Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.2005, Síða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 26. nóvember 2005 | 15 ÁRÓRA Bórealis er hluti af dagskrá sem ætluð er til sýningar í nokkrum borgum í Japan á næstunni. Verkið byggist á nokkrum listformum með söng í forgrunni. Til hliðar á sviðinu var hringlaga stigi og þrískipt tjald. Verkið hófst á að skýjum á fleygiferð var varpað á tjaldið, síðar mátti sjá íslensk fjöll og aðra náttúrufegurð landsins í öllu sínu veldi. Ritari lætur tónlistargagnrýnanda eftir að fjalla um sönginn. Fyrir leikmanni hljóm- aði hann einkar vel. Uppröðun söngvara og ferð þeirra um sviðið svo og skipti milli atr- iða rann smekklega í gegnum verkið. Búningar dansaranna minntu á miðaldir, skinnvesti og ökklasítt pils. Stuttur dansdú- ett undir mynd af strönd sem sýnir brimið sogast út var fallegur í blárri lýsingunni. Eins var túlkun dansaranna ágæt undir söng Mörtu Halldórsdóttur þar sem hún kyrjar: Út með djöfulinn, inn með drottinn. Dans- stíllinn í Áróra Bórealis er einkennandi fyrir Láru Stefánsdóttur. Það var velkst um á gólfinu, tíð snerting var á milli dansaranna og þeir skriðu, toguðu, héngu í hver öðrum. Þessi dansmyndskreyting var í stuttum köfl- um og fór vel við sönginn. Heildarsvipurinn var rammíslenskur í verkinu. Það var dimm- ur miðaldablær í samfléttu listformanna. Auðvelt var að láta sér líka þetta verk og ógerlegt að hugsa sér annað en að jap- önskum eigi eftir að hugnast það. Von Í dansverkinu fjallar Lára um von í víðu samhengi. Von sem ósk, löngun og eftirvænt- ing. Sama sviðsmynd er notuð og í fyrra verkinu en nú er fiskum í vatni varpað á tjaldið en vatn er höfundi hugleikið sem upp- spretta lífsins. Lára tengir vonina þrem pör- um á ólíkum aldursskeiðum. Verkið hófst með björtum drengjasöng á vögguvísunni Litfríð og ljóshærð eftir Emil Thoroddsen. Undir söngnum dansaði Saga Sigurðardóttir ásamt Hannesi Egilssyni. Yngsta parið rýnir til framtíðar og var dans þeirra eins konar óður til lífsins með hreyfingum í ætt við bjartsýni og óþreyju. Saga tók sig vel út á sviðinu með mikið rautt hár, klædd í ljósbláan kjól. Dans þeirra beggja var einbeittur og hnitmiðaður, dálítið óþroskaður sem reyndar fór hlutverki þeirra ágætlega. Miðaldra parið var dansað af höf- undi og Vicente Sancho. Æskuþrótturinn er að einhverju leyti horfinn og eftir stendur par á nærfötunum einum saman. Hreyfingar þeirra sem gjarnan voru samhliða og í takt lýstu þreytu, erfiði, örvæntingu, að þrauka og gefast ekki upp, styrk, vonbrigðum en jafnframt bjartsýni þó af öðrum meiði en hjá unga parinu. Lírukassatónlistin sem ómaði undir minnti á þá staðreynd að tíminn líður og mennirnir eldast. Dans Sancho og Láru var samstilltur og sannfærandi. Síbyljandi tónlistin einhæf og ýtti undir lífsstreðið og vonbrigðin eins og kom fram í skondnu ein- tali og dansi Sancho; I Always Dreamt of Being a Dancer. Lírukassinn fór enn af stað og efst í stiganum birtist eldra par dansað af Ingibjörgu Björnsdóttur og Sverri Guðjóns- syni. Parið fikraði sig áfram fullt yfirvegunar og sjálfsvirðingar sem smekklegir búning- arnir undirstrikuðu. Þau réttu út hendurnar eins og í þökk til almættisins en fókusinn var enn til framtíðar. Hægt hafði verulega á hreyfingunum frá dansi fyrri para og tónlist- in var klassískari. Hreyfingarnar minntu stundum á yogaæfingar og gáfu til kynna yf- irvegun og sátt. Þau brostu að minningum sínum af æðruleysi og þau nutu sín aug- ljóslega á sviðinu. Þetta var sjarmerandi par. Hlutverk paranna þriggja var oft vel út- listað og auðséð hvert höfundur var að fara. Vel tókst til að mynda að sýna aldur og lífs- ýn með hreyfingum. Fyrir utan það að vera klæðilegir þá studdu búningarnir hugmynd höfundar um mismunandi aldur og þá tilfinn- ingu sem höfundur vildi að fylgdi hverju ald- ursskeiði. Lírukassatónlistin minnti á stöðuga hring- rás lífsins. Lýsingin blá í byrjun, bleik og antikgul í miðju og hvít í lokin studdi við verkið. Byrjunin og endirinn á verkinu var jafnframt sannfærandi og fallegur. Dans- gerðin var veikasti hlekkurinn. Hreyfing- arnar voru gjarnan óformaðar og flæðandi en litu á köflum út fyrir að vera losaralegar og óskipulagðar. Lægsti flötur, þ.e. gólfflötur, var mikið notaður og af sömu ástæðu leit stundum út fyrir að ekkert væri að gerast í hamagangi á gólfinu. Engu að síður fannst mér Von innihalda listrænan metnað og vera um margt útpælt verk. Húsakynni Íslensku óperunnar hentuðu verkunum vel. Húsið, sviðsmyndin og sviðið römmuðu verkin inn og færðu þau nær áhorfendum en stærri leikhús hefðu gert. Rammíslenskur heildarsvipur Morgunblaðið/Þorkell Von Inniheldur listrænan metnað og er um margt útpælt verk.Lilja Ívarsdóttir Danslist Pars Pro Toto og Íslenska óperan Áróra Bórealis 20. nóvember 2005 Áróra Bórealis; framleiðandi Borealis Ensemble. Listrænn stjórnandi; Sverrir Guð- jónsson, íslensk miðaldatónlist, Jón Leifs, Jón Ás- geirsson, Guðni Franzson. Danshöfundur; Lára Stef- ánsdóttir. Búningar; Elín Edda Árnadóttir. Kvikmynd; Aurora Experience, Sverrir Guðjónsson. Lýsing; Jó- hann B. Pálmason. Flytjendur Voces Thules; Sig- urður Halldórsson, Guðlaugur Viktorsson, Sverrir Guðjónsson, Eiríkur Hreinn Helgason, Einar Jóhann- esson, Eggert Pálsson. Einsöngur; Marta Halldórs- dóttir. Píanó; Örn Magnússon. Dans; Ívar Örn Sverr- isson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Arngrímur Ívarsson. Von Von eftir Láru Stefánsdóttur. Tónlist; Guðni Franz- son. Vögguvísa; Emil Thoroddsen. Söngur; Sverrir Guðjónsson, Marta Halldórsdóttir. Kvikmynd; Kristín Eva Þórhallsdóttir. Ljóðlist; Árni Ibsen. Lýsing; Jóhann B. Pálmason. Búningar; Elín Edda Árnadóttir, Lára Stefánsdóttir. Dansarar; Saga Sig- urðardóttir, Hannes Egilsson, Vicente Sancho, Lára Stefánsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Sverrir Guð- jónsson. Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri The Exorcism of Emily Rose  (SV) Into the Blue In Her Shoes  (HJ) Feber Pitch  (SV) Night Watch Smárabíó The Exorcism of Emily Rose  (SV) A Sound of Thunder Serenity  (HJ) Into the Blue In Her Shoes  (HJ) The Legend of Zorro  (SV) Regnboginn A Sound of Thunder The Exorcism of Emily Rose  (SV) Into the Blue In Her Shoes  (HJ) Laugarásbíó The Devil’s Rejects Waiting Four Brothers  (SV) The Legend of Zorro  (SV) Háskólabíó Harry Potter og eldbikarinn Lord of War  (SV) La Marche de L’Empereur  (HJ) Elizabethtown  (HJ) Litli kjúllinn  (SV) Corpse Bride  (SV) Wallace og Gromit – Bölvun vígakanínunnar  (HJ) Drabet Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri Harry Potter og eldbikarinn Lord of War  (SV) Serenity  (HJ) Litli kjúllinn  (SV) Elizabethtown  (HJ) Corpse Bride  (SV) Two for the Money  (SV) Kiss, Kiss, Bang, Bang  (HJ) Flight Plan  (SV) Wallace og Gromit – Bölvun vígakanínunnar  (HJ) Myndlist Artótek, Grófarhúsi: Björg Þorsteinsdóttir til desem- berloka. Aurum: Davíð Örn Hall- dórsson til 3. desember. Bananananas: Hildigunnur Birgisdóttir til 26. nóvember. Bókasafn Kópavogs: Artist’s boooks til 27. nóvember. Byggðasafn Árnesinga: Á Washington-eyju og Gras- jurtir. Til nóvemberloka. Café Babalu: Claudia Mru- gowski til desemberloka. Café Cultura: Róbert Stef- ánsson út nóvember. Café Karólína: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir til 2. desem- ber. Energia: Kolbrún Róberts til nóvemberloka. Galíleó: Reykjalín til 1. des- ember. Gallerí +: Haraldur Ingi Har- aldsson til 27. nóvember. Gallerí 101: Haraldur Jóns- son til 26. nóvember. Gallerí BOX: Jón Sæmundur Auðarson til 18. desember. Gallerí i8: Þór Vigfússon til 23. desember. Gallerí Lind: Ólöf Björg Björnsdóttir til nóvember- loka. Gallerí List: Elsa Nielsen til 2. desember. Gallerí Turpentine: Sigtryggur Bjarni Baldvins- son. til 6. des. Gerðarsafn: Tími Romanov- ættarinnar. Til 4. desember. Gerðuberg: Eggert Magn- ússon til 9. janúar. Grafíksafn Íslands: Bjarni Björgvinsson til 4. desember. GUK+: Hartmut Stockter til 16. janúar. Hafnarborg: Jón Laxdal til 31. desember. Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugsdóttir og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka. Hrafnista, Hafnarfirði: Guð- finna Eugenia Magnúsdóttir til 6. desember. Jónas Viðar Gallerí: :Þór- arinn Blöndal til 4. desember. Karólína Restaurant: Óli G. til aprílloka 2006. Kling og Bang gallerí: Unnar Örn J. Auðarson til 4. desem- ber. Listasafnið á Akureyri: Helgi Þorgils Friðjónsson til 23. desember. Listasafn ASÍ: Magnús V. Guðlaugsson og Örn Þor- steinsson til 4. desember. Listasafn Einars Jónssonar: Fastasýning. Listasafn Íslands: Ný íslensk myndlist II til 12. febrúar. Listasafn Reykjanesbæjar: Húbert Nói til 4. desember. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Bernd Koberling til 22. jan- úar. Listasafn Reykjavíkur, Hafn- arhús: Guðrún Vera Hjartar- dóttir til 30. desember. Erró til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Kjar- valsstaðir: Jóhannes Sveins- son Kjarval. Til 19. mars. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar: Hraunblóm: Elsa Afelt, Carl-Henning Ped- ersen, Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson, til 27. nóv- ember. Listasmiðjan Þórsmörk, Nesk.: 10 listakonur, fram í janúar 2006. Listhús Ófeigs: Dýrfinna Torfadóttir, Rósa Helgadótt- ir, Þorbjörg Valdimarsdóttir til 31. desember. Norræna húsið: Jonas Wilén, Henrika Lax og Annukka Tu- rakka. Toæ 18. desember. Nýlistasafnið: Snorri Ás- mundsson, Tilraunaeldhúsið. Til 19. desember. Ráðhús Reykjavíkur: Helga Birgisdóttir (Gegga) til ára- móta. Safn: Ólafur Elíasson. Guð- rún Hrönn Ragnarsdóttir, Kristinn E. Hrafnsson, Jón Laxdal til 11. desember. Skaftfell: Rúna Þorkelsdóttir til desemberloka. Smekkleysa plötubúð – Hum- ar eða frægð: Þorsteinn Otti Jónsson út nóvember. Suðsuðvestur: Þóra Sigurð- ardóttir og Anne Thorseth. Til 11. desember. Þjóðarbókhlaðan: Brynjólfur Sveinsson til áramóta. Þjóðmenningarhúsið: Hjört- ur Hjartarson, út nóvember. Íslenskt bókband. Þjóðminjasafn Íslands: Kon- ungsheimsóknin 1917 og Mannlíf á Eskifirði 1941– 1961. Til 27. nóvember. Þrastalundur, Grímsnesi: Reynir Þorgrímsson fram í desember. Leiklist Austurbær: Annie, lau. Borgarleikhúsið: Salka Valka, 4. des. Woyzeck, lau., sun., þri., fim. Kalli á þakinu, lau., sun. Lífsins tré, lau. Al- veg brilljant skilnaður, sun., mán. Manntafl, mið. Hafnarfjarðarleikhúsið: Himnaríki, lau. Iðnó: Ég er mín eigin kona, lau., sun. Gestur – síðasta máltíðin, lau. Íslenska óperan: Kabarett, lau. Leikfélag Akureyrar: Full- komið brúðkaup, lau., fim., fös. Leikfélag Kópavogs: Það grær áður en þú giftir þig, sun., fim. Loftkastalinn: Blóðberg, mið, fös. Tónleikurinn Bítl, lau. Nasa við Austurvöll: Typpatal með Audda, mið., fim. Tjarnarbíó: Jólaævintýri Hug- leiks, 2. des. Þjóðleikhúsið: Halldór í Holly- wood, lau. Klaufar og kóngs- dætur, sun. Edith Piaf, sun. Brim, mið. Frelsi, lau., mið., fim., fös. Leitin að jólunum lau. Réttarhöldin: „Var Halldór hinn sanni Íslendingur?“, þri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.