Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Qupperneq 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005 | 15
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri:
Sin City
War of the Worlds (SV)
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Smárabíó
Sin City
Guess Who
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Star Wars: Episode III
(SV)
Are We There Yet?
Regnboginn
Sin City
Guess Who
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Star Wars: Episode III
(SV)
Laugarásbíó
War of the Worlds (SV)
Sin City
The Upside of Anger
Mr. & Mrs. Smith (SV)
Monster-in-Law (HJ)
Háskólabíó
War of the Worlds (SV)
Batman Begins (HL)
Crash (HL)
Voksne Mennesker (HL)
Sambíóin Reykjavík,
Keflavík, Akureyri
Who’s Your Daddy
War of the Worlds (SV)
Batman Begins (HL)
Svampur Sveinsson m/ísl. tali
(HJ)
Monster-in-Law (HJ)
Myndlist
Austurvöllur: Ragnar Ax-
elsson.
Árbæjarsafn: Gunnar
Bjarnason.
Banananas: Sýningin Vigdís
– Skapalón á striga, aðferð
götunnar á striga.
Café Karólína: Vilhelm Ant-
on Jónsson til 22. júlí.
Cafe Presto: Reynir Þor-
grímsson.
Dagsbrún undir Eyjafjöllum:
Ragnar Kjartansson.
Eden, Hveragerði: Hilmar J.
Höjgaard til 10. júlí.
Elliheimilið Grund: Jeremy
Deller.
Feng Shui-húsið | Diddi
Allah sýnir olíu- og akrýl-
verk. Opið kl. 10–18 virka
daga, kl. 12–18 um helgar.
FUGL: Þóroddur Bjarnason
til 31. júlí.
Gallerí 100°: Dieter Roth til
21. ágúst.
Gallerí 101: Þórdís Aðal-
steinsdóttir til 9. sept.
Gallerí Ash Varmahlíð:
Vegamyndir. Hlynur Halls-
son.
Gallerí BOX: Sigga Björg
Sigurðardóttir til 9. júlí.
Gallerí Gangur: Haraldur
Jónsson.
Gallerí Galdur og rúnir:
Haukur Halldórsson.
Gallerí Galíleó: Árni Björn
Guðjónsson.
Gallerí i8: Jeanine Cohen til
21. ágúst.
Gel Gallerí: Ólafur grafari.
Gallerí Sævars Karls: Sigrún
Ólafsdóttir.
Gallerí Terpentine: Gull-
pensillinn.
Gallerí Tukt: Iðunn Árna-
dóttir til 9. júlí.
Gerðuberg: Lokað til 15.
ágúst.
Grafíksafn Íslands: Arnór G.
Bieltvedt til 10. júlí.
Götur Reykjavíkur: Margrét
H. Blöndal.
Hafnarbakkinn í Reykjavík |
Kristinn Benediktsson
„Fiskisagan flýgur“, ljós-
myndasýning til 31. ágúst.
Hafnarborg: Wilhelm Sasnal,
Bojan Sarcevic, Elke Krystu-
fek, On Kawara. til 21. ágúst.
Hallgrímskirkja: Guðbjörg
Lind Jónsdóttir myndverk í
forkirkju og kór til 14. ágúst.
Hallgrímskirkjuturn: Þór-
ólfur Antonsson og Hrönn
Vilhelmsdóttir.
Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi: Auður Vésteins-
dóttir.
Hótel Klöpp: Boreas In
Reykjavik A Salon Ragna
Berlin til 14. júlí.
Hrafnista Hafnarfirði:
Trausti Magnússon til 23.
ágúst.
Hönnunarsafn Íslands:
Circus Design frá Bergen. Til
4. sept.
Kaffi Mílanó: Jón Arnar
Sigurjónsson.
Kaffi Sel | „Ástin og lífið“.
Gréta Gísladóttir sýnir á
Kaffi Seli við golfvöllinn á
Flúðum. Til 3. júlí.
Kaffi Sólon: Sandra María
Sigurðardóttir.
Kunstraum Wohnraum
Akureyri: Steingrímur Ey-
fjörð til 29. júlí.
Kling og Bang: Hekla Dögg
Jónsdóttir og Megan
Whitmarsh til 24. júlí.
Klink og Bank: Samsýning
íslenskra, kanadískra og
norskra listamanna. Til 10.
júlí.
Laxársstöð: Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir.
Listamiðstöðin Kirkjuhvoli:
Gunnella og Inger Helene
Bóasson til 24. júlí.
Listasafnið á Akureyri:
Skrímsl til 21. ágúst.
Listasafn Árnesinga, Hvera-
gerði: Jonathan Meese.
Listasafn ASÍ: Ólafur Árni
Ólafsson, Libia Pérez de
Guðjónsson til 30. júlí.
Skaftfell, Seyðisfirði: Anna
Líndal.
Skriðuklaustur: Sýning 8
listamanna af Snæfelli.
Svartfugl og hvítspói: Svein-
björg Hallgrímsdóttir. Til 17.
júlí.
Suðsuðvestur: Olga Berg-
mann til 31. júlí.
Vatnstankarnir við
Háteigsveg: Finnbogi
Pétursson.
Vestmannaeyjar: Micol
Assael.
Við fjöruborðið: Inga Hlöð-
vers.
Þjóðminjasafnið: Mynd á þili,
sýningin er afrakstur rann-
sókna Þóru Kristjánsdóttur,
sérfræðings í kirkjulist, á
listgripum Þjóðminjasafns-
ins.
Þjóðminjasafn Íslands:
Skuggaföll. Portrettmyndir
Kristins Ingvarssonar. Marg-
ir þekkja stakar ljósmyndir
Kristins en með því að safna
úrvali af þeim saman birtist
ný og óvænt mynd.
Þjóðminjasafn Íslands: Story
of your life – ljósmyndir Har-
aldar Jónssonar.
Leiklist
Austurbær: Annie, fim. fös.
Loftkastalinn: Bítl, lau. fös
Borgarleikhúsið: Kalli á þak-
inu sun. Örlagaeggin, lau.
fim. fös.
Siles de Castro.
Listasafn Íslands: Dieter
Roth til 21. ágúst.
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn: Gabríel Kuri,
Jennifer Allora og Guilliermo
Calzadilla, Brian Jungen,
Hekla Dögg Jónsdóttir, John
Latham, Kristján Guðmunds-
son.
Listasafn Reykjavíkur, Ás-
mundarsafn: Maðurinn og
efnið. Yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Kjar-
valsstaðir: Sumarsýning
Listasafns Íslands.
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús: Dieter Roth, Pet-
er Fischli, David Weiss, Har-
aldur Jónsson, Urs Fischer.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Sumarsýning.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur:
Rótleysi til 28. ágúst.
Norræna húsið: Andy Horn-
er til 28. ágúst.
Nýlistasafnið: Thomas
Hirschhorn.
Nýlistasafnið: WELOVE-
ICELAND til 24. júlí.
Safn: Carstein Höller til 10.
júlí.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Saltfisksetur Íslands: Krist-
inn Benediktsson ljósmyndari.
Salurinn Kópavogi: Leifur
Breiðfjörð.
Seltjarnarneslaug: Gunnar I.
Í ÍSLENSKU máli notum við orðið hljóð um
allt það sem heyrnin getur numið en einnig
um andstæðu þess, þögnina. Sýningin TOUR-
deFORCE er hluti af stærra verkefni sem
ber heitið The Idea of North og er samstarfs-
verkefni fimm sýningarstjóra frá Íslandi,
Kanada og Noregi. Sýningin í Klink og Bank
er önnur af þremur sjálfstæðum sýningum í
þessum þremur löndum þar sem listamenn-
irnir eru ekki alltaf þeir sömu en áherslan
lögð á hljóðlist hvers konar. Sýningarstjórar
eru Hekla Dögg Jónsdóttir og Sólveig Alda
Halldórsdóttir í samvinnu við hinar norsku
Søssu Jørgensen og Yngvild Faerøy og
Rhondu Corvese frá Kanada. Titil sýninga-
raðarinnar sækir Rhonda Corvese í útvarps-
heimild frumkvöðulsins Glenns Goulds þar
sem hann reyndi að finna „tón“ Norður-
Kanada með því að blanda saman hljóðum úr
umhverfinu. Verkefnið má skoða sem fram-
lengingu á hugmynd hans þar sem reynt er
að finna tóninn í hljóðlist þriggja landa sem
öll eru norðarlega á heimskringlunni.
Þegar komið er inn í sýningarsalinn
Brautarholtsmegin verður fyrst fyrir verk
Kolbeins Huga Höskuldssonar, Dynasty,
tölvugerð hreyfimynd sem er varpað á dúk í
gangveginum og sýnir einhvers konar veru
eða draug sem skýlir sér í bogagöngum með-
an heilu bílfarmarnir af laufblöðum hrúgast
reglulega yfir með óhemjudrunum og gný svo
minnir á jarðskjálfta. Kolbeinn er bæði tón-
listar- og myndlistarmaður eins og margir á
þessari sýningu, verkið er hnitmiðað og gríp-
andi í hljóði og mynd. Þá á Kristín Björk
Kristjánsdóttir, oft kennd við Tilraunaeldhús-
ið, einnig draugalegt myndbandsverk sem má
sjá í gegnum óhugnanlegt og þjösnalega gert
gat á loftræstistokk. Ísmeygilegt hátíðnihljóð
sem er í senn skerandi og blíðlegt berst frá
verkinu sem byggist á hefðbundnum mynd-
brellum og sviðseffektum drauga- og andsetn-
ingarmynda. Birgir Örn Thoroddsen, einnig
tónlistarmaður og upptökustjóri, býður upp á
tónlistarinnsetningu þar sem fimm þekkt gít-
arsóló eru spiluð hvert úr sínum hátalara sem
standa sér eða sameinast eftir því hvar sýn-
ingargesturinn er staddur í verkinu. Verkinu
fylgja límbandsræmur á vegg sem áður
gegndu því hlutverki að vera límdar á hljóð-
blandara í upptökustúdíói þar sem upp-
tökustjórinn merkir inn á hvar hvaða hljóð-
færi er í ákveðnum upptökum. Á sýningunni
er það hins vegar áhorfandinn sem stjórnar
mismunandi hljóðblöndun þessara þriggja
verka með sinni eigin staðsetningu í rýminu
og einnig þess fjórða sem inniheldur manna-
mál og er hinum megin í salnum. Leikrænt
myndband Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur og
Ragnars Kjartanssonar þar sem senan skipt-
ist á milli þeirra í lítilli sögu eða lagi þar sem
leitað er eftir „fegurðinni í sársaukanum,
húmornum og rómantíkinni“. Þá er einnig í
þessum sal narsissískur spegill Haraldar
Karlssonar ásamt undarlegum söng í
heyrnartólum. Sérstæð hljóðlaus verk Jan
Høvo og Christof Migone, sem hvort með sín-
um hætti vinna þó með hljóð, annars vegar
ímyndað út frá minningum tengdum myndum
og hins vegar það hljóð sem áhorfandinn
sjálfur framkallar við skoðun og ákveðna
hlýðni við bókverk sem inniheldur sér-
kennilega samræðu. Í hliðarsal er að finna
ákaflega fallega og vel gerða innsetningu
Marla Hlady með ýmsum niðursoðnum hljóð-
um í ílátum sem áhorfandinn getur kveikt á
eftir hentugleikum en sum ílátin framkalla
einnig ljósaspil í rýminu. Að lokum er í kjall-
ara ofsafengið myndbandsverk í harma-
geddonstíl eftir Tasman Richardsson,
Destroy My Tokyo, þar sem hryllingsheimur
tölvuleikja og hvers konar sýndarveruleika er
samþjappaður með áhrifaríkri blöndu kunn-
uglegra hljóðbrota úr kvikmynda- og
skemmtiiðnaðinum. Einstaka myndbrot af lif-
andi fólki, jakkafataköllum að skála í rauðvíni
og andlitum sem virðast varla ná andanum,
ná að veruleikatengja verkið og draga upp
sannferðuga mynd af hraða, tækni og eyði-
leggingarbrjálæði samtímans þar sem skilin
milli sýndarveruleikans og raunverunnar eru
hreinlega horfin.
Sýningin sem heild er vel heppnuð, áhuga-
verð og metnaðarfull í framkvæmd og óhætt
að hvetja gesti og gangandi til að koma, sjá
og heyra, og taka með sér unglingana, sem ég
hef grun um að hafi hingað margir hverjir
eitthvað að sækja.
Að hafa hljóð
Þóra Þórisdóttir
TOURdeFORCE „Sýningin sem heild er vel heppnuð, áhugaverð og metnaðarfull í framkvæmd.“
MYNDLIST
Klink og Bank
Samsýning 10 listamanna frá Íslandi, Kanada og
Noregi.
Sýningin stendur til 10. júlí.
Opið frá kl. 15–18, gengið inn Brautarholtsmegin.
The Idea of North – TOURdeFORCE
Í BANANANAS, hinu hráa og opna útigalleríi
á horni Laugavegar og Barónsstígs, stendur
yfir sýning Bryndísar Ragnarsdóttur sem ber
heitið Snigillinn frá Grinzing, sem er vísun í
heimilis- eða gæludýr listakonunnar sem ný-
lega kvaddi þennan heim. Þessi persónulegi
litli harmleikur og hugmyndin um snigilinn er
á vissan hátt notuð sem myndlíking fyrir al-
mennari þætti mannlegrar tilvistar. Sýningin
samanstendur af tveimur teikningum sem hafa
verið stækkaðar í tölvu, myndbandsverki sem
sýnt er á skjá sem hangir í innkaupatuðru og
tveimur löngum bambusstöngum hvorri með
sinn hluta gleraugna á endanum og hljóðverki.
Enginn texti fylgir sýningunni en listakonan
sjálf er á staðnum ef spurningar vakna hjá
áhorfandanum um verkið sem virðist kannski
innhverft, sundurlaust og óskiljanlegt þar til
eitthvert stikkorð fæst, til dæmis upplýsing-
arnar um tilvist og dauða heimilissnigilsins.
Bakgarðurinn, eða forgarðurinn, sýningar-
rýmið þaklausa, er reyndar ekki óáþekkt húsi
snigilsins og auðvelt að sjá líkingu bambus-
stanganna með gleraugun við sniglaaugun á
stilkunum, og hljóðverkið kallast á við klukkur
Hallgrímskirkju á kortersfresti. Myndbandið
sýnir löðrung, þó ekki hver verður fyrir honum
en linsa upptökuvélarinnar er þolandans megin
og sýnir berlega hvernig höggið riðlar sýninni
á umhverfið um stund. Teikningarnar reynd-
ust vera teikningar hægri og vinstri handar af
sínum eigin skugga sem gæti lesist sem ör-
væntingarfull leit að svörum um eðli og tilgang
tilvistarinnar, hvað sé hér og hvað sé fyrir
handan, og hvernig ná megi samhljómi við hið
ytra, hvað sé persónulegt og hvað sé allra. Sýn-
ing sem gefur áhorfandanum kjörið tækifæri á
eigin persónulegum og innhverfum pælingum,
eða samræðum um … það sem máli skiptir í
smáu sem stóru.
Morgunblaðið/Jim Smart
Samhljómur,
tilvist og tregi
MYNDLIST
Banananas
Sýningin stendur til 10. júlí
Opið kl. 18–20 alla daga
Bryndís Ragnarsdóttir
Snigillinn frá Grinzing
Þóra Þórisdóttir