Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!"#$%
%&%'( %) &%*(
Reynum að þrauka, vinur, það er ekki langt eftir.
Efling stéttarfélaghyggst ekki farasömu leið og VR
en stjórn þess félags legg-
ur til að hluti iðgjalda
renni inn á sérgreindan
sparnað, svokallaðan VR-
varasjóð, eins og fram kom
í Morgunblaðinu á laugar-
dag.
Sigurður Bessason, for-
maður Eflingar, segir að
hugmyndir VR séu það ný-
framkomnar að ekki sé
enn búið að fara ofan í
þær. Hann segist þó telja
að sjóðum félaganna eigi
að verja með öðrum hætti.
„Við erum ekki á þessari
leið,“ segir hann um hug-
myndir VR. Hann segir sjúkrasjóð
Eflingar verða sérstaklega til
skoðunar á aðalfundi í apríl en
hann stendur vel. Sjúkrasjóðir
stéttarfélaganna í landinu standa
þó misjafnlega að vígi og því óvíst
að minni félög geti fetað leið VR
eða eflt sjóðina sem fyrir eru eins
og Efling vill heldur gera.
Á aðalfundi VR, sem verður 14.
febrúar, mun stjórnin leggja til-
löguna um varasjóðinn fram. Í
Morgunblaðinu á laugardaginn
kom fram að afkoma VR hefði ver-
ið mjög góð. Gert væri ráð fyrir að
árlega rynnu um 350–400 milljónir
í VR-varasjóðinn og myndu fé-
lagsmenn eignast um 45 þúsund
að meðaltali. Varasjóðinn gætu
svo félagsmenn nýtt til t.d. sí-
menntunar, orlofsmála, forvarna-
og endurhæfingar eða til fram-
færslu t.d. við atvinnumissi, vegna
heilsubrests, starfsloka eða fæð-
ingarorlofs.
Haft var eftir Gunnari Páli Páls-
syni, formanni VR, að það væri
ekki hlutverk félagsins „að safna í
digra sjóði“. Til álita hefðikomið
að lækka iðgjöldin en niðurstaðan
hefði orðið sú að réttara væri að
beina fjármununum inn á þessar
brautir. Varasjóðurinn saman-
stendur að hluta af félagsgjöldum
og gjöldum til orlofs- og sjúkra-
sjóðs.
Spurður nánar út í þetta í gær
sagði Gunnar Páll að þar sem það
væru atvinnurekendur sem
greiddu ákveðið hlutfall launa
starfsfólks síns í sjúkra- og orlofs-
sjóði viðkomandi stéttarfélaga
hefði það ekki skilað félagsmönn-
um VR miklu að lækka fé-
lagsgjöldin, sem þeir sjálfir
greiða. Með þessu væri atvinnu-
rekandinn að leggja til sparnað
sem safnaðist í varasjóðinn. Hann
sagði atvinnurekendur ekki hafa
gert athugasemd við þetta.
Gunnar Páll sagði ennfremur að
ekki væri verið að taka neina nýja
fjármuni af félagsmönnum og at-
vinnurekendum heldur taka þá
sem fyrir væru og vísa þeim í aðra
átt en áður. Hann sagði fjármuni
sem áður hafa farið í styrki til lík-
amsræktar, gleraugnakaupa og
annað slíkt nú verða lagða í vara-
sjóðinn. Einnig þau gjöld úr or-
lofssjóði sem hingað til hafa verið
notuð til að niðurgreiða dvöl í or-
lofshúsum VR. „Fólk getur þá not-
að fjármunina í það sem það kýs
helst,“ sagði Gunnar Páll. Mun
þetta hugsanlega þýða að vikudvöl
um sumartímann í orlofshúsum
mun hækka úr 22 þúsund krónum
í um 40 þúsund krónur. Fé-
lagsmenn geta svo niðurgreitt
dvölina úr sínum eigin varasjóði,
kjósi þeir svo. „Við erum með
þessu að skilja á milli reksturs
húsanna og meðgjafarinnar,“ út-
skýrði Gunnar Páll. Hann sagði að
VR hefði fundið að fólk vildi hafa
meira valfrelsi um hvernig það
ráðstafaði orlofsfénu í sínum frí-
um. „Við ætlum að veita félags-
mönnum möguleika á að velja.“
Gunnar Páll sagði að fé-
lagsmenn yrðu þó hvattir til að
spara varasjóðinn. „Við erum að
færa áhersluna frá þessum minni
styrkjum og orlofshúsunum í að
hvetja menn til að spara og eiga þá
kannski varasjóð vegna stærri
tímamóta í lífinu eða vegna áfalla.“
Gunnar benti á að stærstur hluti
iðgjalda, eða um 70%, rynni áfram
til samtryggingar félagsins og
standi straum af sjúkra- og slysa-
dagpeningum, dagpeningum
vegna veikinda barna, örorkubót-
um, dánarbótum og lögfræðiað-
stoð til félagsmanna. Dvöl fé-
lagsmanna í orlofshúsum yrði
ennþá niðurgreidd, en í töluvert
minna mæli en verið hefur, þar
sem inneign kemur á móti.
Sjúkrasjóðurinn skoðaður
Sigurður Bessason segir sjóði
stéttarfélaganna hugsaða með
öðrum hætti en að byggja upp
varasjóð fyrir félagsmenn.
„Sjóðirnir voru stofnaðir til að-
halda utan um ákveðna hluti með
ákveðnum forsendum en þarna er
verið að leggja upp með allt aðra
hluti,“ segir Sigurður um VR-
varasjóðinn. „Ég fæ ekki alveg séð
hvernig það samrýmist reglum
þeirra.“
Sigurður segir að afkoma sjóða
Eflingar hafi verið „prýðis góð“ á
síðasta ári, eins og hann orðar það
en aðalfundur verður haldinn í
apríl nk. Hann segir að sjúkra-
sjóðurinn standa mjög vel. Að-
spurður hvort félagsmenn fái nú
að njóta góðrar stöðu sjóðanna í
auknum mæli segir Sigurður að
þegar sjóðir styrkist þá séu rétt-
indi sjóðfélaga aukin. Hann segir
að á aðalfundi í apríl nk. verði um-
hverfi sjúkrasjóðsins tekið sér-
staklega til skoðunar.
Fréttaskýring | Hluti niðurgreiðslu til or-
lofshúsa VR mun fara í varasjóð félagsins
Efling vill
ekki varasjóð
Þegar sjóðir styrkjast eru réttindi fé-
laganna efld, segir formaður Eflingar
Gunnar Páll segir að fólk vilji velja í orlofinu.
Atvinnurekendur greiða
í orlofs- og sjúkrasjóði
Stjórn VR leggur til að til
varasjóðsins renni 20% af fé-
lagsgjaldi, 30% af sjúkrasjóðs-
gjaldi og 80% af orlofssjóðs-
gjaldi. Félagsmenn greiða
félagsgjaldið en atvinnurek-
endur greiða í orlofs- og sjúkra-
sjóði fyrir starfsfólk sitt. Orlofs-
sjóður stendur m.a. undir kaup-
um og rekstri orlofshúsa. Megin-
verkefni sjúkrasjóða er að greiða
sjúkradagpeninga þegar fólk
dettur út af launaskrá vegna
veikinda eða slyss.
sunna@mbl.isÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122