Morgunblaðið - 07.03.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 25
Bækurnar að vestan í Perlunni.
Bækurnar að vestan verða á
Bókamarkaðnum í Perlunni til 13.
marz. 50 titlar í boði. Vestfirskt
bókasafn á verði við allra hæfi.
Vestfirska forlagið.
Kynning! 20% afsláttur af Robur
100% vistvæna sænska hunda-
fóðrinu. Engin rotvarnarefni, ek-
kert fiskimjöl. Minna hárlos.
Dýralíf.is
Dvergshöfða 27, s. 567 7477.
www.infrarex.com - netverslun
Dúndurnettilboð og í mars. In-
frarex rafeindahitatæki. Eyðir
bólgu og er verkjastillandi f. t.d
liðagigt, slitgigt, brjósklos, vefja-
gigt, bakverk, axlameiðsl, slitna
hásin og tognun. Tilboðsverð að-
eins 5.950. Póstsendum um allt
land. Frír sendingarkostnaður.
Upplýsingar í síma 865 4015.
NÝTT NÝTT NÝTT
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15, þú?
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Herbalife
Frábærar heilsu- og megrunar-
vörur. Aðstoð veitt ef óskað er.
www.slim.is - www.slim.is
Ásdís - 699 7383.
Snyrtisetrið
Treatment fyrir andlit. Byggir upp
húð og bandvef. Betra en Botox!?
Árangur strax.
SNYRTISETRIÐ,
Domus Medica, s. 533 3100.
Taktu augl. með - 15% afsláttur.
Skartgripagerð með glerperlum
- Námskeið. Rússneskur spírall
- armband - allt innifalið kr. 2.500.
Þú velur lit. www.fondur-
stofan.net - S. 690 6745, Síðumúla
15. Opið mán. 10-13, mið. 16-
17:30, fös. 10-13.
Tékknesk postulínsmatarsett.
Mikið úrval - frábært verð.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi,
s. 544 4333 og 820 1071.
G-strengir í miklu úrvali. Yfir 80
tegundir. Verð frá aðeins 350 kr.
Allt Smart,
Laugavegi 46, sími 551 1040.
Húsfélög og hönnuðir. Eigna-
skiptayfirlýsingar og skráninga-
töflur. Hönnun og breytingar.
GES, s. 895 7127 / 824 7587.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslimælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Reykjavík,
Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri,
Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri og í
Radíovinnustofunni Kaupangi Akureyri.
Verð kr. 200
F st í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, eykjavík,
Shel stöðinni v/ örgárbraut, Akureyri,
Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri og í
adíovinnustofunni Kaupangi Akureyri.
Verð kr. 200
Ofsa sætur, hægt að taka hlýrana
af, fæst í A-, B- og C-skálum kr.
1.995. Hipster-buxur og banda-
buxur í stíl kr. 995.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Heilsunnar vegna
Heilsuskór með innleggi í stærð-
um 36-47.
Fást í rauðu, svörtu og brúnu.
Verð kr. 5.685.
Sérlega léttir og þægilegir herra-
skór úr leðri í stærðum 41-47.
Verð kr. 6.975.
Misty-skór,
Laugavegi 178, s. 551 2070.
Fagleg ráðgjöf - góð þjónusta
Síur fyrir þrýstiloft. Fjarlægðu
óhreinindi, vatn og olíu úr vinnu-
loftinu hjá þér. 5, 2, 0.3 og 0.01
míkronsíur. Með og án sjálfvirkr-
ar aftöppunar. Loft og raftæki, s.
564 3000. Smiðjuvegi 14.
www.loft.is
Lokar. Rafstýrðir og loftstýrðir
lokar. Fyrir vatn, loft, gufu og
olíu. Úr messing eða ryðfríu.
Hitaþolnir. Ýmsar stærðir. Loft og
raftæki, s. 564 3000. Smiðjuvegi
14. www.loft.is
500 Bör, háþrýstidæla til sölu.
Með öllum búnaði. Verð 800 þús.
án vsk. Uppl. í síma 862 8038.
Ford árg. '02, ek. 32 þús. km.
Marg verðlaunaður bíll frá Ford.
Þessi er eins og nýr. Sóllúga,
fjarstýring í stýri, heilsársdekk
o.fl. Nánari upplýsingar á
www.rafholt.is/focus eða hjá
Borgþóri í 699 0991.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Brenderup Bravo 260 S. Mál:
260x145 cm, burðargeta 500 kg.
Tréskjólborð. Úrval af kerrum &
vinnulyftum á www.lyfta.is. Hafið
samband í síma 421 4037 eða
lyfta@lyfta.is
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Húsgögn fyrir fermingarbarnið
og fl. Flott beykiskrifborð og
skápur úr Húsgagnahöllinni, 18þ.
Amerískt rúm 95x190, 10þ. Svört
hillusamstæða (3 misháar eining-
ar)10þ. Þrekstigi, 3þ. Borðtennis-
borð í fullri stærð, 10þ. Uppl. í
síma 567 2499/698 2499
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
RAÐAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, tók
um helgina fyrstu skóflustunguna
að nýjum námsmannaíbúðum í
Grafarholti. Borgarráð veitti Bygg-
ingafélagi námsmanna (BN) leyfi til
að byggja nemendagarða á Klaust-
urstíg og Kapellustíg í Grafarholti.
Um er að ræða 13 fjölbýlishús með
alls 200 íbúðum fyrir félagsmenn.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Byggja 200 námsmannaíbúðir
TÍU stofnfjáreigendur í Sparisjóði
Hólahrepps hafa ákveðið að höfða
staðfestingarmál til ógildingar á
ákvörðun stofnfjáreigendafundar
sjóðsins 24. nóv.sl. Verður málið
þingfest fyrir Héraðsdómi Norður-
lands vestra 8. mars n.k
Hæstiréttur staðfesti lögbannsúr-
skurð héraðsdóms á stofnfjáraukn-
ingu Sparisjóðs Hólahrepps eins og
hún var lögð upp af þeim sem nú
stýra sjóðnum.
„Vafi leikur ennfremur á um lög-
mæti þess, að stofnfjárhlutir í eigu
fyrirtækjasamstæðu Kaupfélags
Skagfirðinga voru færðir yfir á lyk-
ilstjórnendur Kaupfélagsins og fjöl-
skyldur þeirra skömmu fyrir fund-
inn að því er virðist í þeim eina
tilgangi að ná sparisjóðnum undir
sig.
Sumum kann að finnast það lítið
mál að fara ekki að lögum. Við erum
ekki þeirrar skoðunar. Þetta mál
Sparisjóðs Hólahrepps snýst enn-
fremur um, hvort það eigi að við-
gangast að fjársterkir aðilar geti
bundist samtökum um að beita yf-
irgangi og jafnvel lögleysu í trausti
þess að enginn fái risið upp til varn-
ar.
Sparisjóður Hólahrepps var í
öruggri uppbyggingu fram á sl. ár
undir styrkri stjórn þáverandi spari-
sjóðsstjóra, Kristjáns Hjelm. Við
sjóðinn störfuðu 4 einstaklingar. En
með ákvörðunum meirihlutans sem
Magnús Brandsson, sparisjóðsstjóri
í Ólafsfirði myndaði með fulltrúum
Kaupfélagsins í stjórninni, hefur
sjóðurinn tapað bæði fjármunum og
viðskiptavild. Við lýsum því allri
ábyrgð á stöðunni nú á þeirra hend-
ur.
Á undanförnum misserum hafa
verið settar fram tillögur að stofn-
fjáraukningu á þeim grunni að fá
fleiri stofnfjáreigendur að sjóðnum,
bæði einstaklinga og sparisjóði.
Þessum tillögum var hafnað jafnóð-
um af Kaupfélagsmönnum.
Í samræmi við það, sem nú hefur
fengið stuðning með dómi Hæsta-
réttar teljum við kosningu núverandi
stjórnar Sparisjóðsins ólöglega og í
ljósi takmarkaðs umboðs hennar er
það einlæg von okkar að þeir sem nú
ráð ferð í stjórn sjóðsins vinni Spari-
sjóðnum ekki frekara tjón en þeir
hafa nú þegar gert uns mál sjóðsins
skýrist frekar.
Við viljum að starfað sé í anda laga
um sparisjóði og höfum það markmið
að efla Sparisjóðinn sem sjálfstæða
fjármálastofnun í heimabyggð. Er-
um við eins og áður reiðubúnir til
samstarfs á þeim grunni. Væntum
við stuðnings Sparisjóðasambands-
ins, svo og heimamanna í Skagafirði
til þess að svo megi verða.,“ segir í
yfirlýsingu frá hópi stofnfjáreig-
enda.
Höfða staðfesting-
armál vegna Spari-
sjóðs Hólahrepps
Fundur
um þróun
íslenska
velferðar-
kerfisins
NORRÆNA ráðherranefndin
og Norðurlandaráð, í samvinnu
við Norræna húsið og Norður-
löndin í fókus, boða til opins
fundar um þróun íslenska vel-
ferðarkerfisins. Fundurinn fer
fram í Norræna húsinu mið-
vikudaginn 9. mars, kl. 14 og er
aðgangur ókeypis.
Rannveig Guðmundsdóttir,
forseti Norðurlandaráðs, opnar
fundinn en síðan munu prófess-
or Stefán Ólafsson og Sigríður
Jónsdóttir, félagsfræðingur og
framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs Félagsþjónustunnar í
Reykjavík, fjalla um stöðu
mála. Umræður verða í fund-
arlok.
Í nýrri bók sem Norður-
landaráð og Norræna ráð-
herranefndin hafa gefið út, er
tekinn saman fróðleikur og
kynntar nýjar hugmyndir um
hvernig viðhalda megi velferð-
arkerfinu. Ellefu norrænir
stjórnmálamenn, fræðimenn og
blaðamenn setja þar á blað
hugleiðingar sínar og rann-
sóknarniðurstöður. Meðal höf-
unda eru Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og dr. Stefán Ólafs-
son.
ALMENNUR félagsfundur sem
haldinn var í Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði í Reykjavík hefur
samþykkt að ítreka þá stefnu sem
fram kom í yfirlýsingu frá stjórn fé-
lagsins 22. febrúar síðastliðinn um
málefni Landsvirkjunar:
Í ályktun stjórnarinnar sagði:
„Vinstrihreyfingin - grænt framboð í
Reykjavík leggur áherslu á að eitt af
meginstefnumálum flokksins er að
grunnþjónusta samfélagsins sé rek-
in á félagslegum forsendum og sé í
almanna eigu. Nú þegar iðnaðarráð-
herra hefur lýst því yfir fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar að til standi að
setja Landsvirkjun á markað er ljóst
að VG í Reykjavík hlýtur að leggjast
eindregið gegn fyrirhugaðri sölu á
hlut borgarinnar í Landsvirkjun.“
VG á móti sölu
Landsvirkjunar