Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Blaðsíða 7
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005 | 7 ar frægur mexíkóskur listmálari. Enginn fékk þó dóm fyrir skotárásina. Eftir þessa morð- tilraun voru settar upp stálhurðir og stál- hlerar settir fyrir glugga allra svefnherbergj- anna. Þeir munir sem voru í vinnustofu Trotskís eru flestir enn á sínum stað, meðal annars upptökutæki sem hann notaði til að taka upp ræður og minnispunkta. Í horninu er legu- bekkur því heilsu Trotskís hrakaði og fékk hann tíð mígreniköst á milli þess sem hann vann. Það var í þessu herbergi sem seinna morð- tilræðið var framið hinn 20. ágúst 1940. Morð- inginn, Ramón Mercader, var spænskur stal- ínisti og hafði unnið fyrir hina alræmdu sovésku herlögreglu NKVD um alllangt skeið áður en hann var sendur til Mexíkó til að ráða Trotskí af dögum. Mercader tók sér nafnið Jacques Mornard og þóttist vera kaupsýslu- maður frá Belgíu og mikill aðdáandi Trotskís. Hann ávann sér traust einnar af riturum Trotskís og vegna vinskapar hennar komst hann oft í návígi við byltingarmanninn gamla. Daginn örlagaríka sagðist Mercader hafa skrifað áróðursgrein sem hann vildi að Trotskí læsi yfir fyrir sig í einrúmi og fóru þeir inn á skrifstofu hans. Natalia Sedova sagði eftir á að sig hefði grunað að ekki væri allt með felldu þar sem Mercader hafði virst óvenju taugaóstyrkur þennan dag auk þess sem hann hélt á stórri regnkápu, þrátt fyrir að ekki væri ský á himni. Mercader notaði þessa regnkápu til að fela ísöxi með afsagað skaft og litla skammbyssu. Einu sinni áður hafði hann haft þessi vopn með í för heim til Trotskís, en brostið kjark þegar þeir voru tveir einir. Í þetta skipti lét hann til skarar skríða. Hann stóð yfir Trotskí við skrifborðið og hjó hann í hnakkann með öxinni þar sem hann sat og las greinina. Höggið var ekki nógu fast, því Trotskí rak upp skaðræðisöskur og lífverðir hans komu hlaupandi áður en Mercader náði að höggva aftur. Talið er að hann hafi ætlað að drepa Trotskí hljóðlega með einu höggi og einungis ætlað að nota skammbyssuna til að skjóta sér leið út ef það reyndist nauðsynlegt. Ef hann hafði ætlað sér að nota byssuna til að fremja sjálfsmorð ef tilræðið mistækist hafði hann ekki ráðrúm til þess því lífverðir Trotsk- ís yfirbuguðu Mercader, en Trotskí lá óvígur eftir. Hann var fluttur á sjúkrahús í skyndi og ennþá með meðvitund, en lést snemma um morguninn hinn 21. ágúst. Mercader var handtekinn og dæmdur til fangelsisvistar í 20 ár og einn dag, en með því að bæta einum degi við dóminn var það undir- strikað að ekki væri möguleiki á reynslulausn. Hið raunverulega nafn og uppruni Mercaders varð ekki ljós fyrr en löngu síðar og tengsl hans við NKVD voru ekki sönnuð með ótví- ræðum hætti fyrr en eftir fall Sovétríkjanna. Hann afplánaði dóm sinn í Mexíkó en fór til Kúbu 1960 og þaðan til Sovétríkjanna. Hann bjó í báðum löndunum þar til hann lést 1978. Hann var jarðsettur í Moskvu. Fékk ekki legstæði í Bandaríkjunum Eftir að Trotskí lést þótti réttast að senda lík- ið til Bandaríkjanna þar sem flestir fylgis- menn hans voru þaðan. Bandarísk yfirvöld vildu þó ekki hleypa líkinu inn í landið og var Trotskí brenndur og aska hans sett undir minnismerki í húsgarði hans. Þar er nú einnig aska Nataliu Sedovu undir rauðum fána með hamar og sigð og er eflaust leitun að stöðum í dag þar sem þessi umdeildi fáni blaktir enn við hún. Fréttir af árásinni bárust hingað til Íslands 22. ágúst. Flest blöðin greindu frá því á for- síðu að ráðist hefði verið á Trotskí, nema Morgunblaðið sem hafði litla frétt á blaðsíðu 2. Alþýðublaðið sagði Trotskí látinn fyrst blaða hinn 22., en hin blöðin ekki fyrr en dag- inn eftir. Alþýðublaðið skellti skuldinni strax þennan dag á útsendara Stalíns, þótt ekkert væri ennþá því til sönnunar. Það átti þó ekki að koma neinum á óvart að Stalín væri að verki og notaði blaðið tækifærið til að hnýta í stalínista hér á landi vegna hins nýafstaðna voðaverks. Þjóðviljinn sagði það „sjúklegan heilaspuna að stalínisti hefði verið að verki“ og prentaði þá útgáfu sem kom frá Moskvu. Hún var sú að dyggur stuðningsmaður Trotskís hefði sturlast og drepið hann í ör- væntingu eftir að hafa komist að því að Trotskí var svikari við byltinguna og hefði á prjónunum að myrða Stalín. Þessa dagana er í sífellu verið að minnast voðaverkanna sem framin voru af komm- únistum á síðustu öld. Þrátt fyrir þau voða- verk sem allir þessir menn bera ábyrgð á er áhugavert að heimsækja sögufræga staði sem þessa og gleðjast yfir að þeim skuli haldið við svo mennirnir og verk þeirra falli ekki í gleymsku. Borðstofan Múrað var fyrir gluggana á húsi Trotskís, eins og greina má til vinstri. mistókst og til hægri sést í einn af stálhlerunum sem settir voru upp eftir árásina.  Heimildir: Deutscher, Isaac: The Prophet Outcast: Trotsky, 1929–1940. New York. Vintage Books, 1963. Sánchez Salazar, Leandro A.: Murder in Mexico: The Assass- ination of Leon Trotsky. London. Secker & Warburg, 1950. Súdoplatov, Pavel: Special Tasks: The Memoirs of an Un- wanted Witness, a Soviet Spymaster. London. Warner Books, 1995. Grafreiturinn Aska Trotskíhjónanna er nú í þessum grafreit í húsagarðinum. Mexíkó Höfundur er sagnfræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.