Morgunblaðið - 07.03.2005, Side 17

Morgunblaðið - 07.03.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 17 MENNING Viltu bæta símaþjónustuna í þínu fyrirtæki? Aðeins 20 manns komast á hvert námskeið Námskeið fyrir þá sem vilja veita frábæra símsvörun Hafið samband í síma 580 8080 eða til gudrun@midlun.is Næsta námskeið er miðvikudaginn 9. mars nk. á Grand hótel Reykjavík frá kl. 18 - 22 MIKIL eftirvænting ríkti í Há- skólabíói á laugardagskvöldið, enda einn frægasti söngvari heims, José Carreras að fara að halda þar tón- leika. Salurinn var þéttsetinn og gríðarleg spenna var meðal áheyr- enda. Ég hugsa að þeir hafi ekki orð- ið fyrir vonbrigðum; Carreras var að vísu dálitla stund að ná almennilegu flugi í söng sínum, en þegar það gerðist þá var það engu líkt. Fagn- aðarlætin í lokin báru svo sann- arlega vott um það. Efnisskráin var eins og fínasta konfekt; þarna voru lög á borð við Segreto, Sogno og Aprile eftir Tosti, Silenzio Cantatore eftir Lama og hið óviðjafnanlega Musica Proibita eftir Gastaldon, en inn á milli lék strengjakvartett ljúfa tónlist, þ. á m. Crisantemi eftir Puccini. Carreras söng af djúpri innlifun, túlkun hans einkenndist af næmri tilfinningu fyr- ir því sem hvert lag fjallaði um, auk þess sem allt hið ósagða í skáld- skapnum fékk að njóta sín á ein- hvern óútskýranlegan hátt. Söng- urinn var aldrei eins; þvert á móti var hvert lag einstakt, heill heimur af tilfinningum og minningum, kryddað alls konar blæbrigðum sem lyftu tónlistinni upp í hæstu hæðir. Aðeins örfáir listamenn eru færir um að skapa slík áhrif; hvílík upp- lifun! Eins og fyrr segir kom strengja- kvartett við sögu á tónleikunum, Nuovo Quartetto Italiano, sem bæði spilaði með Carreras og lék einnig nokkur lög sjálfur. Frammistaða kvartettsins var með afbrigðum góð; túlkunin var í senn smekkleg og ein- læg og ekki var að heyra neinar tæknilegar misfellur. Sama er að segja um Lorenzo Bavaj píanóleikara, meðleikur hans var öruggur, hröð hlaup voru glæsi- leg og allt sem hann gerði rann svo vel saman við sönginn að unaður var á að hlýða. Mesti unaðurinn var samt að fylgjast með Carreras, bæði að hlusta á hann syngja og einnig að fylgjast með því hvernig hann bar sig á sviðinu. Hvert einasta smáat- riði varðandi sviðsframkomu var út- hugsað; hann var sjarmerandi, kurt- eis en líka blátt áfram, alveg eins og manni finnst að stórtenór eigi að vera. Í stuttu máli voru þessir tón- leikar einstök skemmtun og er öllum aðstandendum þeirra á Íslandi hér með óskað til hamingju með frábært framtak. Heill heimur af tilfinningum Morgunblaðið/Árni Torfason „Aðeins örfáir listamenn eru færir um að skapa slík áhrif,“ segir Jónas Sen um tónleika José Carreras. TÓNLIST Háskólabíó Jose Carreras söng ásamt Nuovo Quart- etto Italiano og Lorenzo Bavaj píanóleik- ara. Tónlist eftir Costa, Massenet, Tosti, Respighi, Grieg, Tirindelli, Morera og fleiri. Laugardagur 5. mars. SÖNGTÓNLEIKAR Jónas Sen MIKIL innanhússátök ríkja nú í Scala-óperunni í Mílanó, en óperan var sem kunnugt er opnuð eftir þriggja ára viðgerðir í desember á síðasta ári. Þykja átökin svo stór- vægileg að heiður óperunnar liggi að veði. Þetta kom fram í Int- ernational Herald Tribune í vik- unni. Framkvæmdastjóri óperunnar til fimmtán ára, Carlo Fontana, hefur verið rekinn og í hans stað ráðinn leikhússtjóri óperuhússins, Mauro Meli. Er uppsögnin sögð tilkomin vegna ágreinings milli Fontana, Meli og Riccardo Muti, tónlistar- stjóra óperunnar, en sá síðast- nefndi hefur lýst ástandinu sem „óbærilegu“. Tveimur frumsýningum frestað Í kjölfarið hafa starfsmenn óp- erunnar lýst yfir verkfalli á öllum frumsýningum, bæði á óperum og ballettum, sem meðal annars mun leiða af sér frestun á frumsýn- ingum á tveimur óperum, Sancta Susanna eftir Paul Hindemith og Il dissoluto assolto eftor Azio Corghi, sem til stóð að frumsýna 10. mars. Stéttarfélög starfsfólksins hafa lýst yfir vanþóknun á „yfirlæti“ stjórn- arinnar sem rak Fontana „án þess að gefa raunverulegar skýringar á því hvað olli vandkvæðum í stjórn leikhússins“. En mestar áhyggjur hafa stéttarfélögin þó af vaxandi kostnaði og lækkuðum opinberum framlögum til sviðslista á Ítalíu, því ítalska ríkisstjórnin hefur til- kynnt að í ár verði veittar 464,5 milljónir evra, í stað 611 milljóna árið áður, til lista af því tagi í land- inu. Neikvæð áhrif á ímynd Vegna þessarar miklu spennu hefur menningarmálastjóri Mílanó- borgar, Salvatore Carrubba, sagt af sér, en borgin kostaði að mestu uppgerð óperuhússins á sínum tíma. Carrubba segir að hann hafi ekki verið látinn vita af ýmsum stjórnarákvörðunum innan Scala, meðal annars um uppsögn Font- ana, sem hafi leitt til afsagnar hans sjálfs. Hann segist óttast að hin já- kvæðu áhrif sem viðgerðirnar í Scala höfðu á ímynd óperuhússins tapist að nokkru leyti vegna valda- baráttunnar innan veggja þess. Fleiri hafa tekið undir þá skoð- un, að Scala-óperan kunni að líða fyrir neikvæða umræðu í kjölfar deilnanna. Í bréfi til borgarstjóra Mílanó sagðist Carlo Fontana ekki vita hvað hefði valdið hinum meinta ágreiningi sínum við tón- listarstjórann Riccardo Muti, en hann myndi ekki standa gegn ákvörðun stjórnar Scala um að hlífa óperunni við „slag sem gæti valdið Scala-óperunni enn meiri álitshnekki á Ítalíu og í heiminum“. Raddir um að Riccardo Muti hyggist segja af sér vegna deiln- anna við Fontana hafa einnig heyrst í ítölskum fjölmiðlum. Drama bak við tjöldin í Scala Reuters Allt logar innanbúðar í Scala-óperunni í Mílanó þessa dagana og uppsetn- ingu tveggja ópera hefur verið frestað vegna verkfalla. EIVØR Pálsdóttir og Kasa hóp- urinn fóru í tónleikaferð til Fær- eyja fyrir nokkru og héldu tónleika í Norðurlandahúsinu laugardaginn 19. febrúar. Dagblaðið Sósíalurinn birti dóm um tónleikana á dög- unum, þar sem gagnrýnandinn, Jákup Mørk, lýsir gífurlegri hrifn- ingu sinni á frammistöðu tónlistar- mannanna, líkir Eivøru við eð- alstein og segir að á þessum tónleikum hafi enn nýir fletir á gimsteininum verið afhjúpaðir. Undir fyrirsögninni: „Eivør fer sínar eigin leiðir“ segir Mørk meðal annars. „Ljóst varð um leið og fyrstu tónarnir höfðu leikið um sal- inn, að þetta yrðu tónleikar sem fólk myndi muna lengi.“ Mørk fer fögrum orðum um tónlist Eivarar, segir hana hafa verið stemmnings- ríka og draga dám af þjóðlaga- tónlist Íslands, Írlands og Skot- lands, – hún hefði allt eins getað átt rætur sínar í skosku hálöndunum fyrir öldum, eða í fallegri írskri bíó- mynd. „Tónlistin snýst í grundvall- aratriðum um það að hreyfa við til- finningum fólks, og konurnar fimm í Kasa sýndu, að þær kunnu þá list til fullnustu. Að Eivør gæti þetta, vissum við nú flest áður en hún steig á sviðið, og hafi einhver verið í vafa fyrir tónleikana, var allur efi á bak og burt eftir þá. Með nokkr- um nýjum lögum í bland við þau gömlu, sem hún hefur svo oft flutt fyrir okkur, kynti Eivør salinn að suðumarki. Ekki þó þannig að fólk stæði upp til að hrópa og klappa, – heldur á þann hljóðláta hátt sem maður upplifði þegar gleðikennd- irnar hrísluðust um áheyrendur. Eivøru tókst á sinn áreynslulausa hátt að skapa slíka nánd við áheyr- endur.“ Mørk segir að nýtt lag Eivarar, Coloured Roads, sem hún frum- flutti á tónleikunum, hafi sýnt að Eivør sé kántrí-söngkona á heims- mælikvarða. Hann segir að hefði hún metnað til slíks þyrfti ekki ann- að en að senda sýnishorn af þeim söng til Nashville, og hún yrði millj- ónamæringur um leið. Líklega gæti ekki nokkur söngkona gert betur en Eivør í þessu lagi. Mørk leggur þó áherslu á, að slíkt háttalag væri þó ekki aðferð Eivarar. „Hinn möguleikinn til frama er sá að Ei- vør geri það sem hana sjálfa fýsir að gera í tónlistinni, þótt sú leið gæti reynst seinfarnari. [...] Það lítur út fyrir að þessa leið hafi Eivør kosið að fara, og því eig- um við Færeyingar enn kost á að heyra í þessum gullfugli fyrir við- unandi miðaverð.“ Mørk nefnir eitt lag sem af öllu góðu hefði þó staðið uppúr. „Strengjaleikur Kasa gaf laginu Nú brennur tú í mær nýjar víddir. Dramatík, tilfinningar og innileiki léku lausum hala og þegar söng- röddin bættist við, jafnvel enn hrárri en áður, varð salurinn gjör- samlega gagntekinn af hrifningu. Klappinu ætlaði heldur ekkert að linna þar til Eivør þakkaði fyrir sig með bros á vör til að geta lokið tón- leikunum.[...] Enn einu sinni höfðu Færeyingar orðið vitni að stórkostlegum gjörn- ingi af Eivarar hálfu, en samt var það með sætum trega sem gestir fögnuðu í tónleikalok. Því af list hennar að dæma er það ekki spurn- ing um hvort, heldur hvenær, þessi fremsti færeyskra söngfugla flýgur enn lengra út í heiminn.“ Tónlist | Eivør og Kasa í Færeyjum Fremstur fær- eyskra söngfugla Morgunblaðið/RAX „Gullfuglinn“ Eivør Pálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.