Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.03.2005, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30  Kvikmyndir.is.  S.V. Mbl. HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. B.i 16 ára. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8 OG 10.30.  Mbl.  DV GOLDEN GLOBE VERÐLAUN Besti leikari - Jamie Foxxti l i i i Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10. B.i. 12 ára.  J.H.H. Kvikmyndir .com GERARD JUGNOT FRANÇOIS BERLEAND KAD MERAD Sýnd kl. 6 og 8. KÓRINN Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6 og 9.10. B.i. 12 ára.  M.M.J.kvikmyndir.com  Ó.H.T. Rás 2 Besta mynd ársins Besti Leikstjóri - Clint Eastwood Besta Leikkona - Hillary Swank Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman Besti Leikari - Jamie Foxx Besta hljóðblöndun H.L. Mbl. S.V. MBL. Kvikmyndir.is DV H.J. Mbl. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 6 og 9. Tilnefnd til 3 Óskarsverðlauna Frumsýning Óperudraugurinn Fru sýning per dr ri Heimsins stærsti söngleikur birtist nú á hvíta tjaldinu í fyrsta sinn! J A M I E F O X X Mynd eftir Joel Schumacher.Byggt á söngleik Andrew Lloyd Webber. Með Íslandsvininum, Gerard Butler (Bjólfskviða), Emmy Rossum (Mystic River) , Miranda Richardson og Minnie Driver LEONARDO DiCAPRIO  M.M. Kvikmyndir.com Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA Lengi vel var til siðs að fágestahljómsveitir til aðspila á Músíktilraunum. Íkringum ’92 eða ’93 spil- aði rokksveitin ógurlega Ham við mikla kátínu að vanda. Þetta til- tekna kvöld lék gestaorgelleikari með Ham, sat hann úti í horni og lét lítið fyrir sér fara. Var hann kynntur sem Ýsa Fílabein en glöggir gestir greindu þarna sjálfa Björk Guð- mundsdóttur sem lagði þarna einni af sínum uppáhaldshljómsveitum lið.    Blað var brotið í sögu Músíktil- rauna árið 1999 hvað fjölda manns á sviði áhrærir en þá fór talan niður í núll. Þetta var um það leyti sem raf- og tæknósveitir fóru mikinn og var tónlistin þá unnin mestanpart á tölv- ur. Áhorfendur voru farnir að velta því fyrir sér hvort menn væru kannski að leggja kapal í skjóli tölv- unnar sem rogast var með upp á svið enda tónlistin oft mikið til forunnin. Meðlimir einnar sveitarinnar voru því ekkert að skafa utan af því eitt kvöldið, skelltu geisladiski í græj- urnar, og sátu svo úti í sal á meðan lögin þeirra þrjú ómuðu uppi á gal- tómu sviðinu. Upp úr þessu spruttu miklar umræður, bæði hjá þátttak- endum og aðstandendum tilraun- anna, hvort meðlimum hljómsveita bæri ekki að koma fram á einhvern hátt. Rafsveitin Jah ákvað að hlíta þessu og meðlimir spiluðu því Ólsen, Ólsen á sviðinu undir tónlist sinni.    Rokksveitin Mínus sigraði í Til- raununum árið 1999 með miklum yf- irburðum og var mikil gengisára í kringum sveitina og greinilega djúpt rokkbræðralag milli meðlima. Eftir undanúrslitakvöldið lentu Mín- us-liðar í ryskingum utan við Tóna- bæ með þeim afleiðingu að þáver- andi bassaleikari, Ívar, slasaðist á hendi. Á úrslitakvöldinu lék hann því í fatla sem út úr gægðust tveir fingur, nægilega margir svo að hægt væri að klára dæmið. Rokk og ról!    Síðasta undanúrslitakvöldið árið 1992 var um margt afdrifaríkt. Pönksveitin Niturbasar frá Djúpa- vogi lauk þá leik með því að eyði- leggja gítar með tilþrifum. Þessu undi tilraunarokksveitin Maunir ekki en hún var þá síðust á svið. Mætti hún því með gúrkur, egg og annað matarkyns upp á svið sem var brúkað í gjörningi miklum auk þess sem eitt stykki gítar var rústað. Fór svo að Maunir komst áfram í úrslit en afþakkaði hins vegar enda græj- urnar meira og minna ónothæfar eftir kvöldið.    Árið 1994 mættust eitt kvöldið tvær sveitir sem léku áþekka tónlist, en á gjörólíkum forsendum. Opus Dei lék glyskennt hetjuþungarokk af fúlustu alvöru á meðan Thunder- love lék glyskennt hetjuþungarokk af örgustu kaldhæðni. Opus Dei söng: „Opus Dei is madness/Opus Dei is gonna get you“ á meðan Thunderlove upplýsti áheyrendur um eftirfarandi speki: „There’s no Bitches in Heaven“. Svo óheppilega vildi til að Opus Dei fór á svið strax á eftir Thunderlove og segja sjón- arvottar að gneistað hafi á milli sveitanna.    Þannig bar til, skömmu eftir 1990, að þungarokksveitin Trassarnir lék á Tilraununum, einu sinni sem oftar. Hljómsveitin var að austan, nánar tiltekið frá Eiðum, og verður að telj- ast með áhrifaríkari sveitum Ís- landssögunnar því að mörg ár á eftir kom hver sveitin á fætur annarri að austan sem dró dám af tónlist Trass- anna og enn þann dag í dag er talað um „trassarokk“. Tónlist Trassanna varð epískari og lengri með hverju árinu og á þeim tíma sem hverri hljómsveit var gert að leika fjögur lög voru Trassarnir nánast farnir að leggja undir sig heilu kvöldstund- irnar. Eitt kvöldið vildi ekki betur til en svo að trymbill sveitarinnar sló í gegnum bassatrommuskinnið og má ætla að það kvöld hafi Trassarnir staðið uppi á sviði í eina og hálfa klukkustund. Fljótlega eftir þetta at- vik var farið að athuga hvort ekki þyrfti að setja einhverjar reglur um tímamörk í keppninni.    Góður árangur í Músíktilraunum felur ekki sjálfvirkt í sér gull og græna skóga. Því til sönnunar er við hæfi að rifja upp að hljómsveitin Svarthvítur draumur eða S.H. draumur tók þátt í fyrstu Tilraun- unum árið 1982 og það á fyrsta und- anúrslitakvöldinu. Fjórar sveitir kepptu og hafnaði S.H. draumur í þriðja sæti, á eftir Sokkabandinu og Reflex, og komst því ekki áfram. Hljómsveitin, með Gunnar Lárus Hjálmarsson (Dr. Gunna) í broddi fylkingar, átti síðar eftir að verða ein af helstu nýrokksveitum Íslands- sögunnar.    Önnur sveit að austan, Mosaeyðir, tók þátt 1998. Hljómsveitin var frá Höfn í Hornafirði og er innslag hennar að eilífu greypt í sögu Til- raunanna. Lokalag sveitarinnar, sem lék þungt rokk, var nefnilega um fimmtán mínútur að lengd og byggðist á síendurteknu „riffi“ á meðan söngvarinn rumdi yfir: „Ég hata Satan, ég fíla Satan, ég elska Satan“ og ýmis tilbrigði við þann kveðskap. Enn þann dag í dag er þessi snilld rifjuð upp þegar dóm- nefnd hittist ár hvert.    Óhljóðalistamaðurinn Auxpan vakti mikla eftirtekt þegar hann tók þátt árið 2000. Tónlistin var hávær óhljóðalist og vissu áhorfendur vart hvað átti að gera, sumir fóru úr sal en aðrir fylgdust agndofa með. Dómnefnd var klofin í afstöðu sinni og var mikið þrætt um það hvort drengurinn atarna væri snillingur eða hæfileikalaus fúskari. Fór svo að Auxpan fór í úrslit en í millitíðinni fór hann í viðtal upp í Morgunblað og notaði hann þá tækifærið og smalaði til sín nokkrum hljóðum úr prentsmiðjunni. Á tíma voru óhljóðin það há í úr- slitunum að hljóðmaður sá sig til- neyddan til að taka „toppinn“ af þeim, svo að fólk hlyti ekki skaða af.    Þó að rappsveitin Oblivion af Suð- urnesjum hafi ekki náð langt í Mús- íktilraunum þá átti hún hiklaust glæsilegustu innkomuna – og það í sándtékkið! Þetta var árið 1998 og sveitin fjölmenn, greinilega undir áhrifum frá Wu Tang klíkunni sem naut um þær mundir mikillar hylli. Í sándtékkið, eða hljóðprufuna, renndi svo hvít límúsína og út úr príluðu um níu kornungir piltar, all- ir í hettupeysum merktum Oblivion. Sannarlega mæting með stæl en leitt að það var enginn til að taka á móti þeim, utan nokkrir starfsmenn Tónabæjar og hljóðmenn. Tónlist | Músíktilraunir hefjast í kvöld Eftirminnilegar uppákomur úr sögu Tilraunanna Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Jón Eiríksson, söngvari Mosaeyðis, flytur lagið sem kom sveit hans á spjöld Músíktilraunasögunnar. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir. Það vantaði ekki taktana hjá Opus Dei og söngvarinn skart- ar hér forláta slopp! Sérblað um Músíktilraunir fylgir Morgunblaðinu í dag. Þar eru keppendur í ár m.a. kynntir til sög- unnar auk þess sem rætt er við fólk sem hefur sett mark sitt á Til- raunirnar gegnum tíðina. Músíktilraunir hefjast í kvöld og er þetta í 23. skipti sem þær eru haldnar. Arnar Eggert Thoroddsen rifjar af til- efninu upp nokkur ógleymanleg atvik úr sögu keppninnar. FYRIR áratug kútveltust bíógestir yfir fíflalátum Jims Carrey í The Mask, ódýrum og óvæntum smelli sem sótti vinsældirnar í ótæmandi sprellbrunn leikarans og brellur sem þá voru nýstárlegar. Það tekst hins vegar ekki að mjólka umtals- verðan hlátur úr framhaldinu enda enginn Carrey til staðar né frum- leg brögð. Í staðinn er mættur Jamie nokk- ur Kennedy, uppistandari sem var nýlega hérlendis. Vonandi hafa þeir sem sáu manninn á sviði fengið meira fyrir aurinn sinn en bíógestir því Kennedy er afskaplega ófynd- inn gamanleikari. Honum til vor- kunnar verður þó að geta einkar þunnildislegs handrits sem snýst um ólánsama handhafa grímunnar kröftugu. Sýningarrétthafar myndarinnar hafa lagt í umtalsverðan kostnað við að talsetja Grímuna 2 og óhætt er að mæla með henni fyrir minnstu börnin, einkum á óvita- aldrinum. Að öðru leyti er myndin lítið meira en tímasóun að und- anskildum Skotanum Alan Cumm- ing sem leikur Loka Óðinsson en Valhallarsjólinn er í höndum ill- þekkjanlegs Bobs Hoskins. Von- andi fær norræn goðafræði til- komumeiri meðhöndlun næst í Hollywood Jamie Kennedy er ófyndinn í Grímunni 2. Gleði- snautt afkvæmi KVIKMYNDIR Laugarásbíó, Smárabíó, Regn- boginn, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Lawrence Guterman. Aðalleik- endur:Jamie Kennedy, AlanCumming. Ís- lensk talsetning:Leikstjórn Jakob Þór Einarsson, þýðandi Davíð Þór Jónsson, hljóðupptaka og söngstjórn Friðrik Sturluson, leikarar: Björgvin Franz Gísla- son, Örn Árnason, Helgi Fannar, Baldur Trausti Hreinsson, Davíð Þór Jónsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir. 98 mín. Bandaríkin. 2005. Gríman 2: Sonur Grímunnar (Son of the Mask)  Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.