Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.2005, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.2005, Page 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 17. september 2005 | 13 John Mayer, Tom Waits, DaveMatthews og Joss Stone eru á meðal þeirra sem koma fram á sér- stökum góðgerðartónleikum til styrktar fórnarlömbum fellibylsins Katrínar, í Radio City Music Hall í New York á þriðjudaginn. Tónleikarnir verða haldnir á samfara svip- uðum tón- leikum í Madis- on Square Garden sama kvöld en þar munu margar stórar stjörnur leggja hönd á plóginn, svo sem Simon and Garfunkel, Elvis Cos- tello, Diana Krall, Elton John, Lenny Kravitz, Stevie Nicks, Fats Domino, Bette Midler, John Fog- erty og Earth Wind and Fire.    Samkvæmt blaðafulltrúa Mich-aels Jackson munu Mariah Carey, Jay-Z, Snoop Dogg, James Brown, Lenny Kra- vitz, Wyclef Jean, Lauryn Hill, Missy Elliott, Babyface, R. Kelly og Mary J. Blige ljá krafta sína sérstöku góðgerðarlagi popp- stjörnunnar, tileinkað fórn- arlömbum fellibylsins. Wyclef hefur staðfest þátttöku sína í laginu sem mun heita „From the Bottom of My Heart“ en R. Kelly og Jay Z eru víst ekki alveg jafn ákveðnir og íhuga sam- starfið við Jackson. Í yf- irlýsingu sem Jackson sendi frá sér og út- skýrir inn- blástur lagsins segir: „Það hryggir mig að horfa upp á þær hörm- ungar sem hafa átt sér stað á flóasvæðinu. Hvert einasta fórnarlamb þessa hörmulega atburðar er í mínum bænum.“ Jackson hefur hingað til dvalið í Bahrain á Arabíuskaganum síðan í júní þegar hann var fundinn saklaus af ásökunum um barnamis- notkun. Hann mun hins vegar snúa aftur til Bandaríkjanna til að hljóð- rita lagið. Michael Jackson samdi lagið „We are the World“ ásamt Quincy Jones árið 1985 og safnaði þá um 60 millj- ónum dala til hjálpar bágstöddum í Afríku. Á fjórða tug listamanna ljáði laginu rödd sína, þar á meðal Ray Charles, Bruce Springsteen, Stevie Wonder, Tina Turner, Bob Dylan, Kenny Rogers og Paul Sim- on.    Hljómsveitin The Spin Doctorssendir frá sér nýja plötu í næstu viku. Er þetta fyrsta plata sveitarinnar í ellefu ár eða frá því hljóm- sveitin lagði upp laupana í kjölfarið á því að söngvari sveitarinnar lamaðist í raddböndunum með þeim af- leiðingum að hann missti röddina. Hann hefur nú náð sér að fullu og því ákvað sveitin að koma saman aftur. Platan sem ber nafnið Nice Talkin to Me var þrjú ár í vinnslu. „Okkur var boðið að spila á klúbb einum í New York þar sem við vorum áður tíðir gestir og það var greinilega mikill kvíði í okkur,“ segir Barron í viðtali við Rolling Stone. „Ég meina við vorum hættir og það var ennþá mikil beiskja á með- al okkar.“ Barron segir hins vegar að um leið og sveitin byrjaði að spila, hefði eitthvað gerst og því hefði ný plata verið óumflýjanleg. „Ég veit ekki hvernig ég get lýst því án þess að verða væminn en það voru einhvers konar töfrar í gangi.“ Erlend tónlist Tom Waits Michael Jackson The Spin Doctors Árið 1982 gaf breska hljómsveitin Ultra-vox út breiðskífuna Quartet og það varekki ófrægari maður en George Martinsem var við stjórnvölinn í stúdíóinu. Það þarf ekki að kynna George Martin, upp- tökustjóra hinna einu sönnu Bítla, en Ultravox þarfnast ef til vill einhverrar kynningar áður en haldið er í umfjöllun um Quartet. Ultravox var stofnuð árið 1973, hét reyndar Tiger Lily fyrstu þrjú árin, en svo var nafninu breytt. Upphaflegir meðlimir hljómsveitarinnar voru þeir Dennis Leigh söngvari, sem stuttu seinna breytti nafni sínu í John Foxx, Steve Shears gítarleikari, Billy Currie hljómsborðs- og fiðluleik- ari, Chris Cross bassaleikari og trommuleikarinn Warren Cann. Árið 1977 fékk hljómsveitin plötu- samning og fram til ársins 1979 gaf hún út þrjár breiðskífur. Sú fyrsta var samnefnd hljómsveit- inni og kom út í ársbyrjun 1977, Ha!-Ha!-Ha! kom út síðar á árinu og Systems of Romance kom út árið 1978. Þær fengu ekki ýkja mikla at- hygli og John Foxx yfirgaf sveitina árið 1979. Á þessum þremur breiðskífum var hljómsveitin mest undir áhrifum frá David Bowie og Roxy Music. Stuttu eftir brotthvarf Foxx gekk söngv- arinn, lagasmiðurinn og gítarleikarinn Midge Ure í hljómsveitina og þá fóru hlutirnir að gerast fyrir alvöru – nýrómantíkin tók við en þó í bland við það sem áður var. Árið 1980 kom breiðskífan Vienna út og hlaut hún mikla athygli og góða dóma gagnrýnenda. Ári eftir kom út breiðskífan Rage In Eden og naut þónokkurra vinsælda. 1982 kom svo Quartet út, 1984 Lament og 1986 U-Vox, en eftir það má segja að hljómsveitin hafi ekki borið sitt barr. Midge Ure yfirgaf sveitina stuttu seinna og hugði að eigin sólóferli. Ultravox var reyndar ekki lögð niður því Billy Currie hélt úti hljómsveit með þessu nafni eftir miklar deilur um það sem enduðu fyrir dómstólum. Árið 1993 kom breiðskífan Revelation út og þremur árum síðar Ingenuity, sem var svanasöngurinn. Þá að plötunni sem hér er til umfjöllunar – Quartet. Hún var vinsælasta plata Ultravox og sú eina sem seldist eitthvað að ráði í Bandaríkjunum. Quartet er stútfull af frábærum lögum og í raun er hér um að ræða hálfgerða „best of“-plötu, því þarna er að finna mörg af vinsælustu lögum sveitarinnar. Ef skilgreina á þessa plötu þá er hægt að segja að hér sé á ferð afar grípandi elektrónískt popp með frábærum gítar-, bassa- og trommuleik. Allt fellur saman og með aðstoð George Martin er hljómurinn frábær og útsetn- ingarnar sömuleiðis. Allt ber að sama brunni; frá- bær lagasmíði, ágætir textar, hljóðfæraleikur sem er síður en svo dauðhreinsaður því mikill kraftur er einkennandi og ekkert niðursuðuhljóð sem svo oft einkenndi hljómsveitir á þessum tíma sem notuðust mikið við hljóðgervla. Þarna var líka toppnum náð og það sem á eftir fylgdi stóðst engan veginn samanburð við Quartet, þótt vissu- lega sé góða spretti að finna á Lament. Eftir komu Midge Ure var Ultravox mjög meðvituð um vægi tónlistarmyndbanda og yfirleitt voru þau góð og vel gerð. Sérstaklega ber að nefna myndbandið við lagið Vienna, sem á sínum tíma var brautry0ðjendaverk – ótrúlega vandað og vel sviðsett, leikmynd og búningar eins og í dýrustu kvikmynd, leikstjórn og myndræn framsetning í hæsta gæðaflokki og svo var það tekið á 35 mm filmu. Ultravox er hljómsveit sem ekki má gleymast því hún hafði svo margt til brunns að bera og hafði mikil áhrif, bæði á samtímann og svo þá sem fylgdu á eftir; poppklassík eins og hún gerist best. Hljómsveit sem ekki má gleymast Poppklassík eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Þ eir sem fylgst hafa með Bob Dylan í gegnum árin þekkja vel þá tilhneig- ingu hans að vera sífellt að endur- skrifa ævisögu sína, allt frá því hann kom til New York á unglingsldri og sagði lygisögur af trúbadúrferli sín- um. Upp frá því hefur verið erfitt að festa hendur á honum, hann hefur til að mynda orðið fjölsaga um lög sín og listsköpun sem hefur meðal annars getið af sér ævintýralegan rugllitteratúr þegar menn hafa keppst við að túlka hvern einasta texta og textabrot út og suður. Gustukaverk Ekki er bara að Bob Dylan hefur verið duglegur við að tala í kross þegar hann hefur sagt frá sjálfum sér heldur hefur hann líka æv- inlega verið lítið gefinn fyrir viðtöl og þvíumlíkt. Má nefna í því sam- bandi að hann veitti ekki viðtöl í ríflega tvo áratugi þar til hann gaf aftur færi á sér þegar Chronicles, Vol. 1 kom út á síðasta ári. Það var því gustukaverk þegar hann svipti hulunni að hluta af fyrri hluta ævinnar í Chronicles, en á þessu ári verða enn frekari uppljóstranir á boðstólum; fyrir stuttu kom út sjöunda innlegg í Bootleg- seríuna, No Direction Home: The Soundtrack - The Bootleg Series Vol. 7, en sá pakki fylgir heim- ildarmynd um Bob Dylan áranna 1961-66. Árin 1961 til 1966 voru mótunartími fyrir Dylan, frá því hann haslaði sér völl sem mótmælasöngvari í New York til þess að hann var orðin umdeild al- þjóðleg stjarna. Þegar hlýtt er á diskana tvo í No Direction Home heyrist vek hve hann breyttist hratt á þessum tíma, hvað hann var fljótur að til- einka sér ríkjandi strauma og hugmyndir og varpa svo fyrir róða jafnharðan til að gera eitthvað nýtt. Smám saman kom svo betur í ljós hinn eiginlegi Dylan, uppfullur af mótsetningum og átti ekki sam- leið með neinum af samferðarmönnum sínum – hann varð að fara eigin leiðir. Brenndar brýr Á diskunum líður þessi tími eðlilega enn hraðar, allt frá því hann kemur til New York og verður skjólstæðingur allra helstu þjóðlagasöngvara þess tíma, þar til hann stingur í samband og segir skilið við þann heim, hættir að semja og syngja mót- mælasöngva og fer að syngja um það sem er að gerast inni í kollinum á honum. Segja má að hann hafi brennt allar brýr að baki sér þegar hann mætti á þjóðlagahátíðina í Newport í júlílok 1965 með blúsrokkara með sér, þar á meðal tvo liðsmenn Paul Butterfield Blues Band, og gerði allt vitlaust, þó tvennum sögum fari af því hvernig honum var tekið. Síðasta árið, frá mars 1965 til maí 1966, er einna merkilegast í þessari sögu, stórmerkilegt reyndar, því þá breytist hann út því að vera þjóðlaga- og mótmælasöngvari í að vera eitthvað annað og meira, að vera rödd heillar kynslóðar með öllum þeim þversögnum og furðulegheitum sem því hlaut að fylgja, en á þessu annus mirabilis sendi hann frá sér þrjár helstu plötur sínar: Bringing It All Back Home kom út 22. mars 1965, Highway 61 Revisited 30. ágúst og Blonde on Blonde 16. maí 1966. Eðli- legur endapunktur á heimildarmyndinni og disk- unum er svo júlí 1966, en þá lenti Dylan í slysi á mótorhjóli og notaði tækifæri til að draga sig í hlé um stund, hvílast og ná áttum. 26 óútgefin lög Diskarnir eru tveir og tónlistinni raðað á þá í tíma- röð, sem er alltaf kostur þegar litið er yfir feril manna. 26 laganna hafa ekki komið út áður, en alls eru á plötunni 28 lög. Upptökurnar eru úr einka- upptökum, sjónvarpsþáttum og af tónleikum og einnig eru ónotaðar upptökur úr upptökulotum Dylans fyrir Columbia á þessum tíma. Elsta lagið er upptaka frá 1959, lagið When I Got Troubles, sem er víst fyrsta frumsamda lagið sem hann tók upp, og yngstu upptökurnar eru frá 1966, tvö lög frá upptökunum á Blonde on Blonde, útgáfur af Leopard-Skin Pill-Box Hat og Stuck Inside of Mo- bile with the Memphis Blues Again, og síðan tvö tónleikalög, Ballad of a Thin Man og Like A Roll- ing Stone. Eins og getið eru diskarnir gefnir út um líkt leyti og samnefnd heimildarmynd verður gefin út á DVD disk, en hún hefur verið sýnd í sjónvarpi, þar á meðal í breska ríkissjónvarpinu fyrir stuttu. Lög- in hljóma ekki í myndinni nema í skötulíki, en í henni bregður einnig fyrir öðrum tónlist- armönnum. Leikstjóri myndarinnar er Martin Scorsese, sem þekkir bærilega til Dylans og hefur áður gert heim- ildarmyndir tengdar tónlist, sjá til að mynda þá ágætu mynd The Last Waltz sem frumsýnd var 1977. Gleymum svo ekki seríunni frábæru Martin Scorsese Presents the Blues, þar sem Scorsese fékk ýmsa til að gera heimildarþætti um sjö ólíka kafla blússögunnar, en sjálfur stýrði Scorsese ein- um besta hlutanum, Feel Like Going Home. Með diskunum fylgir býsna veigamikil bók sem rekur tilurð hvers lags fyrir sig, en einnig er góð samantekt eftir Andrew Loog Oldham og Al Koo- per segir frá upptökum á Highway 61 Revisited og Blonde on Blonde, en hann kom mjög við sögu á þeim báðum. Ekki er hægt að skilja við Bob Dylan án þess að geta enn frekari útgáfu – síðastliðinn þriðjudag kom út bókin The Bob Dylan Scrapbook, þykk og mikil myndabók, sem hefur að geyma ýmislegt myndefni frá ævi Dylans, viðtöl og tilheyrandi. Með bókinni fylgir diskur með gömlum viðtölum og tónleikaupptökum. Enn frekari uppljóstranir Á síðasta ári svipti Bob Dylan loks hulunni af mótunarárum sínum. Í nýrri heimildarmynd og á tvöföldum diski verður myndin enn fyllri. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Bob Dylan Það hefur verið erfitt að festa hendur á honum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.