Lesbók Morgunblaðsins - 06.08.2005, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 06.08.2005, Page 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 6. ágúst 2005 Á að sýna Strákana seinna á kvöldin en kl. 20? spurði mbl.is-vefurinn nú í vor í kjöl- far umræðna um að sjónvarps- þættirnir Strákarnir væru vond fyrirmynd fyrir börn. Deilan um Strákana er aðeins eitt af fjölmörg- um dæmum um óttann við ímyndir sem skjóta reglulega upp kollinum í umræðunni. Í þess- um ótta birtast hugmyndir um áhrifavald ímynda og hættuna sem af þeim getur stafað. Hættan byggist á því að ímyndin sé á ein- hvern hátt sterkari og nálægari en til dæmis orðið og kalli þar með á gagnrýn- islausa eftiröpun og tilfinninga- legan æsing. Þessi viðhorf eru svo viðtekin að þau eru álitin „augljóst mál“, „þetta sér hver heilvita maður“ er viðkvæðið og það er á þeim forsendum sem fjölmiðlaumræða á borð við þá um Strákana fer á flug. Nú er það ekki ætlun mín að ræða hlut Strákanna sérstaklega hér, enda hef ég tak- markaðan áhuga á þeirra þáttagerð. Hins veg- ar nota ég þetta dæmi sem útgangspunkt fyrir umræðu um þann ímyndaótta sem fjölmiðlar gera sér reglulega mat úr, ótta sem að miklu leyti beinist einmitt gegn fjölmiðlum. Múgæsing Ein leiðin til að skoða þetta mál er að líta á sögulega samhengið, en W.J.T. Mitchell, sem mikið hefur skrifað um ímyndir, bendir á að óttinn við ímyndir sé aldagamall og tekur sem dæmi helgimyndabrjóta og ógn skurðgoða. Skurðgoðadýrkun tengist fjöldanum og múg- sefjun og svo virðist sem óttinn við múginn falli iðulega saman við ímyndaóttann. Það þarf reyndar ekki ímyndir til, því hugmyndin um múginn sýnir að óttinn er einnig nátengdur fjöldamenningu og afþreyingarmenningu. Dæmi um þetta er tilkoma borgarlegu skáld- sögunnar á átjándu og nítjándu öld, en hún varð strax vinsæl meðal kvenna, sem bæði lásu og skrifuðu skáldsögur. Samtímakörlum þeirra leist ekki meira en svo á blikuna og lengi vel var skáldsagan álitin fremur vafa- samt fyrirbæri, sérstaklega einmitt fyrir kon- ur og börn, sem voru ekki eins sterk á siðferð- issvellinu og fullvaxta karlar. Jane Austen gerir grín að þessu viðhorfi í skáldsögu sinni Northanger Abbey (1817), en þar lýsir að- alsöguhetjan því fjálglega að eitthvað skelfi- legt sé í vændum frá London. Viðmælendur hennar hrökkva við og óttast að nú sé franska byltingin að bresta á í Bretlandi, en þá á stúlkugreyið bara við nýja gotneska skáld- sögu (skáldsagan er skrifuð fyrir aldamótin, en var ekki gefin út fyrr en eftir dauða skáld- konunnar). Hér tengir Austen á skemmti- legan hátt óttann við upprisu hins blóðþyrsta múgs og óttann við skáldsöguna, sem í krafti spillingarmáttar síns getur skapað slíkan múg, og gerir hraustlega grín að öllu saman. Þetta dæmi sýnir okkur ekki aðeins skýra tengingu milli múgæsingar og fjöldamenning- arafurða þegar kemur að óttanum við ímynd- ina, heldur einnig að hver nýr miðill tekur við skelfingarkyndlinum. Þannig má rekja blóð- slóðina frá skáldsögunni til dagblaðanna – sér- staklega þegar myndefni jókst, þaðan til leik- húsa, kvikmynda og útvarps, myndasagan tók við af kvikmyndinni sem helsti ógnvaldurinn en var fljótlega slegin út af sjónvarpinu og síð- ar vídeóinu. Nú eru það tölvuleikir og netið sem eru helstu óvættirnir í heimi hins sið- menntaða borgara, en hann er ævinlega óhult- ur sjálfur; hættan beinist ávallt að einhverjum öðrum, einhverjum sem er veikari fyrir, barni eða menntunarsnauðum einstaklingi af verka- mannastétt. Greinahöfundar í Ill Effects: The Media / Violence Debate (2001) eru sérstaklega upp- teknir af óttanum við múginn, fjöldann, lág- menninguna og setja þetta í pólitískt sam- hengi stéttaskiptingar. Annar ritstjóri safnsins, Martin Barker, hefur einnig fjallað um pólitískar hliðar ritskoðunarherferða gegn myndasögum og vídeómyndum og dregur þar fram mjög sláandi mynd af því hvernig þessi ótti við ímyndina hefur verið nýttur til múg- sefjunar og hvernig stjórnmálaöfl hafa spilað á þennan ótta til að styrkja stöðu sína og afla sér vinsælda. Í fyrstu gæti svo virst sem hér sé á ferðinni myrk og gruggug samsæriskenn- ing, en það þarf ekki nema að líta rétt í kring- um sig í íslenskum stjórnmálum til að finna dæmi þess að formaður lítils stjórnmálaflokks sló sér upp á fordæmingu á ofbeldi í sjón- miðlum. Þessi æsingur var byggður á ná- kvæmlega jafnmiklum sandi og fleiri slík æs- ingamál, en í greinum Ill Effects og víðar er að finna harða gagnrýni á svokallaðar vísinda- legar kannanir á illum áhrifum ímynda og of- beldis. Ein gagnrýnin sem komið hefur fram á þessar kannanir er að þær virðast ekki gerðar á ofbeldismönnunum sjálfum, heldur frekar hinum almenna borgara sem er látinn meta hvort hann fyllist ofbeldi við það að horfa á hrollvekjur eða hasarmyndir. David Gaunt- lett, sem fjallar um kannanir á fjölmiðlum, bendir á að hentug leið til að skilja ofbeldis- fulla einstaklinga sé að gera kannanir meðal slíkra. Þannig kannanir hafa einmitt verið gerðar, en þær hafa ekki vakið neina athygli því þar kemur í ljós að til dæmis unglingar á upptökuheimilum horfa mjög lítið á sjónvarp, og þá aðallega á lögregluþætti eins og The Bill. Það eina sem þau áttu virkilega sameig- inlegt var lestur á dagblaðinu The Sun. Annað sem bent er á er að í hinum sívinsælu könn- unum á áhrifum fjölmiðla er forsendan ævin- lega gefin: þeir sem gera könnunina eru sjálfir undir áhrifum hins „augljósa“ viðhorfs til hættu ímyndanna og komast því að fyrirsjáan- legum niðurstöðum. Og líkt og stjórnmála- menn afla sér vinsælda með því að predika gegn illum áhrifum fjölmiðla afla vísindamenn sér frægðar og tryggja stöðu fræða sinna sem málefnalegs vettvangs með því að gera kann- anir sem sýna fram á það sem borgarinn vill fá staðfestingu á: að „hinir“, þeir sem eru ekki eins vel menntaðir og vel í sveit settir og hann, geti verið í hættu. Blóraböggull Í formálanum að Ill Effects velta ritstjórarnir Martin Barker og Julian Petley því fyrir sér hvort vandamálið sé kannski meira orðið það að þetta viðhorf sé í sjálfu sér hættulegt, og hættulegra en hin hættulegu áhrif. Hættan við óttann við ímyndina birtist meðal annars í því að ímyndin verður að blóraböggli sam- félagsins, en þetta er auðvitað það sem stjórn- málamenn nýta sér iðulega. Það er miklu auð- veldara að skammast út í myndasögur, sjónvarp, kvikmyndir og tölvuleiki en að horf- ast í augu við þau margvíslegu vandamál sem fylgja nútímasamfélagi. Ekki aðeins er ímynd- in sem blóraböggull þægileg leið yfirvalda til að forðast að taka á viðkvæmum málum, held- ur getur þetta líka verið hentug leið fyrir af- brotamanninn að firra sig ábyrgð („en Strák- arnir gerðu svona“). Þekktasta dæmið um tilraun yfirvalda til að firra sig ábyrgð er hið svokallaða „Bulger-mál“ (1993), þegar tveir tíu ára piltar myrtu lítinn strák. Piltarnir höfðu alist upp innan um afleiðingar Thatch- erismans, við fátækt, atvinnuleysi og örvænt- „Vert’ ekki að horfa sv ímyndir, áhorf, ótti Óttinn við ímyndir er nokkuð sem skýtur upp kollinum af og til í umræðunni. Greinarhöf- undur segir „hugmyndir um áhrifavald ímynda og hættuna sem af þeim getur staf- að“ birtast í þessum ótta. Í greininni er þessi ótti m.a. settur í sögulegt samhengi; hann skoðaður með tilliti til fjöldamenningar og múgsefjunar þar sem „hver nýr miðill tekur við skelfingarkyndlinum“, en engin áhersla er lögð á að rækta með fólki myndlæsi sem þó skiptir sköpum hvað skilning á ímyndum og hlutverki þeirra varðar. Eftir Úlfhildi Dagsdóttur varulfur@ centrum.is Morgunblaðið/ÞÖK Strákarnir „„Á að sýna Strákana seinna á kvöld- in en kl. 20?“ spurði mbl.is-vefurinn nú í vor í kjölfar umræðna um að sjónvarpsþættirnir Strákarnir væru vond fyrirmynd fyrir börn.“ ’Þannig má rekja blóðslóðina frá skáldsögunni til dag-blaðanna – sérstaklega þegar myndefni jókst, þaðan til leikhúsa, kvikmynda og útvarps, myndasagan tók við af kvikmyndinni sem helsti ógnvaldurinn en var fljótlega slegin út af sjónvarpinu og síðar vídeóinu. Nú eru það tölvuleikir og netið sem eru helstu óvættirnir í heimi hins siðmenntaða borgara, en hann er ævinlega óhult- ur sjálfur; hættan beinist ávallt að einhverjum öðrum, einhverjum sem er veikari fyrir, barni eða menntunar- snauðum einstaklingi af verkamannastétt.‘

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.