Morgunblaðið - 07.03.2005, Side 26

Morgunblaðið - 07.03.2005, Side 26
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes VÆRI ÞÉR SAMA? AFSAKIÐ HVAÐ ER Í GANGI? HANN ER Í STURTU HÉRNA ER ÉG Á HUNDA- BÝLINA AÐ FARA AÐ HALDA RÆÐU ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ KYNNA MIG... AHEM! ÞAÐ ER KOMIN NÝ STELPA Í BEKKINN HVAÐ HEITIR HÚN? HVER VEIT?! ER HÚN SÆT? HVERJUM ER EKKI SAMA?! ERTU SKOTINN Í HENNI? NEI! Litli Svalur © DUPUIS HRAÐAR! OG Í TAKT, REYKTU BREKKUSNIGLARNIR YKKAR! ÉG VIL AÐ ÞIÐ STAFLIÐ ÞESSUM LÓÐUM HINUM MEGINN VIÐ VÖLLINN. ÞETTA ER GÓÐ BYRJUN TIL AÐ RÆKTA VÖÐVANA PPPFF! ÞETTA ER SVO SVAKALEGA ÞUNGT KENNARI PFFF... SVAKALEGA ÞUNGT... KRAFTLAUSU STRÚTAR... JÆJA GAMLINGI! ÁTTU ERFITT MEÐ AÐ VAKNA?! FINNDU VÖÐVANA SEM VIÐ RÆKTUÐUM! ALLT ÞÉR AÐ ÞAKKA ÞÚ ÆTTIR AÐ HREYFA ÞIG MEIRA, ANNARS FÆRÐU LIÐAGIGT OG VÖÐVARNIR RÝRNA ÚPS! HANN BROTNAÐI Í ÞÚSUND MOLA EKKERT MÁL! ÉG SKAL LAGA HANN NEI! EKKI BERJA MIG! NEI! ZZZ ÞESSI KYNSLÓÐ... ZZZ... LETINGJ... ZZZ... AR...ZZZZ ÖÖÖ... LEGGIST STRAX NIÐUR! NÚ ER HVÍLDARTÍMI!! ? ? ? ? Dagbók Í dag er mánudagur 7. mars, 66. dagur ársins 2005 Víkverji vakti frameftir nóttu til að horfa á beina útsend- ingu frá Ósk- arsverðlaunaafhend- ingunni vestur í Kaliforníu fyrir viku. Það vakti athygli hans, í ljósi baráttu íþrótta- fréttamanna á Stöð 2 og Sýn fyrir því að SkjárEinn verði látinn fara að lögum, hvað það varðar að þýða lýs- ingar frá beinum út- sendingum í ensku knattspyrnunni, að Stöðvar 2-menn gerðu enga tilraun til að þýða þá dagskrá sem þeir endurvörpuðu til landsmanna hér á Fróni. Þvert á móti rann öll dagskráin í gegn án slíkra þýðinga, meira að segja um klukkustundar löng dagskrá á undan hinni eiginlegu verðlaunaafhendingu en þar ræddu bandarískir sjón- varpsmenn stuttlega við stjörnurnar er þær mættu til Kodak-hallarinnar í Hollywood, þar sem hátíðin fór fram. x x x Talandi um Óskarsverðlaunin, þaðer erfitt annað en gleðjast yfir velgengni Clints gamla Eastwood, hann virkaði svo jarðbundinn og þakklátur er hann tók við verðlaunum sínum á hátíðinni en East- wood var kjörinn besti leikstjóri ársins og mynd hans, Million Dollar Baby, sú besta. Aldrei þessu vant var Víkverji búinn að sjá flestar myndanna, sem til greina komu, og á erfitt í sjálfu sér með að setja út á valið að þessu sinni; ólíkt fyrri árum. Million Dollar Baby er afar sterkt drama og leikararnir standa sig frábærlega. Á hinn bóginn er myndin Sideways, sem einnig var til- nefnd sem besta mynd ársins, í miklu uppáhaldi hjá Víkverja. x x x Víkverji fór í teiti um daginn og þarkom til umræðu það brjálæði sem hefur átt sér stað á fast- eignamarkaðnum. Vakti það athygli Víkverja að af um tuttugu gestum í veislunni hafði einmitt meira en helmingur viðstaddra skipt um hús- næði á undanförnum sex mánuðum eða svo. En getur þetta haldið svona áfram? Verða ekki brátt allir búnir að skipta?! Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is             Menntaskólinn í Reykjavík | Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram á dögunum, en verðlaun voru afhent á sal Lærða skólans í gær. Keppt var í þremur stigum, 8., 9. og 10. bekk. Alls komu 234 nemendur til leiks og hefur keppnin vaxið mjög undanfarin ár. Sigurvegari efsta stigs, Hlín Önnudóttir, hefur unnið það afrek að sigra á sínu stigi þrjú ár í röð, en hún er nú í tíunda bekk Hagaskóla. „Sumar spurn- ingarnar voru dálítið snúnar, en almennt gekk þetta vel,“ segir Hlín, sem segir stærðfræðina verða skemmtilegra viðfangsefni þegar keppni sé í spilinu. Hlín segist ætla að fara á raungreinabraut í framhaldsskóla, en ekki sé enn ákveðið hvaða skóli verði fyrir valinu, né heldur hvað liggi fyrir eftir framhaldsskólanámið. „Ég hef áhuga á mjög mörgu og get fundið eitthvað heillandi við hvað sem er. Pabbi minn er búinn að vera að kenna mér ýmsa stærðfræði svona að gamni en ég man ekki eftir því að mér hafi nokkurn tíma fundist stærðfræði óáhugaverð. Hún er heillandi, það er einhver æðri sannleikur í henni.“ Morgunblaðið/Þorkell Ungur stærðfræðingur MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.