Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 27 DAGBÓK 80 ÁRA afmæli. Í dag, 7. mars, eráttræð frú Sjöfn Gestsdóttir, Lindargötu 57, Reykjavík. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Konur innan Öryrkjabandalags Íslands(ÖBÍ) hafa undanfarið ár staðið aðundirbúningi stofnunar sérstakrarkvennahreyfingar ÖBÍ, en hún verð- ur formlega stofnuð á morgun, 8. mars, kl. 20, í húsnæði ÖBÍ að Hátúni 12. Undirbúningurinn hófst þegar hópur fatlaðra og langveikra kvenna fór að hittast reglulega. Þeim fannst þær hafa reynslu af því að veik- indi eða fötlun þeirra væru ekki tekin nógu al- varlega. Eins fannst þeim atvinnumöguleikar litlir, þrátt fyrir getu margra kvenna eða menntunar innan þeirra raða, til margra ólíkra starfa. Að sögn Jóhönnu Leopoldsdóttur, sem hefur starfað í undirbúningshópnum, hefur fjöldi rannsókna, sem gerðar hafa verið erlendis síð- ustu ár, staðfest að fatlaðar og langveikar kon- ur berjast við fleiri og ólíkar myndir fordóma en aðrar konur eða fatlaðir karlmenn. „Meðal annars hefur komið í ljós að greiningaraðferðir og meðferð við sjúkdómum hafa lengst af verið unnar út frá körlum og með karla í huga. Í sumum erlendum rannsóknum hefur komið í ljós að læknar eiga í erfiðleikum með að greina aðra sjúkdóma hjá konum en þá sem þær hafa vegna fötlunar sinnar. Einnig er nú gagnrýnt að lengst af hafa lyfjarannsóknir og lyfjaþróun eingöngu verið unnar og rannsakaðar á körlum og fyrir karla,“ segir Jóhanna. „Markmið hreyfingarinnar er að efla gagnrýna umræðu um málefni fatlaðra og langveikra kvenna á öll- um sviðum þjóðlífsins. Bæta hag þeirra, efla atvinnumöguleika, eyða fordómum, stuðla að samstöðu, efla samvinnu og hvetja til rann- sókna, öllum fötluðum og langveikum til hags- bóta. Þetta verður nokkurs konar þver-kvenleg hreyfing innan ÖBÍ.“ Hvernig hafa kynin ólíkar þarfir þegar fólk veikist eða fatlast? „Við þessar aðstæður er veruleiki kynjanna ólíkur. Ef ég nefni dæmi, þá höfum við ólík hlutverk, jafnt innan fjölskyldunnar, á einka- sviðinu og úti í þjóðfélaginu. Síðan hefur komið í ljós að kynin fá ólíka meðferð innan heil- brigðis- og tryggingakerfisins en annars staðar í samfélaginu, en það er mjög dulið. Þessi mis- munur er ofsalega mikið undir yfirborðinu. Þá má segja að launamunur kynjanna margfaldist þegar kemur að lífeyrisgreiðslum. Þetta er bæði hagsmunamál varðandi prakt- íska hluti en ekki síður svo að við skiljum af hverju veggirnir sem við hittum fyrir eru alltaf með átta hornum, af hverju svo margar fatl- aðar og langveikar konur lenda í óþarflega mörgum árekstrum. Það er skrýtið að lenda í því að vera mismunað eftir kynferði í veik- indum, það kemur manni á óvart.“ Jafnréttismál | Kvennahreyfing innan Öryrkjabandalagsins stofnuð á morgun Veruleiki kynjanna ólíkur  Jóhanna Leopolds- dóttir er fædd árið 1956 í Reykjavík. Hún lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum á Bif- röst 1976 og stúdents- prófi frá Samvinnu- skólanum í Reykjavík 1987. Hún nemur nú guð- og kynjafræði við Háskóla Íslands, þegar heilsan leyfir. Jóhanna rak kaupfélagsútibú á Vegamótum á Snæfells- nesi um níu ára skeið. Þá hefur hún starfað við rekstur tengdan ferðaþjónustu auk þess að starfa í félagsstörfum m.a. fyrir UMFÍ. Jóhanna er í sambúð með Helga Guðmunds- syni og á þrjú börn. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Bókabíllinn kl. 13.30, félagsvist kl. 14, vinnustofa og leik- fimi kl. 9, boccia kl. 10, allir velkomnir. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–16.30, söngstund kl. 10.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 10–13.45 leikfimi, kl. 11.15– 12.15 matur, kl. 13–16 brids, kl. 13–16 samverustund með Guðnýju, kl. 14.30–15.30 kaffi. FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, mánu- dagur 7. mars, kl. 13–16, spilað, teflt, spjallað. Handavinnuhornið. Kaffi að hætti Álftnesinga. Félag eldri borgara Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línudanskennsla byrjendur kl. 18. Samkvæmisdans framhald kl.19 og byrjendur kl. 20. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl 10 til 11.30. Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Gullsmára 13. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK Gullsmára 13 spilar mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á hádegi. Eldri borgarar vel- komnir. Þátttökugjald kr. 200.–. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl.10 og kl. 11, bókband kl. 10, postulín kl. 13, pílukast og spilað í Garðabergi kl. 12.30, tölv- ur í Garðaskóla kl. 17. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns- málun, keramik, perlusaumur, korta- gerð og nýtt t. d. dúkasaumur, dúka- málun, sauma í plast, kl. 10 fótaaðgerð og bænastund, kl. 12 há- degismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 glermálun o.fl. umsjón Sig- rún, jóga kl. 9–11, frjáls spilamennska kl. 13–16, böðun virka daga fyrir há- degi, fótaaðgerðir. Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi á morgun kl. 9.30 í Grafarvogslaug. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Brids í kvöld kl. 19. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leik- fimi, kl 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 kóræfing, kl 14.30–15.45 kaffi- veitingar. Kirkjustarf Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2 kl. 19. Þáttur frá Fíladelfíu „Vatnaskil“ sýndur á Omega kl. 20. www.gosp- el.is Akureyrarkirkja | TTT-starf (5.–7. bekkur) kl. 15. Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf 6–7. bekkur. Alla mánudaga kl. 16.30–17.30. Æskulýðsstarf f. 8.–10. bekk, alla mánudaga kl. 20–22. Laugarneskirkja | Kl. 18 opinn 12 spora fundur í safnaðarheimilinu. Vinir í bata. Kl. 20 Kvenfélag Laug- arneskirkju fundar. Allar konur vel- komnar. Munið www.laugarneskirkja- .is. Morgunblaðið/Ómar Seyðisfjarðarkirkja Brúðkaup | Gefin voru saman 21. ágúst sl. í Akureyrarkirkju af sr. Svav- ari Alfreð Jónssyni þau Valgerður Maack og Haukur Jónsson. Þau eru búsett í Reykjavík. Ljósmynd: Dagsljós/Finnbogi RAÐ- AUGLÝSINGAR Fundir/Mannfagnaður Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags verður haldinn mánudaginn 14. mars kl. 20.00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Nesvegur 9, sumarhús, fnr. 212-7071, Súðavíkurhreppur, þingl. eig. Lárus Einarsson, v/5402830369, gerðarbeiðandi Tollstjóraem- bættið, föstudaginn 11. mars 2005 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 4. mars 2005. Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi. Félagslíf  MÍMIR 6005030719 II  HEKLA 6005030719 VI/V  GIMLI 6005030719 III I.O.O.F. 10  18503078  M.A.* Stórmót í Hollandi. Norður ♠ÁK74 ♥– ♦532 ♣986532 Vestur Austur ♠G10832 ♠95 ♥K10542 ♥G983 ♦Á8 ♦1074 ♣K ♣ÁD104 Suður ♠D6 ♥ÁD76 ♦KDG96 ♣G7 Sveitin frá Ísrael, sem vann NEC- mótið í Japan fyrir skömmu, var meðal keppenda í hollenska stór- mótinu í Utrecht um síðustu helgi, en náði ekki flugi þar og endaði í 11. sæti af 32 sveitum. Yadlin-bræður, Israel og Doron, sýndu hins vegar góða takta í vörn- inni í spilinu að ofan. Suður varð sagnhafi í fimm tíglum – sem er auð- vitað andvana fæddur samningur – en þeir bræður náðu spilinu tvo nið- ur. Vestur kom út með laufkóng og austur yfirdrap og tók laufdrottn- ingu. Þar með voru þrír slagir öruggir, því trompásinn stóð fyrir sínu, en spurning dagsins er þessi: Á hvaða spil fékk vörnin fjórða slaginn? Lítum á hvernig spilið þróaðist: Doron í austur spilaði áfram laufi í þriðja slag og suður stakk frá með kóng. Sagnhafi tók hjartaás, trompaði hjarta, spilaði spaða á drottningu og trompaði enn hjarta, tók spaðaás og reyndi spaðakóng, en austur stakk með tíu og suður yfirtrompaði. Sagnhafi trompaði síðasta hjartað í borði og spilaði spaða, sem austur rak í með trompsjöunni. Suður varð enn einu sinni að trompa hátt, svo nú var vestur kom- inn með gaffal í tíglinum, Á8 yfir G6. Tíguláttan varð sem sagt fjórði slagur varnarinnar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Vísindabókin er komin út í þýðingu Ara Trausta Guð- mundssonar. Vís- indabókin er aðgengilegt og ríkulega myndskreytt rit um sögu vísindanna. Hér er greint frá 250 merkum vís- indaafrekum frá upphafi vega til dagsins í dag í máli og myndum. Þannig fæst einstæð og yfirgrips- mikil sýn á það hvernig skilningur mannsins á umhverfi sínu hefur þróast í tímans rás. Bókin varpar ljósi á það að vísindaleg hugsun hefur ekki aðeins gjörbreytt hvers- dagslífi okkar, heldur líka skyn- bragði okkar á það hver við erum og hvernig heimurinn er. Fjallað er um merkileg framfara- spor í líffræði, eðlisfræði, stjörnu- fræði, heimsfræði, jarðfræði, lækn- isfræði og stærðfræði og er gerð grein fyrir hverjum atburði, uppgötv- un eða uppfinningu á einni opnu með ljósum og liprum texta og lýs- andi myndverki. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 528 bls. Tilboðsverð í mars: 3490 kr. Vísindi ÁSDÍS Sif Gunnarsdóttir listakona fjallar um eigin verk og sýningar sem hún hefur haldið á undanförnum árum í fyrirlestri í stofu 024 í LHÍ, Laugarnesvegi 91, kl. 12.30 í dag. Ásdís útskrifaðist með BFA gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MFA gráðu frá UCLA, Los Angeles 2004. Hún leggur áherslu á gjörninga og myndbandalist. Á síðustu árum hefur hún unnið innsetningar í rými þar sem hún blandar saman myndbandsverkum og ljósmyndum sem teknar hafa verið út úr mynd- bandsverkunum. Morgunblaðið/Golli Fyrirlestur um myndbandsverk í LHÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.