Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.08.2005, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 06.08.2005, Qupperneq 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 6. ágúst 2005 | 13 Bono, Bruce Springsteen, WillieNelson, Steve Earle, Michael Stipe, Peter Gabriel og Bob Geldof eru á meðal þeirra sem munu koma fram í myndinni, Get Up, Stand Up: The Story of Pop and Protest. Eins og nafnið gefur til kynna er hér um heimildamynd að ræða sem fjallar um sögu baráttutónlistar (e. protest music) og verður hún frumsýnd á sjónvarpsstöðinni PBS 28. septem- ber. Myndin er framleidd og henni leikstýrt af Hannes Rossacher og Rudi Dolezal sem hafa áður gert heimilda- myndir um Miles Dav- is, Freddy Mercury, Quincy Jones og Billy Joel. Myndin fer yfir sögu baráttulaga í bandarískri stéttabaráttu og hvern- ig tónlistarmenn á borð við Bob Dyl- an, Sly Stone og MC5 hafa kosið að syngja pólitíska texta við lög sín. Sögumaður myndarinnar verður rapparinn Chuck D úr Public Enemy sem sjálfur ólst upp við bar- áttutónlist og lagði sitt af mörkum seinna til þessarar „tegundar“ tón- listar.    Svo gæti farið að tónleikabúllanCBGB’s í New York neyddist til að leggja upp laupana 1. september næstkomandi þegar leigusamn- ingur hússins rennur út. Bygg- ingin er í eigu Bowery Resi- dents Comm- unity sem eru góðgerðasamtök þar í borg en þau saka eiganda CBGB’s um van- greiðslu á leigukostnaði mörg ár aft- ur í tímann. Fjölmargir tónlist- armenn á borð við Tommy Ramone, Patti Smith, Lenny Kaye og Hand- some Dick Manitoba sem hófu feril sinn á CBGB’s hafa nú tekið höndum saman til að bjarga staðnum og efna til tónleikaraðar út ágúst til að safna nægu fé fyrir lögfræði- og leigu- kostnaði og munu hljómsveitirnar Dead Boys, Chevelle, Living Colour og The Misfits koma fram ásamt öðrum. Tommy Ramone, eini eftirlif- andi Ramone-bróðirinn, sagði í sam- tali við fjölmiðla að CBGB’s væri eini alvöru rokkstaðurinn sem ennþá væri virkur, að hann væri viss um að hverfið allt myndi líða fyrir það ef staðurinn hyrfi fyrir fullt og allt. „Ég kem hingað oft á ári til að skoða hljómsveitir. Þetta er einstakur staður.“    Framleiðandinn Quincy Joneshefur tekið að sér að semja tón- list við kvikmyndina Get Rich or Die Tryin’ sem bygg- ist á ævisögu rapparans 50 Cent, og ber sama heiti og fyrsta plata hans sem kom honum upp á stjörnuhim- ininn. 50 Cent kemur sjálfur til með að leika aðalhlut- verkið í myndinni sem leikstýrt er af Íranum Jim Sheridan (My Left Foot, In the Name of the Father) Jones er enginn nýgræðingur þegar kemur að kvikmyndatónlist. Hann hlaut tvær tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir lög í kvik- myndinni The Colour Purple. Hann hefur jafnframt verið tilnefndur fyr- ir tónlistina út kvikmyndunum In the Heat of the Night, In Cold Blood, The Italian Job og The Wiz. Erlend tónlist Patti Smith 50 Cent Bono Hans Edler, sem frægur er meðal ann-ars fyrir að vera einn fyrsti Svíinnsem sást með Febder-rafgítar, var ásínum tíma ein helsta stjarna Sví- þjóðar sem gítarleikari og söngvari hljómsveit- arinnar Ghost Riders. Síðar var hann í hljóm- sveitinni We 4, en hætti svo og hóf sólóferil 1966. Árið 1969 las Edler um Electronic Music Studio, EMS-hljóðverið í Stokkhólmi, en þar hafði þá verið sett upp eitt fyrsta tölvu- hljóðver í heimi með tölvu sem kostaði sjö millj- ónir sænskra króna, sem var gríðarleg upphæð í þá daga. Edler fannst þetta svo spennandi hug- mynd að hann fór á námskeið í stærð- og tölv- unarfræði og eftir að hafa lokið prófum fékk hann að vinna við tölvuna. Sérstakur stjórnklefi var til að stýra tölvunni og mjög tímafrekt að setja saman tónlist á henni því hljóðin þurfti að forrita fyrir hverja millisekúndu. Það tók hann því tvö ár að taka upp plötu, fyrstu tölvugerðu poppplötuna segja menn í dag, en platan, Elektron Kukeso, kom út 1971. Tónlistin á plötunni er mikil og torskilin fram- úrstefna enn þann dag í dag, hlýtur að hafa hljómað eins og útsending utan úr geimnum á sínum tíma, og kemur ekki á óvart að sænskir plötukaupendur sýndu henni lítinn áhuga. Vegna dræmrar sölu varð ekkert úr fyrirhugaðri mark- aðssetningu á plötunni og þannig varð til að mynda ekkert úr því að hún yrði gefin út utan Svíþjóðar og öll vinna við enskar þýðingar lagðist af. Það kemur þeim sem heyra skífuna varla á óvart að ekki skuli hafa tekist að selja hana af neinu viti í Svíþjóð á sínum tíma og ekki líklegt að það hefði gengið betur í öðrum löndum því tónlistin á henni er svo framandleg og sér- kennileg. Húr er engu að síður mjög skemmtileg, frábærir sprettir inn á milli, en frekar það sem maður spilar til að hrekkja fólk en skemmta því, svona svipað og Tilt, meistaraverk Scotts Walk- ers. Hans Edler lagði ekki upp laupana þótt Elek- tron Kukeso væri illa tekið, hann sneri sér að barnaplötugerð með góðum árangri og sló svo rækilega í gegn með plötur þar sem hann söng rokklummur í bland við sænskar útgáfur af reggí- og diskólögum. Hann er enn að og um- svifamikill í útgáfustarfsemi, rekur fyrirtækið Hans Edler Music og var til að mynda með popp- sveitina Freebee sem naut vinsælda í Svíþjóð og Austur-Evrópu fyrir nokkrum árum. Útsending utan úr geimnum Poppklassík eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Þ ú hefur leikið með Supergrass frá fyrstu plötunni en varst ekki form- lega tekinn inn í hljómsveitina fyrr en 2002. Hvað gerðirðu áður? Ég nam eðlisfræði og stjörnu- fræði við Háskólann í Wales. Ég var mjög áhugasamur um það og ætlaði mér frama á því sviði, kláraði gráðuna sama ár og I Should Coco kom út. Ég tók mér hins vegar eins árs frí eftir það og spilaði þá með Supergrass. Einhvern veginn hefur þetta undið upp á sig í gegnum árin og hér er ég í dag. Hafðirðu alltaf leikið á hljómborðið meðfram náminu? Nei, í raun og veru ekki. Ég spilaði á píanó þeg- ar ég var yngri, eins og margir, en ég hef bara spilað á hljómborðið seinustu tíu ár- in. Nú eruð þið Gaz (söngvari og gítarleikari Supergrass) bræður. Komið þið úr mikilli tónlistarfjölskyldu? Já, það má segja það, þó að enginn annar hafi orðið mjög þekktur í okkar fjölskyldu. Það var alltaf spiluð mikil tónlist á stórhátíðum og í öðrum fjölskylduboðum. Mamma spilaði á gítar og pabbi á píanó og afi minn var píanóleikari í einum af þessum stórsveitum (e. bandstand) sem spiluðu í görðum og á útihátíðum í bæjum og borgum. Þið eruð allir fæddir og uppaldir í Oxford. Hvernig var að alast þarna upp? Það var mjög gott. Alveg frábært. Róleg og þægileg borg sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef ferðast um allan heim og mér finnst alltaf frá- bært að koma heim. Þið voruð á hljómleikaferðalagi fyrr í sumar með íslenskri hljómsveit, Leaves. Kynntust þið hljómsveitinni eitthvað? Já, já. Það tók samt smátíma því að ég held að þeir séu jafn feimnir og við. En tónlistin þeirra er frábær. Oft verður maður leiður á hljómsveit- unum sem maður ferðast með en í þetta skipti urðu lögin þeirra betri og betri. Hvaða einkunn gefurðu annars ensku tónlist- arsenunni? Ekki mjög háa en ég hef heldur ekki fylgst svo mikið með henni. Þú ættir að spyrja Danny (trommuleikara Supergrass). Hann býr í Camden í London og fylgist með tónlistarlífinu mun betur en ég. Ég veit það samt að þær hljómsveitir sem njóta velgengni núna eru ekki endilega bestu hljómsveitirnar. Ég á samt erfitt með að meta þetta – ég hef ekki einu sinni komið við á kránni í tvo mánuði. Ekki ég heldur. En hvaða tónlist hlustarðu þá á þegar þú ert ekki að vinna í tónlist Supergrass? Ég veit það eiginlega ekki. Ég var um daginn að kaupa mér Elton John-safndisk sem er frábær. Ég set hann í spilarann á morgnana um leið og ég geri börnin tilbúinn í skólann. En ætli ég hlusti ekki svolítið mikið á gamalt efni – eins og til dæm- is Sykurmolana. Nú? Ég sá þau meira að segja spila árið 1988, held ég; í London Astoria. Mig minnir að þau hafi bara verið búin að gefa út eina plötu og áttu því ekki mjög mörg lög. Þau spiluðu samt í fjörutíu mín- útur og voru frábær. Eftirminnilegasta atvikið var samt þegar gítarleikarinn, sem var greinilega skapstór, endaði í slagsmálum við einn tónleika- gestinn. Jahá! En ef ég á að vera hreinskilinn eru Sykurmol- arnir ekki uppáhaldsbandið mitt. Ég minntist bara á þau af því að þú ert Íslendingur. Takk. Þau eru frábær samt – en ekki uppáhaldshljóm- sveitin mín. Nýja platan kallast Road to Rouen. Útskýrðu fyrir mér orðaleikinn í nafninu. Já, þetta er náttúrlega orðaleikur eða út- úrsnúningur á orðasambandinu „Road to Ruin“, en sagan á bak við hann er sú að við tókum plöt- una upp í Frakklandi, mjög nálægt borginni Rouen (Rúðuborg) á Normandí, nánar tiltekið í hlöðu sem við útbjuggum sem hljóðver en þar að auki varð þetta upptökuferli mjög erfitt og þar kemur þessi „Road to Ruin“-tilvísun. Hvað meinarðu með því að upptökuferlið hafi verið erfitt? Það var erfiðara að því leyti að við höfum verið lengi í þessari hljómsveit og væntingarnar til okk- ar og okkar eigin væntingar til okkar verða meiri og meiri. Ég er ekki viss um að ég sé að útskýra þetta nógu vel en … við erum líka allir fjölskyldu- menn og það er erfitt að ná fjórum mönnum sam- an á einn stað og hugsa um allt annað en konurnar og börnin sem þeir elska. Kemur þetta ekki líka niður á tónleika- ferðalögum? Að sjálfsögðu. Það vilja allir setja fjölskylduna í forgang og allt sem togast á við þá skyldu verður um leið óþægilegt. Hins vegar hefur Supergrass alltaf verið mjög samheldin hljómsveit og við eig- um aldrei erfitt með að fara á krána og fá okkur nokkrar kollur og hlæja. Heldurðu að næsta plata verði jafnvel erfiðari? Nei, ég held að hún verði einfaldari. Við lærð- um mjög mikið af þessari plötu og við komum í raun sterkari út úr þessari þrekraun. Okkur þykir líka ótrúlega vænt um þessa plötu vegna þess hversu erfitt það var að gera hana. Þessi plata er mjög fjölbreytt og margir myndu segja óþarflega fjölbreytt. Var þetta með ráðum gert? Já, að því leyti að við vildum ekki gera dæmi- gerða popp-plötu. Við vorum samt ekki að reyna að gera erfiða eða flókna plötu, aðeins plötu sem okkur sjálfum myndi líka og ég held að okkur hafi tekist það. Mér finnst hún allavega mjög góð. Heyrðu, nú held ég að sonur minn sé að koma, en það er allt í lagi, haltu bara áfram. Ég á bara eina spurningu eftir svo að þetta passar mjög vel. Ég var að velta því fyrir mér hvernig lög Supergrass verði til. Þetta er mjög góð spurning og ég var sjálfur að velta henni fyrir mér áðan. Ég held samt að það sé engin formúla eða ein aðferð sem við notum. Þegar ég hugsa út í þau lög sem við höfum samið sýnist mér hún koma úr öllum áttum. Lagbútur sem ég átti eða Danny eða Gaz sem síðan voru saumaðir saman en við höfum líka samið þau hver í sínu horni svo að… Langaði þig ekkert að tala um Börk og myndbandið? Jú! Hvernig læt ég, ég var búinn að stein- gleyma því. Eruð þið ánægðir með myndbandið? Myndbandið er mjög gott. Það var mjög gaman að vinna með Berki og ég held að þetta hafi verið mjög erfitt fyrir hann því að við sögðum að við vildum bara gera myndbandið í hvítu herbergi og með mjög löngum skotum. Og það var eins með myndbandið og með plötuna að við vildum synda á móti straumnum. Gera eitthvað sem væri ekki dæmigert eða klisjukennt eins og manni sýnist að allt sé í dag. Börkur stóð sig mjög vel og við erum hæstánægðir með myndbandið. Hámenntaður hljómborðsleikari Í ár eru tíu ár liðin frá því að hljómsveitin Super- grass sendi frá sér sína fyrstu plötu, I Should Coco. Afmælinu fagnar hún með nýrri plötu Road to Rouen sem kemur út 15. ágúst en platan markar nokkra stefnubreytingu hvað tónlist- arsköpun sveitarinnar varðar. Höskuldur Ólafs- son ræddi við nýjasta meðlim sveitarinnar en jafnframt aldursforsetann Rob Coombes. Hljómsveitin Supergrass telur nú fjóra liðsmenn og er að fara að senda frá sér nýja plötu síðar í mánuðinum. Eftir Höskuld Ólafsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.