Morgunblaðið - 07.03.2005, Page 10
10 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
5
0
2
SMS heimasími
Panasonic KX-TCD300
Tilboð í vefverslun: 8.980 kr.
25% afsláttur
úr heimasíma
í 6 númer
Skráðu þig á siminn.is
Nú getur þú sent SMS
siminn.is/vefverslun
980
Léttkaupsútborgun:
og 750 kr. á mán. í 12 mán.
kr.
Tiboðsverð: 9.980 kr.
Hægt er að senda og taka á móti SMS. Númerabirting fyrir allt að 30 númer.
Símaskrá fyrir 200 símanúmer og nöfn. Innbyggður hátalari fyrir handfrjálsa
notkun. Dagsetning og tími og raddstýring á 20 númerum.
FORYSTA Frjálslynda flokksins var
endurkjörin á landsþingi flokksins á
laugardag. Guðjón A. Kristjánsson,
formaður flokksins og Margrét
Sverrisdóttir, ritari flokksins, voru
endurkjörin með lófaklappi. Þau
fengu engin mótframboð.
Magnús Þór Hafsteinsson var end-
urkjörinn varaformaður flokksins
með tæp 70 prósent akvæða. Gunnar
Örn Örlygsson, sem bauð sig fram
gegn honum, hlaut um 30 prósent at-
kvæða. Þrýst var á Margréti Sverr-
isdóttur að gefa kost á sér í varafor-
mannsembættið.
„Ég vil þakka þann afdráttarlausa
stuðning sem mér finnst hafa komið
fram hér á þessu þingi,“ sagði Mar-
grét við landsþingsfulltrúa, en fyrr
um daginn hafði henni verið afhentur
undirskriftalisti, með um 50 nöfnum,
þar sem skorað var á hana að bjóða
sig fram í varaformannsembættið.
Hún sagði m.a. að hún vildi ekki
sundrungu innan flokksins, flokks-
menn þyrftu að standa saman og
horfa fram á veginn. Síðan sagði hún:
„Ég held friðinn hér í dag og þá skulu
þeir líka gera það sem hér eru í fram-
boði þannig að það verði ekki eftirmál
af þessum slag. Ég vil minna þá á það
að það er ekkert embætti stærra
heldur en sá sem gegnir því.“ Mar-
grét tók fram að hún teldi sig, með
stuðningi landsþingsfulltrúa, hafa
sterka stöðu innan flokksins. „En eins
og er í pottinn búið þá sækist ég ekki
eftir embætti varaformanns. Mér
þætti hins vegar vænt um að eiga
ykkur að þegar ég gef kost á mér til
trúnaðarstarfa fyrir flokkinn í fram-
tíðinni.“
Alls 134 greiddu atkvæði í varafor-
mannskjörinu. Magnús Þór fékk 93
atkvæði og Gunnar Örn 41 atkvæði.
Margrét fékk sjö atkvæði og einn at-
kvæðaseðill var auður. Fjörutíu at-
kvæðaseðlar að auki, sem afhentir
voru landsþingsfulltrúum, skiluðu sér
ekki í kjörkassann.
Fari yfir gagnrýni
Þegar úrslitin höfðu verið kunn-
gjörð kom Magnús Þór í pontu og
sagði: „Ég lofa ykkur því að ég mun
starfa áfram af fullri einurð og festu
og heiðarlega að málefnum flokksins í
framtíðinni og vinna með forystunni
að því að tryggja okkur góð úrslit í
kosningunum 2006 og alþingiskosn-
ingunum árið 2007.“
Magnús Þór sagði við Morgunblað-
ið eftir úrslitin að hann liti svo á að
forysta flokksins hefði fengið skýrt
umboð, frá landsþingsfulltrúum, til að
halda áfram á sömu braut og hún
hefði gert fram til þessa. Spurður
hvort hann teldi að þingfulltrúar
hefðu með kosningunum tekið afstöðu
gegn því að flokkurinn sveigði sig
meira til hægri, eins og Gunnar lagði
áherslu á í sinni kosningabaráttu
sagði Magnús: „Ég held það hafi ekki
verið tekin nein afstaða til þess.“
Hann sagði að forysta flokksins þyrfti
hins vegar að fara yfir þá gagnrýni
sem sett hefði verið fram og taka mið
af henni. „Við þurfum að taka tillit til
þessarar gagnrýni. Það mun ekki
skorta viljann fyrir því.“
Gunnar kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið taka niðurstöðunni vel. Hún
myndi ekki hafa nein eftirmál – af
sinni hálfu. „Ég geri mér grein fyrir
því að ég var kannski Davíð á móti
Golíat í þessari baráttu eftir að for-
maður flokksins fór fram og tók af-
stöðu með Magnúsi. Auðvitað virði ég
þær skoðanir formannsins, eins og
allra annarra, en ég hefði þó kosið að
hann hefði farið fram með öðrum
hætti. Ég mun þó ekki erfa það við
hann.“
Gunnar kvaðst umfram allt ánægð-
ur með að flokkurinn væri búinn að
taka út þann pólitíska þroska að fara í
gegnum fyrsta varaformannsslaginn.
Fyrir vikið hefði landsþingið í heild
sinni einkennst af miklum krafti,
bjartsýni og málefnalegri vinnu.
Spurður hvort hann teldi að úrslit
kosninganna sýndu að flokksmenn
vildu ekki sveigja flokkinn meira til
hægri sagði hann: „Ég held að þessar
niðurstöður endurspegli ekki endi-
lega þau málefni sem ég legg fram
heldur fyrst og fremst afdráttarlaus-
an stuðning við formann flokksins,
Guðjón A. Kristjánsson, sem hefur
mikið persónufylgi innan flokksins –
enda hæfur maður þar á ferð.“
Gunnar sagði að þau málefni, sem
hann hefði lagt fram á þinginu, m.a.
tillaga um 15% flatan skatt, væru
komin í „fulla vinnslu“ eins og hann
orðaði það, innan flokksins.
Forysta Frjálslynda flokksins var öll endurkjörin á landsþingi flokksins um helgina
Hafa fengið skýrt umboð til
að halda áfram á sömu braut
Morgunblaðið/Golli
Magnús Þór Hafsteinsson var endurkjörinn varaformaður með tæplega
70% atkvæða. Gunnar Örn Örlygsson (t.v.) fékk um 30%.
„ÉG held að við
komum ágætlega
búin málefnalega
frá þessu þingi,“
sagði Guðjón A.
Kristjánsson, for-
maður Frjáls-
lynda flokksins,
við Morgunblaðið
eftir landsþing
flokksins um
helgina. „Við vor-
um að skerpa á okkar áherslum og
ég varð ekki var við annað en menn
stæðu sáttir upp frá vinnunni á
þinginu.“
Hann segist heldur ekki sjá ann-
að en menn hafi staðið heilir upp
frá varaformannskjörinu. „Auðvit-
að munu menn fylgja eftir sínum
áherslum en það er að sjálfsögðu
flokkurinn sem mótar stefnuna
sameiginlega en ekki einn maður.“
Hann segir að miðað við um-
ræðuna á landsþinginu vilji ekki
margir teygja sig of langt til hægri.
„Ég heyrði engan mæla gegn vel-
ferðaráherslum okkar.“ Hann segir
ennfremur að ef menn vilji fara í
einkavæðingu, þá verði að fylgja
því einhver hagur fyrir fólkið í
landinu. „Það er ekki hægt að fara í
einkavæðingu til að fara í einka-
væðingu og sitja svo uppi með
kannski 20% hærra raforkuverð til
fólksins.“
Í setningarræðu sinni greindi
Guðjón frá nýjum tillögum flokks-
ins um að 18 til 20 jarðgöng verði
gerð á 20 árum. Tillögu þess efnis
verður dreift á Alþingi í vikunni.
Guðjón A. Kristjánsson
Góð málefna-
leg staða
Guðjón A.
Kristjánsson