Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 13 FRÉTTIR afnotagjalda dagskrána. Þá eigi ekki að veita nein- um afslátt af auglýsingaverði nema stjórnmálasamtökum, líkt og tíðkist víða í Bandaríkjunum. Stjórn í stað útvarpsráðs Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er í fyrirhuguðu frum- varpi menntamálaráðherra ekki gert ráð fyrir útvarpsráði heldur nokkurs konar rekstrarstjórn líkt og hjá fyr- irtækjum og mörgum ríkisstofn- unum. Kemur þessi tillaga ekki á óvart þegar haft er í huga að innan útvarpsráðs sjálfs, bæði hjá meiri- og minnihluta, eru uppi efasemdir um tilgang þess og hlutverk, eða eins og einn útvarpsráðsmaður orðaði það í samtali við blaðið: „Útvarpsráð er í raun hálfgerður bastarður, hvorki fugl né fiskur.“ Til þessa hefur útvarpsráð ekkert haft með fjármál og rekstur RÚV að gera. Hefur það ekki þótt koma heim og saman við nýskipan í ríkisrekstri að slíkt ráð sé kjörið af Alþingi. Því þótti nauðsynlegt að taka á þessu og koma nýskipan í ríkisrekstri á með formlegum hætti. Bent er á að starfs- menn hafi margir hverjir tileinkað sér nútímalegri starfshætti við erf- iðar aðstæður og afrekað margt gott. Ný rekstrarstjórn á þá að hafa rekstrarlega ábyrgð ásamt útvarps- stjóra eða framkvæmdastjóra Rík- isútvarpsins, sem yrði skipaður af Al- þingi eða menntamálaráðherra. Ráðherra á þó að hafa hina end- anlegu ábyrgð. Eru útfærslur á þessu enn til skoðunar. Pólitísk afskipti úr sögunni? Með þessu fyrirkomulagi er ætl- unin að pólitísk afskipti útvarpsráðs af mannaráðningum og einstökum dagskrárliðum verði úr sögunni. Stjórninni er ætlað að móta heild- arstefnu RÚV og hafa eftirlit með fjárreiðum, líkt og gerist í fyr- irtækjum, með skýrt skilgreint hlut- verk samkvæmt lögum, og þá sem al- menningsútvarp. Við endurskoðun laganna hafa ver- ið deildar meiningar milli stjórn- arflokkanna um hvernig skipa eigi nýja rekstarstjórn yfir Ríkisútvarp- inu. Samkvæmt tilmælum Evr- ópuráðsins er gert ráð fyrir að stjórn almenningsútvarps þurfi að end- urspegla hlutföll á þjóðþingi þannig að ekki sé um að ræða einhliða skipun stjórnarmeirihlutans hverju sinni. Af samtölum við stjórnendur RÚV má hins vegar ráða að þeir reikna frekar með rekstrarstjórn í stað útvarpráðs þannig að ekki er andstöðu að vænta úr þeirri átt við áformum ríkisvalds- ins. Með því að skipa rekstrarstjórn er ætlunin einnig að gefa stjórnendum RÚV á hverjum tíma meira svigrúm og frelsi til að taka ákvarðanir og bera þá um leið ábyrgð á þeim, m.a. á ráðningum starfsmanna. Einn helsti vandi RÚV er sagður sá að stjórn- endur stofnunarinnar hafi ekki fengið að stjórna af fullum mætti vegna óskýrra marka milli valds og ábyrgð- ar. Með nýjum lögum er ætlunin að gera þessi mörk skýrari, auka svig- rúm til að stjórna en auka ábyrgð um leið. Útvarpsstjóri, eða fram- kvæmdastjóri, mun þá hafa ótíma- bundinn starfstíma, allt eftir því hvernig honum tekst að reka stofn- unina, en hann hefur frá síðustu laga- breytingu verið skipaður af ráðherra í fimm ár í senn. Skipan núverandi út- varpsstjóra gildir til ársloka 2007 en Markús Örn hefur verið við stjórnvöl- inn samfellt frá árinu 1998, var þar áður framkvæmdastjóri Útvarps frá 1995 og útvarpsstjóri á árunum 1985- 1991, eða þar til hann varð borg- arstjóri í Reykjavík. Segist hann vera reiðubúinn að leiða fyrirhugaðar breytingar á RÚV, hann hafi beðið spenntur eftir því í tíu ár að fá að tak- ast á við slíkt verkefni. Sinfónían tekin af stofnuninni Samkvæmt fyrirhuguðu laga- frumvarpi er ekki kveðið á um hve framkvæmdastjórar Ríkisútvarpsins eiga að vera margir eða hvernig verkaskiptingu verður háttað. Verður það í valdi nýrrar rekstrarstjórnar og í valdi útvarpsstjóra/forstjóra hverjir verða ráðnir og reknir. Til þessa hafa helstu stjórnendur RÚV verið ráð- herraskipaðir, jafnt útvarpsstjóri sem framkvæmdastjórar Sjónvarps, Útvarps og fjármáladeildar. For- stöðumenn nokkurra sviða hafa haft ígildi framkvæmdastjórastöðu, þ.e. yfirmenn fréttasviðs, tæknisviðs, þró- unarsviðs og markaðssviðs. Fleiri breytingar eru í frumvarp- inu og sú sem stjórnendur RÚV munu væntanlega fagna sérstaklega er að framlög til Sinfóníuhljómsveit- arinnar verða tekin frá stofnuninni. Þá eru uppi hugmyndir um að aflétta lífeyrisskuldbindingum starfsmanna af Ríkisútvarpinu en óljóst er hvort sú verður raunin að þessu sinni. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær hafa þær skuldbindingar reynst þungur baggi á fjárhag RÚV síðustu árin. Verði allar þessar breytingar að lögum á vorþinginu verður fróðlegt að sjá hvort stjórnvöldum takist ætl- unarverk sitt, að rétta fjárhag Rík- isútvarpsins við og skilgreina betur hlutverk þess og bæta rekstr- arumhverfið. Verður tíminn einn að leiða það í ljós. Eitt er þó ljóst að vænta má líflegra viðræðna um málið í sölum Alþingis þegar líða tekur á vorið. Frjálshyggjufélagið hefurtekið mjög eindregna af-stöðu um málefni Rík- isútvarpsins og vill að það verði selt. Formaður félagsins, Gunn- laugur Jónsson, segir að Rík- isútvarpið hafi verið nokkurs konar mun- aðarleysingi á heimili hins opinbera og sem fyrst þurfi að koma því fyrir „á góðu heimili.“ „Við viljum breyta RÚV í venjulegt hlutafélag sem starf- aði á jafnrétt- isgrundvelli við aðra fjölmiðla. Það er fyr- irtækinu til heilla og betra gagnvart öllum viðskiptavinum RÚV, þjóðinni og starfsmönnum. Betra er að koma fyrirtækinu í hendur eigenda sem hugsa um það sem slíkir. Fyrsta skrefið í því er að breyta félaginu þannig að það hafi sjálfstæða og eðlilega tekju- stofna. Það má ekki vera á fjár- lögum eða taka við skattfé heldur innheimta afnota- eða áskrift- argjöld í stað skylduáskriftar. Þegar þessu er lokið, og eðlilegur rekstrargrundvöllur kominn á, ætti að fara fram einföld sala á fyrirtækinu. Mikilvægt er að þetta gerist sem fyrst,“ segir Gunnlaugur sem hefur áhyggjur af því að Ríkisútvarpið „drabbist smátt og smátt niður í samkeppni við fríska fjölmiðla í einkaeigu.“ Þeir geti líkt og RÚV sinnt því menningar- og öryggishlutverki sem því sé ætlað að sinna, og jafnvel enn betur. Nefskattur skref afturábak Gunnlaugi hugnast það ekki ef velja á nefskatt í stað af- notagjalda. Það verði stórt skref afturábak og mun verra en núverandi ástand. Nefskattur sé enn ósanngjarnari en skylduáskrift þar sem hann sé ekki aðeins lagður á þá sem noti þjónustuna og eigi viðtæki, held- ur á alla hina líka. Einnig verði erfiðara að koma fyrirtækinu í eðlilegra horf því ekki sé hægt að selja einkaaðilum skattlagning- arvald. Gunnlaugur Jónsson Hollvinasamtök Rík-isútvarpsins voru form-lega stofnuð haustið 2002. Í tvö ár þar á undan höfðu áhugamenn um málefni RÚV hist reglulega til að ræða áform sem þá voru uppi um að breyta stofnuninni í hlutafélag. Um þver- pólitísk samtök er að ræða og félagsmenn komnir á fimmta hundraðið. Formaður samtakanna er Mar- grét K. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins. Margrét segir skiptar skoðanir vera innan samtakanna um hvernig ráða eigi bót á fjárhag og skipulagi Rík- isútvarpsins. Margir vilji t.d. að RÚV sé rekið með beinum fram- lögum af fjárlögum en hún skilji vel áhyggjur útvarpsstjóra um að þar með verði stofnunin svelt og missi sjálfstæði sitt. Slík sé reynslan víða í nágrannalönd- unum. Margrét segir það mestu skipta að RÚV fái eyrnamerkt fast fjármagn. Samtökin útiloki engar fjármögnunarleiðir en hún segist þó efast um að nefskattur sé besta leiðin. Hún segir samtökin hafa á fundum sínum lagt áherslu á að Ríkisútvarpið einbeitti sér í framtíðinni sem mest að inn- lendri dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi og léti öðrum miðlum eftir að sýna erlent afþreyingarefni eins og þáttaraðir og sápuóperur. RÚV fái þá sem mest fjár- magn til að vinna inn- lent efni. Bindum vonir við ráðherrann „Við stöndum áfram vörð um mál- efni og hagsmuni Ríkisútvarpsins en vitum ekki hvað er í vændum í huldu- frumvarpi mennta- málaráðherra. Við gerum okkur vonir um að stofnunin verði efld, ekki síst í ljósi þess að ráðherra er fyrrum innanbúðarmaður í Ríkisútvarpinu og ætti því að þekkja vel til,“ segir Margrét en gagnrýnir að fjölmiðlanefndinni hafi ekki verið ætlað að fjalla sérstaklega um Ríkisútvarpið, einn helsta fjölmiðil landsins. Þau vinnubrögð minni sig um of á hvernig að fjölmiðlafrumvarp- inu hafi verið staðið í fyrstu. Margrét K. Sverrisdóttir bjb@mbl.is Formaður Frjálshyggjufélagsins um Ríkisútvarpið Munaðarleysingi sem koma þarf á gott heimili Mestu skiptir að RÚV fái fast fjármagn Formaður Hollvinasamtaka Ríkisútvarpsins HAGNÝTT gildi góðrar stjórnsýslu í þágu samfélagsins, atvinnulífsins og þeirra sem þurfa að leita atbeina stjórnsýslunnar verður umfjöllunarefni morgun- verðarráðstefnu sem fjármálaráðuneytið, Fé- lag forstöðumanna ríkis- stofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála Háskóla Ís- lands standa sameigin- lega að þann 9. mars nk. á Grand Hótel Reykja- vík. Meðal þeirra sem fjalla um stjórnsýsluna verður Berglind Ás- geirsdóttir, aðstoðarfor- stjóri OECD, en yfir- skrift erindis Berglindar verður „Arðsemi góðrar stjórnsýslu“. Berglind segir að regl- urnar sem framkvæmdavaldið setji borgurunum hafi mikil áhrif á það hvernig framþróun er í landinu, t.d. hvort Ísland sé aðlaðandi kostur fyr- ir fjárfesta. „Arðsemi góðrar stjórnsýslu byggist á skýrum og góðum reglum fyrir samfélagið, sem hafa mikil áhrif á það hvort umhverfið ýtir und- ir atvinnusköpun og nýsköpun. Ég mun t.d. sýna töflu sem sýnir að stjórnsýslan [hér á landi] er mjög þunglamaleg gagnvart nýsköpun,“ segir Berglind. Hún mun m.a. fjalla um áhrif stjórnsýslunnar á verðmætasköpun í landinu, t.d. þann ramma sem skap- aður er fyrir nýsköpun og stofnun fyrirtækja í landinu, og hvort regl- urnar séu íþyngjandi fyrir atvinnu- lífið. Hún mun einnig fjalla um þau áhrif sem framkvæmd fjárlaga – þ.e. að stofnanir haldi sig innan fjárlag- arammans – hafi á hagstjórnina, en hún byggir erindi sitt að hluta til á tveimur nýútkomnum skýrslum, annars vegar um hagstjórn á Íslandi, og hins vegar nýrri skýrslu OECD um hvaða leiðir sé hægt að fara til að bæta lífskjör í OECD- löndunum. Auka þarf framleiðni Berglind segir að það komi fram í skýrslunni um hag- stjórn á Íslandi að framleiðni sé ekki næg hér á landi, auka þurfi fjölbreytni í at- vinnulífinu og skapa verðmætari störf. „Þarna hafa þær regl- ur sem stjórnsýslan setur mjög mikil áhrif. Þarna eru reglur um hvernig á að stofna fyrirtæki, hvort kerfið í heild er hlynnt nýsköpun og svo framvegis. Það eru svo margir þætt- ir sem spila inn í [...] og því mik- ilvægt að það sé heildstæð sýn í stjórnsýslunni og skýr stefnumörk- un.“ Í nýrri skýrslu frá OECD, sem kynnt var 1. mars í London, eru til- lögur um hvernig einstök lönd innan OECD geta bætt lífskjörin, en þar eru fimm tillögur fyrir íslensk stjórnvöld: Lagt er til að samkeppni verði aukin með því að opna markaði, áherslur á menntun verði auknar, styrkir til landbúnaðarins verði minnkaðir, umbætur verði gerðar í ríkisrekstri, og opinber afskipti af húsnæðislánakerfinu minnkuð, segir Berglind. Ráðstefnan á miðvikudag hefst kl. 8:30, og er öllum opin. Tilkynna þarf þátttöku á vefnum www2.hi.is/page/ ardsemi, en ráðstefnugjald er 3.000 kr. Berglind Ásgeirsdóttir Ráðstefna um gildi góðrar stjórnsýslu Stjórnsýsla tengd ný- sköpun mjög þunglamaleg SAMEINING auglýsingastofanna Góðs fólks og Máttarins og dýrðar- innar hefur verið tekin til endur- skoðunar en frá henni var greint fyr- ir rúmlega þremur vikum. Starfsfólk stofanna var, a.m.k. að hluta til, byrj- að að vinna saman undir sama þaki en því samstarfi lauk á miðvikudag þegar ljóst var að blikur voru á lofti um að sameiningin gengi eftir. Í frétt Morgunblaðsins 12. febrúar var greint frá því að nýstofnað félag hefði keypt auglýsingastofurnar auk helmingshlutar í birtingarstofunni Auglýsingamiðlun. Aðaleigendur hins nýja félags eru auglýsingastof- an Fíton og Gunnlaugur Þráinsson framkvæmdastjóri Góðs fólks. Alls starfar á fjórða tug starfsmanna hjá fyrirtækjunum. Sagt var frá því að hið nýja félag myndi að öllum lík- indum heita Gott fólk og yrðu höf- uðstöðvar þess í húsakynnum Góðs fólks. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Gunnlaugur Þráinsson að ekki hefði verið kominn á bindandi samn- ingur um sameininguna eða kaup hins sameinaða félags á Mættinum og dýrðinni og Auglýsingamiðlun. Forsendur hefðu breyst en málið væri þó enn í skoðun og viðræður héldu áfram. Aðspurður sagði hann að ýmislegt hefði orðið til þess að ekki hefur orðið af sameiningunni. „Það var ekki neitt eitt sem setti þetta úr skorðum. Og þó að þetta sé staðan í dag er ekki víst að hún verði svona á morgun,“ sagði hann. Júlíus Þorfinnsson framkvæmda- stjóri Máttarins og dýrðarinnar sagði að snurða hefði hlaupið á þráð- inn. Málið væri á viðkvæmu stigi og viðræður héldu áfram. Aðspurður sagðist hann ekki geta greint frá því hvað varð til þess að sameiningin hefur ekki gengið eftir. „Mátturinn og dýrðin dró sig til baka en málið er enn í skoðun,“ sagði hann. Starfsfólk á auglýsingastofunum var, a.m.k. að hluta til, byrjað að vinna saman í einu húsnæði. Því lauk á miðvikudag og eru báðar auglýsingastofurnar nú í fullum rekstri. Gott fólk og Mátturinn og dýrðin Sameiningin tekin til endur- skoðunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.