Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FRAMFARIR í vísindum og tækni eru helsta undirstaða hag- sældar vestrænna þjóða. Fram- farasporin eru iðulega afrakstur tímafrekra grunnrannsókna þar sem markmiðið í upphafi var ekki tækniþróun í sjálfu sér heldur leit að þekkingu þekkingarinnar vegna. Vísindamenn sjá þannig oft óvæntar leiðir til að hagnýta þekk- ingu sína og fjárfestar sjá í þeim leið til að ávaxta sitt pund. Í sam- einingu skapa þessir hópar verð- mæti og atvinnu. Því er almennt þannig farið í heiminum að grunnrannsóknir fara helst fram við háskóla og stofnanir tengdar þeim. Helsta undirstaða framfara í vísindum og tækni er því öflugir rannsóknaháskólar með frjóan jarðveg fyrir grunnrann- sóknir og nýsköpun. Árangur há- skóla sem vilja kalla sig rann- sóknaháskóla stendur og fellur með því hvort þeir styðja við ný- liðun með því að skapa rann- sóknaumhverfi fyrir unga og efni- lega vísindamenn. Ungir vísindamenn t.d. nýdoktorar (sjá box) koma fremur en aðrir með nýja tækni, rannsóknaaðferðir og samstarfstengsl inn í vísinda- samfélagið og víðast hvar eru þeir daglegir leiðbeinendur og fyr- irmyndir meistara- og dokt- orsnema. Háskóli Íslands er eini háskóli landsins sem kemst nálægt því að geta talið sig alhliða rann- sóknaháskóla. Við hann eru stund- aðar rannsóknir sem bornar eru uppi af hugsjónafólki. Þó er það ljóst öllum þeim sem vilja sjá, að Háskóli Íslands á erf- itt með að standast samanburð við há- skóla í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. Háskóli Íslands – staða ungra vísindamanna Háskóli Íslands stendur á mik- ilvægum tímamótum hvað varðar þroska hans sem rannsókna- háskóla. Hvernig verður Háskóli Ís- lands, sem er í raun aðeins vísir að rann- sóknaháskóla, að full- burða rannsóknahá- skóla sem stendur jafnfætis bestu há- skólum á Norð- urlöndum að gæðum og afköstum. Höf- undar þessarar grein- ar koma úr heil- brigðis- og lífvísindum og er því nærtækast að taka dæmi úr þeim geira. Rann- sóknir í heilbrigðis- og lífvísindum eru enda mjög umfangsmiklar við flesta rannsóknaháskóla. Rann- sóknir á þessum sviðum byggjast að mestu á rannsóknahópum sem samanstanda af doktorsnemum, öðrum rannsóknanemum, meina- tæknum, nýdoktorum og yfirmanni sem í flestum tilfellum er ann- aðhvort prófessor eða dósent. Vöxtur framhaldsnáms við Há- skóla Íslands á síðustu árum hefur verið mikill og er það íslenskum rannsóknum happafengur. Þó hef- ur ekki verið hugað nægilega vel að tækifærum fyrir unga vís- indamenn að loknu námi og hvern- ig þjóðfélagið getur best nýtt sér krafta og þekkingu þess. Í dag hafa ungir og efnilegir vís- indamenn sem lokið hafa dokt- orsprófi afar fá tækifæri til að hasla sér völl við Háskóla Íslands. Eitt af helstu stefnumálum allra frambjóðenda til rektorskjörs Há- skóla Íslands 10. mars nk. er að efla Háskóla Íslands sem rann- sóknaháskóla. Frambjóðendurnir nefna að það þurfi meira fé til Há- skóla Íslands svo hægt sé að ná þessum markmiðum. Þessu erum við hjartanlega sammála en finnst þó við hæfi að spyrja hvernig Há- skóli Íslands eigi að verja þessu fé og hvernig bregðast skuli við ef ekki tekst að sannfæra stjórnvöld um nauðsyn þess að bæta fjárhag Háskóla Íslands? Þarf ekki heil- stæða rannsóknastefnu er tekur tillit til nýliðunar og mannsæm- andi launa? Römm er sú taug er rekka dreg- ur föðurtúna til og því hafa margir góðir Íslendingar fórnað mögu- legum frama í rannsóknum fyrir ættjarðarást. Þetta hefur dugað til að halda uppi þokkalegum kennsluháskóla (með rann- sóknaívafi) í Reykjavík, en ef við viljum alvöru rannsóknaháskóla þarf að virkja og nýta krafta ungra og upprennandi vísinda- manna með ögrandi rannsókna- spurningar mun betur í bland við þekkingu hinna eldri og reyndari. Ekki er hægt að einskorða þessa umræðu við uppbyggingu dokt- orsnámsins hérlendis. Það var áð- ur regla að þeir sem lögðu fyrir sig doktorsnám stunduðu það er- lendis. Íslendingar hafa farið víða til að sækja menntun sína sem gerir það að verkum að hér er fólk með fjölbreytta þekkingu. Smæðin eykur þverfaglega samvinnu sem aftur eykur líkurnar á því að ný- stárlegar hugmyndir fæðist. Það er grátlegt að ekki skuli vera jarð- vegur til að endurheimta hámennt- að fólk sem gæti lagt mikið af mörkum til samfélagsins. Innan Háskóla Íslands er þekking og reynsla þeirra sem lokið hafa doktorsprófi vannýtt auðlind og mætti jafnvel segja að þar sé stundað brottkast á þekkingu. Ef ekki verður breyting á mun Há- skóli Íslands staðna frekar í þroska og allt tal um uppbyggingu alvöru rannsóknaháskóla verða einungis orðin tóm. Öflug vís- indavirkni og mannsæmandi skil- yrði fyrir unga vísindamenn er forsenda þess að Háskóli Íslands nái fullum þroska sem rannsókna- háskóli. Þetta ætti nýkjörinn rekt- or, hver sem hann verður, að hafa í huga og setja úrbætur ofarlega á forgangsröð verkefna. Háskóli Íslands – staða mála – hvert stefnir? Pétur Henry Petersen, Erlendur Helgason, Þórarinn Guðjónsson og Zophonías O. Jónsson fjalla um stöðu Háskóla Íslands ’Helsta undirstaðaframfara í vísindum og tækni er því öflugir rannsóknaháskólar með frjóan jarðveg fyrir grunnrannsóknir og nýsköpun. ‘ Pétur Henry Petersen Dr. Pétur Henry Petersen er sér- fræðingur við Óslóarháskóla, dr. Er- lendur Helgason er sérfræðingur og lektor við Óslóarháskóla, dr. Þórarinn Guðjónsson er sérfræðingur við læknadeild Háskóla Íslands og Krabbameinsfélag Íslands og dr. Zophonías O. Jónsson er dósent við líffræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands. Erlendur Helgason Þórarinn Guðjónsson Zophonías O. Jónsson BS-grunnnám: Fræðilegur grunnur í viðkomandi fræði- grein Meistaranám: Vísindaleg hugs- un og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum Doktorsnám: Umfangsmikið rannsóknaverkefni. Birtingar í ritrýndum alþjóðlegum tíma- ritum. Nýdoktor: Fyrstu árin eftir doktorspróf. Hannar og stýrir rannsóknaverkefnum og leið- beinir meistara- og dokt- orsnemum í samstarfi við yf- irmann sinn. KÆRU samstarfsmenn við Há- skóla Íslands. Mig langar til að leggja orð í belg um kosningarnar sem fram- undan eru um rektorsstarfið við háskólann okkar. All- ir sem til þekkja vita að þetta er mjög þýð- ingarmikið starf sem getur vegna valdsins sem því fylgir skipt sköpum fyrir þróun háskólans á næstu ár- um. Ég vil taka fram í upphafi að ég hef að vandlega athuguðu máli ákveðið að styðja Einar Stefánsson, prófessor í augnlækn- ingum, í kosningum þessum. Harðskeyttir andstæðingar Einars, eins og nafnlausi hópurinn sem nýlega sendi órökstutt níðbréf um hann hér á hi-starf vegna starfs Einars á árunum 2000–2002 fyrir Íslenska erfðagreiningu, geta því hætt núna að lesa þetta bréf þar sem það getur hugsanlega komið þeim í vont skap. Þetta val er ekki auð- velt því að allir eru frambjóðend- urnir fjórir heiðursfólk og sumt jafnvel líklegt til að standa fyrir nauðsynlegum breytingum á starfsumhverfi okkar. En áður en ég rökstyð þessa ákvörðun mína vil ég koma að tveimur atriðum, henni alls óskyldum. Fyrst vil ég skýra hver ég er, þessi afskiptasami bréfs- endari, þótt margir viðtakendur pistilsins þekki mig vafalaust. Ég er prófessor í sagnfræði og fædd- ist í mars 1938, starfi mínu lýkur sem sagt á rúmlega miðju kjör- tímabili næsta rektors leyfi slíkt líf og heilsa. Fyrir utan alls kyns fræðistörf er ég sennilega jafnvel þekktari fyrir stjórnmálaafskipti, einkum blaðaskrif í þá veru. Ég hef allt frá unglingsárum verið virkur í starfi vinstri flokka, lengst í Alþýðubandalaginu sáluga en nú í Samfylkingunni. Þetta kemur vali mínu á rektor við að því leyti að ég hef horft lengi á refskák stjórnmálanna. Við starfsmenn Háskólans erum í einstakri aðstöðu við að velja valdamennina sem stjórna starfsum- hverfi okkar. Við kjósum þá! Þetta er réttur sem enginn annar í samfélaginu hefur, við búum við starfsmannalýðræði sem á rætur í hug- myndum um akadem- ískt sjálfstæði og frelsi. Það er okkur mjög mikils virði að þetta sjálfstæði verði í engu skert en til þess þurfum við að vera virk, hleypidómalaus og skynsöm í vali okkar. Við megum ekki láta það ráða hvort við erum persónulegir vinir frambjóðanda, hvort okkur líkar persónulega vel við hann eða hana. Allt of oft hafa kosningar til starfa í háskólanum ráðist af öðrum ástæðum en þeim hver er hæfastur til þess. Oft er sá/sú valin(n) sem er minnst um- deild(ur), sem fæstar skoðanir hefur látið í ljós, sem engum líkar illa við og það er þá gert að auka- atriði hve vel viðkomandi ræður við starfið. Við þurfum öll að átta okkur á þessum galla sem er inn- byggður í starfsmannalýðræðið því að gerum við það höfum við yfirunnið gallann að mestu leyti. Sem sagt: við kjósum þann sem við teljum vera hæfastan til starfsins en ekki þann sem okkur líkar best við af því að viðkomandi er í deildinni okkar eða er per- sónulegur kunningi/vinur. Við get- um ekki leyft okkur munað hins persónulega velvilja í þessari kosningu. Snúum okkur nú beint að frambjóðendum í þessum kosn- ingum. Aldrei þessu vant hef ég hlustað meira á meiningar ann- arra en sagt mínar um óæskilega rektorinn því að á þessu stigi í kosningunum eru flestir að útiloka einhverja til að geta endanlega valið einhvern. Slíkur er að mörgu leyti eðlilegur gangur lýðræðisins í persónubundinni kosningu en segir einnig mikið um hvernig kjósendur velja. Því miður spyrja fáir hver er hæfastur til starfsins heldur er meira rætt um marg- breytilega galla þessa og hins sem yfirleitt koma rektorsstarfi ná- kvæmlega ekkert við! Staðhæft er t.d. að vont sé að kjósa mann úr læknastétt því að læknar hugsi að- eins um hagsmuni lækna. Almenn og umdeilanleg „regla“ er sett fram og hún síðan í heild sinni yf- irfærð á einn mann. Fram er kom- ið að sá hinn sami hafi „einhvern tíma“ unnið fyrir fyrirtækið Ís- lenska erfðagreiningu. Um annan frambjóðanda er sagt að hann hafi verið virkur í stjórnmálum, í röng- um flokki að mati viðkomandi. Er umræða af þessari gerð há- skólakennurum til sóma? Tekið skal fram að ég hef ekkert nei- kvætt heyrt sagt um tvo fram- bjóðendur, Jón Torfa Jónasson og Kristínu Ingólfsdóttur. Bæði virð- ast þau vera hvers manns yndi. Þau virðast ekkert rangt hafa gert en ekkert sérlega mikið heldur. Þetta virkar ekki vel á mig! En ljóst er að þau okkar sem vilja sem minnstu breyta í starfsemi háskólans og vilja að aldrei sé stuggað við pólitískum yfirvöldum geta valið milli þesara tveggja frambjóðenda. Hugmynd mín um æskilegan rektor er þessi: Rektor verður að hafa bæði aðstöðu og dug til að krefjast þess að ríkisvaldið standi við fyrri samninga við háskólann og helst betur um fjárveitingar til háskólans. Hann verður að standa öflugan vörð um rannsókn- arhlutverk háskólans og koma á stórauknum styrkjum til nemenda sem stunda rannsóknir, ekki síst í tengslum við meistara- og dokt- orsnám. Hann verður að hafa kjark og vit til að breyta því sem breyta þarf í skipulagi háskólans. Hann verður að standa skeleggur gegn öllum tilraunum til að koma á skólagjöldum. Hann verður að styrkja sem best alþjóðleg tengsl háskólans. Hann verður að vera sanngjarn í samskiptum sínum við einstakar deildir og skorir skólans og hafa víðtæka yfirsýn. Að vandlega athuguðu máli treysti ég Einari Stefánssyni allra rektorsframbjóðenda best til að mæta þeim væntingum sem ég hef útlistað hér. Auk þess fagna ég því að Einar hefur í skrifum sín- um sýnt að hann er stuðnings- maður opinberrar félagslegrar ábyrgðar og er fulltrúi víðsýnnar menningarstefnu. Miðað við nú- verandi aðstæður í samfélaginu er ekki verra að hann er í Sjálfstæð- isflokknum og með rótgróin tengsl þar; enginn mun geta ásakað þennan fulltrúa borgaralegs frjáls- lyndis um að reka erindi stjórn- arandstöðu þegar hann leitar fundar við núverandi valdhafa landsins um bætta stöðu Háskóla Íslands. Hví styð ég Einar Stefánsson? Gísli Gunnarsson fjallar um rektorskjör við HÍ ’Við starfsmenn Há-skólans erum í einstakri aðstöðu við að velja valdamennina sem stjórna starfsumhverfi okkar. ‘ Gísli Gunnarsson Höfundur er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. ÝMISLEGT í þjóðtrúnni er reist á reynslu og skemmtilegri eftirtekt. Eftir harðindi um þetta leyti árs, þegar heystabbinn var farinn að minnka, fóru menn að hafa auga með öllum hugsanlegum teiknum um betri tíð. Eitt af þess- um veðurmerkjum var vermi- steinninn sem Sankti Pétur átti að fara með í jörðina sunnudaginn í miðgóu, en hann er einmitt í gær, 7. mars. Þá átti að fara að holast undan fönnum, „húsa frá“, og svell að flísast frá jörðu. Þetta fyrirbæri kannast flestir við, að jaðrar snjó- skaflanna fari að lyftast frá jörðu og mynda eins konar þunna egg. Auðvitað er það ekki nákvæmlega þennan dag sem þessa fer að verða vart, en líkurnar eru samt miklar og vaxandi um þetta leyti. Sólin fer nú að hækka meira á hverjum degi en á öðrum árstímum og er komin í um 20° hæð um hádegið. Jörðin, grjótið eða sandurinn, er dekkri og tekur til sín meiri sólaryl en snjór- inn, með þessum afleiðingum. Þetta má til dæmis sjá þar sem snjó hefur verið ýtt í hrauka hér í höfuðborginni og víðar, einkum sunnan í sköflunum. Þetta er lítið dæmi um menningu sem ætti ekki að gleymast og gleður hug okkar líkt og fyrri kynslóða þótt í litlu sé. Páll Bergþórsson Vermisteinn Sankti Péturs Höfundur er veðurfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.