Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ENGIN AFNOTAGJÖLD Afnotagjöld RÚV verða felld nið- ur en nefskattur settur á samkvæmt væntanlegu frumvarpi menntamála- ráðherra. Með nefskatti á alla ein- staklinga á aldrinum 18–70 ára og öll fyrirtæki er reiknað með að hver muni þurfa að greiða um 10 þúsund krónur á ári til að tekjurnar verði svipaðar og af afnotagjaldinu nú. Banaslys á Suðurlandsvegi Tæplega tvítugur piltur lést sam- stundis og þrír slösuðust alvarlega í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á Suðurlandsvegi við Þrengslavega- mót í gærmorgun. Hálka var á veg- inum þegar slysið varð. Í fólksbílnum voru fimm ung- menni en hjón með þrjú börn í jepp- anum. Allir voru í bílbelti. SH og Sjóvík sameinast Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Sjóvík hafa verið sameinaðar. Stjórnir félaganna undirrituðu í gær samning um sameiningu undir nafni SH. Tilgangur samrunans er að sameina krafta þessara sjávaraf- urðafyrirtækja á mörkuðum í Asíu og Bandaríkjunum. Greitt er fyrir hlutafé í Sjóvík með hlutafé í SH og munu hluthafar í Sjóvík eiga 33% hlut í SH eftir sameininguna. Keypt í Keri Fjárfestingarfélagið Grettir keypti í gær 34,02% hlut í Keri hf., móðurfyrirtæki Olíufélagsins, og 4,03% í Eglu sem er að lang- stærstum hluta í eigu Kers. Selj- endur eru Sund ehf. og Nordica Partners. Hluti söluverðsins er greiddur með nýju hlutafé í Gretti. Sýrlendingar á förum Tilkynnt hefur verið að Sýrlend- ingar muni í dag hefja brottflutning fjórtán þúsund manna herliðs síns frá Líbanon. Ekki er þó ljóst hvort herliðið fer aðeins til Bekaa-dals í austurhluta Líbanons, nálægt landa- mærunum að Sýrlandi, eða hvort það verður kallað heim. Ráðamenn í bæði Bandaríkjunum og Frakklandi hafa þrýst á Sýrlendinga að kalla her sinn refjalaust heim frá Líb- anon. Ásakar Bandaríkjamenn Ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena segist ekki telja útilokað að bandarískir hermenn hafi vísvitandi skotið á bifreið sem hún var farþegi í í Bagdad í Írak á föstudag en einn maður dó í skotárásinni, ítalski leyniþjónustumaðurinn Nicolas Cal- ipari. Sgrena hafði aðeins örfáum mínútum áður verið sleppt úr haldi mannræningja í Írak. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 22/24 Viðskipti 11 Dagbók 26 Vesturland 14 Víkverji 26 Erlent 15 Velvakandi 27 Daglegt líf 16 Staður og stund 27 Listir 17 Menning 29/33 Forystugrein 18 Ljósvakamiðlar 34 Umræðan 20/21 Veður 35 Bréf 21 Staksteinar 35 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is MIÐASALA á tónleika Iron Maid- en hófst með látum í gær þegar tæplega 5.000 miðar í A-svæði í Eg- ilshöll seldust á þremur og hálfum tíma, að sögn Ragnheiðar Hansson, skipuleggjanda tónleikanna. Alls eru 5.500 miðar til sölu í A- svæði á tónleikunum og því fáir miðar eftir. Alls eru 11.000 miðar til sölu á tónleikana, en um 5.500 miðar verða seldir í B-svæði. Sala þeirra hefst í dag. Strax á laugardag var ljóst að hörð barátta yrði um miðana þegar fjórir ungir drengir tóku sér sæti fyrir utan verslunina Dagsljós á Akureyri um tvöleytið og biðu í tæpan sólarhring eftir miðum. Ragnheiður segir ljóst að ef sala miða á B-svæði í dag gangi jafn vel verði reynt að ná samningum við Iron Maiden um að selja fleiri miða. Ljóst sé þó að ekki verði seldir fleiri miðar í A-svæði og koma þar til reglur sem hljóm- sveitin setur sjálf en ákveðið há- mark er á áhorfendum svo nálægt sviðinu vegna flugelda og sýningar hljómsveitarinnar meðan á tónleik- unum stendur. Hins vegar geti ver- ið mögulegt að fjölga miðum á B- svæði. Aðrir tónleikar eru ekki inni í myndinni, að sögn Ragnheiðar. Miðasala á tónleika Iron Maiden hófst í gær Um 5.000 miðar seldust Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Fjöldi manns beið við Kringluna í gærmorgun eftir að miðasala hæfist. MAÐURINN sem lést í umferðar- slysi sl. fimmtudag í árekstri tveggja bíla á blindhæð skammt norður af Kópaskeri hét Árni Jens Valgarðs- son. Hann var tvítugur að aldri, fæddur hinn 2. apríl 1984. Árni Jens var frá Sigurðarstöðum á Melrakka- sléttu. Hann lætur eftir sig unnustu. Lést í árekstri hjá Kópaskeri BÖRNIN, sem sækja barnasamkomu Dómkirkjunnar, fræddust í gærmorgun um lífið og tilveruna í sveitinni. Haraldur Benediktsson, formaður Bænda- samtaka Íslands, heimsótti þau í boði Jakobs Hjálmarssonar dómkirkjuprests. Haraldur sagði, í samtali við Morgunblaðið, að heimsóknin hefði tekist vel. „Börnin þekktu ekki marga bændur,“ sagði hann, „en voru með það á hreinu hvaðan kjötið og mjólkin kæmi.“ Hann sagði að eitt barnið hefði komið með eftirminnilega athugasemd, þeg- ar hann hefði sagt frá því, að nú væru fulltrúar bænda að flykkjast á Bún- aðarþing á Hótel Sögu. Þá hefði barnið spurt eitthvað á þessa leið: „Af hverju eruð þið ekki bara heima að sinna börnunum ykkar?“ Morgunblaðið/Þorkell Borgarbörn fræðast um sveitina ÁTÖK Bobby Fischers við fangaverði á mið- vikudaginn í síðustu viku, daginn sem Sæmund- ur Pálsson og hópur Íslendinga sem eru með honum í för ætluðu að hitta hann, leiddu til þess að Fischer var settur í einangrun fram að há- degi á sunnudag. Fischer hringdi í Sæmund þegar hann losnaði úr einangruninni, og lýsti furðulegri uppákomu í fangelsinu fyrir vini sínum, segir Einar S. Ein- arsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Ís- lands. Samkvæmt frásögn Fischers var hann að fá morgunverðarskammtinn sinn, en fékk ekki egg eins og hinir fangarnir. Hann bað þá um að fá egg, en fékk ekki, sama hvað hann sagði, og æstust báðir aðilar að lokum. Baráttan um egg- ið endaði með því að fangaverðir sneru Fischer í gólfið og nefbrotnaði einn þeirra í átökunum. Í refsingarskyni þurfti Fischer svo að dúsa í ein- angrun í fjóra daga, án þess að hafa bækur, blöð eða annað sér til skemmtunar. Einar segir að Sæmundur hafi farið snemma dags í dag, mánudag, til þess að hitta Fischer, og honum hafi verið gefin góð orð um að þeir fengju loks að hittast. Hópurinn hefur nú fram- lengt dvöl sína fram á fimmtudag, en upp- haflega stóð til að þeir kæmu heim á morgun, þriðjudag. Er þetta gert vegna þeirra tafa sem orðið hafa á málinu, en Fischer hefur enn ekki fengið vegabréf sitt sem bíður hans í íslenska sendiráðinu. Einar ræddi sjálfur við Fischer í gær, og sagði hann greinilegt að hann væri að missa móðinn, þó hann væri enn sæmilega líkamlega heilbrigður. Hann hefði rætt um að reyna þyrfti að fá vegabréf frá öðrum löndum en Íslandi þar sem ekkert virtist ganga að komast til Íslands, og nefndi t.d. Filippseyjar sem hugsanlegan áfangastað. Einar segir að ekkert hafi verið unnið í því að fá önnur lönd til þess að taka við Fischer undanfarna mánuði vegna yfirlýsingar íslenskra ráðamanna, og því kæmi það sér afar illa ef þeir treystu sér ekki til þess að ljúka mál- inu með því að koma vegabréfinu til Fischers. Fischer nefbraut fangavörð Íslenski hópurinn fær að hitta Fischer í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.