Morgunblaðið - 07.03.2005, Side 4
Ljósmynd/Ómar Garðarsson
Borun er hafin í Eyjum, en reiknað er með að
holan geti orðið allt að 2.000 metra djúp.
SÍÐUSTU daga og vikur hefur staðið yfir und-
irbúningur að borun eftir heitu vatni á Heima-
ey sem Hitaveita Suðurnesja stendur að.
Standa vonir til að borun geti hafist á allra
næstu dögum. Borað verður nálægt suðurenda
sprungunnar sem opnaðist í gosinu 1973, mitt á
milli hennar og sprungunnar sem myndaðist
þegar Helgafell varð til fyrir um 5000 árum
síðan.
Umsvifin eru nokkur því lítið þorp er í kring-
um borinn, vatnsleiðslur liggja að svæðinu frá
vatnstank í Hrafnaklettum og borholu á Nýja-
hrauni því mikið vatn þarf við borunina.
Sigurjón Ingólfsson, svæðisstjóri HS í Vest-
mannaeyjum, segir að bora eigi niður á allt að
2000 metra dýpi og gera þeir sér vonir um að
þarna sé að finna annað hvort 70 til 80 gráða
heitt vatn á um 1000 m eða gufu á 2000 m. „Við
búumst við að þarna sé nægur hiti, spurningin
er hvort við komum niður á nægt vatn eða gufu
en við erum bjartsýnir,“ sagði Sigurjón.
Hann sagði að HS sæi þarna möguleika á
orkuöflun því flutningsgeta tveggja sæ-
strengja til Eyja annar ekki eftirspurn eftir afli
þegar álagið er mest. „Með heitu vatni eða
gufuvirkjun léttum við á orkukerfinu í Vest-
mannaeyjum um leið og þetta opnar aðra
möguleika. Það eru ekki áform um frekari bor-
anir að sinni en þetta verkefni tekur 40 til 45
daga gangi allt að óskum.“
Bora eftir heitu vatni í Eyjum
Bora við
sprunguna
sem opnað-
ist í gosinu
4 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Kanaríeyja í 1 viku á ótrúlegu
verði. Beint flug til Kanarí. Þú bókar ferðina og tryggir þér síðustu
sætin og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Á Kanarí nýtur þú þjónustu reyndra
fararstjóra okkar allan tímann.
Bókaðu strax á www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Kanarí
15. mars
frá kr. 29.990
Verð kr. 39.990
Verð á mann, m.v. 2 í íbúð/stúdíó.
Innifalið flug, gisting í 7 nætur og skattar.
Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Verð kr. 29.990
Verð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, í íbúð/stúdíó. Innifalið flug,
gisting í 7 nætur og skattar. Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Síðustu sætin
ÁHUGAHÓPUR um verndun
Þjórsárvera undirbýr nú kæru
vegna úrskurðar Jóns Kristjáns-
sonar, setts umhverfisráðherra, um
mat á umhverfisáhrifum Norð-
lingaölduveitu. Kynnti Katrín
Theodórsdóttir lögmaður efni kær-
unnar á fundi sem hópurinn hélt í
Félagsheimilinu Árnesi í gær. Er
það mat hópsins að Vesturkvíslalón
og Arnarfellslón, sem tilgreind eru
sem mótsvægisaðgerðir í úrskurði
Jóns, séu ekki mótvægisaðgerðir
heldur viðbótarframkvæmd.
Á fundinum voru einnig kynntar
athugasemdir sem félagið hefur
eða ætlar að gera við tillögu að
breytingum á svæðisskipulagi
miðhálendisins og skipulagstillögu
sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps. Tillögurnar fela í sér
að náttúruverndarsvæðum er
breytt í iðnaðar- og orkuvinnslu-
svæði, segir á vefsíðu áhugahóps-
ins. Gert er ráð fyrir Norðlinga-
öldulóni og setlóni með veitu við
Þjórsárjökul, við friðlandsmörkin
austan við Arnarfell. „Verði þessar
tillögur samþykktar er ljóst að
náttúruverndargildi svæðisins
verður spillt og fótunum verður
kippt undan hugmyndum um
stækkun friðlandsins og skráningu
þess á heimsminjaskrá,“ segir enn-
fremur á vefsíðunni.
Að sögn Sigþrúðar Jónsdóttur
vildi áhugahópurinn með fundinum
upplýsa um stöðu mála og hvetja
einstaklinga til að senda athuga-
semdir til stjórnvalda vegna til-
lagnanna en frestur til að skila at-
hugasemdum rennur út 9. mars nk.
Ekki mótvægisaðgerðir
heldur viðbótarframkvæmd
Áhugahópurinn telur að fram-
kvæmd við Vesturkvíslalón og Arn-
arfellslón hafi ekki verið metin í
samræmi við lög um mat á um-
hverfisáhrifum. Því þurfi að meta
framkvæmdina sérstaklega að sögn
Sigþrúðar. Þær viðbótarfram-
kvæmdir sem fram koma í úrskurð-
inum munu stækka áhrifasvæði
Norðlingaölduveitu umtalsvert.
Framkvæmdin verður á mörkum
friðlandsins og því er ekki hægt að
útilok áhrifin á gróðurfar og lífríki
innan friðlandsmarkanna.
Á fundinum hélt Tryggvi Felix-
son, framkvæmdastjóri Land-
verndar, einnig erindi þar sem
hann rakti m.a. breyttar forsendur
síðan úrskurður Jóns féll. Segir
Sigþrúður að það sem m.a. hafi
breyst sé að búið sé að útvega orku
fyrir stækkun Norðuráls sem hafi
m.a. verið rökin fyrir virkjun Norð-
lingaöldu. Benti hún á að í sumar
hafi komið hingað til lands tveir
sérfræðingar á vegum UNESCO
sem gerðu úttekt á Þjórsárverum.
Segir hún að þeir hafi lýst þeirri
skoðun sinni að þeir vildu stækka
friðlandið.
Áhugahópur um verndun Þjórsárvera kynnti stöðu mála
Ætla að kæra úrskurð
um Norðlingaölduveitu
NÝ FJÖGURRA sæta stólalyfta var tekin í
notkun í Bláfjöllum í gær. Af því tilefni var
ókeypis í allar lyftur og í skíðakennslu og
margir lögðu því leið sína í fjöllin. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Steinunn
Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri fóru fyrstu
ferðina. Nýja lyftan, sem fékk nafnið Kóng-
urinn, er með 44 fjögurra sæta stólum, og fjór-
um klefum þar sem hægt er að sitja inni. Hún
fer fjóra og hálfan metra á sekúndu eða tvöfalt
hraðar en gamla lyftan. „Hún hægir mjög vel á
sér þar sem farið er úr og í hana en er helm-
ingi fljótari á leiðinni, svo þetta er allt miklu
betra,“ segir Hlynur Skagfjörð, rekstr-
arfulltrúi í Bláfjöllum.
Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að margt fólk væri í fjallinu en engar biðraðir í
stólalyftunum, þökk væri nýju lyftunni.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kóngurinn
sló í gegn
lóðir á Norðlingaholti í júní í fyrra. Þá var hæst
boðin 8,1 milljón króna í tvær lóðir, en í aðrar
lóðir voru tilboðin undir 7 milljónum króna.
Alls var hægt að bjóða í 14 lóðir, sex einbýlis-
húsalóðir, fimm lóðir fyrir samtengd tvíbýlis-
hús, eina raðhúsalóð og tvær fjölbýlishúsalóðir.
Hæsta tilboðið í lóðir fyrir tvíbýlishús var 120,5
milljónir fyrir 14 íbúðir, eða 8,6 milljónir á
hverja íbúð. Til samanburðar var algengt verð
fyrir hverja íbúð á svipaðri lóð 4 milljónir króna í
öðrum áfanga.
Óvíst að staðið verði við öll tilboðin
Hæsta tilboð í raðhúsalóð var um 111,4 millj-
ónir króna fyrir 12 íbúðir, eða um 9,3 milljónir á
hverja íbúð. Algengt verð á hverja íbúð á sam-
TILBOÐ í lóðir í 3. áfanga á Norðlingaholti í
Reykjavík hafa verið opnuð og gerðu 123 bjóð-
endur samtals 885 tilboð í byggingarrétt á 14
lóðum. Mikill munur var á tilboðunum nú og í 2.
áfanga fyrir níu mánuðum, og voru hæstu tilboð
í nú rúmlega tvöfalt hærri en hæstu boð í sam-
bærilegar lóðir á þeim tíma.
Hæstu tilboð sem bárust í þær sex einbýlis-
húsalóðir sem stóðu til boða voru að meðaltali
15,6 milljónir króna. Hæst voru boðnar 17,2
milljónir í eina lóðina, en sami aðilinn, Granda-
vör ehf., bauð hæst í fimm af sex einbýlishúsa-
lóðum. Næst-hæstu tilboðin sem bárust í þessar
lóðir voru að jafnaði 1-2 milljónum undir hæsta
boði. Hæstu tilboðin í þessar lóðir eru rúmlega
tvöfalt hærri en hæstu tilboðin sem gerð voru í
bærilegum íbúðum í júní í fyrra var 4,3 milljónir
króna.
Hæsta tilboðið sem barst í lóð fyrir fjölbýlis-
hús var u.þ.b. 183,2 milljónir króna, eða 6,1-6,8
milljónir á íbúð, mismunandi eftir íbúðafjölda.
Til samanburðar var algengt verð á hverja íbúð
á sambærilegum lóðum fyrir níu mánuðum 2,6-3
milljónir króna.
Einn aðili, BM verktakar ehf, áttu hæstu til-
boðin í báðar fjölbýlishúsalóðirnar og allar tví-
býlishúsalóðirnar, og munaði gjarnan 5-10 millj-
ónum á tilboðum BM verktaka og þeirra sem
áttu næst-hæsta boð. Samkvæmt reglum getur
bjóðandi sem á hæsta tilboð í fleiri en eina lóð
fallið frá öllum tilboðum nema einu, og því ekki
víst að svo hátt verð fáist fyrir allar lóðirnar.
Samtals bárust 885 tilboð í 14 lóðir í þriðja áfanga Norðlingaholts
Meira en tvöfalt hærri
tilboð en í öðrum áfanga