Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 12
F rumvarpið sem er í smíð- um í menntamálaráðu- neytinu um Rík- isútvarpið, og væntanlegt er inn í rík- isstjórn og stjórnarflokkana, er lend- ing sem bæði sjálfstæðismenn og framsóknarmenn eru sagðir geta sætt sig við. Um nokkurt skeið hefur blasað við að breytinga væri þörf á gildandi lögum um Ríkisútvarpið. Reynt hefur verið að koma á grund- vallarbreytingum á rekstrinum en m.a. vegna andstöðu innan og utan stofnunarinnar hefur ekkert orðið af þeim áformum. Andstaða hefur þann- ig verið innan Framsóknarflokksins við að fella niður afnotagjöld og breyta stofnuninni í hlutafélag. Björn Bjarnason hafði í sinni tíð sem menntamálaráðherra vilja til að hlutafélagavæða Ríkisútvarpið. Taldi hann það skynsamlegustu leiðina til að gera stofnunina ábyrga fyrir eigin rekstri og skapa henni trausta sam- keppnisstöðu á fjölmiðlamarkaðnum. Einnig viðraði hann möguleika á að leggja afnotagjaldið af, þannig að slík áform eru því ekki ný af nálinni. Þrátt fyrir vissa andstöðu innan RÚV við breytingar hefur engu að síður verið kallað eftir þeim hvað fjár- mögnunina varðar. Einnig vegur þungt nýleg krafa Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um breytingar á laga- umhverfi Ríkisútvarpsins. Beindist sú krafa einkum að því að skýra þyrfti betur í lögum hlutverk almenn- ingsútvarps og aðskilja betur í bók- haldinu einstaka rekstrarþætti, m.a. að önnur starfsemi eins og netþjón- usta sé ekki niðurgreidd með tekjum af afnotagjaldi. Er krafa ESA byggð á evrópskum reglum um ríkisstyrki og í hvaða starfsemi má nota slíka styrki. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri segir nauðsynlegt að fá úr þessu skorið og skýra þurfi betur lagaumhverfi Ríkisútvarpsins. Hann og fleiri stjórnendur RÚV hafi til margra ára kallað eftir þeirri breyt- ingu. Nauðsynlegt sé fyrir stofnunina að þróast, ekki bara í útvarpi og sjón- varpi, heldur einnig með netþjónustu. Þannig vanti ákvæði um Internetið í lögin um RÚV, enda hafi sú tækni ekki verið komin í almenna umferð við setningu laganna árið 1985. Skil- greiningar í rekstrinum verði að vera á hreinu. Mannaskipti í útvarpsráði Frá síðustu þingkosningum hefur komist hreyfing á hlutina. Mestu skipti að stjórnarflokkarnir komu sér saman um að ná niðurstöðu og fyrir um ári höfðu formenn flokkanna, Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms- son, uppi ummæli opinberlega um að leggja ætti afnotagjöld Ríkisútvarps- ins niður. Höfðu jákvæð ummæli Davíðs um Ríkisútvarpið í tengslum við fjölmiðlafrumvarpið einnig áhrif á endurskoðun á stofnuninni og hrintu henni af stað fyrir alvöru. Þá er það einnig talið hafa haft viss áhrif að mannaskipti urðu í útvarps- ráði. Ákveðin togstreita mun hafa verið í samskiptum formanns ráðsins, Hafa fleiri viðmælendur Morg- unblaðsins bent á þessa leið og telja hana vænlegan kost fyrir stofnunina. Þannig segir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sjónvarps, að gera þurfi árangursstjórnunarsamn- ing við menntamálaráðuneytið til lengri tíma, fimm eða sjö ára. Þar með verði einfaldara fyrir stjórn- endur RÚV að gera markvissar áætl- anir til lengri tíma sem muni skila sér í skýrari dagskrárstefnu og meiri hagræðingu. Í svipaðan streng tekur Dóra Ingvadóttir, framkvæmdastjóri Útvarps. Ríkisfjölmiðlar í nágranna- löndunum viti nokkur ár fram í tím- ann úr hverju þeir hafa að spila og ólíkt auðveldara sé við slíkar að- stæður að gera fastar áætlanir og móta framtíðarstefnu. „Það háir Rík- isútvarpinu að vita aldrei með vissu fyrr en við samþykkt fjárlaga í lok árs hvort tillögur þess um rekstrartekjur fyrir næsta ár eru samþykktar,“ seg- ir Dóra. Afnotagjöldin dýr í innheimtu Afnotagjöldin þykja dýr í inn- heimtu en kostnaður afnotadeildar nemur nú um 80 milljónum króna á ári. Þar af taka bankarnir inn um 30 milljónir í seðilgjöld. Brögð eru að því að fólk, einkum hið yngra, komi sér undan því að greiða afnotagjöldin og þá nýta æ fleiri sér þjónustu Rík- isútvarpsins í tölvum sínum. Starfsmenn RÚV, háir sem lágir, segjast vilja sjá hvað kemur í stað af- notagjalda, verði ný lög samþykkt um að fella þau niður. Gjöldin hafi þó þann kost að veita sjálfstæði með því að rukka inn eigin tekjur. Fyrir vikið sé RÚV ekki jafnháð ríkisvaldinu og ef það væri á beinum fjárlögum. Einnig er bent á að afnotagjöld séu enn ráðandi í fjármögnun ríkismiðla víða í Evrópu (sjá meðfylgjandi töflu) og um þau sé ekki eins mikið deilt og hér á landi. Þannig komust skýrslu- höfundar fyrir danska ríkisútvarpið að því í haust að ekkert betra fyr- irkomulag en afnotagjöld væri við fjármögnunina. Þá voru sænsk stjórnvöld nýlega að breyta inn- heimtu sinni þannig að afnotagjöld mætti einnig taka af tölvum líkt og sjónvarpstækjum. Fleiri tillögur um fjármögnun eru uppi. Jón Ásgeir Sigurðsson útvarps- maður nefnir þá hugmynd að heimilin í landinu borgi um 20 þúsund krónur á ári til Ríkisútvarpsins, í stað ríflega 30 þúsund króna í dag með afnota- gjaldinu, og ríkissjóður leggi til sama hlutfall á móti. Draga eigi markvisst úr auglýsingum, þrengja reglur og hætta kostun, sem hafi vond áhrif á Áform um nefskatt í stað Fréttaskýring | Fram- undan eru róttækar breytingar á skipulagi og rekstri Ríkisút- varpsins. Hér rekur Björn Jóhann Björns- son aðdragandann að þeim breytingum og fjallar um nokkur atriði úr boðuðu frumvarpi, þar sem m.a. er ætlunin að leggja útvarpsráð niður og skipa nokkurs konar rekstrarstjórn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framundan eru miklar breytingar á rekstri RÚV, sem starfsmenn bíða fullir eftirvæntingar. Hér er Ólafur Páll Gunnarsson á Rás 2 í léttri rokksveiflu. Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, og varaformannsins, Gissurar Pét- urssonar, sem sneri reyndar frekar að mannaráðningum en mismunandi áherslum um stefnumarkandi stjórn- un Ríkisútvarpsins. Í stað Gissurar kom Páll Magnússon, aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur iðn- aðarráðherra, inn í útvarpsráð fyrir Framsóknarflokkinn. Að öðru leyti er útvarpsráð skipað Önnu K. Jóns- dóttur og Andra Óttarssyni frá Sjálf- stæðisflokknum, Svanfríði Jón- asdóttur og Ingvari Sverrissyni frá Samfylkingunni og Kjartani Egg- ertssyni, fulltrúa Frjálslynda flokks- ins. Innan menntamálaráðuneytisins fór af stað vinna á fullum krafti við að endurskoða lögin, í náinni samvinnu stjórnarflokkanna. Helstu stjórn- endur RÚV, m.a. útvarpsstjórinn, hafa ekki verið hafðir með í ráðum. Útvarpsstjóra finnst það engu að síð- ur hafa verið uppörvandi að heyra yf- irlýsingar menntamálaráðherra um að í vændum væri að styrkja stöðu Ríkisútvarpsins sem menning- arstofnunar. Þá gengur Markús út frá því að RÚV verði tryggðir þeir tekjustofnar sem þurfi til að stofn- unin geti þróast áfram í samræmi við þá tækni sem ætíð knýr dyra. Meiri tekjur með nefskatti Lending stjórnarflokkanna felst m.a. í því að hlutafélagaleiðin hefur verið sett út af borðinu. Pólitísk sam- staða náðist ekki um hana og beind- ust sjónir manna fljótlega að því að taka upp nefskatt í stað afnotagjalda. Þetta er sú leið sem helst hefur verið til skoðunar, samkvæmt heimildum blaðsins. Er hún talin geta aflað RÚV breiðari tekjustofn en verið hefur. Hafa bein framlög af fjárlögum ekki þótt vænlegur kostur. Hugmyndina um nefskatt nefndi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra í ræðu á Al- þingi í mars fyrir ári. Þar rakti hún þá valkosti sem í boði voru ef menn ætluðu að fella niður afnotagjöldin. Nefndi hún að samkvæmt fólksfjölda 18 ára og eldri, ásamt fjölda fyr- irtækja, myndi nefskattur verða á bilinu 8.500 til 10.000 krónur á ári ætti hann að skila svipuðum tekjum og afnotagjaldið. Sagði hún nefskatt- inn vera ágæta leið og heppilega ef ætti að aldurstengja skattinn. „Það má hugsa sér að aldurstengja nef- skattinn frá 18 ára til 70 ára sem skil- aði þá svipuðu og afnotagjaldið gerir í dag og á nokkuð skilvirkan og greið- an hátt án þess að það komi til al- mennrar skattheimtu yfir alla,“ sagði menntamálaráðherra á Alþingi fyrir um ári. Þó að tekinn verði upp nefskattur, með jafnvel meiri tekjumöguleikum en afnotagjöldum, er hætt við að áfram verði deilt um fjármögnun Rík- isútvarpsins. Nefskattur er lítt þekkt fjármögnun á rekstri ríkisfjölmiðla í nágrannalöndunum og þá benda við- mælendur blaðsins á að í vissum til- vikum geti sá skattur komið harðar niður á stórum heimilum en afnota- gjöldin eru að gera í dag með kannski einum greiðanda. Miðað við útreikn- inga menntamálaráðuneytisins myndi nefskattur vera þrefalt minni en afnotagjald af einu tæki, þannig að aðeins þarf þrjá í heimili á aldrinum 18–70 ára til að jafna þessi útgjöld. Hins vegar er nefskatturinn útfrá sjónarhóli ríkisins talinn hentugri leið en að hafa stofnunina á beinum fjár- lögum og leggja þar til 2–3 milljarða króna á ári án þess að gera ráð fyrir sérstakri tekjuöflun. Gagnrýnendur nefskatts benda á móti á að hann geti dregið úr sjálfstæði Ríkisútvarpsins, sem ekki megi gerast undir nokkrum kringumstæðum. Þess má geta að í viðhorfskönnun Gallup fyrir RÚV árið 2002 var spurt hvaða tekjuöflun fólk vildi sjá. Flestir vildu bein framlög úr ríkissjóði til RÚV, eða 41%, 33% vildu afnota- gjöldin áfram en 26% vildu nefskatt. Fasteignatenging skoðuð Skoðaðar hafa verið fleiri fjár- mögnunarleiðir en að taka upp nef- skatt í stað afnotagjalda. Á síðasta ári vann forstöðumaður markaðssviðs RÚV, Þorsteinn Þorsteinsson, skýrslu um fjármögnun stofnunar- innar. Með samanburði á nokkrum leiðum komst Þorsteinn að þeirri nið- urstöðu að innheimta byggð á fast- eignagrunni heimilanna í landinu mætti best þeim kröfum sem gerðar væru til fjármögnunarinnar. Gjöld einstaklinga myndu lækka, kostn- aðarvitund þeirra héldist svipuð og innheimtan yrði ódýrari og skilvirk- ari. Þorsteinn mat í skýrslunni einnig fjárhagslega þörf Ríkisútvarpsins. Rauntekjur hefðu dregist saman um rúmar 800 milljónir króna frá 1994 og til að jafnvægi næðist í reksturinn þyrfti RÚV rúman milljarð króna umfram núverandi tekjur. Skýrsla Þorsteins var kynnt í menntamálaráðuneytinu en svo virð- ist sem tenging við fasteignagrunn hafi ekki fengið hljómgrunn. Þor- steinn bendir á að föst krónutala, eins og afnotagjaldið hafi lengi verið, eigi erfitt með að fylgja almennri verð- lagsþróun. Með tengingu við fasteign þróist gjaldið betur, enda fast- eignamatið að breytast árlega. Fast- eignagrunnurinn sé einnig góður upplýsingagjafi og mikið notaður. Þorsteinn segist ekki mótfallinn af- námi afnotagjalda. Lagaumhverfið sé andstætt því fyrirkomulagi og tæknin farin að gera innheimtuna örðugari þar sem margir nýti þjónustu RÚV í gegnum tölvurnar. Mælt með langtímasamningi Þorsteinn lagði ennfremur í skýrslu sinni til að mennta- málaráðuneytið og RÚV gerðu með sér samning í anda þess sem BBC gerði við bresk stjórnvöld. Það myndi tryggja sjálfstæði miðilsins enn frek- ar og gera langtímaáætlanir mögu- legar. Nú á dögunum var BBC ein- mitt að treysta afnotagjöldin í sessi allt til ársins 2017, samkvæmt samn- ingi við stjórnvöld. Eru Bretar að greiða 10 sterlingspund á mánuði til BBC, eða um 1.100 krónur íslenskar en fullt afnotagjald RÚV er nú um 2.700 krónur.                          ! " #" $ %&' () *+!$ ( ,   $ , - " $ - . / $ 01% 2  $  , & " $ &&3    /  $ /4 5  $ 6 5  $ 4% (78$ 49% # $ -:& &" $ 9 4 12 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.