm, býður líka upp á gólf til þess að njóta þeirra í samein- ingu. Þakhúsið í úthverfi Tókýóborgar eftir Yui og Takaharu Tezuka Nýja húsið leggur til sjónarsvið þar sem fjöl- skyldan getur framkvæmt grundvallar- athafnir sínar, eins og að sofa, borða og hugsa, allt á þakinu þar sem jörðin vísar til himins. Arkitektarnir Þau Yui Tezuka (f. 1969) og Tkaharu Tezuka (f. 1964). Þakhúsið Húsið sem er frá árinu 2001, hefur hlotið virt verðlaun, eins og Yoshioka-verðlaunin og verðlaun frá japanska arkitektafélaginu. Eftir Halldóru Arnardóttur og Javier Sánchez Merina h.a@ono.com Halldóra er listfræðingur og Javier arkitekt. Í Hallgrímssálmum sjáum bert það sem og flestir vita að svo þá hefur sjálfur gert af sínum trúarhita. En veröld hefur – heyra má, víst höfund engan fengið. En hvað um lögmál lífsins þá ef lagasmið frátengið? Það gerist ekkert hér í heim, ei hreyfing nein sjálfkrafa. Ei andans verk í orðum tveim ef eigi visku hafa. Heimur vorra vísinda hann varð með styrk þess fróða og orkugjafi auðlinda, hann orti veröld þjóða. Hallgrímskirkja blessar borg sem barn við móðurhjarta. Er ljós í myrkri – líkn í sorg, skín líkt og sólin bjarta. Og mörg það vitnar gáfan góð, um gjörandann og verkin: Sjá veröld – kirkjan – ljós og ljóð, þau listaverks ummerkin. Væri veröldin án höfundar hefði mátt ætla hið sama t.d. um Passíusálmana! Pétur Sigurgeirsson, biskup

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.