Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Blaðsíða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005 Alls má 91 land senda inn kvik-myndir í flokki erlendra kvik- mynda á komandi Óskarsverð- launahátíð en verðlaunin verða afhent þann 5. mars 2006 í Kodak- leikhúsinu í Hollywood. Löndin eru eins misjöfn og þau eru mörg – má í hópnum jafnt finna þró- unarríki sem og iðnríki. Kazakstan er meðal þeirra landa sem fá að senda inn mynd í fyrsta sinn í ár. Hvert land sendir eina mynd inn til keppninnar og verða þær að berast fyrir 14. október. Akademían velur svo fimm myndir til úrslita. Í fyrra var það spænska myndin The Sea Inside sem hlaut verðlaunin eftirsóttu en þá sendu 50 lönd myndir inn í keppnina. Kvikmyndin Shoe Shine frá Ítalíu hlaut fyrst verðlaun sem besta er- lenda myndin árið 1947.    Borgarráð Kraká hefur veitt leik-stjóranum Steven Spielberg sérstök heiðursverðlaun sem þakk- lætisvott fyrir hans þátt í að varðveita hluta gyðingagettós í borginni. Spiel- berg styrkti upp- byggingu og varð- veislu lyfja- verslunarinnar Pod Orlem með veglegri fjárhæð, en eigandi henn- ar, Tadeusz Pankiewicz, hætti lífi sínu til að bjarga gyðingum í gettóinu undan harðstjórn nasista. Spielberg notaði hluta gettósins í Kraká við upptökur á mynd sinni Schindleŕs List. Spielberg hlýtur í viðurkenning- arskyni styttu af Stanczyk, ráðgjafa Zygmunts III., sem var konungur í Póllandi á 16. öld. Kollegi Spielbergs, Roman Pol- anski, hefur einnig látið pen- ingjagjafir af hendi rakna til varð- veislu lyfjaverslunarinnar en hann er sjálfur gyðingur sem slapp úr get- tóinu í Kraká sem barn.    Handritshöfundurinn ErnestLehman lést á sjúkrahúsi í Los Angeles síðastliðinn þriðjudag, 89 ára að aldri. Lehman kom víða við á löngum ferli og hann á að baki framleiðslu og handritsgerð að myndum á borð við West Side Story, North By Northwest, Whós Afraid of Virgina Woolf? og Sound of Music en hans helsta sérgrein var talin að færa uppfærslur leik- rita á hvíta tjaldið með góðum árangri. Lehman var fjórum sinnum tilnefndur til Ósk- arsverðlauna en hlaut þau ekki fyrr en akademían ákvað að veita honum heiðursverðlaun fyrir framlag hans til kvikmyndalistarinnar. Það var ár- ið 2001.    Eftir geysilega velgengni fyrir-rennarans stendur nú yfir undirbúningur á tveggja framhalds- mynda af Pirates of the Caribbean. Munu þau Johnny Depp, Orlando Bloom og Keira Khnightley öll mæta aftur til leiks í hlutverkum sínum en Bill Nighy hefur verið ráðinn til að fara með hlutverk ill- mennisins Davy Jones í fyrstu framhaldsmyndinni, Pirates of the Caribbean – Dead Mans Chest. Leikarinn Chow Yun-Fat hefur svo tekið að sér burðarhlutverk í ann- arri framhaldsmyndinni sem ekki hefur enn hlotið nafn. Erlendar kvikmyndir Óskarinn Chow Yun-Fat Steven Spielberg Hávertíð kvikmyndahúsanna stendur yfirþessar vikurnar, hvort sem þau eru íRíó, Reno eða Reykjavík. Hver stór-myndin rekur aðra, nú er tími afþrey- ingarinnar í sinni mögnuðustu mynd. Flestar hinna sannkölluðu „sumarmynda“, þ.e.a.s. þær sem kvik- myndaverin binda mestar vonir við aðsóknarlega, kosta ekki undir 100 milljónum dala. Að auki er ekkert til sparað í útsmognum auglýs- ingaherferðum og öll hugsanleg meðul notuð til að gylla vöruna. Aldrei hefur verið eins áríðandi að þær spjari sig, ekki aðeins vegna framleiðslu- og kynningarkostn- aðarins heldur þeirrar bláköldu staðreyndar að Bandaríkin, Bretland og margir fleiri lykilmark- aðir eru í verstu lægð frá því um miðjan níunda ára- tuginn og hefur hún staðið í hvorki meira né minna en 19 vikur samfellt. Stærsta helgi sumarsins, sem kennd er við þjóðhátíðardaginn, 4. júlí, er liðin og skildi eftir sig djúpa lægð þar sem tekjurnar voru aðeins 75% af tekjum síðasta árs. Ekki nóg með það, heldur brást Innrásin frá Mars – War of the Worlds, myndin sem átti að stoppa af hrunið mikla, líkt og Batman Begins, tveimur helgum á undan. Ekki þar fyrir, báðar verða þær með best sóttu myndum ársins og War of the Worlds á örugglega eftir að hala inn drjúgar tekjur næstu vikurnar. Þær áttu aðeins að gera svo miklu, miklu betur. Vitaskuld vonaði iðnaðurinn að War of the Worlds yrði þess megnug að slá við sex daga heimsmetinu sem eini stórsmellur sumarsins, Star Wars: Epi- sode III, setti snemmsumars (182 milljónir dala). Í staðinn hafnaði hún í auðgleymdu 13. sæti og Bat- man Begins stóð sig enn síður og settist mun neðar á listann. Sjálfsagt skortir War of the Worlds og sér í lagi hina langdregnu Batman Begins, með all- an sinn drungalega sænska sósíalrealisma, hressari húmor öðru fremur. Hvað sem því líður segja töl- urnar það sem segja þarf. Uppskeran sem af er sumri hefur aðeins skilað fimm myndum sem náð hafa 100 milljóna dala markinu eftirsótta, miðað við sex í fyrra. Þær eru: Star Wars: Episode III – Revenge of the Sith (366 millj. d.); Madagascar (172), Batman Begins (154), The Longest Yard (147) og Mr. & Mrs. Smith (146). Star Wars III, sem er þó fjarri því að nálgast bestu myndirnar í bálknum (Star Wars og The Empire Strikes Back), er spáð 7. sæti á lista yfir mest sóttu myndir allra tíma og er ótvíræður sigur- vegari það sem af er sumrinu (og árinu öllu.) Hún meira en jafnaði glæsilegt met Spid- er-Man 2 frá því í fyrra og náði 100 milljónunum á aðeins þremur dög- um og gerði aðeins betur. Það tók War of the Worlds heila fimm daga sem þýðir aðeins 13. sætið en Bat- man Begins barðist við mörkin í tíu daga og er ekki í sjónmáli í 41. sæti. Skellirnir eru sárir. The Kingdom of Heaven, sem kolféll í Bandaríkj- unum, náði að pota sér upp fyrir gróðamörkin sakir vinsælda um all- an heim. Bewitched; nýja myndin um bjölluna Herbie, og sérstaklega Cinderella Man, lofuð og prísuð mynd þeirra Rons Howards og Russells Crowes, eru þeir helstu sem af er sumri. Það er athyglisvert að engin ofan- greindra mynda hefur náð þremur stjörnum af fjórum á netmiðlinum Metacritic, þar sem teknir eru saman dómar kvikmyndagagnrýn- enda helstu fjölmiðla Bandaríkjanna. Sumarið líður og fínu dráttunum fer hraðfækk- andi. Miklar vonir eru bundnar við The Fantastic Four, fokdýra brellumynd, enn ein byggð á geysi- vinsælum hasarblaðahetjum, og The Island, spennutrylli gerðan af Michael Bay með Scarlett Johansson og Ewan McGregor. Þá er ógetið Sin City, myndarinnar sem hér er beðið með mestri eftirvæntingu. Hún hefur þó tæp- lega burði til að slá einhver met. Þess skal að endingu getið að hér hefur verið fjallað um aðsóknina í Bandaríkjunum, íslenskir bíóeigendur eru hins vegar mjög sáttir við það sem af er sumri 2005. Sjónarhorn Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Sumarsmellinn skrifar kvik- myndagerðarmaðurinn Lucas F lestir eru sammála um að Innrásin frá Mars er spennandi afþreying sem seint verður talin meðal hans bestu verka. Aðdáendur leikstjór- ans eru langeygir orðnir eftir metnaðarfyllra viðfangsefni þar sem hann tekur á hlutum sem eru þyngri á met- unum en útsmoginn hrekkjalómur, landlaus strandaglópur í bílífi í flugstöðv- arbyggingu, eða farsæll flótti und- an geimverum frá New York til Boston þar sem fátt nýtt ber fyrir sjónir annað en eyðileggingu af nýrri stærðargráðu. Enginn gerir sér betur grein fyrir að nú þarf að hrista af sér slenið en Spielberg sjálfur, því hann er þegar rokinn af stað með hápólitískt og metn- aðarfullt verk um ódæði Palestínumanna er þeir myrtu ellefu ísraelska íþróttamenn á Ólympíu- leikunum í München árið 1972. Sjónarhornið er ögrandi og óvænt og engin spurning um að með myndinni tekur Spielberg loksins mikla áhættu – en hún getur einnig orðið ein sú umdeildasta og eftirtektarverðasta á ferlinum ef vel tekst til. Hann hefur óbifandi trú á viðfangsefninu og ætlar að hraða kvikmyndagerðinni sem mest hann má og frumsýna árangurinn fyrir næstu jól – í tæka tíð fyrir tímamörk Óskarsverðlaunanna. Eldfimt og hápólitískt umfjöllunarefni Spielberg hófst handa við verkefnið (sem enn hef- ur ekki hlotið nafn), um síðustu mánaðamót. Handritið er búið að taka umtalsverðum breyt- ingum frá því hann ákvað að byggja kvikmynd í kringum níðingsverkin á Ólympíuleikunum. Nú er megináherslan lögð á útrýmingaraðgerðina sem leyniþjónusta Ísraelsríkis (Mossad) hóf á hendur palestínsku morðingjunum eftir fjölda- morðin. Spielberg ætlar því að taka áhættu sem hann hefur forðast frá því hann lauk við Saving Private Ryan (’98), en sú raunsæja seinnastríðs- mynd innihélt löng og blóðidrifin bardagaatriði sem reyndu á þolrif og taugakerfi áhorfenda. Að þessu sinni tekur hann á það viðkvæmu efni að hann getur spillt fyrir gangi yfirstandandi friðar- viðræðna Ísraela og Palestínumanna – ef hann fer óhönduglega eða á óviðeigandi hátt með brothætt efnið í augum almennings. Reyndar er umfjöllunarefnið svo vandmeðfarið að samstarfsmenn láku því út að Spielberg leitaði ráða hjá ólíklegustu aðilum, alt frá rabbíanum sín- um til Bills Clintons, fyrrum Bandaríkjaforseta. Handrit Münchenmyndarinnar, sem er frum- raun leikritaskáldsins Tonys Kushner, hefst á drápi íþróttamannanna en þungamiðjan er hefndaraðgerðir Ísraelsmanna. Leitin og laun- morðin á hryðjuverkamönnunum palestínsku, sem fyrirskipuð voru af þáverandi forsætisráð- herra Ísrael, Goldu Meir; og Palestínumennirnir sem ísraelska leyniþjónustan áleit hryðjuverka- mennina, eru mikið í sviðsljósinu. Þar á meðal voru nokkrir sem komu hvergi nærri blóðbaðinu í Munchen. Með því að draga fram í dagsljósið jafn- siðferðilega angrandi og endalaust ágreiningsefni í sögu Ísraelríkis (það hleypti einnig af stað þeim mjög umdeildu aðgerðum Mossad sem nefndar eru ákveðin skotmörk), stefnir Spielberg í voða því ómælda áliti sem hann hefur meðal gyðinga, jafnt heima fyrir sem í Ísrael. Spielberg er vissu- lega af gyðingaættum en hann ávann sér óskorað traust með faglegri og trúverðugri meðhöndlun á Helförinni í Schindler’s List (‘93) og Survivors of the Holocaust (’96), mannúðlegri heimildarmynd um fórnarlömb Helfararinnar. Til þessa hefur hann lítið rætt um ástandið fyrir botni Miðjarðar- hafsins miðað við flesta aðra opinskáa, bandaríska stuðningsmenn Ísraelríkis. Til að flækja málin frekar hefur sannleiksgildi bókarinnar Vengeance eftir Mossadmanninn George Jones, sem er aðalheimild Spielbergs, verið stórlega dregið í efa. Vinir Spielbergs segja að hann sé sér vel með- vitandi um að aðdáendur verka hans um Helför- ina geti hæglega misskilið nýju myndina og álitið hana meiðandi fyrir Ísrael. Þeir benda á að hann hefur aldrei fyrr viðrað jafnopinskátt umdeilda atburði og reiknuðu fæstir með því að hugmyndin yrði að veruleika. Að jafnaði lætur Spielberg lítið frá sér fara um viðfangsefnin og nú er hann eins og lokuð bók. Það litla sem kvisast hefur út er að hún verður tekin á Möltu, í Búdapest og New York og Eric Bana (Hulk) leikur leiðtoga ísraelsku launmorð- ingjanna og aðrir leikarar sem búið er að ráða eru Daniel Craig, Geoffrey Rush, Mathieu Kassovitz, Hans Zischler og Ciaran Hinds. Í júnílok sendi leikstjórinn frá sér yfirlýsingu sem birtist í The New York Times, ísraelska dag- blaðinu Ma’ariv og á arabísku sjónvarps- fréttastöðinni Al Arabiya. Þar kallar hann fjölda- morðin, sem framin voru af Svarta september, einum armi PLO, og viðbrögð ísraelsku stjórn- arinnar, skilgreinandi augnablik í sögu Mið- Austurlanda. Í yfirlýsingunni kemur skýrt fram, þrátt fyrir vísbendingar til annarra átaka, að nýju myndinni sé beint að sundrunginni á milli Ísraela og Palestínumanna. Áhugi Spielbergs á spurningunni um viðeigandi viðbrögð menningarþjóða við hryðjuverkum, jókst til muna eftir níðingsverkin kennd við 11. september. Þeir sem lesið hafa handrit Kushners, segja að ísraelsku leyniþjónustumennirnir eigi í vandræðum með að komast til botns í því á hvaða forsendum skotmörk þeirra voru valin og hverju drápin komi til leiðar. Hrikalega vandmeðfarið verkefni bíður Spiel- bergs, það á eftir að kryfja efnismeðferðina niður í kjölinn, mistúlka og rökræða fram og aftur. Það kom m.a. í ljós í fyrstu viðbrögðum þeirra fáu ráðamanna í Ísrael sem fjallað hafa um hugs- anlegan efa í hópi drápsmanna Mossad. „Ég veit ekki til þess að þeir hafi velkst í vafa yfir ætl- unarverkinu“, segir sagnfræðingurinn Michael B. Oren, höfundur bókarinnar Six Days of War. „Sakbitinn Mossadmaður er orðinn stöðluð ímynd, þú sérð ekki sakbitinn leigumorðingja í öðrum samsvarandi hópum. Af einhverjum ástæð- um eru þeir einungis af gyðingaættum. Þú sérð heldur ekki Palestínumann knúinn áfram af ein- skærri illsku heldur stafar hún jafnan af ein- hverju áfalli.“ Milli skers og báru Myndin hans Spielbergs verður ekki sú fyrsta sem byggð er á níðingsverkunum í München. Fyr- ir 9 árum gerði Michael Anderson kapalmyndina Sword of Gideon, með Steve Bauer, Rod Steiger og Coleen Dewhurst í hlutverki Goldu Meir. Hún tók einarða afstöðu með harðsvíraðri ákvörðun forsætisráðherrans. Það er alveg ljóst að að þessu sinni verður dregin upp mun mannlegri mynd af palestínsku morðingjunum, t.d. er búið að fjar- lægja úr handritinu 15 mínútna langan upphafs- kafla sem var í frumgerðinni og gekk eingöngu út á blóðbaðið. Spielberg ætlar sér greinilega að sigla á milli skers og báru. Eftirköst illvirkjanna í München ’72 Menn velta fyrir sér hvað Spielberg hyggst fyrir í kjölfar War of the Worlds – hann er byrjaður á ögrandi og áhættusömu verki Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@ heimsnet.is Reuters Steven Spielberg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.